Morgunblaðið - 20.12.1967, Blaðsíða 31

Morgunblaðið - 20.12.1967, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 20. DES. 1967 31 Stjórn Suður Afríku leitar til Frakka — vegna vopnasölubanns í Bretlandi Jóhannesarborg, S.-Afríku, 16. des. — (NTB) PIETER Botha, varnarmálaráð- herra Suður-Afríku, skýrði frá því í dag, að ákvörðun brezku ríkisstjórnarinnar í gær um að nema ekki úr gildi bann við sölu vopna og hergagna til Suð- ur-Afríku hefði ekki komið á óvart. Sagði ráðherrann, að þessi ákvörðun brezku stjórnarinnar leiddi hinsvegar til þess, að Suður-Afríkustjórn sneri sér til annara ríkja — aðallega til Frakklands — varðandi kaup á nauðsynlegum hergögnum til að efla varnir landsins. Bretar hættu vopnasölu til S,- Afríku í júní 1964 samkvæmt áskorun Öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna til að mótmæla „Ap- artheid" stefnu ríkisstjórnariinn ar þar í kynþáttamálum. Eftir það hefur stjórn Suður-Afríku leitað til annarra landa um vopnakaup, og aðallega keypt hergögn sín frá Frakklandi. Síð- astliðið vor tilkynnti Botha varnarmálaráðherra, að Suður- Afríka hefði eignazt fyrstu kaf- báta sína. Voru það þrír litlir kafbátar af Daphne gerð, keypt- ir í Frakklandi. Einnig hefur Suður-Afríka fengið orustuþot- Tvær unglingabækur frá POB BLAÐINU hafa borizt tvær barnabækur frá Bókaforlagi Odds Bj örnseonar á AkureyrL Önnur er 3. bindið af hinum svonefndu Valsaugabókum. Heit ir hún „Valsauga og bræðumir hans hvítu“. Er þetta indíána- saga eftir Ulf Uller í íslenzkri þýðingu Sigurðar Gunnarssonar. Áður eru komnar út í saima bóka flokki, Valsauga og Valsauga og indíánaskórinn svarti. Bókin er með liitskreyttum káputeikning- um eftir Sigvart Hagsted. Hún er 123 síður að stærð, prentuð í Prentverki Odids Björnssonar á Akureyri. Þá sendir sama forlag frá sér nýja íslenzka unglingabók eftir kennarana og barnabókahöfund anna, hjónin Jennu og Hreiðar Stefánason. Á hlífðarkápu bókarinnar í upphafi skal endirinn skoða BROTIZT var inn í kjallara- geymslur í húsi við Rámargötu aðfaranótt þriðjudagis og tók þjófurinn töluvert magn af mat- vælum, sem hann bar svo burt í tveimur stóruim ferðatöskuim. Ekki tókst honum þó að sleppa óséður og var lögreglunni þegar gert viðvart. Eftir diálitla leit hafði lögreglan upp á þjóímum, þar sem hann burðaðist með töskiurnar tvær, og endaði því leiðangur mannsins í húsakynn- um réttvísinnar. segir að hér sé um að ræða sög- una af Emmu, unglingsstúlku í Reykjavík, sem á við vaxandi erfiðleika að stríða. Segir enn- fremur að sagan sé á köflum mjög átakanleg og raunsæ hanm saga ungrar stúlku í nútíma ís- lenzku þjóðfélagi og eigi hún brýnt erindi jafnt til foreldra sem unglinga. Bókin heitir „Stelpur í stutt- um pilsum“, prýdd hlífðarkápu og teikningum eftir Baltazar. Hún er 92 blaðsíður að stærð. ur af Mirage-Delta gerð og Alou- ette og Super-Frelon þyrlur frá Frökkum. Stjórn Suður-Afríku óskaði eftir því fyrr á þessu ári, að fá keypt í Bretlandi hergögn fyr ir 100—200 milljónir sterlings- punda, aðallega herskip. Há- værar raddir hafa verið uppi í Bretlandi um nauðsyn þess að semja um hergagnasölu til Suð- ur-Afríku, og telja margir að Bretar hafi ekki ráð á að láta söluna fara fram hjá sér. Hins vegar hefur Harold Wilson, for- sætisráðherra, verið algjörlega andvígur því að hefja á ný her- gagnasölu til Suður-Afríku, og