Morgunblaðið - 26.01.1968, Side 6
* 6
MORGUNBLAÐK), FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 1968
Annast um skattframtöl að venju. Tími eftir sam- komulagi. Friðrik Sigurbjörnss., lögf. HarrastöSum v/Baugsveg. Sími 16941 og 10100.
Bifreiðastjórar Gerum við allar tegundir bifreiða. — Sérgrein hemla viðgerðir, hemlavarahlutir. HEMLASTILLING H.F. Súðavogi 14 . Sími 30135.
Skattaframtöl Sigfinnur Sigurðsson, hag- fræðingur, Malhaga 15. — Sími 21826 eftir kl. 18.
Skattaframtöl Komið strax, því tíminn er naumur. FyrirgreiSsluskrif stofan, Austurstræti 14, sími 16223. Þorleifur Guð- mundsson, heima 12469.
Útsala í Hrannar- búðunum Skipholt 70. S: 83277. Hafnarstræti 3. S: 11260. Grensásvegi 48. S: 36999.
Akranes - íbúð 1—2ja 'herb. íbúð óskast til leigu nú þegar. Uppl. í síma 2020, Kristján Gísla- son.
íbúð til leijpi 3ja herb. íbúð til leigu nú þegair. Tilboð merkt: „Mið- bær 5023“ sendist Mbl. fyr- ir 30. þ. m.
Óskum eftir góðri 2ja—-3ja herb. íbúð. Tvennt í heimili. Uppl. í síma 23887 eftir kl. 7 í kvöld.
Tungumálakunnátta Stúlka með B.A. próf ósk- ar eftir vinnu hálfan dag- inn. Tilboð send Mbl. merkt: „5025“.
15 ára drengur vanur í sveit, vill komast á gott sveitaheimili. Uppl. í síma 14556.
Skrifstofuhúsnæði til leigu við Laugaveg. — Uppl. í síma 32281.
Milliveggjaplötur Góður lager, þykktir 5, 7 og 10 cm. Hagstætt verð og greiðsluskilm. Hellu- og steinsteypan sf. við Breið- holtsveg. Sími 30822.
Svefnbekkir 2200.00 Nýir gullfallegir svefnsófar kr. 3500.00. Tízkuáklæði. Sófaverkstæðið Grettisgötn 69. Sími 20676. Opið til 9.
Til sölu loðnunót. Góðir greiðslu- skilmálar ef samið er strax. Símd 41437.
Aðstoða námsfólk í tftærð-, eðlis- og efnafræði o. fl. fyrir tækniskóla-, gagnfræða-, lands. og stúd entspróf. Arm. Ö Ármanns- son, stud. oecon.
Blöð og tímarit
HJARTAVERND, 1. tbl., 4. árg.
1967. Útg.: Hjartavernd, landssam-
tök Hjarta og æðaverndarfélaga á
íslandi. Ritstj.: Snorri P. Snorra-
son læknir. Afgreiðsla blaðsins:
Skrifstofa Hjartaverndar, Austur-
stræti 17, VI. hæð. Sími 19420. —
Prentað í ísafoldarprentsmiðju h.f.
Efni: Frá sjónarhóli leikmanns
séð. Hár blóðþrýstingur. Frá rann
sóknarstöð Hjartaverndar. Sjálf-
virkur efnamælir. Nokkrir nýjung
ar í lyfjameðferð við kransæða-
sjúkdóma. Skýrsla stjórnarinnar.
Reikningar Hjartaverndar.
Tifnarit
Hiúkrunarféiais
íslands
TÍMARIT Hjúkrunarfélags fs-
lands, 3. tbl. 1967, komið út. Rit-
stjóm: Jóhanna Stefánsdóttir, Guð
rún Kristjánsdóttir, Lilja Bjarna-
dóttir Nissen, Guðrún Blöndal. —
Auglýsingar og blaðdreifing: Hilm
ar Norðfjörð. Prentun: ísafoldar-
prentsmiðja h.f.
Efni: Ýmislegt úr dagsins önn.
Við framhaldsnám 1 Noregi 1965—
66. Hjúkrunarskortur. Heilbrigðis-
niáL Barnalækningar eru fyrir
böm. Tímarit danska hjúkmnar-
félagsins. Þættir úr fyrirlestrum.
Fréttabréf frá Vestmannaeyjum.
Minningagreinar. Raddir hjúkrun-
arnema. Stjórnarkosning f Hjúkr-
unarfélagi íslands o. fl.
VORIÐ, 33. árg. 4. hefti kom út
fyrir jól. Ritstj og útg.: Hannes
J. Magnússon, rithöfundur, Háa-
leitisbraut 117 og Eiríkur Sigurðs-
son, skólastj. Hvannavöllum 8,
Akureyri. Prentað í Prentsm.
