Morgunblaðið - 03.02.1968, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 3. FEBRÚAR 1968
27
- VIETNAM
' Framhald af bls. 1
inig varð í geymislunni og eldur
kviknaði í nærliggjandi hú’sum.
Einnig kviknaði elidur á fleiri
stöðum í borginni, og var sums
staðar uim stórbruna að ræða.
Snemma í dag bárust þær frétt
ir frá Hue, skammt sunnan við
lanidamæri Norður-Vietnam. að
fjölmennar sveitir kommiúnista
hefðu mestan hluta borgarinn-
ar á sínu valdi. Þótt verjend-
ur borgarinnar væru vel vopn-
um búnk og beittu hriðskota-
byssum, sprengivörpum og eld-
flaugum, sóttu sveitir kommún-
ista fram. Reynt var að koma
liðsauíka til bandarísku sveit-
anna í borginni með þyrlum, en
það tófcst ekki vegna harðrar
loftvarnarskothríðar kommún-
feta. Einnig reyndu þyrlur að
bomast til borgarinnar til að
flytja á brott særða hermenn,
og voru tvær þeirra skotnar
niður.
f Vinfh Long á ósasvæði Me-
kong fljótsins höfðu Bandaríkja
menn flotastöð, en borg þessi
er 88 km. fyrir sunnan Saigon.
Þegar skæru-liðar hófu sókn til
borgarinnar voru öll bandaísk
skip, sem þar voru, send úr
höfn. Hersveitir Bandaríkja-
manna eru þó enn í borginni
og verjast sókn skæruliða. Hafa
skæruHðar gert árásir á fleiri
borgir og bæi á ósasvæðinu, og
eru meðal annars sagðir hafa
tekið borgina Xuan Loc, sem
er höfuðborg héraðsins. Sé það
rétt munu skæruHðar ráða yfir
10 héraðis-höfuðborgum.
f heild er mjög erfitt að fá
nokkurt áreiðanlegt yfirlit yfir
ástandið í Vietnam, þvi fregnum
ber alls ekki saman. Talsmenn
beggja aðila telja upp borgir
og fæi þar sem þeirra sveitir
eiga að vera í sókn, eða að sigri
komnar, og oft eru fregnirnar
þess eðl’is að báðir aðilar hafi
sigrað.
SKÝRSLA VIET CONG
f frétt frá Tókíó er sfcýrt frá
því að Giai Phong fréttaþjóní
ustan, sem flytur málstað Viet
Gong skæruliða, hafi í dag birt
bráðabirigðayfirlit um atiburðina
í Vietnam frá 30. janúar til dags
- FLOKKSRÆÐI
Framh. af bls. 20
að ákvörðun framboða færist
í ríkari mæii í hendur flokks-
stjórna. Allt frá 1933 hefur sú
regla gilt óskorað, að við
hlutbundnar kosningar mætti
bera fram fleiri en einn lista
í, nafni sama flokks í kjör-
dæmi. Þannig var, þegar hlut-
fallskosning var í Reykjavík-
urkjördæmi einu ótvíræð
heimi'ld til slíkra framiboða.
Þegar tekin var upp hlutfalls-
kosning í tvímenningskjör-
dæmum 1942 gilti þetta einn-
ig. Ennfremur var svigrúm
þetta talið núverandi kjör-
dæmaskipun mjög til gildis
eins og ummæli Bjarna Bene-
diktssonar 1969 bera ótvíræð-
an vott um.
Því verður ekki trúað að
óreyndu, að unga fólkið á ís-
landi í dag horfi þegjandi á
alvarlega atlögu að rétti þess.
Ungir áhugamenn um vöxt og
viðgang lýðræð’is í landinu
hljóta að leggjast einhuga
gegn tillögu dómsmálaráð-
herra.
Samþykkt frumvarpsins
eýkur tvímælalaust flokks-
ræðið í landinu. Finnst ein-
hverjum á það bætandi? Ann-
að hvort er frumvarpið kom'ið
fram fyrir misskilning eða
enn skuli flokksólarnar hert-
ar.
