Morgunblaðið - 26.01.1968, Blaðsíða 8
8
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 196«
Kristján C. Gíslason:
BREIÐU BÖKIN
/' ÞEGAR nú efnaihagsörðugleikar
j steðja að, er að sjálfsögðu nauð-
í synlegt að þjóðin geri sér grein
fyrir þeim og snúist sameinuð
j gegn vandanum. Örðugleikarnir
I eru utanaðkomandi og væntan-
I lega tímabundnir. Þeir stafa að-
í allega af stórlega lœkkuðu verði
! erlendis á einhæfum útflutnings
j vörum okkar. Ef akkur tekst
j ekki að laga ökkur eftir aðstæð-
; um, kunna þessir tímabæru örð
t ugleikar að snúast upp 1 sjálf-
! skaparvíti. Almenn veimegun
og uppbygging atvinnulífsins
kann að breytast í eyimdarástand
í atvinnuLeysis og ringulreiðar.
! Dregið hefux verið úr áhnf-
um minnkandi þjóðartekna á ai-
mennar kaupgreiðslur og neyzlu
ÍBÚÐA
BYGGJENDUR-
Smíði á
INMIHURÐUM
hefur verið
sérgrein okkar
um árabil
Kynnið yður
VERÐ
GÆÐI
AFGREIÐSLU
FREST
iU.
SIGURÐUR
ELÍASSON%
Auðbrekku 52-54,
Kópavogi,
sími 41380 og 41381
með því að rýra varasjóð þann
sem myndaður var á undan-
gengnum góðærum.
Þar sem nálægur bati er ekki
sjáanlegur hefur takmörkun
neyzlunnar hjá þjóðinni í heild
verið talin óuimflýjanleg á með-
an fundin væru ráð til þess að
efla og umskapa atvinnuvegina
til aukinnar framleiðni og tekju
öflunar.
Sumir aðilar hafa þó fundið
einfaldara og eflaust vinsælla
ráð, þ.e.a.s. að láta „breiðu bök-
in“ bera byrðarnar og þannig
komast hjá almennri neyzlu-
skerðingu.
Táknrænt um þetta éliit er við
tai við prest nokkurn, sem birt-
ist í Þjóðviljanum þann 25. okt.
sl. undir yfinskriftinni „Þeir
gleyma heildsalanum". Þar spyr
presturinn meðal annars „Hvers
vegna er ekki kannað burðar-
þol kaupmanna, heildsala og
iðnaðarmeifetara undir svona
kringumstæðum?“
Ef eyðsla þessara aðila réði
hér baggamuninum þá væri ef
til vill ekki svo illt í efni. Svo
einfalt er mélið þvi miður ekki.
Þeir nota ekki alla bilana sem
fluttir eru til landsins, búa eikki
í öllum húsunum sem byggð eru
og þeir komast ekki yfir að
drekka allt áfengið og reykja
allt tóbakið sem notað er, svo
nokkuð sé nefnt.
Sparnaður hjá þeim einum er
ekki afgerandi í þessu efni held
ur verður þjóðin í heiid að spara
og minnka neyzluna svo nokkru
nemi.
Ef til vill hefur presturinn
meint að gera ætti upptækt það
rekstursfjármagn sem þessir að-
ilar kunna að hafa undir hönd-
um.
Undanfarið hefur sannarlega
verið höggvið skarð i fjármaga
atvinnuiekenda enda þótt enn
muni nokkuð vera eftir af þvl.
Þetta mun að sjálfsögðu vera
annars vegar eigið fjármagn og
hins vegar lánsié, en án þess
verður «ngum atvinn.irekstri
haldið ujrpi
Hvað h.ddsölu viðvík.ir þá er
þetta fjármagn mestmegnis
söncmenn!
upplýsingar í síma 30820
|1| ÚTBOÐ
Tilboð óskast um sölu á eftirfarandi efni vegna
Rafmagnsveitu Reykjavíkur:
1. Koparvír, ýmsar gerðir og stærðir,
alls 50.000 m.
2. Tengiskápar fyrir jarðstrengi.
3. Götuljósabúnaður.
4. Götuljósastaurar.
Útboðsgögn eru afhent í skrifstofu vorri.
INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR
VONARSTRÆTI 8 - SÍMI 18800
bundið í vörubirgðum, útistand-
andi skuldum, áhöldum og ef til
vill fasteignum fyrirtækisins,
eins og fjármagn bóndans felst
í t.d. húsurn, tækjum og skepn-
um, iðnrekendans í húsum, vél-
um ,efni og vörum; útgerðar-
mannsins í skipum o.s.frv.