var þessi afstaða hans samþykkt á fundi brezku stjórnarinnar í gær. Herskip Suður-Afríku eru flest smíðuð í Bretlandi, og út- búnaður flotans að mestu 1 að- an. Þessvegna var stjórn lands- ins mikið í mun að fá nýbygg- ingar sínar þaðan, þótt sú von hafi nú brugðizt. Blöð í Suður-Afríku gagnrýna mjög ákvörðun brezku stjórnar- innar, og segir „Die Burger“, sem er stuðningsblað stjórnar- innar, að hér sé um að ræða sorglegan áfanga í samskiptum Suður-Afríku og Bretlands, og eigi aðeins einn maður, Harold Wilson, forsætisráðherra, þar sök á. Segir blaðið að þessi afstaða Wilsons sé ekkert annað en tækifærisstefna. f sama streng tekur „óháða“ blaðið „Daily News“ og bætir því við, að sölu- bannið hafi ekki lengur neina stjórnmálalega þýðingu. Þórdís Tryggvadóttir opnar málverkasýningu ÞÓRDÍS Tryggvadóttir hefiur opnað málverkæýningu í sýning arsal Guðmundar Ánnasonar að Bergstaðastræti 15. Þeitita er í fyrsta skipti, sem Þórdís heldur sjálfstæða sýningu, en hún hefur Frumvarp á Alþingi: Þjóðaratkvœðagreiðsla um hœgri akstur — mélinu verði frestað í eitt ér í GÆR var lagt fram á Alþingi frumvarp til laga, er gerir ráð fyrir að framkvæmd hægri um- ferðar verði frestað í eitt ár, og komi þá aðeins til framkvæmda, ef áður hefur verið samþykkt við þjóðaratkvæðagreiðslu að taka upp hægri umferð. Flutn- ingsmenn frumvarpsins eru Steingrímur Fálsson, Þórarinn Þórarinsson, Jónas Árnason, Ágúst Þorvaldsson og Stefán Valgeirsson. í greinargerð frumvarpsins kemur m.a. eftirfarandi fram: Sjálfboðaliðar strengja vír lyftunnar. - IÞROTTIR Framh. af bls. 30 legum hætti, en það er einmitt það „patent“ sem aflað hefur pomalyftunum frægðar um heina allan, svo að jafnvel skíðalyftur kallast nú „Poma-lyftur“ á ýms- um stöðum án þess að Poma- verksmiðjurnar komi þaT nærri. Þetta hefur verið fjárfrek framkvæmd hjá ísfirðinguim, kostar yfir 1 millj. kr. Lyftan kostar hingað koimin uim 900 þús. kr. Lyftan er rekin af hlutafé- laginu Skíðalyftan h/f, sem ÍBÍ er eigandi að. Hlýtur fyrirtækið um 300 þús. kr. styrk frá ísa- fiarðabæ á 3 ámm og um 400 þús. frá ríkinu. En eigi að síður hafa ísfirð- ingar orðið að grípa til marg- háttaðrar fjáröflunar í því skyni að „borga brúsann" sagði Krist- inn. Hefur verið efnt til happ- drættis, almánakssölu, skíða- vikna um páska o. fl. Lyftan sem ísfirðingar fá er nær elnrorna með líku sniði og sú er KR-ingar eiga en þó fuilkamnari á ýmsan hátt m. a. vegna þess að „sætin“ safnast að eridastöð er þau eru ekki í notkun og lyftan er mjög ódýr í rekstri. Allur undirbúningur, meðferð og ákvarðanir í sambandi við þetta mál hefur frá upphafi sætt mikilli og margvíslegri gagnrýni fjölda manna, og hefur komið æ betur í ljós, eftir því sem það hefur lengur verið á döfinni, að stór hluti kjósenda eru þessari lagasetningu andvígur. Um þetta vitna þúsundir undirritaðra mót mæla, sem fram komu, meðan málið var til meðferðar á Al- þingi og einnig síðar, bæði frá einstaklingum og félagssamtök- um. Er vafamál, að nokkurt ópólitískt mál hafi um áratuga skeið valdið svo almennri og harðri andstöðu. Aðeins fáir að- ilar hafa hins vegar mælt með ráðagerðum þessum á fyrri stig um málsins, og þegar meðmæl- in komu frá félagssamtökum, varð raunin æði oft sú, að þau höfðu verið gefin af fyrirsvars- mönnum viðkomandi samtaka í fullri óþökk og andstöðu við flesta þá, sem