Morgunblaðið - 23.12.1967, Blaðsíða 7
MOKGTFNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 23. DES. 1967
7
Elísabet Kristjánsdóttir frá Hólm
um í Vopnafirði, nú til heimilis að
Kleppsvegi 6, er 75 ára í dag, 23.
desember.
SENDIÐ ÞEIIVK
JÓLAKORT
Tvö lítil börn Iiggja í sjúkrahúsi
í Belgíu með blóðkrabba og heila-
skemmd og eiga aðeins tvær vikur
ólifaðar. Þau óska eftir sem flest-
um jólakortum hvaöanæva að úr
heiminum með ástúðlegum kveðj-
um á siðustu jólahátíðinni, sem
þau lifa hér á jörðu.
Þannig hljóðaði skeyti, sem
flugturninum barst seint í gær-
kvöldi frá veðurstofu í Belgíu, og
er blaðið beðið að birta það.
Nöfn og heimilisfang barnanna
eru:
Elaine de Feyter
Oud St. Jans Hospital
Mariastraat, Briigge,
Belgium
og
Bart de Bouvry
Duinparklaan 40,
Oostduninkerke,
Belgium
Akranesferðir Þ. Þ. Þ.
Frá Akranesi mánudaga, þriðju-
daga, fimmtudaga og laugardaga
kl. 8, miðvikudaga og föstudaga
kl. 12, sunnudaga kl. 4.15.
Frá Reykjavík kl. 6 aila daga
nema laugardaga ki. 2 og sunnu-
daga kl. 9.
Hf. Eimskipafélag íslands
Bakkafoss fór frá Reykjavík í
dag 22. 12. til Akraness. Brúarfoss
fór frá New York 21. 12. til Reykja
víkur. Dettifoss fer frá Akureyri
í dag 22. 12. til Reyðarfjarðar,
Kristiansand og Klaipeda. Fjall-
foss fer frá Norfolk 22. 12. til
Reykjavíkur. Goðafoss fer frá Fá-
skrúðsfirði í kvöld 22. 12. til Hull,
Grimsby, Rotterdam og Hamborg-
ar. Gullfoss fer frá Reykjavík kl.
17.00 í dag 22. 12. til Amsterdam,
Cuxhaven, Hamborgar, Kaup-
mannahafnar og Kristiansand. —
Lagarfoss kom til Reykjavíkur í
morgun 22. 12. frá Vestmannaeyj-
um. Mánafoss fer frá Seyðisfirði
í dag 22. 12. til Norðfjarðar, Ham-
borgar, London, Hull og Leith. —
Reykjafoss kom til Reykjavíkur
20. 12. frá Ósló. Selfoss fór frá
Reykjavík 16. 12. til Cambridge,
Norfolk og New York. Skógafoss
fer frá Rotterdam í dag 22. 12. til
Reykjavíkur. Tungufoss fer vænt-
anlega frá Kaupmannahöfn 26. 12.
til Gautaborgar, Ósló og Reykja-
víkur. Askja kom til Reykjavíkur
21. 12. frá Hamborg.
Skipadeild SÍS
Arnarfell fór í gær frá ísafirði
til Norðurlandshafna. — Jökulfell
væntanlegat til Camden 24. þ. m.
Dísarfell losar á Austfjörðum. —
Litlafell væntanlegt til Seyðis-
fjarðar 25. þ. m. Helgafell fór í
gær frá Helsinki til Rotterdam.
Stapafell fór í gær frá Reykjavík
til Þorlákshafnar. Mælifell vænt-
anlegt til Reykjavíkur 24. þ. m. —
Frigora fór í gær frá Húsavík til
Hull. Fiskö væntanlegt til Hull 26.
þessa mánaðar.
GAMALT og GOTT
Þorláksmessa
Það hefur hingað til verið talið
af öllum, að Þorlákur biskup ætti
með réttu messudaga tvo hér á
landi, 20. júlí og 23. des. En fullar
sönnur eru nú fengar fyrir því, að
messurnar hafi að minnsta kosti
verið þrjár, og jafnvel líkur fyrir
því að þær hafi verið fjórar. Sönn-
unin er sótt nokkuð flókinn veg,
en engu óáreiðanlegri fyrir það, og
hefst upp af skinnblaði einu úr
fornri messubók, sem kom til
Landsskjalasafnsins frá Hofi í
Álftafirði, en er nú í Landsbóka-
safninu. Þriðji messudagur Þor-
láks er 2. júlí, og hefur Þorlákur
tekið biskupsvígslu þann dag 1178.
Athugandi er, það og, að þessi dag-
ur er einnig skráður í sumar
gamlar ártíðaskrár (Ordinatio
Thorlaci), og styrkir það hvað
annað til sönnunar, messubókin g
ártíðaskráin.
í einni ártíðaskrá, Skinnastaða-
skrá, er getið um Ordinatio
(vígslu) Þoriáks 24. sept., og mun
þar átt við ábótavígslu hans (nál.
