Morgunblaðið - 19.11.1967, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 19.11.1967, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. NÓV. 1967 TIL HEIMA ER BEZT, Pósthólf 558, Akureyri Ég undirrit óska að gerast áskrifandi að tímaritinu HEIMA ER BEZT. □ Sendið mér blaðið frá síðustu áramótum. □ Sendið mér blaðið frá naestu áramótum. Nafn Heimili A ER BEZT? — vegna þess að það er staðreynd að „Heima er b ezt" er eitt af lang útbreiddustu og vinsœlustu tímaritum hérlendis, vegna þess að }fieima er bezt“ flytur þjóðlegt, fróðlegt og skemmtilegt efni fyrir alla fjölskylduna og vegna þess að við efnisval er reynt að sneiða hjá þvi efni og áhrifum, sem margir telja til lýta eða jafnvel skaða i islenzku þjóðlifi á vorum dögum} og ekki sizt vegna þess að hverri áskrift að }}Heima er bezt“ fylgja veruleg fjárhagsleg hlunnindi. Og hvað kostar þá þetta útbreidda tímarit? „Heima er bezt" fæst ekki í lausasölu, það er eingöngu fyrir áskrifendur, og verðið er ótrúlega lágt, aðeins 250 kr. árgangurinn. Fyrir þessa smávægilegu fjárupp- hæð fáið þér sent heim að minnsta kosti 86 siðu hefti i hverjum mánuði. Það er að segja 12 hefti á ári með um það bil 500 stórum lesmálssíðum af þjóðlegu, fróð- legu og skemmtilegu lesefni. Það er ódýrt, þvf „Heima er bezt" birtir aldrei neinar venjulegar verzlunaraug- lýsingarj Hverjir skrifa í „Heima er bezt" og um hvað skrifa þeir? Á síðum „Heima er bezt" munuð þér finna ritgeröir, frásagnir, ljóð, endurminningar, skáldsögur o. m. fl. eftir marga þjóðkunna höfunda og fólk úr öllum stétt- um þjóðfélagsins, lesefni sem er varanlegt að verðleik- um, fróðlegt, skemmtilegt og umfram allt, þjóðlegt, lesefni sem öll fjölskyldan mun hafa óblandna ánægju af að lesa bæði núna og siðar meir. Þér munuð finna framhaldssögur eftir kunna rithöfunda, já, stundum uppgötvum við nýjan rithöfund, sem okkur finnst ástæða til að kynna fyrir ykkur, og þá birtum við ef til vill smásögu eða framhaldssögu eftir hann. í hverju hefti munuð þér finna sérstakan þátt fyrir yngri lesendurna, þátt með nýjustu fslenzku dægurlaga- textunum og myndasögu. í hverju hefti er sérstök myndskreytt grein um einhvem góðan íslending, sem skarað hefir fram úr á einu eða öðm sviði, eða verið athafnamaður eða kona í sínu byggðarlagi. Þegar hafa á annað hundrað íslendingar verið kynntir á þennan hátt í blaðinu. Öll eru heftin ríkulega myndskreytt, og f mörgum þeirra munuð þér finna spennandi verðlaunagetraunir bæði fyrir yngri lesendurna og þá fullorðnu, með mörg- um glæsilegum verðlaunum. Leiðarar ritstjórans, Steindórs Steindórssonar frá Hlöð- um, sem birtast í hverju blaði, hafa vakið þjóðar at- hygli, en auk þess viðar ritstjórinn stöðugt að sér efni úr öllum áttum, sem er liklegt til að verða áskrifendum bæði til fróðleiks og skemmtunar. Og hvaSa hlunnindi eru því samfara að gerast áskrifandi að „Heima er bezt"? í fyrsta lagi fá allir nýir áskrifendur að velja sér góða bók algjörlega ókeypis, og þeir öðlast réttindi til að taka þátt f hinum spennandi verðlaunagetraunum „Heima er bezt“. Þar að auki fá þeir árlega senda stóra og myndarlega, litprentaða bókaskrá með á þriðja hundrað bókatitlum, sem þeim er heimilt að velja ur og panta eftir því sem þá lystir á verði sem er um það bil 30% lægra en bókhlöðuverð bókanna. Hér munuð þér rekast á bækur um ótal efni, skáldsögur, smásögur, endurminningar, handbækur, ljóðabækur, barnabækur og margt fleira. Ennfremur standa yður til boða falleg- ar bókahillur úr ffnasta viði, en á mjög hagstæðu verði, bókahillur sem myndu prýða heimili yðar og sem hægt er að auka við í það endalausa, eftir því sem þörf kref- ur og veggpláss leyfir. „Heima er bezt" hefur nú verið gefiö út 1 17 ár og á því láni að fagna að hafa að bakhjarli margar þúsundir ánægðra áskrifenda, og fjöldi þeirra fer stöðugt vaxandi. Þér ættuð að hugleiða hvort ekki væri skynsamlegt að slást í þennan stóra áskrifendahóp, og eignast þar með gott og þjóðlegt íslenzkt tímarit við vægu gjaldi, sem þér fengjuð sent heim til yðar í hverjum mánuði. Útfyllið þess vegna strax í dag áskriftarseðilinn hér fyrir neðan og sendið hann til „Heima er bezt", pósthólf 558, Akureyri, og þá mun nafn yðar umsvifalaust verða fiært inn á áskrifendaspaldskrána og yður mun verða sent blaðið mánaðarlega, en þá muniö þér um leið öðlast rétt til að njóta þeirra hlunninda sem eru þvf samfara að vera áskrifandi að „Heima er bezt". HEIMA ER BEZT — þjóðlegt heimilisrit fyrir nágranna yðar, og fyrir yður. rifandi Gardínu- búðin Eldhús- glugga tjalda efni köflótt röndótt einlit mynstruð Tilbúin eldhúsgl. tjöld nýjar gerðir Plastpífur á hillur potta- lappavettl ingar plastdúkar Baðmottu- sett baðhengi pífur fyrir baðherb. glugga Rúmteppi rúmteppa- efni Gardínubúðin Ingólfsstræti

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.