Morgunblaðið - 03.02.1968, Síða 26

Morgunblaðið - 03.02.1968, Síða 26
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 1968 20 Akureyri og Rvík keppa í íshokkí — Fyrsta bæjarkeppnin í þessari grein á Krákeyri í dag FYRSTA opinbera bæjarkeppni milli Akureyrar og Reykjavíkur í íshokkí er ráðgerð á Akureyri í dag, 3. febrúar kl. 2 e.h. á Krákeyrinnj við Akureyri. Lið frá Skautafélagi Akureyrar og Skautafélagi Reykjavikur hafa tvívegis áður keppt í íshokkí, IKF-ÍR í kvöld ÍSLANDSMÓTIÐ í körfuknatt- leik heldur áfram í kvöld á tveim stöðum. Kl. 19:00 leika ÍKF og ÍR í I. deild á Keflavikurflugvelli, en eins og kunnugt er leika utan bæjarliðin í 1. deild aðra um- ferðina á heimavelli að þessu sinni. Yngri flokkarnir verða að Há- logalandi kl. 20:15: 4. fl. KR — KFR 3. fl. ÍR — ÁRMANN 3. fl. KR — KFR A sunnudag kl. 16:00 leika ÍR og Skallagrímur í 3. flokki í Borgamesi. fyrst á Akureyri í fyrravetur og í Reykjavík fyrr í vetur Akureyringar hafa sigrað í bæði skiptin með nokkrum markamun. En munurinn var ekki eins mikill í síðari keppn- inni, enda hafa Reykvíkingar nú fengið allgóða aðstöðu til æf- inga á Melavellinum og má vænta að framfarir verði örar hjá þeim. Þegar fyrsti kappleikurinn fór fram á Akureyri, gáfu Sjóvá- tryggingar Akureyri véglegan bikar fyrir hugsanlega árlega bæjakeppni milli Akureyrar og Reykjavíkur. í dag verður keppt um þennan bikar í fyrsta sinn. fshokkí er tiltölulega lítið þekkt sem keppnisíþrótt hér á landi. Þess vegna verður reynt að lýsa leikreglum og dómum jafnóðum og leikurinn fer fram, til hagræðis fyrir áhorfendur. fshokkí býður upp á góða skemmtun fyrir áhorfendur, því að leikurinn er bæði hraður og spennandj ef jöfn lið leika sam- an. KR vann styttuna á innanhússmótinu Mesti sigur Fram á árinu að vinna „Dýrlingana" 4-1 INNANHÚSSMÓT Fram í knatt- spyrnu, sem var liður í afmælis- hátíðahöldum félagsins fór fram í íþróttahöllinni í fyrradag og var hið skemmtUegasta, þótt mótið drægist nokkuð á langinn vegna mikils leikfjölda. Eigi að síður skal enn á það minnt að innanhússknattspyrna verður aldrei nema svipur hjá sjón með- an vantar meterháu borðin með hliðarveggjum. Ætti KRR eða IBR að koma slíku upp, ef íþróttahöllin er þess vanmegnug. KR-liðið bar verðskuldaðan sigur úr býtum og var langbezta lið keppninnar, enda hið eina sem að einhverju ráði hefur æft innanhússknattspyrnu. Leikir mótsins fóru þannig: 1. umferð KR—VALUR 9—2 (4—1) VÍK—FRAM B 9—3 (5—1) ÍBK—ÞRÓTTUR 3—1 (2—1) Akranes — Fram A 4—3 eftir framlengdan leik. í hálfleik stóð 1—1 og 3—3 að leiktíma liðnum. 