Morgunblaðið - 18.11.1967, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 18.11.1967, Qupperneq 26
26 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 18. NÓV. 1967 Valur tapaði 1 -5 í Ungverjalandi - í síðari leiknum í Evrópukeppni Yngstu meðlimir knattsipyrnudeildar F.H. í sumar ásamt þjálfara sínum, Ragnari Magnússyni ________ en 6. A. vann m.a. Septembermót Hafnarfjarðar. Mynd: Kr. Ben. Knattspyrnuæfingar FH hefjast á morgun f GÆR léku Valsmenn síðari leik sinn gegn ungverku meist- urunum Vasas Budapest. Ung- verjarnir unnu með 5 mörkum gegn 1. Mark Valsmanna skoraði Hermann Gunnarsson er 3 mín. voru til leiksloka. Evrópubikarinn: Benefica - St.Etienne 2-0 Lissabon, 17. nóv. (NTB-AP) PORTÚGALSKA meistaraliðið Benfiea sigraði frönsku meistar- ana St. Etienne með tveimur mörkum gegn engu. Mörkin skoruðu José Augusto á 28. mín- útu og Eusebio úr vítaspyrnu á 68. mín. Leikurinn var liður í bikar- keppni Evrópuliða, 2. umferð, fyrri leikur. Ungverjarnir höfðu nú sem fyrr yfirburði I knatttækni og gátu, að því er segir í frétta- skeyti til Mbl. gert næstum það er þeir vildu á vellinum. Vasas heldur nú í 8 liða keppnina með 11-1 sigur yfir íslandsmeisturun um. Fyrsta mark Vasas var skorað á 12. mín. leiksins og var Molnar innherji þar að verki. Tveim mínútum síðar skoraði Pal út- herji og 2 mín. fyrir hlé jók Mat- hesz forystu Vasas í 3-0. Er síðari hálfleikur hafði stað- ið í 10 mín. skoraði Varadi 4. mark Vasas og 7 mín. fyrir leiks- lok skoraði Kovacs hið fimmta. Hermann Gunnarsson skoraði mark Vals og var það skorað er 3 mín. voru til leiksloka. Evrópudraumur Vals er þar með búinn en Valur er eina ísl. liðið sem í knattspyrnu hefur komizt í 2. umferð keppninnar um Evrópubikarinn. Á MORGUN kl. 10 f.h. hefst vetrarstarfseani knattspyrnu- deildar Fimleikafélags Hafnar- fjarðar. Meistara — 2. fl. og 3. flokkur eru hvattir til að mæta til skrásetningar og hlaupaæf- inga við leikfimishús Lækjar- skólans á framangreindum tíma. Einnig eru drengir á aldrinum 11 til 14 beðnir um að mæta kl. 10 f.h. við leikfimishúsið, en æfingar þeirra munu fara fram við Lækjarskólann. — Allir þeir sem kvaddir eru til þessara æf- inga eru áminntir að mæta með æfingabúning, því eins og fyrr segir, er hér átt við úti-æfingar, en ekki inni-æfingar. — Afnot félagsins af leikfimishúsinu á framangreindum tíma eru að- eins bundin við búningsherberg- in og baðklefa hússins. Yngstu meðlimir deildarinnar, hinn nafntogaði 6. flokkur, eða drengir undir 10 ára, eru beðnir um að mæta í leikfimishúsinu til skrásetningar á morgun kl. 1 e.h., en þeir munu æfa inni í vetur undir stjórn Ragnars Magn ússonar. UH SÍÐUSTU heigi var leikjum unga fólksins haldið áfram eftir nokkurt hlé og er spennan um úrslitin engu minni en áður, þó aðeins sé farin að skýrst óviss- an, sam rikt hefur, en allt getur skeð ennþá. Annars var gangur leikja þessi: Víkingur — Ármann 10-5. II. fl. kv. Leikurinn var fremur rólegur og lítið um spennu og all ólíkur II. fl. leikjum kvenfól'ksins á síð- asta leikkvöldi. Ármann tók strax forystu og hélt henni út hálfleikinn, en þá stóð 4-2. í seinni hálfleik skoruðu bæði liðin strax eitt mark og var staðan 5-3, en þá breyta Víkings- stúlkurnar um varnaraðferð og spila vörnina mikið framar. Við þetta fengu Ármannsstúlkurnar ekki ráðið og skoruðu Víkings- stúlkurnar 7 mörk i röð og sigr- uðu glæsilega 