Frumkrafan hlýtur að vera
sú, að flutningsmaður tillög-
unnar dragi hana til baka. Að
öðrum 'kosti verður að treysta
því, að frjálslynd og framsýn
öfl á Alþingi íslendinga felL
tillöguna. Með skirskotun th
þess, að mál þetta krefst ekki
brýnnar úrlausnar, verður að
krefjast til þrautarvara, að
Aiþingi skipi milHþinganefnd
tii þess að skoða málið.
ins í dag. Segir þar meðal ann-
ars að skæruHðar hafi valdið
miklum skemmdum í 64 borg-
urn og bæjum- í 32 héruðum Suð
ur-Vietnam undanfarna þrjá
daga. Einnig hafi skæruliðar
ráðizt á 24 flugstöðvar og flug-
velli í Suður-Vietnam, og á
tveimur þeirra — í Danan.g og
Vinh Long — hafi þeim tekizt
að eyðileggja 130 flugvélar
Bandaríkjanna.
f tilkynningunni er skorað á
Sbúa Saigon að ganga í lið með
skaeruliðum. vinna sigur á
Bandarífcjamönnum og útrýma
svifcúrunum, sem fari með völd
í landinu, Er áskorunin frá Ngu
yen Huu, einum af leiðtogum
skæruliðanna, Segir hann að
bandarfsíkar sprengiur fái ekki
bugað þjóðina í Vietnam, sem
hafi verið hert í baráttum sið-
ustu fjögur þúsund ára. Segir
hann að eina rnaókmið „Þjóð-
frelsishreyfinigarinnar sé að
„bjarga landinu“ og koma á
..sjálfstæðu og fullvalda Suður-
Vietnam, friðeömu hlutlau.su og
efnuðu Suður-Vietnam með það
lokatakmarg í huga að sameina
okkar ástkæra föðurland á ný“.
Annar af leiðtogum skæru-
liða, Nguyen Phu Soai, ræddi
við fréttamenn í Hanoi í dag,
og benti þeim á að yfirstand-
andi aðgerðir Viet Cong ættu
sér ekkert fordæmi. Sagði hann
að gkæruiiðar væru í stöðugri
sókn. og hefðu þeir gert árás-
ir á 40 borgir og bæi, þeirra á
meðal Saigon. Danang og Hue.
og á alOar belztu herstöðvar
Bandarífcianna. Sagði hann enn
fremur að sumisstaðar. eins og í
Saigon og Hue, hefðu verið
stofnuð samtöfc andstæðinga
Bandaríkianna og Thieu-Ky
klikunnar, sem hann nefndi
svo. er hefðu nána samvinnu við
. Þir'ðfrelsishreyfinguna“.
Soai hélt því fram, að sveit-
ir úr her sttórnarinnar í Saigon
hefðu gengið í lið með Viet
Cong. f stuttu miáli mætti því
segia að árásarmáttur óvinarins
hefði verið lamaður og dregið
hefði úr getu óvinarins til and
stöðu við „Þióðfrelisishreyfing-
una“.
10 ÞÚSTTND FELLDIR
Lyndon B. Jdhnson Banda-
ríkiaforseti ræddi við frétta-
menn í Washington í dag um á-
standið í Vietnam. Sagði hann
að berstiórn Bandaríkianna hafi
lengi búizt við að Viet Cong
skæruliðar og hersveitir frá
Norður-Vietnam hæfu nýja
sókn um þetta leyti.
„Við höfum vitað það í
nofckra mánuði að komm.nistar
ætluðu að byrja nýja sókn með
vorinu. Höfðum við fengið ýt-
arlegar upplýsingar um fyrir-
skipanir Ho Chi Minhs forseta
varðandi sóiknina. f þeim er gert
ráð fvrir alldheriar uppreisn í
Suður-Vietnam, og vitum við að
- ÍÞRÖTTIR
Framhald af bls. 26.
sendingum og yfirsýn yfir völl-
inn. Mörk KR skoruðu Eyleifur
2, Jón Sigurðsson, Guðm. Har-
aldsson og Gunnar Felixson. Karl
Hermannsson skoraði mark Kefla
víkur.
Til gamans og skemmtunar
voru tveir leikir. Fyrst kepptu
gamlar stjörnur Fram og KR.