2. umferð KR-Akranes 7—4 (4—2) Keflavík—Víkingur 6—2 (2—1 í úrslitaleik vann Svo KR lið Keflavíkur með 5—1. Skoraði KR liðið 4 fyrstu mörkin, þar af 3 í fyrri hálfleik. Hafði- liðið allmikla yfirburði í nákvæmum Framih. á bls. 27 Geir ógnar KR-markinu. Þessa skemmtilegu ljósmynd tók ljósm. Mbl. Kr. Ben. fyrr í vikunni. — Fram og FH gera út um hvort íslandsm. er búið eða ný spenna skapast Á MORGUN, sunnudag, fara fram tveir leikir í 1. deildarmóti handknattleiksmanna . Kann svo að fara að örlög spennandi keppni í þessu móti verði ráðin annað kvöld. Leikur Fram og FH skiptir öllu máli þar um. Staðan er nú þannig í mótinu eftir 4 umferðir, að Fram Valur og FH berjast á toppinum og eru stig félaganna í sömu röð 8, 6 og 5. Vinni Fram annað kvöld hefur félagið náð 10 stig- um en FH situr eftir með 5 stig. Ef svo fer er þess vart að vænta að nokkur spenna geti skapast um það, hvar bikarinn lendir. Ef FH vinnur, hefur liðið hins vegar unnið upp að mestu tap það er félagið hefur orðið að þola í þessari fyrri umferð móts- ins, og á ekki sinn líka um margra ára skeið. Yrði þá aftur spenna um úrslitin og mótið fær þá nýja spennu. Ef þekkja má Hafnfirðinga rétt, munu þeir ekki láta sér tækifærið úr greipum ganga Rok Grenoble 1 GÆRKVÖLDI breyttist veðrið í Grenoble skyndilega. Undanfarna daga hefur verið vorsól og hiti um frostmark eða þar yfir og allir dáðst að dýrð Olympínsvæðisins. í stað þess kom skyndilega rok og rigning. Svipuð veðraskipti urðu í fyrra þá er „reynslu leikim- ir“ voru haldnir þar og þá varð að fresta keppni í alpa- greinum og stökki vegna sjó komu og þoku. Haldizt þetta ,,illviðri“ á svæðinu er hætt við að það setji strik í reikn- inginn með framkvæmd OL- leikanna, ekki sízt þar sem skráin er mjög áskipuð. baráttulaust. Nú verður Geir Hallsteinsson aftur með — mátt- arstólpi liðsins að undanförnu og einn mesti ógnvaldur mark- varða og varnarmanna af lands- liðsmönnum nú. Framarar munu ekki vilja láta •tækifærið sér úr greipum ganga. Vonandi er að leikurinn verði vel Leikinn og skemmtilegur þrátt fyrir mikilvægi hans fyrir bæði lið. Þá leika KR og Haukar en þau eru enn hvorugt úr fall- hættu en það liðið sem sigrar hefur náð mikilvægu spori í þá átt. Það er því mikið í húfi. Á undan þessum leikjum fer fram leikur í 2. deild milli Þrótt ar og ÍBK. Hefst hann kl. 7:15. Aðalfundur FH AÐALFUNDUR FH verður hald- inn á morgun, sunnudag, kl. 2 í Rafha. Auk venjulegra aðalfund- arstarfa verða gefnar uþplýsing- ar um hið nýja íþróttasvæði fé- lagsins í Kaplakrika við Reykja- nes'braut. Uppdrættir af mann- virkjum þar munu liggja frammi en ráðger,t er að byrja á að ryðja fyrir knattspyrnuvelli á næstunni. Vegna fundarins falla æfingar 6. flokks niður óg einnig seinnj æfing m.fl. •Þessar myndir tók Kr. Ben. á innanhússmóti Fram í knattspyrnu. T.v. eigast við Sæmundur landsliðsnefndarformaður og Björn Vignir Mbl. í liði „Dýrling anna“. f miðið er allfrumstæð knattspyrnuaðferð samkv. myndinni. N. 8 er fyrrv. landsliðs-maður Skúli Nielsen en sá sem er i stellingum skautahlaupar- ans er Jbp á Vísi. T.v. er sigurlið KR í móinu með sigurstyttuna.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.