Morgunblaðið - 26.01.1968, Síða 27
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 26. JANÚAR 1968
27
Lítil hætta á geislun í Thule
segir prófessor Jörgen Koch
Kauipmannahöfn., 25 jan,,
AP.
D A N S K A kommúnistablaðið
„Land og Folk“ ákærði ríkis-
stjórn Bandaríkjanna í dag um
að hafa meinað fréttamönnum
þess að fylgjast með hóp danskra
kjamorkufræðinga til Thule á
Grænlandi, en hópurinn fer
þangað til að kanna geislavirkni
á svæðinu, eftir að handarísk
sprengjuflugvél fórst þar með
fjórar kjarnorkusprengjur inn-
anborðs .
Fjórir danskir vísindamienn
fara til Thule og með þeim
hópur danskra blaðamanna, en
„Land og Folk“ segir, að frétta-
mönnum sínum hafi verið mein-
að að fara með af stjórnmiála-
ástæðum. Talsmaður danska
utianríkisráðuneytisins sagði, að
Hsti yfir fréttamennina, sem
fóru til Grænlands, hefði verið
afihentur handaríska sendiráðinu
í Kau'pmannahöfn, en ekki hefði
verið Ihægt að fiá leyfi fyrir frétta
menn kommúnistablaðsins í tæka
táð.
Foringi leiðangurs dönsku
vísindamannanna, próf. Jörgen
Kodh, tjáði fréttamönnum í dag,
- BREZKUR TOGARI
Framhald af bls. 28
janúar og þegar heyrðist til hans
10., gaf hann ekki upp neina
staðarákvörðun. Óvíst var þá,
hvert togarinn ætlaði á veiðar.
Víkingur III var á leið í róður,
þegar tveir skipverjar heyrðu
greinilega, að þessi togari kall-
aði út neyðarskeyti á bylgjunni
2182, sem er neyðarbylgjan.
Togarinn gaf upp þá staðar-
ákvörðun, að hann væri á 64 n.
br. og 4 v.l. Þar sem staður þessi
að hann byggist eklki við mikilli
hættu af geislun á svæðinu og
ekkert benti enn til að fbúar í
Thule mundu verða í hættu sök-
um hennar.
Bandanskir könnuðir og vis-
indamenn reyna enn að finna
kjarnorkusprengjurnar en hefir
lítið orðið ágengt, að því er fregn
ir frá Thule herm'a í dag.
er svo langt frá ísafjarðardjúpi,
hugsuðu skipverjarnir á Víking
III ekki meira um málið, fyrr en
þeir svo heyrðu í gær að lýst
var eftir togaranum.
Flugvélar af Keflavíkurflug-
velli, frá Skotlandi og Noregi
áttu að hefja leit að togaranum
í morgun og einnig hafa öll skip,
sem eiga leið um Atlantshaf
verið beðin að svipazt um eftir
honum.
Á st. Romanus rtiun vera 18
manna áhöfn, en togarinn var
smíðaður 1951.
Myndin sýnir Sikileyinga í flóttamannabúðunum í Sirignano viðstadda guðsþjónustu, sem
haldin var til minningar um þá, sem létust í jarðskjálftunum 15. jan. (AP-mynd).
Nýir jarðskjálftar á Sikiley
5 hafa farizt
á þjóðvegum
Palermo, Sikiley,
25. jan., AP-NTB.
MJÖG harðir jarðskjálft-
ar urðu á Sikiley í dag, á
sama tíma og hjálparsveit-
ir lækna, hjúkrunarliðs og
hermanna reyndu að koma
á eðlilegu ástandi í vestur
héruðum eyjarinnar, þar
sem 500 manns fórust í
jarðskjálftum 15. jan. sl.
— Jarðskjálftakippirnir í
dag mældust rúm átta stig
á Mcrcallis-skala, sem
mest mælir 10 stig. Vitað
er nú um 5 sjúkraliða,
sem unnu að björgunar-
störfum í þorpum á Sikil-
ey, sem fórust í jarð-
skjálftunum í dag, en tug-
ir hafa særzt af grjótflugi,
er hálfhrundar byggingar
hrundu með öllu.
