Morgunblaðið - 19.11.1967, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 19.11.1967, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. NÓV. 1967 —HUGRÚN SKRIFAR Framhald af bls. 7 „Ég hefi ekki komist hjá því að sinna störfum, sem að ein- hverju leyti heyra ur.dir borgara iega skyldu og auðvitað misjafn- lega geðfeld, og sum ef til vill þannig að þau urðu ekki til þess að auka manni vinsældir eða virðingu, eins og til dæmis stefnuvotta- og skattanefndar- störf“. „Að þú skulir segja þetta, jafn vinsæll maður og þú hefir alla tíð verið“. „>að hefir nú gengið svona uipp og niður. >að er aldrei hægt að gera svo ölium líki. En ég held að mér sé óhætt að segja, að ég hafi ekki haft neitt vilj- andi að neinum. Ég hefi þótt gamaldags í verzlunarháttum og samskiptum mínum við náung- ann, — hefi víst aldrei öðlazt skilning á þessum „sálrænu fjáröflunarleiðum", sem Halldór Laxness kallar, en varð Jeggvan að fótakefli, þegar hann ætlaði að krækja í nó'belsverðlaunin". „H’vernig var það, áttir þú ekki fyrsta bílinn, sem kom til Dalvíkur?" „Jú, það er rétt. Mér þykir þú vera minnug, kannski er það af því að Gísli bróðir þinn var bílstjóri hjá mér. >eta var Ford vörubíll, keyptur 1908. >á var vegurinn til Akureyrar ekki fullgerður, og ekki heldur brúin á ána fyrir neðan Árgerði. Fyrsta verkefnið, sem ég fékk var að keyra efni í brúna. Fyrsta ferð- in, sem farin var á bílnum til Akureyrar, var heldur söguleg. >að þótti vissara að hafa nokk- uð marga farþega, vegna þess að búast mátti við því að það þyrfti nokkurn mannskap til þess að ýta á eftir bílnum, því víða var yfir kargaþýfi móa og mýrardrög að fara. Allt gekk þó slysalaust, og ánægjuleg var ferðin þrátt fyrir hindranirnar". „>að má segja að þú hafir marga hildi háð um ævina“. „>ví get ég ekki neitað“. „Svo hefir þú starfað mikið að félagsmálum á Dalvík“. „Já, það hefi ég gert. Ég hefi verið með að stofna félög með mörgum ágætismönnum. Við Snorri Sigfússon og >órarinn Kr. Éldjárn stofnuðum til dæmis Ungmennafélag Svarfdæla árið 1900, og þar var ég virkur félagi uim 30 ára skeið, og á meðan ég var nokkurs ráðandi, reyndi ég að vinna að velgengni þess og virðingu. En merkasti þátturinn í félagslífinu var og er leiklistar- starfsemin. Ég hefi fylgt þessu eftir aðallega á bak við tjöldin, frá fyrstu tíð og fram til þessa dags. Við höfum tekdð mörg merk og góð verk til meðferðar. Frá 1911—1945 var Ungmenna- félagið Svarfdæla eitt um þessa starfsemi, en eftir það í sam- vinnu við Leikfélag Dalvíkur, og minnist ég þess ekki í rúm- lega hálfa öld, að leiksýningar hafi með öllu fallið niður. Af stærri verkum get ég nefnt Fjalla-Eyvind, Lénharð fógeta, Kinnarhvolssystur, Jósafat, drengurinn minn o.fl. Lengi vel hafði ég gaman af þessu starfi, þótt tímafrekt væri, og margar skemmtilegar minningar á ég frá þessum tíma. Mér er óhætt að segja, að þetta hafi verið blóm- legt starf, mikill áhugi og marg- ir góðir leikarar“. ^fSIMCA SIMCA 1000 LE Áætlað verð aðeins um kr. 157.000.— óþörf. & SIMCA „Svo hefir þú látið til þin taka í skólamálum". „J-á, ég hefi verið formaður sóknarnefndar og á síðastliðnu vori var ég búinn að veTa sam- fleytt í 40 ár í kjörstjórn Dal- víkurhrepps, og í sambandi við það starf minnist ég miargra skemmtilegra og skoplegra at- vika, þótt ekki skuli út í það farið hér. — Ég hefi ekki hatft af miklu að státa, enda etftir- tekjan lítil, og liggja til þess ýmsar ástæður, eins og fjárhags- leg óhöpp og fleira. Er þetta nú ekki orðið nóg til þess að seðja forvitni þína?“ „Nóg og ekki nóg, ég veit að þú átt margt ósagt sem fengux væri í að fá að heyra, en ég þakka þér kærlega fyrir þetta, Sigurður. Mér finnst að það sem þú hefir sagt mér sé mjög for- vitnilegt og girnilegt til fróð- leiks. Vonandi átt þú eftir að skrifa ævisögu þína, og þá fær maður meira að heyra. Hún ætti að skipa veglegan og virðulgg- an ses9 í hillum bókasafn® hreppsins. — Mér finnst í raun og veru þú og kauptúnið svo samigróin að ekki verður á milli skilið, Ég vona að þú eigir enn eftir að prýða staðinn uim margra ára skeið. Enn hefir elli kerling ekki yfirhöndina í við- skiptunum við þig, þótt glett- in geti hún verið og óvœgin á stundum". Ég kveð Sigurð í skini kvöld- sólarinnar. Svarfaðardalur og Hríseyjan eru böðuð í gullnum bjarma hennar. Særmn er speg- il sléttur, — þð bærist ekki hár á höfði. Fjallahringurinn er hinn sami og fyrrum. En upp af rústum torfbæjanna hafa risið upp myndarleg hús af steini, og nú sjást ekki þúfur í túnum. Stóllinn, konungur eyfirzkra fjalla, ber enn sem fyrr svip tignar og valds, en Múlinn hefir verið sigraður af mannviti og orku. >vílíkt framtak að leggja veg fyrir þennan erfiða útvörð kauptúnsins og sveitarinnar. >að er eins og að sigra heilan óvina- her. >að þyrfti einhver Guð- mundur góði að kveða þarna nið- ur allar hættur af hruni og öðru með heitri bænagjörð. Nú er hægt að fara á nokkrum mínút- um á milli Dalvíkur og Ólafs- fjarðar. Ótrúlegt en satt. Mér verður hugsað til þess sem einu sinni var, ég sé fyrir mér lítið þorp, sem langar að verða stórt, og það hefir vaxið úr grasi. Nú er Dalvíkin með feguxstu kaup- túnum landsins, en kóróna þess er nýja kirkjan nieð lýsandi krossinum, frelsistákni mann- kynsins. Tokíó, 12. nóv., AP. Óttast er að alls hafi 28 jap- anskir sjómenn farizt, er þrír fiskibátar sukku í ofsaveðri und- an ströndum Japans. Sjö menn björguðust af bátunum. i ti i r i i ii 11 l ii i ■ i i i i i iii 1111111 i i i.i ii ^2>nllctt LEIKFIMI JAZZ-BALLETT Frá DANSKIN Búningar Sokkabuxur Netbuxur Dansbelti Margir litir -á: Allar itærðir Frá GAMBA Æfingaskór Svartir, bleikir, hvítir Táskór Ballet-töskur Sfl// ettíúJ in £• ERZIUMIM KmuaaaBH SlMI 1-30-76 M' Mlll i l i■:!:t i;:i!-|"r-| 1111111111111111

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.