Björns Jónssonar. Efni: Þórir S.
Guðbergsson e. Eirík Sigurðsson.
Aðfangadagur: Þórir S. Guðbergs-
son. Nóttin helga e. Skúla Þor-
steinsson, Systskinin í Sóley e.
Hannes J. Magnússon. Landsmót
Isl. ungtemplara. Kvöldstjarnan e.
Eirík Sigurðsson. Blómálfurinn
Blær e. Ingólf Jónsson frá Prest-
bakka. Stutt ferðasaga eftir verð-
launahafa í ritgerðarsamkeppL —
Framhaldssaga e. Sverre By, Heil-
ög jól, Brunnurinn og sveinninn,
þýzkt ævintýri. Skuldugi þjónn-
inn, þýtt, fleiri leikþættir og smá-
kvæði með fjölda mynda.
Spakmœli dagsins
Það er skynsamleg verkaskipt-
ing á öllum sviðum. Ég hef skrif-
að þessa bók, en enginn skapaður
hlutur gæti komið mér til að lesa
hana. — G. K. Chesterton.
FRÉTTIR
Rangæingar, heilsum þorra laug-
ardaginn 27. jan. í Domus Medica,
hefst kl. 8,30. Mætið vel og takið
með ykkur gesti. — Nefndin.
Sjálfstæðiskvennafélagið Sókn,
Keflavík, heldur aðalfund fimmtu
daginn 1. febrúar kl. 9 í Æskulýðs
húsinu. Á eftir verður spilað bingó.
Frá Bridgedeild Borgfirðingafél.
Nýlokið er sveitakeppni. Efst varð
sveit Sævins Bjarnasonar. — Ein-
menningskeppni hefst mánudaginn
29. jan. í Domus Medica kl. 8 e.h.
Þátttakendur mæti stundvíslega. —
Allir velunnarar félagsins velkomn
ir.
Æskulýðsráð Reykjavíkur:
Dagskrá 26.—30 jan.:
Opið hús fyrir 15 ára og eldri föstu
dag, laugardag, sunnudag og þriðju
dag kl. 20—23.
Opið hús fyrir 13—15 ára sunnu-
dag kl. 16—19.
Borðtennis föstudag kl. 20—23.
Dansleikur fyrir 13—15 ára sunnu
dag kl. 16—19. FJARKAR leika.
Kvikmyndasýning þriðjudag kl. 21
ýmsar myndir.
Boðun fagnaðarerindisins. — Al-
menn samkoma að Hörgshlíð 12,
Reykjavík sunnudaginn 28. jan.
Frá Kvenstúdentafélagi íslands.
Aðalfundur verður haldinn í Þjóð
leikhúskjallaranum þriðjudaginn
30. jan. kl. 8,30.
Keflavík
Sjálfstæðiskvennafélagið Sókn
neldur aðalfund þriðjudaginn 30.
janúar i æskulýðshúsinu kl. 9. —
Bingó verður spilað á eftir.
Kvæðamannafélagið Iðunn
heldur aðalfund sinn að Freyju-
götu 27, laugardaginn 27. janúar
kl. 8 stundvíslega.
Heimilasambandið
Heimilasambandið hefur 40 ára
afmælishátíð þriðjud. 30 janúar.
Nánar auglýst siðar. Enginn fund-
ur mánud. 29.
Umdæmisstúkan no. 1
Munið umdæmisstúkufundinn á
föstudaginn 26. jan. kl. 8.30 e.h. I
Bindindishöllinni við Eiríksgötu.
Kvenfélagið Heimaey
heldur árshátið sína í Sigtúni
Iaugardaginn 27. janúar. Tefst hún
með borðhaldi kl. 7 síðdegis.
Fótaaðgerðir fyrir aldrað fólk.
Kirkjunefnd kvenna Dómkirkj-
unnar veitir öldruðu fplki kost á
fótaaðgerðum á hverjum mánu-
degi frá kl. 9—12 árdegis í Kven-
skátaheimilinu í Hallveigarstöð-
um, gengið inn frá Öldugötu. Þeir
sem óska að færa sér þessa að-
stoð í nyt, biðji um ákveðinn tíma
í síma 14693 hjá frú Önnu Kristj-
ánsdóttur.
Frá Eyfirðlngafélaginu
Þorrablótið verður í Lídó laugar-
daginn 27. jan. Aðgöngumiðar af-
hentir í Lídó fimmtudaginn 25. jan.
kl. 5—7, föstu g 26. jan. kl. 2—4.
Kvenfélag Neskirkju býður eldra
sóknarfólki í kaffi að aflokinni
guðspjónustu kl. 3 sunnudaginn 28.
janúar í Féiagsheimilinu. Skemmti
atriði. Allt eldra fólk velkomið.
