Morgunblaðið - 18.11.1967, Síða 28

Morgunblaðið - 18.11.1967, Síða 28
IHJARTA BORGARINNAR ALMENNAR TRYGGINGARí LAUGARDAGUR 18. NÓVEMBER 1967. Við fökum upp haegri umferö 265.1968 Áherzla lögö á framkvæmdir barnagæzlu, og tómstundaiðju — í nýju hverfunum — eldri hverfi sitji að jafnaði í fyrirrúmi um vœntanlega gatnagerð, hitaveitu o.fl. A fundi borgarstjórnar í fyrradag, setti Styrmir Gunn arsson, borgarfulltrúi Sjálf- stæðisflokksins, fram þá meg instefnu borgarstjórnarmeiri hlutans í hagsmunamálum úthverfanna að lögð verði áhcrzla á framkvæmdir, sem snerta barnagæzlu, menntun og tómstundaiðju í nýju hverfunum, en hins vegar væri réttlátt, að eldri hverfi sitji í fyrirrúmi um fram- kvæmdir á sviði varanlegrar gatnagerðar, hitaveitulagnar o. s. frv., nema yfirgnæfandi hagkvæmniástæður leiði til annarrar niðurstöðu. Umræður um mál þessi spunnust vegna til'lögu frá borgarfulltrúum Alþýðubanda- lagsins, og hafði Jón Snorri Þor- leifsson (K) framsögu fyrir henni. Hann rakti mismunandi viðhorf við skipulag nýrra hverfa á ýmsum tímum, bæði hér og erlendis, en vék síðan að máflefnum úthverfanna nú og taldi að þótt undantekningar væru þar á, væri aðstaða til leikja yfirleitt engin. Barnaheim iii og aðra barnagæzlu vantaði, börn yrðu að leita langt til skóla og almennt aðstöðu og þjónustuleysi væri í nýju hverf- unum. Ræðumaður sagði að það hefði að minnsta kosti átt að létta undir með íbúunum að sækja þjónustu til annarra hverfa, t.d. með strætisvagna- ferðum, en því hefði ekki verið að heilsa í Árbæjarhverfi fram að þessu. Styrmir Gunnairsson (S) setti í upphafi fram það meginsjón- armið, sem lýst er hér í upp- hafi, en rakti síðan framkvæmd- ir á sviði barnagæzlu og mennt unar eða fyrirhugaðar fram- kvæmdir á þessum sviðurn í hin um nýju hverfum. í Árbæjar- hverfi voru í haust teknar í notk un 6 skólastofur í hinum nýja Ne skaupstað, 17. nóv. HAFBJÖRG HF. i Neskaup- stað keypti nýlega norska línu- veiðarann Geesina á strandstað í Sandvík. Geesina strandaði þar seinni partinn í sumar og var með 1100 tunnur af kryddsíld. Mannbjörg varð. Hefur enginn viljað við málið eiga þar til Haf- björg hf. keypti skipið fyrir hálf um mánuði. Fjórir menn hafa Árbæjarskóla, og auk þess hef- ur skólinn afnot af húsnæði, sem í framtíðinni verður leik- skóli. Hugsanlegt er, að þessi leikskóli verði tekinn í notkun ti’ þeirra þarfa í sumar, en hverfið er ekki nægilega stórt til að bera dagheimili enn sem komð er. í hverfinu eru ein- hverjir fullkomnustu leikvellir í borginni, gæzluvöllur, spark- völlur og opið leiksvæði. Varð- andi Breið'hoitshverfi sagði ræðu maður, að lokið hefði verið við teikningar af Breiðholtsskóla og unnið að útboðslýsingu og stefnt að því að byggingar hefjist á næsta ári og nægilegt skólahús- næði verði fyrir hendi árið 1969. BarnaheimiQa- og leik- vallanefnd hefur lagt til við borgarráð að fresta byggingu leikskóla við Brekkugerði, en hefja í þess stað byggingu leik- skóla í Breiðbolti, þar sem leik- skólinn við Háagerði í nágrenni