Verði gengið á rekstursfjár-
magnið til viðhalds óskertri, en
skammvinni neyzlu, þá dregur
það óumflýjanlega á eftir sér
dilk minnkandi þjóðarfram-
leiðslu og tekna. Þetta er auð-
velt að framkvæma með því að
skylda atvinnurekendur, hvort
sem um er að rœða bænidw, út-
vegsfBenn, iðnrekendur eða
kaupmenn, að starfa á óheii-
brigðum fjárhagsgrundveliL
Minnkandi framleiðni þýðir
minnkandi vörur til skiptanna,
minnikandi neyzlu. Fylgifiskarn
ir eru atvinnuleysi, ringulreið
og örbirgð, þangað til *ftur
morgnar.
Breiðu bökin eru því þarfarí
til aukinnar framleiðni, með ó-
skertu fjármagni, helidur en tii
viðhalds ótímabærri neyzlu á
kostnað reksturfjárins, neyzlu
sem ekki er í samræmi við þjóð
artekjurnar.Kristján G. Gíslason
SVEINN KRISTINSSON SKRIFAR UM:
KVIKMYNDIR
Stjörnubíó
Doktor Strangelove
Ensk-amerísk mynd
Framleiðandi og leikstjóri:
Stanley Kubrick
Meðal leikara:
Peter Sellers
George C. Scott
Sterling Hayden
MERKIIÆGT er, að þjóðarbú-
skapur ýmissa erlendra stór-
velda skuli ekki vera í meira
ólestri en raun ber vitni. Frá
bæjardyrum smárrar. vopnlausf
ar þjóðar eins og íslendinga,
hlýtur það að vekja furðu,
hvern hátt þau verja drjúgum
hluta fjármuna sinna. Allt að
helmingur ríkisútgjalda þeirra
rennur til vopnaframleiðslu og
þjálfunar og útíhalds mikila
fjölda hermanna, jafnt til sjós,
lands og lofts. — Hvernig á
friðsöm og fámenn þjóð, sem
virðist hafa nóg með sína aura
að gera að skilja til hlítar slíka
ráðsmennsku.
Við skulum vona, að stórveld-
in sjálf. þau, sem standa undir
þyngsta vígbúnaðarkostnaðinum,
skilji þetta sjálf, skiilji í hvaða
tilgangi þau miða byssunum að
hjartastað hvors annars og þetta
þrátefli veiti þeim ávinning eða
lífsgleði í einhverri mynd, sem
vega kann á móti þeim fjármun-
um, sem þau leggja fram til leiks
ins.
Svo er látið heita, að Ripper,
foringi í flu.gher Bandaríkja-
manna. sé eitthvað ruglaður í
kollinum, er hann gefur flug-
sveit sinni skipun um að fljúga
yfir „öryggismarkið“ og hefja
kj'arnorkusprengjuárás á Rúss-
land. Hann telur, að kommún-
istar séu að reyna að ná heims-
ytfirráðum, með því að eitra
drybkjarvatnið með flúor, en
neyzla slíks vatns -eyði líkams-
vessunum". Muffley Randaríkja
forseta bregður í brún, er hann
fréttir um uppátæki Rippers og
reynir að láta stöðva flugsveit-
ina, en þar er við ramman reip
að draga, því svo hafði verið
ráð fyrir gert, að í hugsanlegu
kjarnorkustríði skyldu flugvél-
arnar gera radíómóttökutæki sín
óvirk. svo að óvinirnir göbbuðu
þær ekki með fölsuðum fyrir-
skipunum.
Ripper geymir þó dulmálslyk-
il, sem hægt hefði verið að nota,
til að ná sambandi við flugsveit-
ina, en hann er sko aldeilis ekki
á því að láta hann af hendi bar-
áttulaust. Hann þykist nefni-
lega sjá í hendi sér, að takist
nokkrum flugvélum að varpa
kjarnorkusprengjum á Rússland,
þá séu Bandaríkin tilneydd að
fylgja árásinni eftir af öllum
kröftum, till að kæfa í fæðing-
unni hefndarráðstafanir komm-
únista, eða draga sem mest úr
áhrifum þeirra.
Muffley forseti er ekki á
sama máli. Hann hringir hið
snarasta í forsætisráðherra
Sovétríkjanna og tilkynnir hon-
um, hvernig komið sé. Eftir all-
löng orðaskipti, tekst forsetan-
um að eyða tortryggni ráðherr-
ans og fá hann til að trúa því.
að hér sé um mistök að ræða.
Biður hann foTsætisráðhierra.nn
að láta skjóta niður allar flug-
vélarnar, ef mögulegt sé og býð-
ur honum allar þær upplýsingar
og aðstoð, sem hann geti í té
látið.
Jú, forsætisráðherra tekur
ekki illa í það. en telur hættu
á, að ein, tvær flugvélar eða svo
sleppi í gegn. Forsetinn spyr
kurteislega, fcvort Rússar muni
þá líta á slíkt eem uppfcaf é
styrjöld. En forsætisráðherrann
skýrir honum þá frá því. að í
rauninni skipfi það ekiki máli,
þvi þá muni „dómsdagsvélin“
fara sjállfkrafa í gang og eyða
öllu jarðlífL Og enginn mannleg
ur máttur geti hindrað eða
stöðvað mótaðgerðir dómsdags-
vélarinnar. ,
Við höfum einfaldlega ekki
efni á að halda uppi þessu stöð-
uga vígbúnaðarkapphlaupi, bætir
ráðherrann við, en dómsdags-
vélin væri hins vegar tiltölulega
ódýr miðað við notagildi, en
hlutverk hennar væri að eyða
öllu mannlífi, strax og fyrsta
sprengjan félli á rússneska
grund . . .