Hafa þau lið fyrir alllöngu hlot-
ið nöfnin Bragðarefnirnir (Fram)
og Harðjaxlarnir (KR), enda
hafa þau æft allvel að minnsta
kosti KR. KR-ingar sigruðu 6-—4
eftir jafnan leik framan af.
Margt sást laglega gert hjá
„gömlu mönnunum" og sízf lak-
ar en margt af því er keppnis-
lið mótsins sýndu.
á léku stjórn Fram og lið
íþróttafréttamanna, sem gekk
undir nafninu „Dýrlingarnir"
Urðu nú „Dýrlingarnir" að lúta
því sem flest lið þurfa að gera
einhvern tíma — þ.e. að tapa
og það gerðu þeir rösklega núna
eða með 1 marki gegn 4. Leik-
urinn var alls ekki eins ójafn og
markatalan gefur til kynna, en
Framliðið hafði heppnina með
sér og það var því aðalstjórn
Fram sem færði félaginu eina
sigur kvöldsins og „mesta sigur
Fram á árinu“ eins og sagt var
eftirá.
tilgangur uppreisnarinnar var að
kollvarpa löglegri stjórn lands-
ins og valda þeim glundroða að
við og yfirvöldin í Saigon vær-
um reiðubúnir til að samþykkja
skipun nýrrar samsteypustjórn-
ar í Suður-Vietnam þar sem
kommúnistar réðu mestu“, sagði
forsetinn.
Annar hluti sóknarinnar átti
svo að vera stórfelld innrás her-
sveita frá Norður-Vietnam.
Forsetmn hatfði það eftir að-
alstöðvum Westmorelands hers-
höfðingja í Saigon að í átökun-
um undanfarna daga hefðu ver
ið felldur rúmlega 10 þúsund
hermenn kommúnista og 2.300
handteknir. Hinsvegar hafa
Bandaríkin misst 249 hermenn
og 553 menn hafa fallið úr her-
Suður-Vietnam á þessum sama
tíma.
Kommúnistar hafa gert marg-
ar árásir á flugvelli Bandarikia
ma.nna, sagði forsetinn, og hefur
þeirn tekizt að giör-eyðileggja
fimmtán herflugvélar og 23
þyrlur. auk þess sem fjöldi flug
véla befur orðið fyrir skemmd-
um.
„Aðalatriðið er“, sagði John-
son, ,,að yfirlýstum tilíangi upp
reisnarinnair hefur ekki verið
náð. Leiðtogar kommúnista
rei'knuðu með stuðningi almenn
ings í borgunum en nutu hans
í miög litllum mæli“.
JOhnson taldi að næst mætti
búast við tilraun hersveita Norð
ur-Vietnam til sóknar á svæðinu
sunnan landamiæranna og hlut-
lausa svæðiisins. Taldi hann að
sú sókn beindist fyrst og fremst
að svæðinu við Khe Sanh. „Við
fcöfum lengi vitað um þessi
sóknaráform óvinarins. Undan-
farnar vikur hef és stöðugt ver
ið í samibandi við Westmoreland
bershöfðineja og við herforingja
ráðið ti’l að vera viss um að her
stiórnin í Vietnam fengi öll þau
hergögn og vistir, sem hún telur
sig þurfa á þessu stigi. Ég er
sannfærður um að menn okkar
og her Suður-Vietnam beriast
af hreysti. Eins og þið vitið er
ástandið miög breytilegt. Við
munum láta baindarisku þjóðina
fá að fylgjast með þróun mál-
anna“.
KOMMÚNISTAR GJÖRSIGR-
AÐIR“
Nguyen Van Thieu forseti
Suður-Vietnam boðaði í dag til
skyndifundar með leiðtogum rfk
isstiórnarinnar, en að þeim
fundi loknum flutti hann ávarp,
sem sjónvarpið var um allt land,
f ávarpinu sagði Thieu forseti
meðal annars að tekizt befði að
hrinda sókn kommúnista, og
þráft fyrir mótetöðu skæruliða
í nokkrum borgu-m landsins,
mætti telia að kommúnistar
hefðu verið giörsigraðir.
