Morgunblaðið - 08.12.1967, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 08.12.1967, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 8. DES. 1987 Ströng rafmagnsskömmt- un á Laxársvæðinu Klakastífla raskar daglegu lífi manna á Akureyri og víðar Akureyri, 7. desember. KRAPASTÍFLA í Laxá brast í gærkvöld og fyllti vélar orku- versins, svo að þær stöðvuðust og síðan hefur orkuvinnsla þar verið mjög stopul og stundum engin, svo að grípa hefur þurft til mjög róttækrar rafmagns- skömmtunar á öllu orkuveitu- svæðinu, sem tekur yfir Eyja- fjarðarsýslu, Akureyri og meg- inhluta Suður-Þingeyjarsýslu. Þetta hefur valdið miklum erf- iðleikum, bæði í þéttbýli og til sveita og torveldað atvinnu- rekstur og heimilisstörf. Rafnmagnsleysið kemur sér sérlega illa vegna hörku tíðar- farsins, en hér hefur verið í dag norðaustan stormur með 12 stiga frosti. Um kl. 23.30 í gærkvöldi brast mikil klakastífla, sem undan- farna daga hefur verið að mynd ast við Halldórsstaði í Laxárdal. Feikimikið magn af ís og krapi fyllti inntakslón orkuversins við Laxá, aðrennslispípur og vélar. Bráðlega tókst þó að koma vél- um gömlu stöðvarinnnar í gang með litlum afköstum þó, og að viðbsettri orku dísilstöðvarinnar á Akureeyri höfðu náðst rúm- lega 10.000 kw orka um kl. 08 í morgun. Þetta nægði veitu svæðinu sæmilega, en um kl. 08.30 fyllti allar vélar á ný, svo að aftur varð rafmagnslaust. Ástandið fór þó batnandi, þeg ar kom fram á daginn, en kl. 15.45 fylltust vélarnar enn af ís og krapi og þá varð gjörsam- lega rafmagnslaust í rúman hálftíma. Síðan hefur verið hægt að halda áætlaðri skömmt un og um kl. 20.30 í kvöld var orkuvinnslan orðin heldur meiri, en þurfti handa helmingi orkuveitusvæðisins. Samkv. upplýsingum Knúts Otterstedt, rafveitustjóra á Ak- ureyri, veldur ísinn og krapið, sem safnazt hefur í inntakslón ið mestum erfiðleikum. Hvenær sem er getur komið afturkipp- ur, en hins vegar standa meiri vonir til þess, að orkan verði heldur meiri á morgun heldur en hún hefur verið í dag. Hámarksálag fyrir hádegi und anfarna daga hefur verið 13.000 til 14.000 kw, en meðalálag heldur lægra. Munar þó ekki miklu. í kvöld var orkan kom- in upp í 9000 kw með 4000 kw framleiðslu dísilstöðvarinnar á Akureyri. Hámarksframleiðslu- geta er 16.000 kilówött. Rafmagnsskömmtuninni í dag hefur verið hagað þannig, að helmingur orkuveitusvæðisins hefur haft rafmagn fjórar stund ir í senn, en verið rafmagns- laust aðrar fjórar stundir. — Lengst af hefur verið unnt að Mestu flöð í 60 ár Bœir í Olfusinu umflofnir, bœndur flytja mjólk á sleðum og bátum ÖLFUSÁ flæddi yfir bakka sína um síðustu helgri, og er vatns- magnið svo mikið, að margir bæ ir voru umflotnir, og fólkið kró- að inni í nokkra daga, þannig að ekki var hægt að koma sér frá eða sækja afurðir. Börn kom- ust ekki í skóla, og vatnið var sumsstaðar svo djúpt, að ekki sá á girðingarstaura. Ekki hafa þó orðið verulegar skemmdir í flóð unum, og vatn ekki komizt í hús. Morgunblaðið hringdi aust- ur í gær, og talaði við fólk á nokkrum bæjum: Markúsína Jónsdóttir, Egils- stöðum, ölfusi: — Þetta er nú heldur að skána síðan frostið kom, en v;ð lokuðumst alveg inni á sunnu- daginn. Nú er ísinn orðinn vel mannlheldur þannig, að við get- um flutt mjólkina á sleða. Bær- inn var alveg umflotinn svo að við komumst ekkert frá fyrstu dagana, en hann stendur það hátt að vatnið náði ekki alveg upp að honum. Við höfðum að- eins einu sinni getað flutt mjólk í vikunni, en það ætti að vera í lagi úr þessu, þar til aftur hián ar, þá er hætt við að sæki í sama horf. Þorbjörg Hallmundardóttir, Króki í ölfusi: — Það er allt búið að vera á floti hér síðan á sunnudg, er vatnið hefur þó ekki náð upp að bænum. Það eru fjórir bæir hér með tiltölulega stuttu millibili, og gengt á milii þeirra, en svo eru Egilsstaðir alveg emangrað- ir. Það var ekki hægt að fara