10-5. Víkingur sigraði þennan leik óvænt og skemmtilega og þó þetta sama leikbragð hafi ekki heppnazt í síðasta ieik þeirra þá heppnaðist það sannarlega núna. Bezt í liðinu er Jónína, en hún skoraði 5 mörk þar af 4 úr hraðaupphlaupum eftir að hafa komizt inn í sendingu. Valgerð- ur í markinu átti mjög góðan leik. Ármannsstúlkurnar mega taka sig á, ef þær ætla að reyna að ná langt í vetur. Það getur vart talizt gott að liðið tapi svona illilega eftir góðan fyrri hálfleik, þrátt fyrir að mótherjarnir breyti um varnaraðferð. KR — Valur 6-4. II. fl. kv. Valur byrjaði að skora tvö Tvísýn úrslit h já þeim yngri jafnir og skemmtilegir leikir um helgina fyrstu mörkin, en KR komst síð- an yfir og var staðan 5-3 í hálf- leik. í síðari hálfleik skoruðu bæði liðin aðeins eitt mark hvort enda hafði harkan aukizt gífur- lega, því dómarinn var frámuna- lega lélegur og notuðu KR-stúlk- urnar sér það mun meira. Leikn- um lauk því 6-4. Þetta var fyrsti sigur KR- stúlknanna og voru þær vel að honum komnar. Þær léku hratt og nýttu tækifærin mun betur en voru þar af grófari. Rósa og Kolbrún voru beztar og skor- uðu 3 mörk hvor. Það var stór gall: hjá Valslið- inu, hvað þær spiluðu mikið á Sigríði, þótt hún sé lang bezt í liðinu og skoraði 2 fyrst mörkin, var hún tekin úr umferð og mátti liðið sín þá lítið á eftir og má segja, að því hafi farið sem fór. Valur — Ármann 10-7. I. fl. kv. Harka einkenndi þennan leik framan af og var nokkuð um stimpingar hjá kvenfólkinu og í hálfleik stóð 3-3. í seinni hálfleik færðist meiri harði í spilið og komu þá yfir- burðir Vals í ljós og komust þær fjögur mörk yfir en Ármanns- s'.úlkurnar gáfust samt ekki upp og veittu Val harða mótspyrnu, þótt ekki tækist þeim að jafna metin og lyktaði leiknum 10-7 fyrir Val. í Valsliðið vantaði Sigríði Sig- urðardóttur, en hún lék með í fyrsta leiknum, en hennar þátt í leiknum annaðist Vigdís og skoraði hún 5 mörk annars er liðíð í heild ágætt. Ármannsliðið hefur skánað mikið frá fyrsta leikn-um og spila all-skemmtilega fyrir f-ram an og flest skoruðu þær mörkin úr langskotum, en liðið gæti náð betri árangri, ef þær byggðu upp línuspil með. Fram — Víkingur 12-10. III. fl. karla. Fram byrjaði ' leikinn með miklum hraða og kyngikrafti og skoruðu þeir hvert markið af fætur öðru svo að Víkingur átti sáralitlum vörnum við komið og var staðan 8-3 í hálfleik. í síðari hálfleik auka svo Framarar forskotið í 7 mörk, en þá er það, að Víkingar taka við og með miklum harða tekst þeim að brjóta varnir Fram niður swo að ekki munaði nema einu marki rétt fyrh leikslok og var spenn- an þá orðin geysi mikil. En Fram tókst að tryggja sigurinn með Hinn ungi og anjalli IcikmaSur Fram, Stefán, skorar hér glæsi- lega. einu marki í viðtoót, 12-10. Framararnir eru mjög sterkir núna og nokkuð líklogir til sig- urs í mótinu. Þeir léku gull- fallega í fyrri hálfeik, en það var ljótt að sjá til þeirra í lok in. Langbezti maður liðsins þetta kvöld var Stefán, en hann skor- aði 4 stórglæsileg mörk, mark- hæstur var þó Guðmundur á línunni og skoraði hann öll hin mörkin 8 (3 víti). Sama er að segja um Víking. Þeir voru alveg á núlli í byrjun en tóku svo fjörkipp í lokin, sem nægði þó ekki til sigurs. Framhald á bls. 27. Jónína, Víking, hefur komizt í gegn, en Ármenningarnir verjast af hörku. Myndirnar tók Sv. Þorm.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.