Morgunblaðið - 29.03.1968, Blaðsíða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. MARZ 1968
fy==3BllAJl£fG*M
Rauðarárst'ig 37
Slmi 22-0-22
IVIAGIVOSAR
SKIPHOLTI21 SÍMAR21190
eftir lokun slmi 40381 '
siM'1-44-44
mnim
Hverfisgötu 103.
Simi eftir lokun 31160.
LIT L A
BÍLALEIGAN
Ingólfsstræti 11.
Hagstætt leigugjald
Sími 14970
Eftir lokun 14970 e»a 81748
Siguröur Jónsson.
BILALEIGAN
- VAKUR -
Sundlaugavegi 12. Simi 35135.
Eftir lokun 34936 og 36217.
Sérstaklega vandaðir
gólflampar með þrískiptu
Ijósi, 100, 200 og 300 watt.
Hagstætt verð.
Einnig úrval af alls konar
heimilislömpum
Lítið inn í Lampann
Laugavegi 87 . Sími 18066
- i.o.G.r. -
I.O.G.T.
Stúkan Freyja nr. 218. —
Fundur í kvöld kl. 8,30 í
Góðtemplarahúsinu. 1. kosn-
ing fulltrúa til þingstúkunn-
ar. Hagnefndin annast fund-
inn, kaffi eftir fund.
Æt.
^ Þotuslysið
ÓIi Tynes skrifar:
„Oft hefur fréttaflutningur
Þjóðviljans verið næsta ein-
kennilegur. þegar varnarliðið
í Keflavík er annars vegar, en
þó keyrir fyrst um þverbak
26. og 27. þessa mánaðar, þegar
fjallað er um orrustuþotu frá
Keflavík, sem hrapaði í Land-
sveit vegna vélarbilunar. Eftir
fyrirsögnunum að dæma mætti
halda, að vesalings flugmaður-
inn hafi verið að reyna að
koma af stað þriðju heims-
styrjöldinni, einn síns llðs hér
uppi á íslandi.
Og eftir viðbrögðum komm-
únistaþingmanna að dæma, má
telja það mestu mildi, að Land
sveit skuli ekki ve.ra horfin
af kortinu .
Það er satt að segja grát-
broslegt að sjá örvæntingar-
fullair tilraunir fréttamanns
Þjóðviljans til að finna eitthvað
gruggugt við þetta slys. Hann
segir m,a.. að litlu hafi munað,
að þotan lenti á bænum Stóra-
Klofa vegna þess að ekki minna
„átorítet" en bóndinn þar
„hafði það á tilfinningunni“.
,Nú skal ekki dregið í efa, að
bóndi þessi veit allt um sínar
ær og kýr, en hvað flugmál
snertir. er þekking hans ekk-
ert til að hrópa húrra yfir.
Við skulum taka til greina,
að þotan var í rúmlega 30 þús-
und feta hæð, þegar hreyfill-
inn bilaði. Flugmaðurinn svif-
flaug henni niður í 5000 feta
hæð, áður en hann bjargaði
sér í fallhlíf. Skyggni var gott
þennan dag og hann hafði næg-
an tíma að beina þotunni frá
öllum nærliggjandi mannvirl-j
um, þ.á.m. Stóra-Klofa, enda
viðurkennir hreppstjórinn að
engir bæir hafi verið í stefnu
þotunnar eftir að flugmaður-
inn stökk út.
•jr Ærðist hann?
Bóndinn í Stóra-Klofa segir
líka, að það hafi verið eins og
flugmaðurinn í hinni þotunni
hafi orðið ærður þegar slysið
vildi til. Hafi hann steypt sér
hvað eftÍT annað yfir nærliggj-
andi bæi og'bóndinn haldið um
tíma, að þetta væri einskonar
loftárás. Sannleikurinn er nátt-
úrlega sá, að flugmaðurinn
hafði eðlilega áhyggjur af fé-
laga sínum. Kannske hefur
hann verið að reyna að vekja
athygli fólks á slysinu, svo að
það gæti farið til hjálpar/Alla
vega þætti mér gaman að vita,
hvort Þjóðviljinn gæti bent á
einhvern íslenzkan fíugmann,
sem ekki hefði yfirflögið slys-
staðinn ef einhver félaga hans
hefði orðið að nauðlenda eða
kasta sér út í fallhlíf.
Það er auðvitað leitt, að
fólkið og dýrin skuli veiða
svona hrædd en ég held nú
ekki að það bíði varanlegt sálu
tjón af þessu og vonandi mink-
ar ekki nytin í kúnum.
Þar sem í rauninni er ekkert
hægt að finna meira athuga-
vert við þetta slys en önnur
reynir Þjóðviljinn að haga orð-
um þannig, að það verði a.m.k.
sem æsilegast. Sem dæmi má
nefna, að sonur bóndans í
Stóra-Klofa „hafi BÓKSTAF-
LEGA séð þotuna farast.
Einnig er talað um, að ílug-
maður hinnar þotunnar hafi
misst stjórn á sér og steypt
sér hvað eftir annað í lág-
flugi yfir bæina og gert fólk
og skepnur ofsahrætt. Þetta
má nú kalla að færa í stílinn.