1170). Þar sem fullsannað er, að
Þorláksmessa var haldin á biskups
vígsludag hans, væri ekki ósenni-
legt, að eins hefði verið um ábóta-
vígsluna, úr því að beggja dag-
anna er getið í ártíðaskrám. Sýn-
ast Þorláksmessur því munu hafa
verið fjórar, og þrír voru messu-
dagar hans með vissu, 2. júli, 20.
júlí og 23. des.
VÍSUKORN
Biskupi og Söngvadísum þakkað
Er sem helgan frið ég finni
Er heiðrar oss með heimsókn sinni
fylla huga minn.
Herra biskupinn.
Systurnar
Þetta vóru stundir stórar,
starfið háleitt er.
Söngvadísir systur fjórar,
sungu og léku hér.
Lilja Björnsdóttir,
skáldkona.
SAMKOMUR
Hjálpræðislierinn.
Aðfangadag jóla M. 11, fjöl-
Skyld'Uihátíð. Unga fólkið tek-
ur þátt með jólasýningu. Jóla-
dag kl. 20,30 hátíðarsamkoma.
Major Guðfinna Jóhannesdótt
ir og kaptein Sölvi Aasoldsen
stjórna. Annan í jólum kl. 14.
Jólafaignaður Sunnudagaskól-
ans. Kl. 20,30 jólaihátíð fyrir
almenning. Miðvikudag 27.
des. kl. 15 jólafagnaður fyrir
aldrað fólk. Fimmtudag 28.
des. kl. 20,30 jólahátíð Heim-
ilasambandsins og hjálpar-
flokksins.
Velkomin.
K.F.U.M. um hátíðarnar.
Aðfangadag:
Kl. 10,30 f. h. Sunnudaga-
sfkólinn Amtmiannsstíg. —
Drengjadeildin í félagsheimil-
inu við Hlaðbæ í Árbæjar-
hverfi. Barnasamkoma í Digra
nesskó'la við Álfhólsveg í
Kópavogi.
Kl. 1,30 e. h. Drengjadeild-
in við Holtaveg.
Annan jóladag:
Kl. 2 e. 'h. Y.D. og V.D. við
Ama’tmannsstíg.
Kl. 8,30 e. h. Almenn sam-
koma í húsi félagsins við Amt
mannsstíg. Séra Sigurjón Þ.
Árnason talar. Æskulýðskór
K.F.U.M. og K. syngur. Allir
velkomnir.
Þriðja dag jóla (miðv.d.):
Kl. 5,30 e. h. Jólafundur
drengj adeildarinnar Kirkju-
teigi 33 (Laugarnesdeild). Kl.
6 e. h. Jólafundur drengjadeild
arinnar í Langagerði 1.
Samkomuhúsið Zíon,
Óðinsgötu 6 A. Samkomur
um jólin. 1. jóladag almenn
samkoma M. 20,30. 2. jóladag
almenn samkoma kl. 20,30. —
Verið velkomin.
Heimatrúboðið.
Til jóln og gjofo
Háf jallasólir ©g
innfra-perur
N
Vegna gæðanna
Heildsölubirgðir:
*
Joh. Olafsson & Co.
Símar 11630 og 11632
Gæðavara
Max harðplast
Glæsilegir litir. Verð mjög hagstætt.
LITAVER, Grensásvegi 22—24.
Sími 30280, 32262.
Keflavík, nágrenni Enginn hækkun hefur orð- ið á vörum hjá okkur, mun ið okikar hagstæða vöru- verð. Verzlunin Hagafell. Hafnarfjörður Herbergi til leigu. Uppl. í síma 50343.
Húsgögn, klæðningar Getum tekið húsgögn til klæðninga fyrir nýár. Bólstrunin, Miðstræti 5. Sími 15581 og 13492. Aukatímar Starfandi kennari vill taka nemendur á landsprófs. og gagnfræðastigi í aukatíma í ís'lenzku, eðlisfræði og stærðfræði. Upplí síma 34736.
Ævintýri
Tom Swiít
SÓLARTRÓNINN
heitir nýjasta bókin um
Tom Swift og vin hans
Bud Barcley.
Nútíma drengjabók.
Verð kr. 134.50 m. sölusk.
BÓKAtJTGÁFAN SNÆFELL
MOKGUNBLAOIO
SEGULBANDSTÆKI
frá kr. 1.450.00.
Fónar og ferðafónar
með útvarpi.
Útvarpsviðtæki
Bilaryksugur
RAFBOBG s.í.
Rauðarárstíg 1 . Sími 11141
Bezt að auglýsa
í Morgunblaðinu
Hafnfirðingar
Leitið ekki langt yfir skammt. Jólagjöfina er að
finna hjá okkur.
Víkingarnir komnir aftur, örfá eintök.
ALMENNA BÓKAFÉLAGSUMBOÐIÐ.
Sími 51263.