Morgunblaðið - 19.11.1967, Page 16
16
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 19. NÓV. 1967
TIL HEIMA ER BEZT, Pósthólf 558, Akureyri
Ég undirrit óska að gerast áskrifandi að tímaritinu HEIMA ER BEZT.
□ Sendið mér blaðið frá síðustu áramótum. □ Sendið mér blaðið frá naestu áramótum.
Nafn
Heimili
A ER BEZT?
— vegna þess að það er staðreynd að „Heima er b ezt" er eitt af lang útbreiddustu og vinsœlustu
tímaritum hérlendis, vegna þess að }fieima er bezt“ flytur þjóðlegt, fróðlegt og skemmtilegt efni
fyrir alla fjölskylduna og vegna þess að við efnisval er reynt að sneiða hjá þvi efni og áhrifum,
sem margir telja til lýta eða jafnvel skaða i islenzku þjóðlifi á vorum dögum} og ekki sizt vegna
þess að hverri áskrift að }}Heima er bezt“ fylgja veruleg fjárhagsleg hlunnindi.
Og hvað kostar þá þetta útbreidda tímarit?
„Heima er bezt" fæst ekki í lausasölu, það er eingöngu
fyrir áskrifendur, og verðið er ótrúlega lágt, aðeins
250 kr. árgangurinn. Fyrir þessa smávægilegu fjárupp-
hæð fáið þér sent heim að minnsta kosti 86 siðu hefti
i hverjum mánuði. Það er að segja 12 hefti á ári með
um það bil 500 stórum lesmálssíðum af þjóðlegu, fróð-
legu og skemmtilegu lesefni. Það er ódýrt, þvf „Heima
er bezt" birtir aldrei neinar venjulegar verzlunaraug-
lýsingarj
Hverjir skrifa í „Heima er bezt" og um hvað skrifa þeir?
Á síðum „Heima er bezt" munuð þér finna ritgeröir,
frásagnir, ljóð, endurminningar, skáldsögur o. m. fl.
eftir marga þjóðkunna höfunda og fólk úr öllum stétt-
um þjóðfélagsins, lesefni sem er varanlegt að verðleik-
um, fróðlegt, skemmtilegt og umfram allt, þjóðlegt,
lesefni sem öll fjölskyldan mun hafa óblandna ánægju
af að lesa bæði núna og siðar meir. Þér munuð finna
framhaldssögur eftir kunna rithöfunda, já, stundum
uppgötvum við nýjan rithöfund, sem okkur finnst
ástæða til að kynna fyrir ykkur, og þá birtum við ef til
vill smásögu eða framhaldssögu eftir hann.
í hverju hefti munuð þér finna sérstakan þátt fyrir
yngri lesendurna, þátt með nýjustu fslenzku dægurlaga-
textunum og myndasögu. í hverju hefti er sérstök
myndskreytt grein um einhvem góðan íslending, sem
skarað hefir fram úr á einu eða öðm sviði, eða verið
athafnamaður eða kona í sínu byggðarlagi. Þegar hafa
á annað hundrað íslendingar verið kynntir á þennan
hátt í blaðinu.
Öll eru heftin ríkulega myndskreytt, og f mörgum
þeirra munuð þér finna spennandi verðlaunagetraunir
bæði fyrir yngri lesendurna og þá fullorðnu, með mörg-
um glæsilegum verðlaunum.
Leiðarar ritstjórans, Steindórs Steindórssonar frá Hlöð-
um, sem birtast í hverju blaði, hafa vakið þjóðar at-
hygli, en auk þess viðar ritstjórinn stöðugt að sér efni
úr öllum áttum, sem er liklegt til að verða áskrifendum
bæði til fróðleiks og skemmtunar.
Og hvaSa hlunnindi eru því samfara að gerast áskrifandi að
„Heima er bezt"?
í fyrsta lagi fá allir nýir áskrifendur að velja sér góða
bók algjörlega ókeypis, og þeir öðlast réttindi til að
taka þátt f hinum spennandi verðlaunagetraunum
„Heima er bezt“. Þar að auki fá þeir árlega senda stóra
og myndarlega, litprentaða bókaskrá með á þriðja
hundrað bókatitlum, sem þeim er heimilt að velja ur
og panta eftir því sem þá lystir á verði sem er um það
bil 30% lægra en bókhlöðuverð bókanna. Hér munuð
þér rekast á bækur um ótal efni, skáldsögur, smásögur,
endurminningar, handbækur, ljóðabækur, barnabækur
og margt fleira. Ennfremur standa yður til boða falleg-
ar bókahillur úr ffnasta viði, en á mjög hagstæðu verði,
bókahillur sem myndu prýða heimili yðar og sem hægt
er að auka við í það endalausa, eftir því sem þörf kref-
ur og veggpláss leyfir.
„Heima er bezt" hefur nú verið gefiö út 1 17 ár og á því láni að fagna að hafa að bakhjarli margar þúsundir
ánægðra áskrifenda, og fjöldi þeirra fer stöðugt vaxandi. Þér ættuð að hugleiða hvort ekki væri skynsamlegt að
slást í þennan stóra áskrifendahóp, og eignast þar með gott og þjóðlegt íslenzkt tímarit við vægu gjaldi, sem þér
fengjuð sent heim til yðar í hverjum mánuði. Útfyllið þess vegna strax í dag áskriftarseðilinn hér fyrir neðan og
sendið hann til „Heima er bezt", pósthólf 558, Akureyri, og þá mun nafn yðar umsvifalaust verða fiært inn á
áskrifendaspaldskrána og yður mun verða sent blaðið mánaðarlega, en þá muniö þér um leið öðlast rétt til að
njóta þeirra hlunninda sem eru þvf samfara að vera áskrifandi að „Heima er bezt".
HEIMA ER BEZT
— þjóðlegt heimilisrit fyrir nágranna yðar, og fyrir yður.
rifandi
Gardínu-
búðin
Eldhús-
glugga
tjalda efni
köflótt
röndótt
einlit
mynstruð
Tilbúin
eldhúsgl.
tjöld nýjar
gerðir
Plastpífur
á hillur
potta-
lappavettl
ingar
plastdúkar
Baðmottu-
sett
baðhengi
pífur fyrir
baðherb.
glugga
Rúmteppi
rúmteppa-
efni
Gardínubúðin
Ingólfsstræti