Morgunblaðið - 26.01.1968, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 196«
SIM11-44-44
mum
Hverfisgötu 103.
Simi eftir lokun 31160.
LITLA
BÍLALEIGAN
Ingólfsstræti 11.
Hagstætt leigugjald
Sími 14970
Eftir lokun 14970 eða 81748
Sigurður Jónsson
BÍLALEIGAN
- VAKUR -
Sundlaugavegi 12. Sími 35135.
Eftir lokun 34936 og 36217.
ÍPÆ/LeffÆP
RAUOARARSTIG 31 SfMI 22022
Nýr sími
23-222
SENDIBÍLAR HF.
Einholti 6.
BEZT að auglýsa
í Morgunblaðinu
AU-ÐVITAÐ
ALLTAF
Mér virðist sem rangur hafi
verið úrgkurður dómara um
merkingu orðsins „veifiskati" í
spurningasamkeppni Mennta-
skólans í Reykjavík og Bún-
aðarskólans á Hvanneyri í út-
varpinu síðastliðinn sunnudag.
Menntaskólinn svaraði að
orðið merkti „amlóði“ en
Hvanneyrarskóli að það merkti
„ræfill, aumingi", eða eitthvað
svipað. Dómari úrskurðaði að
báðir skólar hefðu svarað rétt.
Að mínu viti svöruðu báðir
rangt.
Orðabók Sigfúsar Biöndals
segir að þetta orð merki á
dönsku „en vankelmodig per-
son“. Saima segir hin íslenzk-
sænska orðabók Gunnars Leij-
ströms, Jóns Magnússonar og
Sven B. F. Jansson. Hvorug
orðabók þekkir neina aðra
merkingu í þeesu orði — og
bygg ég báðar hafa rétt fyrir
sér í því. „Vanfcelmodig" þýðir
dönsk-íslenzk orðabók Jónasar
Jónssonar svo: hverflyndur,
hverfráður. Af merkingu orðs-
ust: ístöðulaus maður.
Veifiskati er maður leiði-
tamur, lítt fastur fyriir gegn
áhrifum annarra — hringlandi.
Ágætt dærná um merkingu
orðsins felst í orðtakinu: hann
er einskis manns veifiskati.
Það er mjög áríðandi að ekki
sé ruglað merkingu í orðuim
íslenzkunnar, og þau gerð
óákveðnari og fjarri þeirri
hugsun, sem mótaði þau.
Kristján Albertsson.
Aldrei róið á Föstu-
daginn langa
Suðurnesjamaður skrifar:
Ég las í dálkum þínum þann
20. þjm. þar sem P. P. segist
hafa heyrt það, að útgerðar-
menn setji fram þær kröfuir við
bátasamninga, að bátur megi
og eigi að róa á Föstudaginn
langa, og vill P. P. heyra áiit
kirkjunnar þjóna á því.
Ég er nú ekki kirkjunnar
þjónn, en ég er búinn að róa í
35 vetrarvertíðar og ætla að
Merki
Ijóssins
Kúlu- og kertaperur
E-14 og E-27. Stærðir: 15—25—40 wött.
Spegilperur fyrir ljóskastara 60—100—
150 wött.
Heildsölubirgðir jafnan fyrirliggiandi.
Raftækjaverzlun íslands h.f.
Skólavörðustíg 3 — Sími 17975/76.
>*
Utsala — Utsala
Brjóstahöld verð frá kr. 75.00
Stretchbuxur verð frá kr. 195.00
Gallabuxur kr. 150.00
Crepehanzkar kr. 95.00
Náttföt á telpur kr. 110.00
Dömupeysur kr. 195.00
Nokkrar kápur og dragtir kr. 500.00
FATAMARKAÐURINN Álfhólsvegi 7.
sem það hefur verið talið
ábatasamt og þó hef ég ætíð
verið á bátum, sem hafa átt
net í sjó á þeim tíma og hafa
þau aldrei verið hreyfð á
Föstudaginn langa.
