Morgunblaðið - 29.03.1968, Blaðsíða 6
6
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. MARZ 1968
J
*
Bifreiðastjórar
Gerum við allar tegundir
bifreiða. — Sérgrein hemla
viðgerðir, hemlavarahlutir.
HEMLASTILLING H.F.
Súðavogi 14 . Sími 30135.
Hreinsum — pressum
Hreinsum samdægurs. —
Pressum meðan beðið -er.
Lindin, Skúlagötu 51, Sími
18825.
Fatnaður — seljum
sumt nýtt, sumt notað. —
Allt ódýrt.
Lindin, söludeild, Skúlag.
51. Sími 18825.
Klæðningar
úrvals áklæði.
Bólstrun Helga,
Bergstaðastræti 48.
Sími 21092.
Málmur
Munið að allur brotamálm
ur nema járn, er keyptur
hæsta verði. Opið kl. 9—5,
ld. 9—12, staðgreitt. Arinco
Skúlag. 55. S. 12806, 33821.
Ökukennsla
Lærið á fullkomna stærð
af bifreið. Sími 17691.
Jón Sigurðsson.
Góð fermingargjöf
Skrifborðin vinsælu með
þrem skúffum og bóka-
skáp, nýkomin. G. Skúla-
son og Hlíððberg hf., sími
19597.
Æfingasalur til leigu
140 ferm., 3 búningsherb.
Píanó,
Sigríður Ármann.
Sími 32153.
Keflavík — Suðurnes
Black & Decker föndur-
sett, ódýrar snjóþotur. Úr-
val fermingargjafa.
STAPAFELL, sími 1730.
Keflavík — Suðurnes
Nýkomið tertuskraut,
tertublóm, ferminagrstytt-
ur, skírnarskraut.
STAPAFELL, sími 1730.
Þrjár stofur
eldhús og boð til leigu,
fullorðnum. Tilboð merkt:
„Sólvellir 8845“ sendist
Mbl.
3ja herb. íbúð
í Miðbænum til leigu frá
1. apríl. Uppl. í síma 83369
Eyðijörð
eða land á fallegum stað
undir sumarbústað óskast
keypt. Tilb. sendist Mbl.
sem fyrst merkt: „Eyði-
jörð 8849“.
Góð 2ja herb.
kjallaraib. til leigu frá 1.
apríl. Aðeins barnlaust og
reglusamt fólk kemur til
greina.. Tilb. merkt: „Hlíð
ar 8911’ sendist Mbl. f. 30/3
Keflavík
Sem nýr barnavagn til
sölu. Uppl. í sima 1987.
J Bolungavíkinni er björgulegt Iífi5“
EINS og kunnugt er af fréttum, hefur legið landfastur ís víða á
Vestfjörðum á þessum harða vetri, og þá ekki síður við Bolunga-
vík við ísafjarðardjúp en á öðrum stöðum. Og þetta er svo sem
ekki í fyrsta skipti, sem landsins forni fjandi heimsækir þessar
byggðir. Myndin hér að ofan ier tekin árið 1954, en þá sigldi hin
hvíta skelfing inn Djúp, lagðist upp að Boiungavík og lokaði
höfninni um tíma, en slíkt eru váleg tíðindi fyrir blómlega verstöð
eins og Bolungavík er.
Við birtum mynd þessa af því tilefni á næsta laugardag, á morg-
un, heldur Bolvíkingafélagið í Reykjavík árshátíð sína í Sigtúni
og hefst hún kl. 7 með borðhaldi. Þar verða fjölbreytt skemmti-
atriði og dansað til kl. 3, en þá list hafa Bolvíkingar löngum
kunnað og iðkað, og var þá hér áður og fyrr meir sjaldan spurt,
hvað klukkan sló. Þeir báðu fyrir skilaboð þarna í stjórninni, að
allir Boivíkingar í Reykjavík og nágrenni væru velkomnir.
Ótti við menn leiðir í snöru, en
þeim er borgið, sem treystir
Drottni. (Orðskviðirnir, 29,25)
I dag er föstudagur 29. marz og
er það 89. dagur ársins 1968. Eftir
lifa 277 dagar. Árdegisháflæði kl.
5.53.
Upplýstngar um læknaþjönustu i
borginni eru gefnar i síma 18888,
símsvara Læknafélags Reykjavik-
ur.
Slysavarðstofan í Heilsuverndar-
•toðinni. Opin allan sólarhringinn
— aðeins móttaka slasaðra —
«ími: 2-12-30.
