Morgunblaðið - 20.12.1967, Blaðsíða 25
MORGUNBLAÐK), MIÐVIKUDAGUR 20. DES. 1967
25
Verzlimin Hraunver. (Ljósm.: Mbl. R. M.)
Ný kjörbúð
í Hafnarfirði
NÝ kjörbúS var opnuð að Álfa-
skeiði 115 í Hafnarfirði fyrir
skömmu. Hún heitir Hraunver,
og eigendur eru Guðmundur
Óskarsson, byggingaverkfræð-
ingur, Gísli Jónsson og Þor-
steinn Guðbergsson, sem verður
verzlunarstjóri. Á fundi með
fréttamönnum sagði Guðmund-
ur, að framkvæmdir við bygg-
ingu verzlunarhúsnæðis hefðu
hafizt fyrir um einu og hálfu ári
og nú væri búið að taka í notk-
un 500 fermetra húsrými.
Þetta er þó aðeins byrjun á
uppbyggingu lítils verzlunar-
hlverfis, eða þjónustumiðstöðvar
því að á næstunni munu rísa við
hlið Hraunvers ýmis nauðsynleg
þjónustufyrirtæki. I Hraunveri
verður lögð áherzla á að hafa
til sölu allar nauðsynlegar ný-
lenduvörur, svo sem kjöt, mjólk.
fisk og brauð. Því miður, sagði
Guðmundur, höfum við ekki get
að fengið strax ýmsar nauð
synjavörur, vegna óvissu í tolla
málum. en vonandl rætist úr því
fljótlega. Gert er ráð fyrir að
kvöld- og helgarsala verði í
Hraunveri, sem er eina nýlendu
vöruverzlunin þarna á nokkuð
stóru svæði. Húsasmíðamelstari
við byggingu Hraunvers var
Óla.fur Pálsson, en múrarameist-
I ari Guðni Steingrímsson.
Sveitastúlkurnar
KOMIN er út hjá Prentsmiðju
Jóns Helgasonar bókin „Sveita-
stúlkurnar" eftir írsku skáldkon
una. Ednu Ojgrien. Þetta er
fyrsta skáldsáfa höfundar og
vakti þegar óskipta ahygli er
hún kom fyrst út árið !963, er
Edna var 21 árs.
Bókin segir frá Caithleen
Brady, írskri sveitastúlku, sem
er bæði rauðhærð og græneyg
eins og vera ber og frá vinkonu
hennar, Böbu, dóttur dýralækn-
isins í þorpinu, greinir fr'á upp-
vexti þeirra og fyrstu kynnum
af stórborginni, af l'ífinu og ást-
inni, eins og segir í umsögn á
bókarkáipu.
Edna 0‘Brien hefur skrifað
tvær bækur aðrar um Caithleen
og kunningja hennar og hefur
önnur bókin í bókaflokki þess-
um, „Stúlkan með grænu augun“
verið kvikmynduð.
Álfheiður Kjartansdóttir þýddi
bó’kina á íslenzku, en Prent-
- BÓKMENNTIR
Framhald af bls. 17.
Skáld af hans tagi eru stundum
farsælustu menntaberarnir. Á-
samt fjölmörgum öðrum átti
Sigurjón þátt í þeirri vakning,
sem lyfti héraði hans til forystu
í félags- og menningarmálum
fyrir síðustu aldamót. Nafn hans
verður aldrei fellt niður úr sögu
þeirrar hreyfingar. Þó hann veldi
aðra og sér óhagkvæmari leið í
skáldskapnum en t. d. Þorgils
gjallandi og Guðmundur, bróðir
hans, hefur hann augljóslega
verið að velta fyrir sér sömu
spurningunum. Skýlaus réttur
tilfinninganna og eigin samvizka
— það voru leiðarljós þessara
tíma.
Okkur, sem nú lifum, kann að
virðast sem uppreisn þessara
manna gegn stirðnuðum venjum
eins og kreddum kirkjunnar
hafi ekki aðeins verið barnaleg,
heldur alóþörf. Hverju skipti það
t. d., hvaða setningar prestur
þuldi yfir krakka, um leið og
nafn var við hann fest? Nú á
dögum er ekki tekið eftir slíku.
