Morgunblaðið - 29.03.1968, Síða 32
ASKUR
Suðurlandsbraut 14 —- Sími 38550
FÖSTUDAGUK 29. MARZ 1968
Þrem piltum bjargaö á síð-
ustu stundu við Eyjar í gær
— Voru á skemmtisiglingu á skektu
BÁT með 3 pilta innanborðs
hvolfdi skammt fyrir utan
höfnina í Vestmannaeyjum,
laust fyrir kl. 7 í gærkvöldi.
Piltarnir höfðu brugðið sér á
sjó í skemmtisiglingu á lít-
illi skektu með utanborðs-
mótor. Piltarnir héldu sér i
kjölinn í 5—10 mínútur áður
en þeim var bjargað um
borð í Andvara frá Vest-
mannaeyjum, sem var að
koma úr róðri. IUa hefði far-
ið, ef Andvara hefði ekki
borið þarna að, því að mjög
kalt var í sjónum og myrk-
ur var að skella á. Andvari
var að koma úr róðri og var
með 7 tonn, en skipstjóri á
bátnum er Trausti Magnús-
son. Tveir piltanna, báðir 23
ára gamlir, voru illa haldnir
eftir volkið, og nutu læknis-
aðstoðar en voru ekki í lífs-
hættu. Sá yngsti Ólafur
Kristinn Guðjónsson, 16 ára,
var hinn hressasti þegar við
ræddum við hann um 8-Ieytið
í gærkvöldi.
— Hvað voruð þið að gera
þarna úti?
— Við vorutm nú bara í
skemmtisigMngu. ,
— Á hvernig bát?
— Báturinn er 13 feta
langur trébátur og við höfð-
um utanborðsmótor á honum.
— Var dauður sjór?
— Nei, eiginlega ekki. Það
var smá gutlandi.
— Hvar voruð þið þegar
slysið bar að?
— Við vorum mjög nálægt
Klettsnefinu og höfðum ver-
ið að dóla á víkinni fyrir ut-
an höfnina, þegar einn okkar
féll yfir í bakborðssíðuna á
annan, sem þa-r var og það
skipti engum togum, að bátn-
um hvolfdi.
— Náðuð þið taki á bátr,-
um?
— Við héldum okkur tveir
í kjölinn ,en sá þriðji var ó-
syndur og við létum hann
hafa eina björgunarbel*ið
sem við vorum með og björg-
unarhring. Við héldum einn-
ig í hann og það var allt í
lagi með hann.
„Tenglar" sja um
H-umferðarfræðslu
— til handa sjúkum og öldruðum
FRÆÐSLU- og upplýsingaskrif-
stofa Umferðarnefndar, sem hef-
ur með höndum alla fræðslu á
höfuðborgarsvæðinu vegna um-
ferðarbreytingarinnar, hefur nú
skipulagt mjög víðtæka fræðslu-
starfsemi meðal almennings,
sem miðar að því að ná sem
beinustu sambandi við borgar-
búa.
Skrifstofan hefur í þessu skyni
fengið til liðs við sig félagsskap
ungs fólks, sem nefnir sig
Tengla, til að annast þessa
fræðslu meðal sjúkra og aldr-
aðra, en Tenglar hafa þegar vak-
i'ð á sér athygli fyrir mannúðar-
störf að Kleppi og nú síðast í
Arnarholti.
Unga fólkið mun heimsækja
vangefna, fanga, blinda, vist-
menn á hælum, geðsjúka, heyrn-
arskerta, sjúklinga í spítölum,
áfengissjúklinga og aldraða, og
ræða við fólkið um umferðar-
breytinguna, og skýra út hvern-
ig hún fer fram.
Farnar verða tvær heimsóknir
í öll sjúkrahús, vistheimili og
elliheimili, önnur fyrir H-daginn
en hin eftir að breytingin er
um garð gengin. Við umferðar-
fræðsluna verður teki’ð tillit til
vandamála hvers einstaks hóps,
er getið er hér að ofan.