Læknavarðstofan. Opin frá kl. 5
síðdegis til 8 að morgni. Auk þessa
nlla helgidaga. — Sími 2-12-30.
Neyðarvaktin e*varar aðeins á
virkum dögum frá kl. 8 til kl. 5,
«ími 1-15-10 og laugard. kl. 8—1.
Ráðleggingastöð Þjóðkirkjunnar
om hjúskaparmál er að Lindar-
götu 9, 2. hæð. Viðtalstími læknis
miðvd. 4—5, viðtalstími prests,
þriðjud. og föstud. 5—6.
Næturlæknir í Hafnarfirði aðfara
nótt 30. marz er Bragi Guðmunds-
son sími 50523.
Næturlæknir í Keflavík 29.3 Guð-
jón Klemenzson, 30.3 og 31.3 Kjart
an Ólafsson 1.4 og 2.4 Arnbjörn
Ólafsson, 3.4 og 4.4 Guðjón Klem-
enzson.
Kvöldvarzla í lyfjabúðum í
Reykjavík vikuna 23. marz — 30.
marz er I Vesturbæjarapóteki og
Apóteki Austurbæjar.
Keflavikurapótek er opið virka
daga kl. 9—19, laugardaga kl. 9—2
og sunnudaga frá kl. 1—3.
Framvegis verður tekið á móti
þeim, sem gefa vilja blóð í Blóð-
bankann, sem hér segir: mánud.,
þriðjud., fimmtud. og föstud. frá
kl. 9—11 f.h og 2—4 e.h. Miðviku-
daga frá kl. 2—8 e.h. og laugardaga
frá kl. 9—11 f.h. Sérgtök athygli
skal vakin á miðvikudögum vegna
kvöldtímans.
Bilanasími Rafmagnsveitu Rvík-
ur á skrifstofutima er 18-222. Næt-
i’.r- og helgidagavarzla, 18-230.
Skolphreinsun hjá borginni. —
Kvöld- og næturvakt, símar
8-16-17
A.A.-samtökin
Fundir eru sem hér segir: í fé-
lagsheimilinu Tjarnargötu 3c:
Miðvikudaga kl. 21. Föstud. kl. 21.
Langholtsdeild, í Safnaðarheimili
Langholtskirkju, laugardaga kl. 14.
Orð lifsins svarar í síma 10-000.
o Gimli 5968417 — Frl. atkv.
IOOF 1 = 1493298% = K.s.
IE1 Helgafell 59683297. VI. 2.
FRETTIR
Elliheimilið Grund Stúd-
entamessa kl. 6.30 Einar G.
Jónsson, stud. theol. prédik-
ar. Heimilispresturinn.
Hjálprræðisherinn.
í kvöld kl. 20.30 heldur Hjálp-
arflokkurinn sérstaka samveru-
stund.
Johan Olsen sjómannatrúboði
talar.
Það verða sýndar skuggamynd-
ir frá Færeyjum. Strengjasveit-
in. Veitingar.
Allir velkomnir.
Kvenfélag Keflavíkur heldur
fund þriðjudaginn 2. apríl kl. 8.30
í Tjarnarlundi. Sýning á smurðu
brauði og leiðbeiningar um það.
Eftir fund spilað Bingó.
Kvenfélag Hallgrímskirkju Áð-
ur auglýstum aðalíundi frestað um
óákveðinn tíma.
Hvítasunnusöfnuðurinn, Selfossi
Almenn samkoma verður haldin
að Austurvegi 40 B, laugardaginn
30. marz kl. 3. Ræðumaður: John
Anderson frá Glasgow, Filadelfiu-
kvartettinn úr Reykjavík syngur.
Allir velkcrmnir.
Kristileg samkoma verður í sam
komusalnum Mjóuhlíð 16 sunnu-
dagskvöldið 31. marz kl. 8. Verið
hjartanlega velkomin.
Kvenfélag Laugarnessóknar Af-
mælisfundur félagsins verður hald-
inn mánudaginn 1. aprO í kirkju-
kjallaranum kl. 8.30. Stundvíslega.
Margt til skemmtunar. Góðar veit-
ingar. Æskilegt að sem flestar kon
ur klæðist íslenzkum búningi.
Myndataka.
Kvenfélagskonur, Garðahreppi
Munið félagsfundinn þriðjudaginn
2. apríl, kl. 8.30. Sýning á hár-
greiðslu. Spilað Bingó.
Kvenfélagið Hringurinn, Hafnar-
firði. Fundur verður haldinn í Al-
þýðuhúsinu þriðjudaginn 2. apríl
kl. 8.30. Aðalfundur.