með mjólk á mánudag, en á þriðju- dag tókst að selflytja hana á sleð um og bátum, og þá hjálpuðust allir við það. Nú er vatnið lagt og ísinn mannheldur svo að hægt er að flytja, að og frá á sleðum, en það eru sama vara- samar vakir víða. Hér eru sex böm sem ekki hafa getað sót*. skóla alla vikuna, það er enn- þá dimmt á morgnana þegar þam þurfa að leggja af stað, og ekki þorandi að senda þau út á ísinn. — Hafa orðið einhverjar skemmdir á túnum eða girðírg- um? — Það er ekki gott að segja fyrr en þau koma undan vatni. Girðingarnar eru víða á bólakafi svo að ekki sér í staurana, og nú er ís yfir öllu saman. Það er því líklegt að þær falli niður strax og fer að hlána, ef þær eru ekki þegar famar. — Það hefur nú áður komið fyrir að þið lengið í flóöum þarna, finnst þér þau vera meiri en venjulega núna? — Já, þau eru mun meiri. Maðurinn minn 'hefur búið hér í ein sextíu ár og hann segist aldrei hafa séð önnur eins ósköp. Eyþór Einarsson, Kaldaðar- nesi: — Þetta er nú í fjórða skipti sem ég lokast hér inni, og hef þó efeki búið hér nema í ein fimm ár. Flóðin er þó óvenju- mikil núna, og framan af var ógerlegt að komast neitt frá bæn um. Nú er ísinn orðinn það traustur, að ég get flutt mjólk- ina eftir honum, og vegurinn er líka kominn upp úr þannig, að þetta fer allt að lagast. Það er lítið gagn að bát hérna hjá mér, það er yfirleitt of grunnt, en þó eru álar sumsstaðar, sem era nokkuð djúpir. Þetta verður allt í lagi meðan frostið helzt, en tf hann gerir asahláku er haett við að það verði blautt í Öífusinu. halda þessar skömmtunaráætl- un og mun svo verða, þar til ástandið batnar, en hvenær það verður er engin leið að sjá fyrir. Rafmagnsleysið hefur valdið miklum óþægindum. Margir vinnnustaðir hafa verið lítt eða ekki starfhæfir og daglegt líf manna hefur gengið úr skorð- um að verulegu leyti. í þeim húsum, sem kynt eru með raf- magni, eða olíukyndingu, sem gengur fyrir rafmagni, hefur kuldi ásótt ibúaana og ljósleys- ið verið til mikils baga. Menn hafa dregið fram kerti og olíu- lampa og prímusar og önnur suðutæki frá sumarferðalögum hafa komið í góðar þarfir. Þá hafa orðið verulegar símatrufl- anir vegna rafmagnsskorts. — Rafmagnsleysið hefur verið sér staklega bagalegt í sjúkrahús- um og öðrum þeim stöðum, þar sem starfsemi er sérstaklega háð rafmagni. — Sv. P. Leikfélag Kópavogs sýnir um þessar mundir gamanleikinn „Sex- umar“, eftir Marc Comoletti. Aðsókn hefur verið ágæt að leikn- um. Myndin er af Birni Magnússyni og Auði Jónsdóttur í hlut- verkum sinum. Næsta sýning leiksins er í kvöld í Kópavogsbíói. Skortur á heitu vatni á ekki eftir að endurtaka sig í vetur segir Jóhannes Zoega hitaveitustjóri MBL. hafði í gær samband við Jóhannes Zoega hitaveitustjóra og innti hann eftir því, hvers vegna vatnsskorturinn í borg- inni væri bundinn við gamla bæinn og hvort svo yrði til fram- búðar. Honum fórust svo orð: — Gamli bærinn er eiginlega á sérstöku kerfi, sem er tengt beint við Öskjuihlíðargeymana. Hann er því algjörlega hóður vatnsmagninu, sem í þá kemur. Það, sem gerðiist i þessu kulda- kasti, var, að %amtímis fór vax- andi þörf á neitu vatni og of lítil up^hitun frá varastöð. Af þeim eökium fór minna af Reykjavíkurvatninu yfir í geym- ana og þar með á gamla svæðið en ella. — Til þess að ráða bót á þessu hefur mi verið byggð kyndistöð í Árbæ með tveirn kötlum og verður fyrri ketillinn tekinn í notkun annað kvöld og sá síðari á sunruudaginn samkvæimt áætl- un. — Ef ekkent bregður út af, geri ég ráð fyrir, að verulega dragi úr vatnsskortinum þegar í fyrri hluta næsbu viku og að fulínustu verði ráðin bót á honum, eftir að nýju borholu- dælurnar verða teknar í notkun, sem ætti að verða í liok næstu viku. — Hitaveitan hér er miðuð við 6 stiga meðalfrost, sem þýðir það, að við getum þolað raoifckra daga af 10 stiga frosti, þegar allt er í lagi, sem ekki er