Morgunblaðið - 08.12.1967, Blaðsíða 32
FÖSTUDAGUR 8. DESEMBER 1967.
Bombí
Bitt
bók fyrir
tápmikla
stráka
------- ■ --------- . -----
Ljóti ondar-
unginn d
Tjornmni
í ÆFINTÝRI H. C. Ander-
sen um Ljóta andarungann
segir frá því er unginn fraus
við ís og gamall og góðhjart-
aður maður barg (honum
m>eð Jrví að höggva hann upp.
Reykvíkingar, sem leið áttu
hjá Tjörninni í gær sáu svip-
, . aðan atburð gerast þar. Þar
voru tvær tjarnarálftanna
frosnar við ísinn og lögreg.-
an gegndi þar hiutverki
gamla mannsins.
Álftirnar höfðu í frost-
hörkunum frosið fastar við
ísinn. Þær voru á vakarskör-
inni fyrir framan Búnaðar-
félagsíhúsið og þótti lögregi-
unni ekki fært að nálgast þær
á ísnum. Var því vaðið út að
álftunum og tókst lögreglunni
að losa aðra, en hin sleit sig
iausa af hræðsiu, er björgun-
armennirnir nálguðust.
í 'hitteðíyrra kom fyrir
svipaður atburður. Þá barg
lögreglumaður frosinni álft á
sama stað. Síðan var hún flutt
á lögreglustöðina, þar sem
hún jafnaði sig unz hún varð
fær í flestan sjó á ný.
Jeppabifreiðin, þar sem hún lá eftir slysið í Gilsárgili í Skriðdal. (Ljósm.: Hraínkell Kárason).
Slysið í Gilsárgili:
Erfitt var að ná fóikinu upp
úr klakabrynjuðu gilinu
Siglfirðingar
leita prests
Siglufirði, 7. desember
ALLVIÐTÆKAR undirskriftar-
safnanir eiga sér stað hér á Siglu
firði og er tilgangurinn að óska
eftir því við sóknarnefnd Siglu
fjarðar, að hún nái sambandi
við séra Kristján Róbertsson,
einn af þeim, sem sóttu um Hall
grímsprestakal], og er nú stadd
ur í Kanada, og fari fram á það
að hann sæki um Siglufjarðar-
prestakall. Kristján var prestur
hér fyrir 13-14 árum.
Undirskriftarsöfnun þessi
gengur mjög vel og sýnir það,
að almenningur óskar eindregið
eftir komu hans. — Steingrímur
AÐALFUNDI LÍÚ var haldið
áfram í gær. Fundurinn hófst
kl. 14. Kl. 15 ávarpaði sjávar-
útvegsanálaráðherra, Eggert G.
Þorsteinsson, fulltrúa.
Fundinum verður haldið
áfram í dag.
PILTARNIR tveir sean létust í
bílslysinu við Gilsá, voru Víðir
Ágústsson, 20 ára, Hlöðum í
Fellahreppi, og Jónatan Clausen,
15 ára, frá Egilsstöðum. Tveir fé-
lagar þeirra, Þorgeir Bergsson
og Einar Valur Einarsson, frá
Egilsstöðum, liggja stórslasaðir
í sjúkrahúsinu á Neskaupstað og
Landsspítalanum í Reykjavík.
Fimmti pilturinn og þrjár stúlk-
ur sem einnig voru í jeppanum,
sluppu lítið meidd.
Ekki er enn fullkunnugt um
orsakir slyssins, sem varð kl.
24,12 aðfararnótt miðvikudags.
Farartækið var nýlegur Rússa-
jeppi með blæju. Hann fór út af
veginum einn e'ða tvo metra frá
brúarstólpanum, fór fram af
gilbarminum og valt á hægri
hlið. Þannig rann hann svo tutt-
ugu metra niður í ána, og braut
undan sér íslag sem á henni
var. Hægra framhornið var und-
ir vatni og náði það upp á
miðja framrúðu, en afturhlutinn
var á þurru að mestu leyti.
Piltarnir, sem létust, sátu báð-
ir aftur í jeppanum, Ihægra meg
in. Þar sat einnig Þorsteinn Jök-
ull Vilhjálmsson, en hann slapp
svotii ómeiddur. Vinstra megin
sátu tvær stúlkur, Kristín Jóns-
dóttir og Þorgerður Fossdal, og
sluppu þær einnig svotil ómeidd-
ar. Við hlið ökumannsiiís sat
Bergljót Bergsdóttir. Viðbeins-
brotnaði hún og marðist.
Þorgerður fór þegar út úr bíln-
um, klifraði upp gilið og hljóp
niður að Grímsárvirkjun til þess
að sækja hjálp. Það tók hana um
hálítima að komast þangað, og
var þá brugðið skjótt við, hringt
í lækni og björgunarsveitin á Eg-
ilsstöðum var kölluð út. Á meðan
hafði Þorsteinn Jökull komizt út
úr bílnum, og þegar hafizt handa
við að losa hin. Tókst honum að
ná félögum sínum öllum og
draga þá á þurrt, en talfð er að
þeir Viðir og Jónatan hafi þá
þegar verið látnir.