Haustið 1966 sýndi Stjörnubíó
mynd (..öryggismarkið), eem
var efnislega mjög lík þessari.
Þar tókst Band.aríkjaforseta að
koma í veg tfyrir heimsstyrjöld
með því að iáta eigin kjarnorku
sþrengjur eyða New York, eftir
að Moskva hafði verið lögð í
rúst vegna mistaka. Ef til vill
er efniviður þessi farinn að
sækja fast á hug vestrænna
kvikmyndarlistarmanna, og þótt
til dæmis þessi kvikmynd sé í
rauninni ,.gamanmynd“ í allri
efnismeðhöndlun, þá fer ekki
hjá því, að hún veki menn til
nökkurrar umþenkingar um þær
hættur, sem jafnvel .,öryggið“
sjálft kann að hafa í sér fólgn-
ar.
„Dómsdagsvélin" er kannski
ekki eins fjarri ykkur í tíma og
við álítum og, ef til vill. ekki
svo ólógisk uppfinning, að
Fífa auglýsir útsölu
Þar sem við hættum með fatnað á fullorðna verða
þær vörur sem við eigum seldar með miklum
afslætti, t. d.
herraskyrtur hvítar og mislitar,
skyrtupeysur, gallabuxur, og fleira,
dömuúlpur, peysur, blússur, stretchbuxur
og fleira.
F.innig barnaúlpur, peysur, gallabuxur,
stretchbuxur, molskinnsbuxur í stærð-
unum 12—18 og terylenebuxur.
Verzlunin FÍFA, Laugavegi 99
(Inngangur frá Snorrabraut).
minnsta kosti er manni fortalið,
að bezta trygging fyrir heims-
friði sé sú, að andstæðingUTÍnn
kaili bráðadauða yfir sjálfan
sig. ef honum dytti í hug að
gera árás. Og margir fróðleiks-
menn hafa lýst yfir því, að
kjarnorkustyrjöld tákni útrým-
ingu nær alls m.annkyns.
Peter Sellers fer með þrjú
hlutverk í mynd þessari, og hef-
ur það átt drjúgan þátt í vin-
sældum hennar. Mér finnst Sell
ers ekki hvað síztur í hlutverki
Mutffleys forseta, þótt það sé
minnsta grínhlutverkið. Yfir-
leitt finnst mér Sellers ekki
miklu síðri í alvarlegum hlut-
verkum en gamanhlutverkum,
þótt otft takist honum þar prýði-
lega upp.
Ég tek mynd þessa ekki sem
ádeilumynd á eina þjóð annarri
tfremur. Auk þess sem hún ger-
,ir hiálfgild'ings gys að hinu gag.n
kvæma vígbúnaðarkapphlaupi.
þá lítur hún einnig með hæðn-
isglotti á ofskipulagningu al-
mennt og gildi þeirrar fyrix-
hyggju og áæt'lana um ókomna
tíð, sem forustumenn stórveld-
anna setja traust sitt á, Og því
•miður hefur það tíðum ásann-
ast, að áætlanir stórveldanna um
hermál og annað hafa staðizt
illa próf reynslunnar. þótt gerð
.ar hafi verið í góðri meiningu.
Það er ekki ný saga.
Kvikmynd þessi er mjög
spennandi og tæknilega vei gerð
og óhætt að mæla með henni.
bæði sem dægradvöl og ábend-
ingu um þá hættu, sem hið brjál
aða vígbúnaðarkapphlaup hefur
í för með sér. — Við skulum
vona, að forustumenn stórveld-
anna geti dregið af henni ein-
hvern lædóm, og mundi ég ein-
dregið ráðleggja þeim að miss.a
ekki af þessari mynd. þó.tt
Stjörnubíó fari væntanlega á
mis við aðgangseyri þeirra.
AUGLYSINGAR
SÍMI SS*4'SD
Fjaðrir, fjaðrablöð, hljóðkútar
púströr o. fl. varahlutir
í margar gerðir bifreiða
Bílavörubúðin FJÖÐRIN
Laugavegj 168 - Sími 24180
Skóútsola
Kvenskór
á kr. 98.00.
Drengjaskór
9t. 27—41
á 'kr. 150.00—250.00.
Kvenkuldaskór
frá kr. 198.00.
Inniskór
frá kr. 100.00.
Drengjasnjóbomsur
kr. 150.00.
Kvenbomsur
frá kr. 50.00.
K vensk óhlí f ar
og m. fL
MíMÍIMOnMM
fpícuttnesiyeqi