Öflugasti jarðskjálftakipp-
urinn stóð í 20 sekúndur og
varð hans vart kl. 10 í morg-
og tugir særzt
við Palermo
un að ísl. tíma. — Þúsundir
manna flúðu heimili sín í Pal-
ermo, verzlanir þar og skrif-
stofubyggingar voru yfirgefn-
ar í ofboði og öngþveiti mynd
aðist á þjóðvegunum frá Pal-
ermo, er menn flúðu í bif-
reiðum sínum í átt til aust-
lægari sveitahéraða.
Þrír þeirra sem fórust í
dag urðu undir rústum hálf-
hruninna bygginga í þorpinu
Gibellina, sem hrundi að
mestu til grunna í jarðskjálft-
unum 15. jan. sl. Þar særðust
einnig fjöldi slökkviliðs- og
lögreglumanna, sem voru að
störfum í rústum þorpsins.
Yfirvöld í Palermo reyndu
í dag, að ná sambandi við
fjölmörg þorp á miðhálendi
Sikileyjar í suðvestri, en þar
ollu jarðskjálftarnir fyrir tíu
dögum geysilegu tjóni.
Síðan á fimmtudag hafa
björgunarmenn grafið 224 lík
úr rústum ýmissa þorpa í vest
urhéruðum Sikileyjar, en
saknað er enn 1200 manna og
2000 eru heimilislausir. Síðan
15. jan. hafa 30 jarðskjálfta-
— öngþveiti
kippir mælzt á vesturhluta
Sikileyjar og hafa hundruð
flóttamanna í tjaldbúðum í
sveitunum neitað að yfirgefa
þær af ótta við nýjar jarð-
skjálftahrinur. Þorp þau sem
vitað er um að hafa orðið illa
úti á jarðskjálftanum í dag
eru: Partanna, Montevago og
Santa Ninfa. í Santa Ninfa
hrundi þorpskapellan til
grunna í dag.
Yfirvöldin í Palermo óttast,
að síðustu jarðskjálftarnir
hafi rekið smiðshöggið á eyði-
leggingu fjölmargra smáþorpa
á hálendinu. í dag var helli-
rigning á Sikiley og óttaslegið
fólk hvarvetna á flótta með
föggur sínar. Þyrlur með her-
menn og sjúkratæki hafa þeg-
ar verið sendar til nauðstöddu
svæðanna og gerðar hafa ver-
ið ráðstafanir til að koma mat
arlausum og bágstöddum
flóttamönnum til hjálpar, en
við mikla erfiðleika er að
etja vegna öngþveitisins.
í Istanbúl varð vart við
jarðskjálftana í morgun, en
þeir voru smávægilegir og
ekki er vitað um manntjón
eða eigna af þeirra völdum.
Barnaleikurinn Galdrakarlinn í Oz verður sýndur í 30. sinn nk.
sunnudag og eru þá eftir aðeins tvær sýningar af leiknum. —
Leikurinn var, sem kunnugt er, sýndur á síðastliðnu leikári við
miklar vinsældir, en sýningar hófust aftur á leiknum nú um
jólin. Margrét Guðmundsdóttir leikur aðalhlutverkið, en leikstjóri
er Klemenz Jónsson. Mynðin er að Margréti og Valdimar Lárussyni
í hlutverkum sínum.
- SH OG SÍS
Framhald af bls. 28
tilkynnum vér stjórn Sölumið-
stöðvar hraðfrystihúsanna hér
með, að vér teljum ákvörðun
stjórnarinnar um stöðvun á af-
greiðslu umbúða til vor óheimila
og áskiljum oss fullar bætur frá
SH fyrir öllu því tjóni, sem þessi
synjun á afgreiðslu umbúðanna
kann að baka oss.
Þá viljum vér benda á, að
beiðni Bæjarútgerðar Reykjavík-
ur um afgreiðslu á umbúðunum
var synjað á stjórnarfundi SH í
gær með jöfnum atkvæðum.
Fimm atkvæðum gegn fimm.
Það virðist því fyllsta ástæða
til að beiðni Bæjarútgerðar
Reykjavíkur verði tekin til af-
greiðslu að nýju og förum vér
fram á að svo verði gert strax
á morgun, föstudaginn 26. janú-
ar.