Þorsteinn og Kristín klifu svo
upp úr gilinu og lögðu af stað
niður að virkjun eftir að hafa
hlúð að hinum sem bezt þau
gátu.
Var Þorsteinn þá nokkuð þrek-
aður, þvi að það hafði verið erf-
itt að losa piltana fjóra úr bíln-
Framhald á bls. 3.
Aöalstöövar S.U.N.
verði á Siglufirði
18% hækkun á hitaveitugjöldum
— Annar ketill nýju kyndistöðvarinnar
tekinn í notkun í kvöld — Hinn á sunnudag
— Hœkkun hitaveitugjalda óumflýjanleg ~
til að bœta þjónustuna
Frumvarp þingmanna allra flokka
Á FUNDI borgarstjórnar í
gær kom til umræSu tillaga
um hækkun á gjaldskrá
Hitaveitunnar um 18%. Borg-
arstjóri, Geir Hallgrímsson,
sagði í ræðu, að þessi hækk-
un á hitaveitugjöldum væri
nauðsynleg til þess að Hita-
veitan gæti staðið við skuld-
hindingar sínar og sinnt nauð
synlegum framkvæmdum.
Borgarstjóri sagði enn-
fremur: „Það er Ijóst að erf-
itt er að leggja til hækkun á
hitaveitugjöldum á sama
tíma og mörg heimili eiga
við neyðarástand að búa
vegna skorts á heitu vatni.
Þótt skýringar kunni að vera
til á því ástandi gagna þær
ekki íbúum þeirra hverfa,
sem þannig er ástatt um. Mér
hefur verið tjáð, að 20 giga-
kaloríur vanti til þess að
nægilegur varmi sé fyrir
hendi. Annar ketill nýju
kyndistöðvarinnar í Arbæ
verður tekin í notkun á morg
un (föstudagskvöld) og veit-
ir hann 15 gigakaloríu varma.
Hinn ketillinn, sem er jafn-
stór verður tekinn í notkun á
sunnudagskvöld. Er þá von
til að nægilegt hitamagn
verði fyrir hendi“
í ræðu sinni sagði borgarstjóri
að stjórn Veitustofnana hefði ein
róma fallizt á fjárhagsáætlun
Hitaveitunnar, sem byggð er á
18% hækkun gjaldskrárinnar.
Þessi hækkun er m.a. nauðsynleg
til þess að hægt sé að standa við
þá skuldbindingu gagnvart Al-
þjóðabankanum vegna lána hans
til Hitaveituframkvæmda að
Hitaveitan skili 7% arði en þetta
skilyrði er sett til þess að tryggt
sé að lántakandinn geti staðið
skil á afborgunum. En jafn-
vel þótt þetta skilyrði væri ekki
Framlhald á bls. 3.
í GÆR var lagt fram á Alþingi
frumvarp um breytingu á lög-
um um síldarútvegsnefnd og er
efni þess, að heimtli síldarútvegs
nefndar, vamarþing og aðal-
skrif.stofu skuli vera á Siglufirði.
Alþingismenn úr öllum stjórn-
málaflokkunum standa að flntn
ingi frumvarpsins, þeir Jón Þor
steinsson, Björn Jónsson, Ólafur
Jóhannesson og Jónas G. Rafn-
ar.
f greinar.gerð frumvarpsms
kemur m.a. fram, að sú ákvörð-
un síldarútvegsnefndar, að flytja
aðalstöðvar sínar til Reykjavík-
ur muni mælast mjög illa fyrir
á Norðurlandi og þung rök mæii
gegn þeirri fyrirætlan. Flutning
ur aðalskrifstotfunnar frá Siglu-
firði byggist ekki á neinni sér-
stakri nauðsyn, eða nýjum við-
horfum. Með frumvarpd þessu
væri lagt til að lögtfesta heímili
og varnarþing nefndarinnar á
Siglufirði, og jafnframt fella nið
ur úr gildandi lögum ákvæði um
breytilegan samastað nefndar-
innar, eftir síldargöngum, enda
hafi því ákvæði lítt verið fram-
fyigt.
Þá er í greinargerðinni rakjn
ályktun fundar Fjórðungsráðs
Norðlendinga er haldinn var að
Hólum í Hjaltadal 19. ág. si. Þar
segir:
„Fundur í Fjórðungsráði Norð
lendinga, haldinn að Hólum í
Hjaltadal, laugardaginn 19.
ágúst 1967, mótmælir harðlega
samþykkt SÚN um flutning á
aðalskrifstofu SÚN úr Norðlend
ingafjórðungi til Reykjavíkur,
sem fundurinn telur að gangi í
berhögg við Tlgang og markmið
stjórnarvalda varðandi Norður-
landsáætlun og gefin heit hana
varðandi.
í stað þess að styrkja og efla
Framhald á 'bls. 3.
S
DAGAR |
TIL JÖLA |
K