Fólk heyrir það ekki, hvað þá
það hugsi nokkuð um það.
En aldamótamennirnir í Þing-
eyjarsýslu litu öðrum augum á
þá hluti. Þeir vildu hafa allt á
hreinu, þar með talin skipti sín
við skaparann.
Arnór Sigurjónsson hefur sýnt
Edna O'Brien
smiðja Jóns Helgasonar prent-
aði og gaf út.
minning föður síns verðuga
ræktarsemi með því að gefa út
þetta úrval af ljóðum hans. Fyr-
ir aftan kvæðin er svo prentuð
alllöng ritgerð Arnórs um skáld-
ið.
Aldrei bregzt, að Arnór skrifi
læsilega og skemmtilega. Rit-
gerð hans um föður sinn er ekki
aðeins skrifuð af hlýju ræktar-
arsemi, heldur einnig af skiln-
ingi og þekkingu á því efni, sem
fjallað er um. „Skáld eru til þess
að skilja þau fremur en að mikla
þau og dá þau,“ segir hann í
upphafi ritgerðarinnar; en það
er einmitt í anda þeirra um-
mæla, sem Arnór segir frá föður
sínum.
Að vísu hefði ég kosið, að
Arnór hefði sagt færra um fé-
lagsmálastörf föður síns, en
fleira um skáldskapariðkanir
hans. Sagan af kaupfélaginu, svo
dæmi sé tekið — er hún ekki
meiri verzlunarsaga og héraðs-
saga en svo, að hún eigi heima
í ljóðasafni sem þessu? Eg varpa
þessu fram sem álitamáli.
Því öll er ritgerðin hin merk-
asta og verður áreiðanlega kær-
komin mörgum, sem annars láta
sér fátt um ljóðasöfn finnast,
yfirleitt.
Að útilti er bókin látlaus, en
smekkleg og sæmir vel minning
skáldsins, Sigurjóns Friðjónsson-
ar.
Nokkur frumvörp af-
greidd sem lög
— á fundum Alþingis um helgina og í gœr
Á LAUGARDAG voru haldnir
tveir fundir í báðum deildum
Alþingis. Á fyrri fundi efri
deildar kom frumvarpið um
ráðstafanir á gengishagnaði af
útfluttum sjávarafurðum til 2.
umræðu og mælti Pétur Bene-
diktsson fyrir nefndarálitinu og
breytingartillögum er sjávarút-
vegsnefnd deildarinnar flutti.
Var innan nefndarinnar sam-
staða um breytingar á frum-
varpinu, en þær voru allmarg-
ar m.a. ákveðið að bætur til
bræðslusíldariðnaðarins á Norð
ur- og Austurlandi næði einnig
til fiskimjölsverksmiðja og að
úthlutun bóta vegna hækkunar
á rekstarkostnaði vegna geng-
isbreytingar, við framleiðslu
sjávarafurða til ársloka 1967,
verði úthlutað af 5 manna
nefnd, og skulu fjórir nefndar-
menn tilnefndir af aðilum sjáv-
arútvegsins, en formaður nefnd
arinnar verður skipaður af ráð-
herra. Við 2. umræðu tóku einn
ig til máls Eggert G. Þorsteins-
son sjávarútvegsmálaráðherra
og Ólafur Jóhannesson (F). Á
öðrum fundi deildarinnar var
i
'Mctmtrscjo
HARÞU RRKAN
FALLEGRI*FLJÓTARI
• 700W hitaelemenL stiglaus hitastilling
0—80°C og „turbo" loftdreifarinn veita
þægilegri og fljótari þurrkun • Hljóðlót
og truflar hvorki útvarp né sjónvarp •
Fyrirferðarlítil í geymslu, því hjólminn mó
leggja soman • Með klemmu til festingar
ó herbergishurð, skóphurÓ efia hillu •
Einnig fóst borftstativ eöa gólfstativ, sem
leggja mó saman • Vönduð og formfögur
— og þér getiÖ valiö um tvaer fallegar
litasamstæður, blóleita (turkis) efta gulleita
(beige). • Ábyrgft og traust þjónusta.
GOÐ JOLAGJOF
FÖNIX
FYRST A\
FLOKKS
F R Á ....