Pétur Sveinbjarnarson, for-
stöðumaður Fræðslu- og upplýs-
ingaskrifstofunnar, tjáði Mbl., að
skrifstofunni væri mikill fengur
af þessari samvinnu við Tengla,
sem væri mjög nauðsynlegur
þáttur, þar sem margt af þessu
fólki gæti ekki tekið virkan þátt
í sjálfri umferðarbreytingunni.
Það kæmi ekki út í umferðina
fyrr en nokkru eftir breyting-
una, þegar aðrir væru búnir að
aðlagast breyttum aksturshátt-
um og væri því alls ekki undir
það búið án undangenginnar
fræðslu um H-umferð.
Slæmar gæftir og treg-
afli Rvíkurbáta
ur
ÓTÍÐ hefur verið til sjós und-
anfarna daga, og hefur afli neta
báta því verið heldur tregur. Þó
hafa einstaka bátar komið inn
með 20—25 tonn, þegar bezt læt
ur. Hefur þó aðeins verið um
tveggja nátta fisk að ræða vegna
ótíðarinnar.
f fyrrinótt lönduðu eftirtald-
ir bátar hér í Reykjavík: Ás-
bjöm 19 tonnum, Steinunn 23
tonnum, Ásberg 12 tonnum, og
Sigurður Bjarnason 8 tonnum.
Seinni hluta dags voru bátarn-
ir að koma inn vegna brælu á
miðunum, og voru flestir með
harla lítið af fiski.
Samkvæmt upplýsingum
Grandaradíós eru nú flestir bát-
anna farnir að hugsa sér til
hreyfings suður fyrir landið, þar
sem frétzt hefur af loðnu aust-
ur við Hrolláugseyjar.
— Voruð þið lengi í sjón-
um?
— Nei, í mesta lagi í 10
mínútur. Við vorum búnir að
vera nokkrar mínútur í sjón-
um, þegar við sáum Andvara
koma fyrir Klettsneíið.
— Var ekki kalt?
— Jú, það var mjög kalt
í sjónum. Ég held, að loft-
hitasti'gið hafi verið um frost
mark.
— Voruð þið ekki aðfram-
komnir ,þegar báturinn kom
og bjargaði ykkur?
— Ja, hann hefði ekki
mátt koma mikið seinna, þá
er hætt við að i'lla hetfði far-
ið, því að enginn annar bát-
ur var þarna um þetta leyti.
Sá ósyndi var orðinn mjög
kaldur og máttfarinn þegar
Andvari kom.
— Datt ykkur ekkert í hug
að reyna að synda í land?
— Mér datt nú í hug að
reyna að synda í land, þessa
nokkur hundruð metra sem
þangað voru, en sá, að það
borgaði sig ekki. Ég er ákaí-
lega þakklátur skipverjunum
á Andvara og þetta fór bet-
ur en á horíðist.
Mjólkurbíll
fauk á hlaðinu
Búðardal, 25. marz.
f DAG er hér indælt veður og
farið að ryðja vegi, sem víða eru
ófærir. Á föstudag fauk mjólk-
urbíll, sem stóð á hlaðinu í Saur
bæ. Mun hann hafa skemmzt.
Félagslíf er hér mjög gott,
enda orðin hér góð aðstaða með
tlikomu Félagsheimilisins Dala-
búð, sem er mjög glæsilegt og
gott. Kvilkmyndasýningar eru
þar tvisvar í viku.
Heilsufar er ágætt í héraðinu
— Kristjana.
BORGARRÁÐ samþykkti á
fundi sínum sl. þriðjudag að
heimila félagsmálaráði að hefja
byggingu skrifstofuihúsnæðis fyr
ir Félagsmálastofnunina í nýja
Miðbænum austan Kringlumýr-
arbrautar.
