Morgunblaðið - 25.02.1968, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 25.02.1968, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 25. FEBRÚAR 1968 5 * ÞINGFUNDIR voru yfirleitt stuttir í liðinni viku, enda fá mál tekin fyrir, sem ágreiningur var um. Fá ný þingsskjöl komu einnig fram, enda má búast við þvi að draga taki úr tillögum og frumvarpaflutningi, þar sem óðum styttist þingtíminn. Mjög mörg mál eru hinsvegar til af- greiðslu hjá nefndum, og má því búast við miklum annatíma hjá þinginu þegar að þinglokum líð- ur. Mörgum kann að virðast, að inefndarstörf gangi óeðlilega hægt fyrir sig, en þess ber að gæta, að nefndirnar leggja yfir- leitt mikla alúð við störf sín og kynna sér málin svo mikið sem mögulegt er. Oft þarf að leita umsagnar hjá mörgum að- ilum sem síðan eru misjafnlega fljótir að senda svör sín. Fyrirspurnirnar um Norður- lands áætlun urðu loks útræddar í vikunni, eftir að hafa verið til umræðu á þremur fundum Sam- einaðs-Alþingis. Óvenju margir þingmenn tóku til máls um fyrir spurnirnar og voru umræðurnar vissulega hinar gagnlegustu og vafalaust hafa Norðlendingar fylgzt með frásögnum af þeim með miklum áhuga. Margir aðil- ar í þeim landsfjórðungi eru orðnir langeygðir eftir því að áætlunin líti dagsins ljós, og eru því þær upplýsingar, er fram komu í ræðu fíármálaráðherra, að unnið sé að fullum krafti að henni, hinar ánægjulegustu. Reynslan sem fengin er af Vest- fjarðaáætlun gefur Norðlending um vissulega tilefni til að vænta mikils af þessari áætlun. Hitt gefur auga leið, að undirbúnings vinna slíkrar áætlunargerðar er mjög tímafrek, og eins og Pálmi Jónsson komst cð orði í umræð- unum, varðar mestu að vel sé til hennar vandað. Björn Pálsson er stöðugt sama vandræðabarnið hjá Framsóknar flokknum. Þegar Norðurlandsá- ætlunin var til umræðu lenti hann á öndverðu meiði við flokks bróður sinn, Jón Kjartansson, um hvar starfsmaður áætlunarinnar væri bezt staðsettur. Taldi Björn að bezt væri að hann hefði að- setur í Reykjavík. Þá hélt Björn því fram, reyndar ekki í fyrsta skipti, að of mikið væri gert úr bágu ástandi nyðra. Og víst er um það, að Björn hefur rétt fyr- ir sér í því, að „óþarfa barlóm- ur“ þjónar ekki hagsmunum landsfjórðungsins, og verður ekki til þess að auka tiltrú ráða- manna og almennings á þvi að það sem þar þarf að gera geti borið árangur. Enn ein fiskiræktartillaga kom til umræðu á Alþingi í vikunni. Var þar um að ræða þingsálykt- unartillögu sem flutt var í efri- deild og fjallar um að fiskirækt og fiskeldi verði tekin upp sem námsgrein í bændaskólunum. Á- hugi á fiskiræktarmálum fer stöðugt vaxandi, bæði innan þings og utan, enda er ástæða til að halda, að hér sé um mikið þjóðhagslegt mál að ræða. Fisk- eldi er víða rekið sem arðbær atvinnugrein erlendis og fram- leiða t.d. Danir mikið magn af regnbogasilungi, sem þeir selja úr landi á góðu verði. Telja kunnáttumenn, að skilyrði til þessarar búgreinar séu óvenju góð hérlendis. Eðlileg leið er að kennsla verði tekin upp í bænda- skólunum, því að fáir eru lík- legri til að veita þessu máli brautargengi en ungir bændur, þar sem þeir hafa. oft yfir að ráða beztu aðstöðunni. Landbún aðarráðherra benti á við um- ræðu málsins, að varla væri hægt að vænta þess, að kennsla í þess ari grein yrði tekin upp sem fullkomin námsgrein á næstunni, þar sem skortur væri á sérmennt uðum mönnum til kennslu. Hins- vegar væri sjálfsagt að taka upp fræðslu t. d. í fyrirlestraformi, og þá víðar en í bændaskólun- um. Húsnæðismál rskisins voru einnig til umræðu í vikunni. Á mánudaginn mælti Magnús Jóns son fjármálaráðherra fyrir frum varpi um íbúðareign ríkisins, en það gerir ráð fyir að ríkissjóð- ur hætti að byggja eða kaupa íbúðarhúsnæði í þéttbýlinu, og að íbúðarhúsnæði, sem nú er í ríkiseign á þessu svæði, verði selt, jafnskjótt og það losnar. Virðist þetta skynsamleg ráðstöf un, þar sem mikið misræmi hef- ur verið í hvaða ríkisembættis- menn hafa verið þeirra hlunn- inda aðnjótandi að fá ríkisíbúð- ir til íveru, og hverjir ekki. í frumvarpinu er einnig gert ráð fyrir því, að húsaleigureglur ríkisins verði færðar í annað horf og samræmdar. Það kom t.d. fram í ræðu ráðherra að Reykjavíkurprestar greiða 2—4 þús. kr. á ári í húsaleigu fyrir íbúðarhúsnæði í opinberri eigu. Mundu ekki margir vilja sitja við sama borð? í svarræðu fjármálaráðherra um húsaleigugreiðslur ríkisins kom fram, að ríkissjóður greið- ir árlega rúmar 19 millj. kr. í húsaleigu. í fljótu bragði virð- ist þetta vera óeðlilega há upp- hæð, en nánari athugun leiðir í ljós að svo er ekki. Það hlýt- ur á hverjum tíma að vera mats- atriði hvort það borgar sig fyr- ir ríkið að leggja út í stórar byggingarframkvæmdir eða ekki í mörgum tilfellum mundi t.d. vera óhagkvæmt fyrir ríkið að reisa húsnæði fyrir einstakar stofnanir, einkum ef þær eru úti á landi. Hitt kemur svo berlega fram, hversu mikils virði hús- næði það, sem ríkissjóður keypti að Borgartúni 7, er fyrir hann. Til fyrstu umræðu kom einnig frumvarp um aukna heimild rik- issjóðs til að ábyrgjast lán fyr- ir skipasmíðastöðvar og dráttar- brautir. Nemur sú heimild allt að 40 millj. kr., en eldri ábyrgð- arheimildir eru nú fullnotaðar. Er þetta frumvarp í beinufram haldi af annarri aðstoð og fyrir- greiðslu, sem ríkisvaldið hefur veitt þessum atvinnuvegi á und- anförnum árum. Jón Snorri Þorleifsson flutti jómfrúarræðu sína á Alþingi í vikunni, og mælti þá fyrir frum- varpi um auknar bætur atvinnu- leysistrygginga. Atvinnuleysis- Framíhald á bls. 22 Nýjar vörur LÆGRI TOLLAR LÆGRA VERD Jæja dömur minar nú eru nýju vörurnar komnar Og fyrsta sendingin með lágu tollunum kemur í búðina á mánudag Ljómandi fallegar kápur frá Sviss og Hollandi. Verið velkomnar í vdrtfftGrót/d A KLAPPARSl ÍGNU M v

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.