Morgunblaðið - 30.12.1967, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 30.12.1967, Blaðsíða 22
22 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 30. DES. 1967 Svíar unnu Dani með 20:13 SVÍAR og Danir léku lanðsleik í handknattleik í gærkvöldi og fór leikurinn fram í Kristian- stad í Svíþjóð. Svíar unnu leik- inn með 20 mörkum gegn 13, en staðan í hálfleik var 9-7 þeim í vil. Sænska liðið lék mjög vel, einkum í síðari hálfleik, og vann þann hálfleik með 11 gegn 6. Danska liðið brást algerlega vonum mánna og var svipur hjá sjón miðað við fyrri leiki. Gösta Carlsson skoraði 4 af mörkum Svía, en Bengt Johans- son, Lennart Eriksson og Jan Hodin 3 hver. • Annar landsleikur milli þjóð- anna verður í Forum í Kaup- mannahöfn í kvöld, 30. des. — Ætla má að Danir séu nú hnuggnir mjög. Þeir hafa lítið breytt liði lengi undanfarið og gerð var aðeins ein breyting eft- ir landsleikinn við Norðmenn á dögunum. Má ætla að bylting verði nú í danska liðinu — þrátt fyrir sigurinn yfir Tékkum á dögunum. Þá léku Tékkar sinn 4. leik í keppnisför á erfiðum árs tíma við Dani og höfðu sumir liðsmanna Tékka — að þeirra sögn — fengið inflúenzu. Pólska liðið. Bezta liðPúllands kemur hingað Leikur hér 4-5 leiki í Reykjavik og Akureyri en það er fyrsta erlenda heimsóknin norður B E Z T A handknattlið Póllands um þessar mundir er væntanlegt hingað til Iands n.k. fimmtudag á vegum Hauka í Hafnarfirði. Þetta er liðið Spójnia, sem kemur hing- að með 12 leikmenn og hafa 9 þeirra leikið í pólska landsliðinu og fjórir þeirra hafa leikið þar á þessu keppnistímabili. Má hik- laust ætla, að hér sé um mjög gott lið að ræða. Megum við vera minnugi mikils ósigurs isl. lands liðsins í Póllandi í fyrravetur og naums sigur yfir Pólverjum hér heima. Tíl marks um styrk Spójnia, Albert. Bergþór, Axel. FH heiðrar 3 kappa sína AÐALFUNDUR knattsp.deildar F.H. va>r haldinn sunnudaginn 17. des. s.l. Skýrsla stjónarinnar um starfið á líðandi ári bar með sér að starfið hefur verið þrótt- mikið, og árangur hinna ýmsu fiokka góður. Mfl. lék í 3. deild og vann sig upp í aðra deild, tapaði engum leik í deildinni. Það má reyndar segja með sanni að Mfl. hafi ekki tapað leik í sumar hvað mörk snertir. Eini leikurinn sem flokkurinn tapaði var gegn Týr i Vestmannaeyjum í bikarkeppni K.S.Í. en þar réði hlutkesti. Heildarárangur eftir sumarið hjá öllum flokkium deildarinnar, er nærri 70% í vinning. Á sl. sumri tóku yngstu félag- ar deildarinnar þ.e. 6. fl. 10 ára og yngri í fyrsta sinn þátt í opin- beru móti. Keppt var við Hauka A og B lið. Sigraði A lið F.H. A lið Hauka Með samt. (2 Leikir) 6:0. B liðin lék-u þrjá leiki og varð alltaf. jafntefli, og var því ákveð- ið að báðir flokkar fengu verð- laun. Á þessum aðalfundi voru þrír meno heiðraðir. Það voru þeir Axel Kristjánsson form. F.H. Al- bert Guðmundsson og Bergþór Jónsson. Það er venja hjá félag- inu að þegar leikmaður hefur leikið ákveðinn fjölda leikja fær leikmaðurinn viðurkenningu. Þetta miðast við 50 leiki, en nái leikmaður þeim leikja fjölda faer hann fagran skjöld, áletrað- an með merki félagsins. Bergþór Jónsson er fyrsti knattspyrnumað urinn í F.H. sem hlýtur þessa viðurkenningu og fer vel á þvi. Axel og Albert hlutu F.H. skjöldinn fyrir frábær störf í þágu félagsins og deiídarinnar og einnig fékk Albert 10 ára orðuna fyrir frábært starf s.l. 10 ár. Það væri full ástæða að skrifa langt mál um þátt þeirra Axels og Al- berts í íþróttamálum Hafnar- fjarðar og þá sér í lagi fyrir F.H. Ætla má að allur þorri fólks geri sér ekki grein fyrir því mikla starfi sem þessir menn hafa innt af hendi á þessu sviði, og þá er þáttur Bergþórs ekki svo lítill, en við látum siikt bíða betri tíma. Fráfarandi stjóm deildarinnar var öll endurkjörin. sem er frá Gdansk eru eftirfar- andi staðreyndir: 1. Liðið varð nr. 2 í pólsku deildarkeppninni 1963—64. 