Jafnframt var borgaristjóra fail
ið að láta kanna ,hvaða hús-
næðisþarfir annarra borgar-
stofnana verða leystar með bygg
ingum í nýja miðbænum.
Ríkisvaldð bæti
sérleyfishöfum
— kostnað við breytingu á dyra-
útbúnaði vegna H-umferðar
SÉRSTAKLEGA tilkvödd dóm-
nefnd vegna hægri umtferðar
kvað í fyrradaig upp dóm í máli
sérleyfishafa gegn fjármálaráð-
herra. Snerist mál þetta um það,
hvort bæta skyldi kostnað við
flutning á dyraútbúnaði af
vinstri bílhbð yfir á hægri
vegna umtferðarbreytingarinnar.
Dómnefnd þessi varð ásátt um,
að ríkisvaldinu bæri að bæta
sérleyfishöfum þennan kostnað,
en engar tölur voru tilgreindar
í dóminum .Á hinn bóginn l ggja
fyrir áætlanir um kostnað við
þessa breytilgiú, og er hann áætl-
aður milli 70 og 80 þúsund krón
ur á hverja bifreið í flestum til-
fel-lum. Dómi þessum er ekki
bægt að áfrýja.
Sækjandi i máli þessu fyrir
hönd sérleyfishafa var Einar
Árnason ,en verjandi var Ólatf-
ur W. Stefánsson.
Leki kom að
bát í róðri —
— Komst til hafnar með aðstoð annars
Patreksfirði, 28. marz
F,R VÉBÁl’URINN Andri frá
Bíldudal var staddur undan Pat-
reksfirði um miðnætti í nótt,
kom skyndilega leki að bátnum.
Kallaði skipstjórinn þá út til
skipa og bað um aðstoð, þar sem
dælur skipsins höfðu ekki undan
lekanum sem kominn var að
Andra.
V.b. Dofri fór þegar til aðstoð-
ar ag hafði meðtferðis brunadælu
til að daela úr bátnum. Vegna
sjógangs var ekki hægt að koma
henni um borð fyrr en komi’ð
var inn á Patreksfjörð, þar sem
var sléttari sjór. Gekk þá a-llt
vel og kom Andri til hafnar hér
í morgun.
Svo virðist sem skipið, sem er
75 tonna tréskip, hafi „slegið úr
sér framarlega." Voru bekkir í
lúkar á kafi og einnig var nokk
ur sjór í lest, enda þótt vatns-
þétt skilrúm eilgi að vera þar á
rnilli. Skipstjóri á Andra er Sæv
ar Jón&son frá Patreksfirði.
— Trauisti.
Qngþveiti á Hafnar-
fjarðarveginum
— vegna ófærðar
ÖNGÞVEITI skapaðist á vegin-
um milli Reykjavíkur og Hafn-
arfjarðar vegna ófærðar, og var
þar vandræðaástand í umferð-
inni frá klukkan 5 fram á ní-
unda tímann. Þá var einnig mik
il hálka og ófærð á götum
Reykjavíkur i gær, og urðu 32
árekstrar yfir daginn. Flestir
þeirra voru þó mjög smávægi-
legir.
Á Hafnarfjarðarveginum byrj
aði um 5 leytið í gær að skafa
yfir veginn. Þá voru margir litl
ir fólksbílar á ferð um veginn,
og voru þeir látt útbúnir fyrir
akstur í ófærð. Festust margir
þeirrci, og tepptu leiðina fyrir
aðra bíla, sem betur voru út-
búnir. Það var ekki fyrr en á ní-
unda tímanum, að hætti að
skafa, og var þá mögulegt að
hefla snjóinn af veginum. Var
umferð komin í eðlilegt horf um
kl. 9, en mikii hálka var þó
enn á veginum.
Mikil ófærð var á götum borgarinnar í gær, og áttu bílar í erfiðleikum með að komast leiðar
sinnar. Urðu 32 árekstrar í umferðinni yfir daginn.