Fuglaverndunarfélag fslands
Aðalfundur verður haldinn í
1. kennslustofu Háskólans laug
ardaginn 30. marz kl. 4.
Slysavarnafélagskonur,
Keflavík
Munið basar félagsins 30.
marz kl. 4 í Tjarnarlundi. Uppl.
í símum 2391, 1362. 1781, 1435
og 1848.
Hjúkrunarfélag fslands.
Félagar munið árshátíðina að
Hótel Sögu, föstudaginn 29. marz
kl. 7.30
Sunnukonur, Hafnarfirði: Munið
Rabb— og handavinnukvöldið
þriðjudaginn 2. apríl kl. 8.30 i
Góðtemplarahúsinu. Stjórnin býður
upp á kaffi.
Bolvíkingafélagið í Reykjavík
heldur árshátíð í Sigtúni, Laugar-
dagskvöldið, 30. marz, og hefst
hún með borðhaldi kl. 7. Aðgöngu-
miðar fást í Pandóru og einnig
við innganginn. Fjölbreytt skemmti
atriði. Dansað til kl. 3. Allir Bol-
víkingar í Reykjavík eru vel-
komnir.
Munið GEÐVERNDARFÉLAG
ÍSLANDS
og frímerkjasöfnun þess. —
fslenzk og erlend frímerki til
öryrkjastarfsins. Pósthólf 1308,
Roykjavík-
Fótaaðgerðir fyrir aldrað fólk.
Kirkjunefnd kvenna Dómkirkjunn
ar veitir öldruðu fólki kost á fóta-
aðgerðum á hverjum mánudegi kl.
9—12 í Kvenskátaheimilinu að Hall
veigarstöðum, gengið inn frá Öldu-
götu. Pantanir í 14693.
Hjálpræðisherinn.
Úthlutun fatnaðar frá 26.—31.
marz frá kl. 2—5. s.d.
Árbæjarhverfi: Árshátíð F.S.Á
Framfarafélags Seláss og Árbæjar-
hverfis, verður haldin laugardag-
inn 30. marz 1968, og hefst með
borðhaldi kl. 7.
Gamalt og gott
Orðskviðuklasi
Lofs er verður Ijúfur maður,
lundprúður og góðs til hraður,
brúkar lí-ka tryggða tal,
gjörðir vandar, gott vill kenna,
gamlan á sá orðskvið þenna:
Fátt er Ijótt á fríðum hal.
(ort á 1 7.öld.)
Minningarsjóður
Minningarsjóður Þórarins Björns
sonar skólameistara. Framlögum
frá stofnendum að Minningarsjóði
Þórarins Björnssonar skólamestara
er- veitt viðtaka fram tíl 1. júní
n.k. á Akureyri í Bókaverzluninni
Bókvali í Hafnarstræti og 1 Reykja-
vík hjá Bókaverzlun Sigfúsar Ey-
mundssonar í Austurstræti.
Börn hdnia kl. 8
Börn eiga ekki heima á götunni
Verndið börnin gegn hættum og
freistingum götunnar og stúðlið
með því að bættum siðum og
betra heimilislífi.
Spakmæli dagsins
Öll sigurþrá skilur oss frá öðr-
um, öll fómfýsi tengir oss öðrum.
— Frans frá Assisi.
/e
oóir
Þú færðir mér rósii um frostkaldan vetur,
ég fann að ég átti að kyssa þig betur.
Þú komst með það bezta er gaztu mér gefið,
gróandi blómstrin og hér kemur stefið.
Þær fölna ei einnþá og fögnuð mér veita,
ég fann á þær nafn svo þær Rósvina heita.
Ég ætti svo bágt ef þær bliknuðu og dæju
og blikandi stjörnurnar tárin mín sæju.
Ég sit hjá þeim löngum og syng við þær ljóðið
og svæfandi kvöldrökkrið læðist á hljóðið.
En heyrirðu ei líka í hörpunni minni,
ef hlustarðu vel þegar dvelurðu inni?
Sigríður Jónsdóttir.
sá NÆST bezti
Mað'ur nokkur lét þekktan pressara hér í borg press-a fyrir sig
einar buxur. Þegar hann náði svo í buxurnar, spurði hann, hvað
ætti að borga meistaranum? „EKKI NEITT. ÞÚ ERT AUMINGI".
Fór svo, að maðurinn ætlaði í buxurnar. Sá h'ann þá brennt far
í gegn eftir straujárn.
SiGMÚMJI-
L
Guði sé lof!! Maður er þá ekki að viliast.