Meðan for-etinn var að flytja
ávsrp sitt í Saigon. geisuðu bar
daear í sex hverfum borgarinn-
ar. og barizt hús úr húsi.
Thieu saeði að hann væri þvi
fvlejandi að enn yrði hert á
loftárá'sum á Norður-Viietnam
þannig að ráðizt yrði á öl’l þau
skotmö’'fc. sem hafa hernaðar-
legt gildi. Átti þessi útfærsla
loftárásanna að vera nofckurs-
konar „refsing“ vegna skyndi-
sóknar kommúnista í Suður-
Vietnam.
Ellsworfh Bunker, sendiiherra
Bandarikianna í Saigon, kom til
vinnu sinnar í sendiráðinu í dag,
en skæruliðar Viet Cong réðust
inn í sendiráðið fyrr i vikunni
og náðu hluta þess á sitt vald
áður en bandari'kum hermönn-
um tókst að fella flesta þeirra.
Meðan Bunker sendiherra var í
sendiráðinu héldu leynisfcyttur
kommúnista öðru hverju uppi
skothríð á húsið. Lét sendiherr-
ann sér fátt um finnast og sat
áfram við sfcrifborð sitt úti við
glugga. Gripu þá herlögreglu-
menn i taumana og fengu sendi
berrann til að flytja sig í ör-
uggara herbergi, gluggalaust.
Segja talsmenn sendiráðsins að
stundum hafi skothríðin verið
svo mikil að starfsmönnum hafi
verið skipað að sitja á gólfinu
fjarri gluggum.
★
í Kína hafa kommúnistar
fagnar skyhdisókn trúbræðra
sinna í Vietnam, Dagblað Al-
þýðunnar, málgagn kínversku
stjórnarinnar, birtir í dag grein
um ástandið í Vietnam og segir
að skyndiáhlaup kommúnista
þar hafi verið „enn einn glæsi-
legur sigur“. og sýni að dagar
Bandarikjamanna í Vietnam séu
taldir. „Kínverska þjóðin fagn-
ar þessum glæsilegu aigrum ner
sveita Þjóðfrelsishreýfingarinn-
ar og sendir hugrökkum bræðr-
um sínum í Suður-Vietnam hll)
ar hamingjuóskir".
Blaðið segir að árásirnar hafi
sýnt að jafnvel aðalstöðvar
BandarSkjanna í Suður-Vietnam
væri ekki öruggt skjól. Blaðið
vitnar í fyrri ummæli Jo,hnsons
Bandaríkjaforseta um að Viet
Cong hafi beðið hvern ósigur-
inn á fætur öðrum í ba.rdögum
við hersveitir Bandarífcjanna og
Suður-Vietnam og segir: „Ekki
verður hjá því komizt nú þegar
staðreyndirnar eru komnar í
j ljós að allur heimurinn hlær að
I lygum Johns'ons".
Bóðslefna Stúdentafélagsins am
ísland og þrénnorríkin
STÚDENTAFÉLAG Háskóla ís
lands efnir til ráðstetfnu um efn
ið „ÍSLAND OG ÞRÓUNAR-
RÍKIN“ í dag, laugardaginn 3.
febrúar, kl. 2 e.h. að Snorra-
búð, Hótel Loftleiðum. Fram-
sögumenn verða: Ólafur Björns
son, prófessor, Sigurður Guð-
mundsson, skrifstofustjóri og
Andri ísaksson, sálfræðingur. Að
framöguerindum loknum verða
frjálsar umræður og fyrirspun-
ir.
Til áðstefnunnar hefur verið
boðið sérstáklega fulltrúum
æskulýðssamtaka, stjórnmála-
fl'okká, félagssamtaka stúdenta,
Æskulýðssa.miband íslands, fram
kvæmdanefndar „Herferðar
gegn hungri“ ásamt öðrum
áhugamönnu.m um þessi efni.
Öllum stúdentum er einnig heim
ill aðgangur meðan húsrúm leyf
ir.
Frá fundanefnd SFHÍ.
Iitnbroft í fyrrinótft
einn staðinn að verki
BROTIZT var inn á einum stað
í fyrrinótt og maður var stað-
inn að innbrotstilraun í húsa-
kynnum O. Johnson og Kaaber
við Sætún.