2. Liðsmenn félagsins urðu uniglingameistarar Póllands 1965. 3. Liðið sigraði í pólsku bikar- keppninni 1966. 4. Liðið er nú — að aflokinni fyrri umferð í póisku deiida- keppninni efst í deildinni. 5. Fjórir af leikmönnum liðsins eru nú í landsliðinu, þeir Pnioci- wski (sem 23 ára gamall hefur 41 landsleik að baki), Lech (með 14 leiki að baki), Szybka markvörð- ur með 10 landsleiki og Wlazlo, sem tvítugur hefur 20 leiki að baki. Liðið hefur leikið í ýmsum löndum með góðum árangri og má þar telja Danmörk, Sviþjóð, Ungverjaland, A-Þýzkaland og Sovét. Þjálfari liðsins Czerwinski er einnig þjálfari pólska lands- liðsins. Leikimir. Á fundi með fréttamönnum i gær sögðu forráðamenn Hauka að félagið stæði nú andspænis fyrstu erlendu heimsókn þess. Höfðu þeir vonast eftir að fá 3 leik- kvöld í íþróttahöllinni, og telja það lágmark til að heimsóknin beri sig fjárhagslega. Vilyrði hafa þeir aðeins fengið fyrir tveimur leikkvöldum, en umræð- ur standa yfir um hið þriðja. Verði tvö leikkvöld leika Pól- verjarnir gegn Fram á laugar- daginn kl. 4 og á sunnudaginn á sama tíma gegn FH. Verði leikkvöldin þrjú færast áðurnefndir leikir fram um einn dag og leikur þá úrvalslið HSl við Pól verjana á sunnudag. En hvort sem leikir verða 2 eða 3 hér í Reykjavík verður haldið ti'l Akureyrar og leikið þar. Á mánudagskvöld leika Akureyringar gegn þeim. Þetta er fyrsta erlenda heim sóknin til Akureyrar í hand- knattleik — og má ætla að handknattleiksunnendur þar setji sig ekki úr færi að sjá þetta ágæta pólska lið leika — ekki sizt gegn Akureyring- um sem þegar haia haslað sér völl á sviði handknattleiksins. Sterkt lið. Haukar voru á ferð í Póllandi í sumar er leið og léku þá tví- vegis gegn Spójnia og unnu Pól-’ verjarnir í bæði skiptin með 5 marka mun. Markatalan í síðari leiknum varð 13:18. Sögðu Hauk- ar liðið leika léttan og hraðan handknattleik, hraðupphiaup mjög nýtt þegar færi gæfist. Línu spil á liðið gott og góða nýtingu hornanna. Þá hefúr það auk þess menn með miklum stökkkrafti sem skora af löngu færi. Mark- verði á liðið 3—4 mjög svipaða en laindsliðsmarkmaðurinn sker sig þó nokkuð úr og er mjög skemmtilegur leikmaður. Liðið er sagt skipað áhuga- mönnum, en það skipa nær ein- göngu verkfræðingar og tækni- fræðingar. Félagið á eigin höll með ful'istórum velli og áhorf- endarými og utan hússins stend- ur malbikaður völiur í fullri stærð með áhorfendarými. Liðið æfir 2 tíma 3 i viku. Þetta lið bjóða Haukar Reyk- víkingum, Hafnfirðingum og Akureyringum að sjá í vikulokin næstu. Þeir láta ekki á sér standa á sviði handknattleiksins á árinu 1968. Molar JUNVETUS, ítölsku meistar- arnir, eru komnir í 3. umferð í keppni um bikar meistara- liða Evrópu. I gær varð marka laas leikur milli þeirra og Rapid Bukarest, en Juvevent- us vann heimaleik sinn 1:0. Tveim leikmönnum var visað af velli í leiknum. Huddersfield vann Fulham 2:1 í framlengdum leik í bik- arkeppni ensku deildarlið- anna. Huddersfield mætir nú Arsenal í undanúrslitum og þá er leikið heima og heiman. Þýzka liðið Werder Breim- en vann bulgarska landsliðið í knattspyrnu i leik í Bremen með 3-1. K»m þetta á óvart því búlgarstka liðið hefur ný- ■ ega unnið sinn riðil í undan- keppni Evrópukeppni lands- liða. í þýzka liðinu leika Danirnir John Danielsen og Ole Björneanose.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.