enn þá, eins og ég hef áður lýst. Það er þar, sem geymarnir grípa inn í og geira okkur kleift að fullnægja hitaþörfinni í nokkurra daga kuidakasti, þótit meðalhitinn fari niður fyrir 6 stig. Ef þeir hefðu ekki verið í lagi, hefðum við orðið vatnslaus meira eða minna allt frá því í seinni hluita októ- ber. —- Það kemur ákaflega sjaldan fyrir, að meðalhitinin sé neðan við 6 stig nema örfáa daga í einu. Ef þeim aðgerðum hefði verið lokið, sem nú er að ljúka og lokid verður við í næstu viku, hefði ekki komið til neins vatns- skorts núna. Fram að þessu hefði kuldakastið með öðnuirn orðuim ekki truflað okkur að nieinu leyti. En eins og ég tók fram í borgarráði s.L vetur, máttum við búast við slíkium truflunuim, þótt minna yrði um þær en s.l. vetur. Gerði ég þó ráð fyrir, að varastöðin yrði í lagi, en við böfum ekki haft neima annan Blikur mikið skemmdur — Óvíst hvar viðgerð fer fram — Herðubreið tekur við flutningum ÓLÍKLEGT er talið, að færeyska strandferðaskipið Blikur fari í fleiri ferðir fyrir jól, og ekki hef- ur verið tekin ákvörðun um hvar viðgerðin fer fram. Skipið fór í gærkvöldi frá Húsavík áleiðis til Akureyrar, en þar munu skemmd ir kannaðar nánar, að því er fréttaritari Mbl. á Húsavik tjáði blaðinu. í fylgd með skipinu er vitaskipið Árvakur. Guðjón Teits son, forstjóri Skipaútgerðar ríkis- ins, sagði Morgunbiaðinu i gær, að skýrsla um skemmdimar hefði ekki bprizt enn, en ljóst væri að skrokkur skipsins væri mikið skemmdur og að viðgerð gæti tekið nokkuð langan tíma. Hann sagði tafir, 9em af þessu yrðu vera mjög bagalegar, á Norðiir nct Austurlandí væri mik ið af varningi, sem skipið hefði átt að taka til Reykjavíkur, m.a. mikill fjöldi bíla. Blikur var væntanlegur til Akureyrar í gærkvöldi, og á Herðubreið að fara þangað og taka við flutn- ingunum eftir því sem hægt er, en Blikur var m.a. með um 40 tonn af vörum til Hornafjarðar. Herðubreiðin er mun minna skip en Blikur og því hætta á að ýmis legt verði útundan, minnsta kosti margir bílanna. Guðjón sagði, að enn væri ekki vitað hvert skipið færi til viðgerðar, eigendur skips- ins, Útgerðarfélag Færeyja, myndi taka ákvörðun um það í samráði við tryggingafélag sitt Mögulegt er að viðgerðin verði boðin út, og þá væntanlega bæði í Færeyjum og á íslandi. kietilinn hingað biil og þó ekki allan. Hmn ketillinn hefur verið bilaður, en kamur í lag nú uim miðjan mánuðinn. — í fyrra kom oftar til skoirts á heiitu vatni en nú. Og ég hygg, að þá hafi einnig komið fyrir, að vatnsskorturinn hafði verið svipaður og nú. En eftir að þess- um aðgerðum, sem ég hef nú lýst, er lokið, á það ekki að end- urtaka sig í vetur. Svipað veður BÚIST er við að norðaustlæg átt og frost verði um allt land fram undir helgi, að minns'a kosti, og veðrið verði því svip- að og það var í gæp, nema kannski eitthvað kyrrara. í dag var búist við bjartviðri á Suð- ur- og Vesturlandi, en éljum norðaustantil. Frost verður ]ik- lega frá 8 stigum upp í 12-14 stig. _ _____ Leiðrétting f GREIN Benedikts Bogasonar, verkfræðings um Menntaimál í Finnlandi, sem birtist í Morgun- blaðinu 6. desember sl., koim fyrir prentvilla, sem valdið gæti leiðinleguim misskilningL Stóð þar, að talið væri óæskilegt, að menntaskóla finnskir „feldn" meira en 300 neimendur en átti að sjálfsögðu að vera „teldu“. Lýst eftir ökumanni ÖKUMAÐUR, sem ók sex mnnaa amerískum fóllksbíl aftan á Volks wagen við Hótel Skjaidbreið á níunda tímanum sl. miðvikudags kvöld, er vinsamlegast beðinn að gefa sig fram við rannsóknar- lögregluna. Ökumaður Volks- wagenbílsins hafði numið stað- ar fyrir umferðinni, þegar óhappið varð. Báðir öfcumennr- irnir abhuguðu bílinn og sáu þá ekkert athugavert, en við nánari athugun kom í ljós að höggvarinn á Volkswagenbílnuim hafði gengið inn og dælað vél- arhlífina. AUGLYSIHGAR SÍMI SS*4*8Q

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.