Morgunblaðið - 20.12.1967, Blaðsíða 1
32 SIÐUR
Að loknum fundi ráðherranefndar EBE í Brussel;
Viðræöur ekki teknar upp
við Bretland að svo stöddu
— Kfrezka stjórnin dregtir
ekki umsókn sína til baka
Biúasel, 19. desember. NTB.
Á FUNDI ráðherra Efnahags-
bandalagsríkjanna í dag kom þaff
greinilega í ljós, aff ekki verður
um neinar samningaviðræffur að
ræða milli bandalagsins og þeirra
fjögurra ríkja, sem sótt hafa um
inngöngu, þ.e.a.s. Bretlands,
Danmörku, Noregs og írlands.
Spurningin var bara sú, hvaða
form yrði haft á neituninni,
sögðu þátttakendur á ráffherra-
fundinum í hléi, sem varff á vSS-
ræðum þeirra síðdegis í dag.
Utanríkisráðherra Vestur
Þýzkalands, Willy Brandt, sagði,
er hann for út fundarsalnum, að
ráðherrarnir myndu semja skrif-
legt svar við beiðni umsóknar-
ríkjanna. Á fundi þeirra fyrr í
dag, vísaði Frakkland hiugmynd-
inni um að hefja samningavið-
Toppfundur í Ástralíu
um ástandið í Vietnam
— Minningarathöfn um Harold Holt
forsœtisráðherra á föstudag
Canberra, Ástralíu, 19. des.
(AP-NTB).
JOHN McEwen, sem gegnt
hefur embætti vara forsætis-
ráðherra Ástralíu undanfarin
tíu ár, sór í dag embættiseið
sem forsætisráðherra lands-
ins. Tekur hann við embætti
af Harold Holt, sem óttazt
er að hafi drukknað s.l. sunnu
dag.
Minningarathöfn um Holt
fer fram í Melbourne á föstu-
dag, og eru væntanlegir þang
að þjóðarleiðtogar víða að,
þeirra á meðal Johnson
Bandaríkjaforseti, Nguyen
Van Thieu forseti Suður-
Vietnam, Ferdinand Marcos
forseti Filipseyja, Thanom
Kittikachom forsætisráð-
herra Thailands, og ef til vill
Harold Wilson forsætisráð-
herra Bretlands.
Búizt er við að eftir minning-
arathöfnina muni leiðtogar
Fjármálaráðherra á Alþingi í gœr:
230-250 millj. kr. varið
til tollalækkana
— 50 millj. kr. varið til niðurgreiðslu
á mjólk — tilfœrsla fjölskyldubóta
eða persónufrádráttur í athugun
ViS 3. umræðu fjárlaga í
gær hélt Magnús Jónsson,
fjármálaráðherra, ræðu og
kom m.a. fram í henni, að
af hálfu ríkisstjórnarinnar og
stuðningsflokka hennar væri
nú unnið að ráðstöfunum til
að vinna gegn þeim erfiðleik-
um, sem gengisbreytingin
skapar.
' Aðalatriðið væri tollabreyt-
ingar, og stæðu vonir til að
ræður á bug, en hin rikin kröfð-
ust þess, að haft yrði þegar í
stað sam.band við þau ríki, sem
sótt hefðu um inngöngu.
Brandt sagði á fundinuim, að
stækkun Efnahagsbandaiagsins
mynidi fraimvegiis verða á da.giskrá
þess, enda þótt ekki ríkti sam-
koimulaig' um það í ráðherra-
nefndinni, sem taldi, að það yrði
að senda svar um „þessa bráða-
bii gðaafgreislu" til ríkiisstjórna v
Bretlands, Noregs, Danmerkur
og írlands og einnig til Svíþjóð-
ar, sem farið hafði fram á ein-
hvers konar aukaaðild að banda-
laginu.
Brandt skírskotaði til 5. gr.
Rómarsáttimálans, þar sem segir,
að ekkert ríki bandalagisins megi
gera neitt það, sem geti skapað
hættu fyrir markmið sáittmálains.
Stækkun bandalagsins væri edn-
mitt eitt, aí markmiðum sáttenál-
ams. Harimaði Brandt, að franski
utanríkiisráherrann væri a.nnarr-
Framh. á bls. 24
þeirra ríkja, sem hafa herlið í
Suður-Vietnam, halda „topp-
fund“ í Melbourne um ástandið
í Vietnam.
Hinn nýi forssetisráðherra
Ástralíu er formaður bænda-
flokksins þar í landi og hefui
um þrjátíu ára skeið átt sæti í
áströlsku ríkisstjórninni. Búizt er
við að hann láti af embætti 9.
janúar n. k., því þá koma leið-
togar Frjálslynda flokksins, at-
kvæðamesta flokks landsins,
saman til að útnefna nýjan
flokksleiðtoga í stað Holts, og
er tali'ð fullvist að þeir muni þá
um leið ákveða að einhver úr
þeirra hópi, væntanlega nýi
flokksleiðtoginn, taki við emb-
ætti forsætisráðherra.
Óftast um líf
Washkanskys
Höfðaborg, Suður-Afríku,
19. des. (AP-NTB).
HEILSU Louis Washkan-
skys, þess sem skipt var
um hjarta í fyrir rúmum
hálfum mánuði, hrakaði
mjög aðfaranótt þriðju-
dags, og sögðu læknar á
þriðjudagsmorgun, að sjúk
lingurinn væri í mikilli
lífshættu. Ástæðan var sú
að hvítu blóðkornunum
hafði mjög fækkað um
nóttina.
Búizt hafði verið við ein-
hverjum neikvæðum við-
brögðum líkama Washkanskys
við nýja hjartanu, en ekki
er talið að hér sé um þau að
ræða. Frekar er álitið að þetta
séu viðbrögð líkamans við
eigin líffærum Washkanskys,
sennilega lungum. Washkan-
sky fékk snert af lungnabólgu
í gær, og er fækkun hvítu
Framh. á bls. 24
hægt væri að verja til henn-
ar 230—250 millj. kr., og gæti
það haft mikilvæga þýðingu
til þess að lækka vöruverð.
Þá hefði, í annan stað verið
ákveðið að greiða niður þá
verðhækkun sem yrði á
mjólk, og hlyti að koma til
miðað við gengisbreytinguna.
Væri annar hluti þeirra hækk
ana að koma til nú, en hinn
hlutinn mundi koma til fram-
kvæmda upp úr næstu ára-
mótum. Væri æthinin að
Framh. á hls. 31
Eins og skýrt var frá hér í blaðinu í gær, er óttazt að forsætis-
ráðherra Ástralíu, Harold Holt, hafi drukknað á sunnudag, þegar
hann var að synda við ströndina hjá Portsea, fyrir sunnan Mel-
bourne. Þessi mynd var tekin af Holt í janúar i fyrra þegar hann
var aff leggja til sunds frá þessari sömu strönd.