samtökin skipa. Virðist svo, að einstaka stjórn- ir félagssamtaka hafi að lítið eða ekki athuguðu máli lagt trúnað á órökstuddar eða lítt rökstuddar fullyrðingar um ágæti þessarar gerbreytingar á umferðarlögunum, en hafi hins vegar láðst að gæta þeirrar skyldu sinnar að kynna félags- mönnum sínum eðli málsins, rök og gagnrök. Slík meðmæli með frumvarpinu áttu örugglega rík an þátt í að fleyta því í gegn til samþykktar á Alþingi, þótt síðan hafi sannazt, að fáir liðs- menn í viðkomandi samtökum hafi í raun verið þeim sam- þykkir, svo sem sannað er með mótmælum fjöl- margra félagsdeilda innan sam- takanna. efnahagsástands í landinu. Nota mætti tímann til að láta rann- saka nákvæmlega„ hve mikið þessi breyting yfir í hægri hand ar akstur kostar þjóðina, og fylgjast vel með þeirri reynslu, sem Svíar öðlast í þessu máli, — og loks til að gefa þjóðinni tækifæri til að ákveða með þjóðaratkvæðagreiðslu, hvort breytingin skuli fram fara eða ekki. tekið þátt í samsýningum í tvö skipti. Þórdís stundaði nám við Mynd- liistarskólann og var síðan við teikninám í Kaupmannahöfn. Síðuistu þrjú árin hefur hún verið nemandi í bandarískum skóla Famous Artiists Sehools, sem er bréfaskóli, og lauk þaðan prófi fyrir skemmstu með ágæt- um vitnisburði. Þórdís er dóttir Tryggva heiit- ins Magnússonar, listanálara og hefur fengizt við teiknun og málun frá unga aldri. Hún hefur myndskreytt fjölda bóka. Sýningin verður opin á venju- legum verzlanatíma framundir nýár. Á sýningunni eru um 30 myndir, allar til sölu og verð þeirra er frá 1500—5000 krónur. - VILJA EKKI Framh. af bls. 2 um, að nafni götunnar verði breytt. Borgarstjórinn og dómsyfirvöldin hafa nú fall- izt á þessa kröfu, og er þá ekkert eftir annað en að skipta um götumerkin. Kveikt ó jólotré í Kópovogi KLUKKAN 20 í kvöld kveikir frú Granberg sendiherrafrú, á jólatré, við félagsheimilið í Kópa vogi. Vinabær Kópavogs, Nord- köping, sendir Kópavogsbúum jólatréð. Við þetta tækifæri munu hendiherra Svía, Gunnar Granberg og Hjálmar Ólafsson, bæjarstjóri, flytja ávörp. Sam- kór Kópavogs syngur. Kópavogs- búar eru hvattir til að fjöl- menna. - TOLLALÆKKANIR Framh. af bls. 1 greiða báðar þessar hækk- anir niður og greiðslur til þess væru áætlaðar 50 millj. kr. í þriðja lagi, sagði ráð- herra, að komið hefði til álita, að gera millifærslu eða tekju tilfærslu í sambandi við fjöl- skyldubætur eða persónufrá- drætti í skatti. Væri það mál nú í athugun og yrði niður- staða þess ljós, er Alþingi kæmi aftur saman til funda. Bækur um Edison og Kólumbus fyrir börn Flutningsmenn frumvarpsins telja rétt að bíða með þessa framkvæmd, að minnsta kosti í eitt ár eða íengur, með tilliti til HEIMSKRINGLA hetfur sent frá sér tvær bamabækur í nýjum bókaflokki. Sú fyrri heiitir Hver er Kristófer Kóluimbuis, og segir þar frá ævi hins fræga land- könnuðar, sem fann Ameríku aftur 1492, frá berrisku hans, uppvexti og ævintýruim. Bókin er 26 bls. og prýdd fjölda lit- teikninga. Hin bókin er Hver er Edison fjallar um ævi uppfinninga- mannsins bandaríska Thoimasar Alva Edison, og er efnið tekið ar svipuðum tökum, rakin lífs- saga Edison i stóruim dnáttum, svo að aðgengiieg sé fyrir börn. Texta beggja bókanna saimdi M. De Lesseps og myndir í báðar gerði Raymond Renard. Bækurn- sr eru prentaðar í Belgíu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.