En það væri nú alveg eftir
öðru að afmá Föstudaginn
langa sem hátíðisdag og lög-
leiða alla vinnu á honum, en
hafa 1. maí alveg hvítiþveginn
og heilagan í heilan sólarhring,
því það hefir verið algjörlega
bannað að ianda eða gera að
fiski eftir kL 12 aðfaranótt
1. maí.
R. Á.
it Blettamál enn
Ýmsir hafa orðið tii þess
að ráðleggja frú Sigríði Sig-
urðardóttuir, hvernig ná eigi
Vaílash-blettum úr jólafötum
barna hennar.
„Húsmóðir" skrifar:
„Kæri Velvakandi!
Vegna bréfs Sigríðar Sig-
urðardóttur í þætti þínum í
gær (3. jan.) vildi ég mega
segja frá reynslu minni í sama
tilfelii og þar var frá greint.
Valash-blettir og fleiri álika
blettir, t. d. súkkulaði-blettir,
hverfa eins og dögg fyrir sólu
í þvottaefni nokkru, sem ég
lærði að nota í Danmörku og
sem betur fer er einnig hægt
að fá í verzlunum hér; heiitir
það Bio-Tex og er notað til að
leggja í bleyti í, það inniheldur
einhvers konar lífræn efni,
sem fara mjög vel með þvott-
inn og er eitthvert bezta þvotta
efni, sem ég þekki.
Ég vona að einhver geti not-
fært sér reynslu mína í þessu.
Með þökk fyrir birtinguna.
„Húsmóðir“.
Frú Sigríður
svarar:
„Ég þakka Velvakanda
fyrir að biirta bréf mitt og sömu
leiðis ráðin. Ég hafði reynt allt,
sem RáðleggingastÖð hús-
mæðra lagði til (hafði reyndar
lesið þau ráð í danskri bók),
en án árangurs. Hins vegar
hurfu blettirnÍT með notkun
Bio-Tex, en dýr þótti mér pakk
inn af þessu efni.
Með beztu kveðjum,
Sgríður Sigurðardóttr“.
K Hvernig væri að
nota munnþurrkur?
Frú Guðrún Á. Símonar
skrifar:
„Kæri Velvakandi!
Ég er ein af þeim mörgu,
sem les Velvakanda mér til
mikillar ánægju.
3. janúar skrifaði Sigríður
Sigurðardóttir um Valash-
bletti og bað um ráð, hvernig
ætti að ná þeim úr jólafötum
barna hennar.
Mig langar til að gefa frú
Sigríði mjög einfalt en gott ráð
hvernig ekki á að fá bletti'l
barnafatnað. Ég á dreng, sem
er 6 ára, hann drakk Valash
yfir jólahátíðina, — engir blett-
ir, ekkert gult í kringum munn
inn. Mitt einfalda, en góða ráð
er, kennið börnum yðar að
nota sérvettur..
I>ví miður er „sérvéttumenn-
ing“ á mjög iágu stigi hérna.
Hérna láta börnin sér nægja
að sleikja fingurna eða þurrka
sér í fatnaðinn.
Virðingarfyllst,
Guðrún Á. Símonar,
MávahLíð 37“.
Tollstöðin á Kefla-
víkurflugvelli
Velvakanda hefuir borizt
langt bréf frá Kristjáni Pét-
urssyni í Kefllavík, þar sem
hann ber blafc af tollþjónum
á Keflavíkurflugvelli og segir
aðfarir þeirra styðjast við laga
fyrirmæli. Þar sem megin-
atriði bréfs hans hafa þegar
komið fram í þessum dálkum
(í bréfi frá lögreglustjóranum
á Keflavíkurflugvelli) og með-
fylgjandi grein á ensku hefur
þegar verið þýdd og birt hér,
lætur Velvakandi sér nægja að
kvitta á þennan hátt fyrir
bréfið.
Ódýrir skór
Stök pör og sýnishom.
Drengjaskór
St. 27—41 kr. 198.00.
Kvenskór
kr. 150.00.
Bomsur
kr. 50.00.
Kuldaskór, töfflur og m. fl.
Kaupið ódýrt
SKÖVERZLUN
VSims /IncUics-sc+uut
Laugavegi 17 og 96.