SlMI 24420 - SUÐURG. 10 - RVlK
málið síðan afgreitt til neðri
deildar og þar tekið til fyrstu
umræðu. f fyrradag kom það
síðan til 2. umræðu og mælti
þá Birgir Finnsson fyrir áliti
meiri hluta sjávarútvegsnefndar
en Lúðvík Jósefsson fyrir áliti
minni hluta nefndarinnar. Björn
Pálsson gerði grein fyrir breyt-
ingartillögum er minni hluti
nefndarinnar flutti. Aðrir sem
þátt tóku í umræðunum voru
Eggert G. Þorsteinsson, sjávar-
útvegsmálaráðherra, Gísli Guð-
mundsson og Jón Skaftason. í
ræðu sjávarútvegsmálaráðherra
kom fram, að ákveðið hefði
verið að fella niður söluskatt
af vátryggingargjöldum fiski-
skipa og sagði hann að flutt
yrði um það breytingartillaga,
er fjárlagafrumvarpið kæmi til
3. umræðu.
Á fundi neðri deildar í fyrra-
dag voru einnig frumvörpin um
framfærslulög og sveitarstjórn-
arlög afgreidd sem lög frá Al-
þingi. Frumvarpið um almanna
tryggingar kom til 2. umræðu í
Fleiri og fleiri nota Johns-
Manville glerullareinangrun-
ina með álpappírnum
Enda eitt bezta einangrunar-
efnið og jafnframt það
langódýrasta.
Þér greiðið álíka fyrir 4”
J-M glerull og 2y4” frauð-
plasteinangrun og fáið auk
þess álpappír með!
Sendum um land allt —
Jafnvel flugfragt borgar sig.
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121. - Sími 10600.
Akureyri: Glerárgötu 26.
Sími 21344.
deildinni og mælti Guðlaugur
Gíslason fyrir áliti nefndar.
Skúli Guðmundsson flutti breyt
ingartillögu við frumvarpið og
gerði með henni ráð fyrir að
rannsókn færi fram á ,því hvort
ekki væri hægt að koma við
hagkvæmara kerfi við greiðslu
almannatrygginga. Við atkvæða
greiðslu var tillaga Skúla sam-
þykkt samhljóða og málinu því
aftur vísað til efri deildar.
I efri deild kom frumvarpið
um tekju- og eignaskatt til 2.
umræðu og mælti þá Geir Hall
grímsson fyrir áliti nefndar.
Einar Ágústsson og Páll Þor-
steinsson fluttu breytingartil-
lögu við frumvarpið, og enn-
fremur tók til máls Magnús
Jónsson fjármálaráðherra. Við
atkvæðagreiðslu voru breyting-
artillögur felldar, og málið síð-
an afgreitt til 3. umræðu.
BÍLAKAUP^
[ Vel með farnir bílar til sölu
og sýnis í bílageymslu okkar
að Laugavegi 105. Tækifæri
til að gera góð bílakaup.. —
| Hagstæð greiðslukjör. —
Bílaskipti koma til greina.
BÍLAKAUP
Mercury Cougar árg. 67.
Rússajeppi árg. 57.
Trabant station árg. 64.
Skoda 1201 árg. 61.
Volkswagen sendibíll árg.
61.
Moskwitch árg. 59, 60, 66.
Anglia árg. 59.
Volkswagen árg. 57.
Skoda Oktavia árg. 61, 62.
Galaxis árg. 63.
Opel Caravan árg. 62, 63.
Opel Record árg. 62, 64.
Willy’s árg. 66.
Taunus 12 M árg. 64,
Hilman IMP árg. 65.
Anglia sendibifreið árg. 62.
iTökum góða bíla í umboðssölul
I Höfum rúmgott sýningarsvæði
innanhúss.
UMBOÐIÐ
SVEINN EGILSSON H.F.
LAUGAVEG 105 StMI 22466
IMÝ SKÁLDSAGA:
Ást í álfum tveím
Höfundur
Páll Hallbjörnsson
Iívar er lífshamingju að finna?
Því er svarað í bókinni á bls. 112 og 155.
BÓKAÚTGÁFAN REIN.