■+C Sovézku flug-
vélarriar við ísland
Það er einnig mikið rætt um
sprengjur, sem þotan hafi haft
meðferðis. í rauninni voru
þetta „air to air missiles", sem
eingöngu eru notaðar til að
granda flugvélum. Mér þy-cir
líklegt, að þoturnar tvær haa
verið að koma frá því að
stugga burtu rússneskum
sprengjuflugvéluim, sem gera
sér mjög tíðförult að varnar-
línu Atlantshafsbandalagsins,
því að herflugvélar í Keflavík
bera yfirleitt ekki vopnabúnað
nema eitthvað sérstakt sé um
að vera. Kafbátaeftirlitssveitín
t.d., sem hefur fjögurra hreyfla
Orionvélar til umráða, flytur
ekki með sér sprengjur nema
í einstökum tilfellum.
Þeir, sem hafa kynnt sér
þessi mál, vita allir, að rúss-
neskar sprengjuflugvélar fljúga
mjög oft upp að ströndum ís-
lands, og þá fara jaf-nan orr-
U'tuvélar frá Noregi, Brellandi
eða Keflavík til móts við þ-ec
og beina þeim burt. Ég ' skal
ekki segja til um hvaða tegund
vopnabúnaðar sprengjuv ‘1-
arnar hafa meðferðis, en vil
geta þess að þær eru „long
range strategic bombers", og
slíkár vélar eru búnar kjarn-
orkusprengjum að öllu jöfnu.
Kægikarlinn
malgefni og
sjálfnmhrifni
Jónas Árnason, alþingismað-
ur, er jafnan fljótur að aka
til máls, ef hann telur sig hafa
eitthvað slæmt að segja um
varnarliðið. Raunar er Jónas
jafnan fljótur að taka til máls
svona yfirlekt, eins og þing-
bækur bera með sér. Hans
uppáhalds-rök virðast vera:
„Hugsum okkur nú. að at-
burðurinn hefði orðið í þétt-
býli, t.d. Keflavík eða Grinda-
vík, næsta nágrenni Keflavíkur
flugvallar“.
Það er hægt að hugsa sér
margt. Hugsum okkur t.d. a5
loftsteinn lendi í miðri Reykja
vík. Hugsum okkur að það
spryngi á framhjóli á bílnum
okkar á 100 km. hraða. Hugs-
um okkur að við fengjum mat-
areitrun næst þegar við förum
út að borða.
Auðvitað hefði slysið getað
orðið yfir Keflavík eða Grinda
vík. En þá hefði flugmaður-
inn bara beint vélinni út á haf,
áður en hann stökk út. Þsð
var jú ágætt skyggni og drott-
ins dýrðar koppalogn um allt
land.
Það er kánnske ekki rétt að
fara að rifja það upp, en það
má minna á að íslenkar flug-
vélar hafa ósjaldan farizt í
nágrenni Reykjayíkur. Ég veít
þó ekki til þess, að Jónas hafi
krafizt þess að innanlandsflug
verði lagt niður.
ÓIi Tynes“.
— Talið mun víst, að sovézku
flugvélarnar („birnirnir"), sem
oft koma upp að landinu, séu
hlaðnar kjarnorkusprengjum.
Velvakandi,
Morgunblaðinu,
Reykjavík,
Reykjavík 28. 3. 1968.
Kortið frá 1920
Vegna yfirlýsngar bóksala
hér í Velvakanda um sölufyrir-
komulag á korti af Reykjavík
frá 1920, sem gefið var út af
Reykjavíkurborg, vil ég taka
fram, að mér var falið kortið
til dreifingar í byrjun desem-
ber síðastliðins.
Var þrem stærstu bókaverzl-
unum hér í borg boðið kortið
til endursölu fyrir jólin. Sam-
komulag var um að bjóða það
gegn staðgreiðslu samkvæmt
samníhgskjörum Bóksalafélags
íslands. Þar sem ekki voru
neinar undirtektir, sá ég ekki
ástæðu til þess að bjóða kortið
víðar.
Að sjálfsögðu er öllum bók-
sölum jafnheimil s.ala á því,
ens og verið hefur um aliar
aðrar vörur og bækur, sem mér
hefuT verð falin dreifng á fyrir
fjöLmarga aðila.
Virðingarfyllt,
Steinar Þórðarson.
Bókaverzlun Sigfúsar
Eymundssonar.
LUXO 1001
VEBNDIÐ SJÓNINA
MEÐ GÓÐBI LÝSINGU
NYTSAMASTA FERMINGARGJÖFIN ER
LUXO 1001
Varizt eftirlíkingar.
Ábyrgðarskírteini fylgir hverjum laijipa.
Úrsmiður Laugavegi 25
Rýmingarsala
MIKILL AFSLÁTTUR
Úrval af úrum og klukkum til
fermingargjafa — ÁRSÁBYRGÐ
Úrsmiður Laugavegi 25
Ingvar Benjamínsson.