Morgunblaðið - 20.12.1967, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 20.12.1967, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. DES. 1967 13 Gjafavörur, jólaskraut Nóatúni í STUTTU IVIÁLI Moskvu, 18. des. SOVÉZKA leynilögreglan KGB, sagði í d»g, að hún hefði árum saman fóðrað lieyniþjónustur Bretlands og Banda rí'kjanna á fölskum upplýsingum uim her- styrk og einkanlega kafbátaflota Rússa. Nefndi KGB nöfn þriggja bandarískra njósnara, sem starf að 'hafa hjá sovézku leynilþjónust unni og þeirri bandarísku í senn. Viljum ráða vanan inann í kjötafgreiðslu nú þegar. Upplýsingar í sima 16633. KJÖT & GRÆNMETI. Út er komift þriftja bindi HEIMDRAGA og flytur eins og fyrri bindin tvö íslenzkan fróftleik, gamlan og nýjan, eftir ýmsa höfunda víðsvegar af landinu. Albert Sölva- son ritar ýtarlegan þátt um Drangey og Drangeyjar- ferftir, sem fjallar m.a. um veiðiskap, eggjatöku og ör- nefni í Drangey. Finnur Sigmundsson ritar þáttinn Hýddur Gvendur í Koti og birtir auk þess gamalt og skemmtilegt ljóðabréf ásamt greinargerð um höfund þess. Hólmgeir Þorsteinsson ritar þátt um Grím græð- ara, og Eiður Guðmundsson frá Þúfnavöllum segir frá Hillna-Gunnu. Sr. Jón Skagan rekur minningar um Þjófa-Lása, Halldór Kristjánsson á Kirkjubóli ritar um snjóflóftið í Skálavík 1910 og fólkið, sem þar kom við sögu. Jóhann Hjaltason á hér frásagnirnar Hjá Möngul'ossi og Sjúkdómslýsing. Þóra S. Guðmunds- dóttir frá Unaðsdal, Sigtryggur Friðfinnsson og Jón N. Jónasson segja frá dulrænum atburðum. Rósberg G. Snædal ritar þáttinn Hefndi Solveig í þriðja lið? Sigurbjörn Benediktsson segir frá endalokum byggð- ar í Fjörðum. Kristinn P. Briem rekur æskuminning- ar sínar frá Vatnsleysuströnd. Og enn er ótalið gam- alt og sérkennilegt ævintýri, Sagan af fallegu jóm- frúnni og fátæka stúdentinum, sem Jónas Jónasson frá Hofdölum skráði eftir Þóru Sigurðardóttur prófasts- frú í Miklabæ, en hún lézt árið 1914. — Má af þess- ari upptalningu ráða, að í þessu bindi HEIMDRAGA er fjölbreytt efni og girnilegt til fróðleiks, ekki síður en í fyrri bindunum tveimur. IÐUNN Skeggjagötu 1. Símar 12923 og 19156. IÐUNN Fyrsta bók á íslenzku eftir frægan metsöluhöfund HAMMQND INNES er skozkur að ætt, en fæddur í Eng- landi árið 1913. Hann er háskólamenntaður og hóf starf sem blaðamaður í London með fjármál að sérgrein. Fyrsta bók hans kom út 1936. Hann var í loftvarnasveit- unum í London, þegar loftárásir á borgina stóðu sem hæst, en skrifaði jafnframt af mesta kappi, og hann hafði ekki gegnt herþjónustu í heilt ár, þegar fyrsta metsölubók hans kom út. Hann er nú löngu heimsfrægur höfundur. Bækur hans koma út á flestum tungumálum og eru hvarvetna metsölubækur í sérflokki. Hann er afar vandvirkur og nákvæmur höfundur, kynnir sér t. d. ávallt mjög rækilega umhverfið, þar sem sögur hans gerast, og sviðsetur þær síðan áf þeirri nákvæmni og vandvirkni, sem naumast á sinn líka. Sögur hans eru þess vegna engan veginh ýfirborðslegar æsifrásagnjr, því að þótt þær séu afar spennandi, eru þær raunsannar og höfða til þeirra, er bókmenntir kunna að meta. Ofsi Atlantshafsins SAGA