Verði svar SH um afhendingu
umbúðanna neitandi munum vér
gera SH ábyrga fyrir öllu því
tjóni, sem synjun hennar á af-
hendingu umbúðanna kann að
baka oss og athuga jafnframt
hvort vér getum ekki krafist af-
hendingar umbúðanna með að-
stoð dómstólanna".
Fréttatilkynning frá SH og
Sjávarafurðadeild SÍS.
„Að gefnu tilefm vilja Sölu-
miðstöð hraðfrystihúsanna og
Sjávarafurðadeild SÍS taka fram
eftirf arandi:
1. Það eru Sölumiðstöð hrað-
frystihúsanna og Sjávaraf-
urðadeild SÍS, sem hafa
stöðvað afgreiðslu umbúða til
hraðfrystihúsa, en ekki Um-
Tekur sæti
ú Alþingi
EYJ'ÓLFUR Konráð Jónsson, rit
stjóiri, tók í gær sæti á Alþingi,
sem fyrsti varaþingmaður land-
kjörinna þingmanna-Sjélfstæð-
isflokksins, í veikindafor.föllum
Bjartmars Guðmundssonar. Ey-
jólfux hefur ekki átt sæti á Al-
þingi áður.
búðamiðstöðin hf. SH og SÍS
annast innkaup og afgreiðslu
á öllum umbúðum til hrað-
frystihúsanna, sem keyptar
eru bæði hjá Kassagerð
Reykjavíkur hf. og Umbúða-
miðstöðinni hf.
2. Undanfarna daga hafa staðið
yfir viðræður við fulltrúa
ríkisstjórnarinnar um starfs-
grundvöll hraðfrystihúsanna
og lögðu fulltrúar ríkisstjórn-
arinnar fram tilboð sl. þriðju-
dag. Þessu tilboði var hafnað
af hálfu hraðfrystihúsaeig-
enda, sem alls ófullnægjandi.
3. Nær öll hraðfrystihús lands-
ins hafa sjálf ákveðið að
stöðva frystingu vegna þess
að fjárhagslegur grundvöllur
fyrir rekstri þeirra er ekki
fyrir hendi.
Þessi ákvörðun nær þó eigi til
allra hraðfrystihúsa í eigu
bæjar- og sveitarfélaga, enda
hafa þau aðra fjárhagslega
aðstöðu".
- HITAVEITAN
Franthald af bls. 28
hækkað upp í 8 gráðu frost og
við þessa síðustu viðbót mætti
ætla að Hitaveitan þyldi 10 stiga
frost.
Verið er nú að bora nýja holu
milli Elliðaánna. Enn hefur
ekki orðið jákvæður árangUT í
þeirri holu, en hún er á saima
jarðhitasvæði og Blesugrófarhol-
an. Um 1 km. er á milli holanna.
Gunnar sagðist búast við því,
að 'hitastig holumnar ykist er far-
ið væri að dæla upp úr henni í
meira mæli, en í gær var skipt
um dælu í henni — sett upp
stærri dæla.
- LÁGMARKSVERÐ
Framhald af bls. 28
með atkvæðum oddamanns og
fulltrúa seljenda gegn atkvæð-
um fulltrúa kaupenda í nefnd-
inni.
f yfirnefnd áttu sæti: Bjarni
Bragi Jónsson, sem oddamaður
nefndarinnar, Helgi Þórarinsson
og Tryggvi Helgason, tilnefndir
af fulltrúum seljenda í Verð-
lagsráði, og Guðmundur Kr. Jóns
son og Ólafur Jónsson, tilnefnd-
ur af fulltrúum kaupenda I
Verðlagsráði.
(Frá Verðlagsráði sjávar-
útvegsins).
- TRÉSPÍRITUS
Framhald af bls. 1
lagði hald á mikið magn af tré-
spíritusi og hasisj.
Upplýst er, að fyrir tveimur
mánuðum hafi 17 manns látizt
af völdum tréspírituseitrunar. —
Tréspíritussala hefur mjög auk-
izt í Kalkútta að undanförnu
vegna skorts á sykurefnum, sem
venjulega eru notuð við heima-
brugg.