Kvenfélagskonur, Keflavík
Munið þorrablótið 27. jan. kl. 8,
stundvíslega. Miðar eru hjá Stein-
unni Þorsteinsdóttur, Vatnsnesvegi
21. —
Jesús sagði: Sæll er sá, sem ekki
hneykslast á mér. (Lúkas, 7, 23)
í dag er föstudagur 26. janúar
og er það 26. dagur ársins 1968.
Eftir lifa 340 dagar.
Bóndadagur. Miður vetur.
Þorri byrjar.
Árdegisháflæði kl. 2.26.
Upplýsingar um Iæknaþjónustu i
borginni eru gefnar í síma 18888,
símsvara Læknafélags Reykjavík-
ur.
Slysavarðstofan í Hellsuverndar-
stöðinni. Opin allan sólarhringinn
— aðeins móttaka slasaðra —
sími: 2-12-30.
Læknavarðstofan. Opin frá kl. S
síðdegis til 8 að morgni. Auk þessa
alla helgldaga. — Sími 2-12-30.
Neyðarvaktin tshrarar aðeins á
virkum dögum frá kl. 8 tll kl. 5,
•ími 1-15-10 og Iaugard. kl. 8—1.
Kvöldvarzl í iyfjabúðum
í Reykjavík
vikuna 20. jan. til 27. jan. er í
Ingólfs Apóteki og Laugarnes-
apóteki.
Næturlæknir í Hafnarfirði
aðfaranótt 26. janúar er Grímur
Jónsson sími 52315.
Geðvemdarfélag fslands
Ráðgjafa- og upplýsingaþj ón-
ustan alla mánudaga kl. 4—6 síð-
degis að Veltustundi 3, sími 12139.
Þjónustan ókeypis og öllum heimiL
Næturlæknir í Keflavík:
26. jan. Guðjón Klemenzson.
27. og 28. jan. Kjartan Ólafsson.
29. og 30. jan. Arnbjöm Ólafsson.
31. jan. og 1. febr. Guðj. Klemenz
Næturlæknir í Hafnarfirði aðfara
nótt 27. jan. er Bragi Guðmundsson
sími 50523.
Keflavíkurapótek er opið virka
daga kl. 9—19, iaugardaga ki. 9—2
og sunnudaga frá kl. 1—3.
Framvegis verður tekið á móti
þeim, sem gefa vilja blóð i Blóð-
bankann, sem hér segir: mánud.,
þriðjud., fimmtud. og föstud. frá
kl. 9—11 f.h. og 2—4 e.h. Miðviku-
daga frá kl. 2—8 e.h. og laugardaga
frá kl. 9—11 f.h. Sérstök athygli
skal vakin á miðvikudögum vegna
kvöldtímans.
Bilanasími Rafmagnsveitu Rvík-
ur á skrifstofutíma er 18-222. Næt-
ur- og helgidagavarzla, 18-230.
Skoiphreinsun hjá borginni. —
Kvöld- og næturvakt, símar
8-16-17
A.A.-samtökin
Fundir em sem hér segir: í fé-
lagsheimilinu Tjarnargötu 3c:
Miðvikudaga kl. 21. Föstud. kl. 21.
Langholtsdeild, I Safnaðarheimili
Langholtskirkju, laugardaga kl. 14.
Orð lífsins svarar í síma 10-000.
s Helgafell 59681267. VI. 2.
Tilkynning til sóknarfólks
Símanúmer mitt er 16337 og
heimilisfang Auðarstræti 19. Séra
Ragnar Fjalar Lámsson, sóknar-
prestur í Hallgrímsprestakalli.
f dag byrjar þorrinn
Kempa forn í garðinn gekk,
glumdi horna skvaldur.
Brynjan skorna skýldi rekk
skaft við norna-galdur.
Engum Þorri þeytir snjá,
þrotinn orrahríðum.
Foldu vorrar brosir brá,
brum i Skorrahlíðum.
Hnígur vald á verri hlið,
veikist kaldur hlekkur.
Hvíta faldiiyi kjósum við
á koll þinn, aldinn rekkur.
St. D.
sd NÆST bezti
Á GÖTUHORNI einu erlendis hafði um langa hríð staðið bein-
ingamaður og á honum hangið auglýsingarplata um það, að hann
væri blindur. Góðgerðarsöm kona kemur að honum einn dag og
er þá auglýsingin breytt orðin og stendur nú „mállaus" á betli-
kassa á brjósti hans. Hún spyr nokkuð undrandi:
„Hvað er þetta? Er yður batnað sjónleysið?“
„O, nei. En ég fékk of mikið af buxnahnöppum“.
Verður brezka Ijónið að leggja niður skotlið?
------------------------------------Sf&MÚAJtf
Við verSum aS doka viS, meðan ég finn hvar skórinn kreppir aS.