Brotizt var inn í Vogakaffi við
Súðavog og stolið þaðan ein-
hverju af sígarettum og 4-690
krónum í peningum. Þjófurinn
braut litla rúðu í hurð og gat
teygt sig þar í gegn í lésinn.
Engar frekari skemmdir voru
unnar.
Vaktmaður O. Jofcnsons og
Kaabers varð í fyrrinótt var við
mann, sem var að reyna að
brjóta sér leið inn á lóð fyrir-
tækisins við Súðavog. Lóðin er
rammlegá girt og hliðið harð-
læst um nætur.
Vaktmaðurinn gerði l'ögregl-
unni þegar viðvart og handtófc
hún á staðnum mann, sem var
að k'lippa gat á hliðið. Á mann-
inum fundust ýmis verkfæri,
sem þóttu sanna. að hann ætlaði
sér lengra en aðeins í gegn um
- 13 TÓFUR
Frham af bls. 28
síðan fyrir þeim. Var hann
búinn að skjóta 13 tófur um
miðjan janúar, og er það tals-
ver.t meira en hann skaut all-
an veturinn í fyrra.
— S. Sig.
- EKKERT
Frham af bls. 28
fen.gizt til að ráða sig á bát.
Kristján sagði, að a.lmennt
hefði komið í ljós. þegar haft
hafi verið samband við fyrr-
greinda menn, að flestir þeirra
væru í vinnu, eða vildu ekki
ráða sig á fiskiskip.
— Okkur þætti ástæða til, að
eftirlit væri haft með því, að
menn í atvinnu létu ekfci skrá
sig atvinnulausa, sagði Kristjén.
Þá má geta þess, sagði Krist-
ján, að í fyrradag hefði LÍÚ
hefðu au.glýt eftir mönnum á
bát í Reýkjavík og hefðu að-
eins tveir menn gefið sig fram.
LEIÐRÉTTIIMG
í MINNINGARGREIN Hannes-
ar Björnssonar um Jón Magn-
ússon fréttastjóra, sem birtist í
blaðinu í gær, urðu tvær prent-
villur, sem lesendur eru beðnir
velvirðingar á.
í fimmtu málsgrein: . . og
sú gleði átti alla tíð bólfestu í
brjósti þínu, en þar átti að
standa . en sú glóð o.s.frv.
í næst síðustu málsgrein stóð:
Og sólrík sveit vor, hinn ó-
gleymanlegi góðheimur norð-
ursins Þar átti að standa:
goðheimur norðursins.
hliðið og flut'ti lögreglan hann
í fangageymslu, þar sem hann
gisti í fyrrinótt.
Við yfirheyrslu í gær neitaði
maðurinn að segja nokkuð um
þetta- tiltæki sitt.
IMýnazistar
Hannover, 1. febrúar. NTB.
ADOLF von Thadden, formaður
NDP, flokks öfgasinnaðra hægri
manna sem af mörgum er kall-
aður nýnazistaflokkur, hélt því
fram í gær, að flokksbróðir hans
hefði látizt í gærkvöldi eftir að
að kommúnistar hefðu ráðizt á
hann með barsmíðum.
Maður þessi, Karl Hofman,
sem er 56 ára að aldri, lézt eftir
öllu að dæma af völ'duim hjarta-
slags eftir áflog í bjórstofu í
Múnchen þar sem vinstrisinnar
■efndu til fundar i tilefni af því
að 35 voru voru liðin síðan
Hitler komst til valda.
JQHIVS - M\i\lVILLE
glerullareinangninin
Fleiri og fleiri nota Johns-
Manville glerullareinangrun-
ina með álpappírnum
Enda eitt bezta einangrunar-
efnið og jafnframt það
langódýrasta.
Þér greiðið álíka fyrir 4”
J-M glerull og 2y4” frauð-
plasteinangrun og fáið auk
þess álpappír með!
Sendum um land allt —
Jafnvel flugfragt borgar sig.
Jón Loftsson hf.
Hringbraut 121. - Sími 10600.
Akureyri: Glerárgötu 26.
Sími 21344.