þessi er lögð í munn listamanni, en hún er þó miklu fremur saga hermannsins, bróður hans, sem er falið það hlutverk að stýra brottflutningi herdeildar frá af- skekktri eyju undan vesturströnd Skotlands. Ýmis atvik og ekki sízt ægivald sjálfra höf- uðskepnanna leiða til mikils harmleiks, sem verður harla afdrifaríkur fyrir stjórnand- ann. í stórbrotnum lokaþætti bókarinnar hittast bræðurnir augliti til auglitis á eyju feðra sinna. Og þár fæst fyrst ráðin gátan um for- tíð hermannsins og harmsögulegt leyndar- mál hans. Sýnir_ sú máttuga og eftirminni- lega frásögn bezt, hvílíkur snillingur heldu'r hér á penna. — Lesendum skal bent á það, að sogur Hammond Innes fara gjarnan fremur hægt af stað, en óvénjulegt áhrifa- vald þeirra og spenna ná áður en varir helj- artökum á lesandanum. IÐUNN Skeggjagötu 1. Simar 12923 og 19156. 1 IÐUNN Skeggrjagötu 1 • Reykjavík • Símar 129 23 og 19156 H LA'D B U jD HILDA OG FÓSTUR- BÖRNIN FIMM Þriðja bókin um Hiidu frá Hóli og skjólstæð- inga hennar eftir Martha Sandwall-Berg- ström. Hildubækurnar eru einhverjar hug- þekkustu og skemmti- legustu telpnabækur, sem völ er á. —170.00. DULARFULLU SPORIN Ný bók um fimmmenn- ingana og Snata eftir Blyton. Enn á ný tekst þeim félögum að upp- lýsa dularfullt mál I samkeppni við Gunnar karlinn lögregluþjón, sem er ærið öfundsjúk- ur eins og fyrri daginn. Kr. 170.00. BALDINTÁTA- Qþzqash tdpan íáólarnm BALDINTÁTA — ÓÞÆGASTA TELPAN í SKÓLANUM Fyrsta bók af þremur um Baldintátu og fél- aga hennar eftir Bly- ton, höfund Ævintýra- bókanna. Bækur þess- ar segja frá viðburða- r'íkri dvöl I heimavist- arskóla. — Kr. 150.00. MARTA OG AMMA OG AMMA OG MAJTI Þetta er þriðja bókin eftir Anne Cath-Vestly um pabba og mömmu, börnin átta og ömmu þeirrá. Leitun er á jafn- góðum og skemmtileg- um bókum handa yngri börnunum og þessum. Kr. 160.00. FIMM f STRAND- ÞJÓFALEIT Ný bók um félagana fimm og ævintýri þeirra eftir Blyton. Sagan er spennandi og viðburða- rík, enda ekki annars að vænta, þegar höf- undur Ævintýrabók- anna á hlut að máli. — Kr. 170.00. yr~ **.......- * ^ STADFASTUH STRAKUR STAÐFASTUR STRÁKUR Mjög skemmtileg og þroskavænleg bók handa 7—10 ára drengjum eftir Kormák Sigurðsson. Bók þessi var á markaði fyrir all- mörgum árum og naut þá mikilla vinsælda. — Kr. 110.00. VÍSNABÚKIN = Hin sígilda bók þeirra dr. | Símonar Jóh. Ágústssonar I og Haltdórs Péturssonar. Dr. | Símon valdi vísurnar ágæta- | vel og Halldór skreytti bók- | ina með mjög skemmtileg- | um myndum. Þessa bók á i sérhvert barn að eignast. —• í Kr. 120.00. JÚLAVÍSUR | Vísurnar, sem sungnar eru 1 við jölatréð. Ragnar Jóhann- | esson orti vísurnar, Halldór | Pétursson teiknaði myndirn- | ar. Litlu börnin verða að | eignast Jólavísur. — | Kr. 35.00. ( ANNA I GRÆNUHUÐ ! Bækurnar um Önnu f | | Grænuhlið eru fjórar að töiu i | og eru allar komnar út. Úr- = | valsbækur handa telpum og | | unglingsstúlkum. 1 Kr. 120.00—160.00. ^ riiiiiim i ii 11111 ii IIII ii iii i ii 111111111111 n i iii iiii 4IIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIIUIIII

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.