Brekkugerðis er ekki fullsetinn. Ennfremur, hefur nefndin lagt Frámhald á bls. 27 síðan unnið að því að bjarga síldinni úr Geesina og hafa þeir náð 200 tunnum til þessa. Mjög erfitt er um vik við björgunina, en aðalvandamálið verður þó að koma síldinni til Neskaupstaðar, því hana verður að flytja sjó- leiðina og er ógerningur að skipa henni um borð í bát í Sandvík, nema blæjalogn sé og stilltur sjór. Sýnishorn af síldinni í Gees- ina hefur verið rannsakað og reyndist hún ágæt vara. Skipið sjálft er ekki illa farið, en sand- ur hefur komizt í káetu og lest. Vélarrúmið er þurrt. Ekki hafa eigendur skipsins enn ákveðið, hvort þeir freista þess að bjarga því af strandstað, en Geesina er 200 lestir að stærð. — Frétta- ritari. Laumufarþegi með Gullfossi Bjarga síld úr Geesina á strandstað XVÍTUGUR Ástralíumaður kom til íslands sem laumufarþegi með Gullfossi í siðustu ferð skipsins. Tókst honum að kom- ast í land og hafði útlendinga- eftirlitið upp á honum í gisti- heimili Hjálpræðishersins. Það kom í ljós, að maðurinn var peningalaus og hingað kom- inn í atvinnuleit, en hann kvaðst hafa ferðazt mikið að undan- förnu sem laumufarþegi. Hann var svo sendur til Englands með flugvél á fimmtudag. Maðurinn kom um borð í Gullfoss í Leith og tókst honum að fara huldu höfðu á sigling- unni. Þegar skipið kom til Reykjavíkur laumaðist hann í land með öðrum farþegum og kom sér fýrir í gistiheimili Hjálpræðishersins. Þar höfðu starfsmenn Útlendingaeftirlits- ins upp á honum. Það vakti grun þeirra, að enginn komu- stimpill var á vegabréfi manns- ins og þegar hann var spurður, hvernig á því stæði, kvaðst hann hafa verið sofandi meðan tollgæzlan afgreiddi farþegana. í ljós kom, að Eimskipafélagið kannaðist ekkert við að hafa flutt mann þennan til landsins og játaði hann þá, að hafa kom- ið sem laumufarþegi. Sagðist hann hafa ferðazt mikið um heiminn þannig og væri ætlun sín að fá vinnu hér, en hann var peningalaus með öllu. Þar sem maðurinn hafði sniðgengið íslenzk lög með því að laumast inn í landið var hann sendur utan með flugvél og borgaði Eimskipafélagið far- gjaldið, svo sem venjan er í svona málum. 13 hundruð H-merki JAFNFRAMT því sem Vega- gerð ríkisins færði umferðar- merkin hefur hún séð um að setja niður staura meðfram þjóðvegum, en í fyrstu vik- unni eftir H-daginn verða sett svokölluð H-merki á þessa staura. Eru þetta sexhyrnd merki og ætluð til þess að minna vegfarendur á hægri umferð. Þessi merki verða um 13 hundruð talsins og er ætl- unin að þau standi til fyrsta vetrardags árið 1969. Allt við það sama í farmannadeilunni ALLT situr við sama í farmanna deilunni. Nýr sáttafundur hefur ekki verið boðaður og engar nýj ar undanþágur til olíuflutninga voru veittar í gær. Að sögn Ing- ólfs Stefánssonar hjá Farmanna- sambandinu hafa því borizt und- anþágubeiðnir frá ísafirði og Bíldudal, auk þeirra, sem þegar hafa verið veittar, en allt a'ð átta daga birgðir munu fyrir hendi á þeim stöðum og hefur því sam- bandið ekki séð ástæðu til að verða við þessum beiðnum. Litlafell losaði í gær olíu á Austfjarðahöfnum, en undanþág ur voru veittar til nokkurra staða þar. Alls hafa fjórtán skip stöðvazt í Reykjavíkurhöfn vegna verkfallsins, og er ekki von á neinu flutningaskipi til borgarinnar í dag. Bragi Steinarsson, fulltrúi saksóknara, (t.v.) og Benedikt Blöndal hrl. skipaður verjandi brezka skipstjórans, bera saman togvírsenda af vörpunni og annan vírendann, sem tekinn var af togvindu Lord Tedders á Seyðisfirði. (Ljósm. Mbl. Ól. K. M.) Framhaldsrannsókn í máli skipstjórans — d Lord Tedder hafin FRAMHALDSRANNSÓKN í máli brezka skipstjórans á Lord Tedder hófst fyrir siakadómi Reykjavíkur í gær. Voru dómkvaddir tveir kunn- áttum'enn um botnvörpuveiðar: Nikulás Jónsson og Steinþór Árnason, til að láta uppi álit sitt á vörpunni, sem Óðinn 'kom með til Reykjavíkur í fyrradag. í gær unnu þeir að því að greiða úr vörpunni. Aðallega verða það endar vir- anna, sem koma til með að vera sterkustu sönnunargögnin, því hlerarnir eru ómerktir. Rann- sakað verður hversu margir fín- ir þættir eru í hverjum þætti vír- anna og hvort þeir standast á, þegar endarnir eru bornir sam- an. Þá verður einnig rannsakað með hverjum hætti vírarnir hafa farið sundur. í gær voru teknar í sakadómi skýrslur af varðskipsmönnum um fund vörpunnar. Ólafur Þor- lákss'On, sakadómari, stjórnar framhaldsrannsókninni, en dóm- inn skipa auk hans skipstjórarnir Halldór Ingimarsson og Karl Magnússon. -----»-*-•----- Umferðarslys FULLORÐIN kona slasaðist á höfði, þegar hún varð fyrir bíl á móts við hús númer 73 við Snorrabraut í fyrrakvöld. Slysið varð með þeim hætti, að konan var á leið austur yfir götuna, þegar bíll, sem var á suð- urleið, kom aðvífandi og lenti á henni. Konan mun hafa orðið fyrir vinstri framhluta bilsins og kast- ast upp á vélarhlífina, en fallið þaðan í götuna. Hún hlaut á- verka á höfði og var flutt í Landakotsspítala, þar sem hún liggur enn. Flóttamaðurinn til V-Þýzkalands AUSTUR-ÞÝZKA flóttamannin- um Bernt Kapahnke, sem strauk af skipi sínu í Neskaupstað var í gær veitt tímabundið dvalar- leyfi á íslandi. Þar sem hann óskaði eftir því, að komast í samband við starfsmenn vestur- þýzka sendiráðsins hér á landi var hann fluttur í sendiráðið, þar sem hann dvaldist þangað til í morgun, en þá var ráðgert að hann færi til Vestur-Þýzka- lands með flugvél. Vinnuveitendasamband íslnnds boðnr til rdðstefnu vegno snmþykktnr ASÍ FRAMKVÆMDASTJÓRN Vinnu veitendasamband íslands hefur ákveðið að boða til ráðstefnu til að ræða hin nýju viðhorf, sem skapazt hafa végna samþykktar Alþýðusamabnds íslands, 14. þ.m., þar sem hvatt er til alls- herjarverkfalls í landinu 1. des- emfoer n.k. Til fundarins verða boðaðir þeir, sem sæti eiga í aðalstjórn Vinnuveitendasamibandsins, en hún er skipuð 38 mönnum, og auk þess stjórnir allxa deilda saim.bandsins, sem eru 18 talsins, þar af 10 utan Reykjavíkur. Fundurinn verður haldinn þriðj'udaginn 21. þ.m. kl. 2 e.h. í Átthagasal Hótel Sögu,

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.