Morgunblaðið - 09.05.1968, Page 1
32 SIÐIiR
94. tbl. 55. árg.
FIMMTUDAGUR 9. MAÍ 1968
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Johnson Bandaríkjaforseti ásamt Avrell Harriman og Cyrus Vance, en þeir tveir verða helztu
menn bandarísku sendinefndarinnar í samningaviðræðunum um Víetnam, sem fyrir dyrum
standa í París. Myndin var tekin í garði Hvíta hússins, áður en ráðuneytisfundur hófst, þar sem
möguleikarnir á friði í Víetnam voru teknir til meðferðar.
Kennedy sigraði í forkosn-
ingunum í Indiana
— Hlaut 42°/o atkvœða en Branigin
31°/o og MeCarthy 27°/o
Washington, 8. maí. — AP
ÚRSLIT forkosninganna í
Indiana í Bandaríkjunum
um frambjóðendur til forseta
kjörs urðu þau, að Robert
Kennedy hlaut um 42% af at-
kvæðum demókrata, Roger
Branigin ríkisstjóri um 31%
og Eugene McCarthy 27%.
Þá sigraði framboðslisti
Kennedys framboðslista Hu-
berts Humphreys í District of
Colomhia með yfirburðum og
hlýtur Kennedy öll 23 kjör-
mannaatkvæði Demókrata-
flokksins þar, en hins vegar
virtist sá möguleiki vera fyr-
ir hendi, að Branigin fengi
nokkra af 63 fulltrúum
Indianafylkis á landsþing
demókrata, en Kennedy fengi
þá ekki alla einn.
Ricbard Nixon var einn í
kjöri í forkosningum Repu-
blikanaflokksins í Indiana
og fékk fleiri atkvæði þar, en
hann hlaut í forkosningunum
1960. Allir fulltrúar republik-
ana frá Indiana, en þeir eru
26 á Iandsþingi þeirra, styðja
því Nixon.
í forkosningum Republikana-
flokksins í District of Columbía
sigraði framboðslisti, sem stuðn-
ingsmenn Nixons og Nelsons
Rockefellers báru fram í samein
ingu, auðveldlega lista, sem bor-
in var fram af sfúðningsmönnum
Ronalds Reagans, ríkisstjóra í
Kaliforníu.
í Alabama hlaut George C.
Wallace, sem býður sig fram til
Fyrrverandi innanríkis-
ráðherra Tékkóslóvakíu
látinn laus úr fangelsi
Prag, 8. maí. — NTB
RUDOLF Barak, fyrrum innan-
ríkisráðherra Tékkóslóvakíu,
sem árið 1962 var dæmdur í 15
ára fangelsi fyrir niðurrifsstarf-
semi, hefur verið látin laus. —
Skýrði tékkneska fréttastofan
CTK frá þessu í dag.
Barak var dæmdur í leynileg-
um réttarhöldum 1962 af her-
dómstól og var hann m.a. ákærð
ur um misferli með opinbert fé,
en vestrænir fréttamenn hafa
haldið því fram, að Barak hafi
verið í andstöðu við þáverandi
leiðtoga kommúnistaflokksins,
Antonin Novotny.
Það var sonur Baraks, sem bar
fram kvartanir yfir þessum rétt-
arhöldum og samkv. frétt CTK
hefur Barak verið látinn laus, á
meðan mál hans verður rann-
sakað að nýju.
forsetakjörs sem óháður, 25 af 34
fulltrúum Alabama fyrir lands-
þing demókrata.
Kennedy vildi ekki segja neitt
um sigurhorfur sinar í framtíð-
inni, þar á meðal í Nebraska, en
þar fara fram forkosningar á
þriðjudaginn kemur, en sagði
hins vegar: — Humphrey vara-
forseti segist vera sigurstrang-
legasti frambjóðandinn og Mc
Framh. á bl.s 31
De Gaulle lofar
kennsluumbótum
60 sœrðust í stúdentaóeirðum í fyrrinótt
Stutt símtal við íslending í Sorbonne
París, 8. maí. AP.
Charles de Gaulle, forseti,
ræddi hinar aivarlegu stúdenta-
óeirðir, sem geisað hafa í París
og öðrum frönskum borgum und
anfarna daga á stjórnarfundi
í dag og sagði, að bæta yrði
menntunaraðstöðu í Frakklandi.
Hundruð erlendra blaðamanna
eru komnir til Parísar til þess
að fylgjast með viðræðum full-
trúa Bandaríkjastjórnar og Norð
ur-Vietnamstjórnar, og er óttast
að óeirðir stúdenta spilli áliti
Frakka erlendis og hafi áhrif á
viðræðurnar.
Mbl. hafði í gær tal af Friðriki
Páli Jónssyni sem stundar nám
við Sorbonne og fer viðtalið við
hann hér á eftir í lökfréttarinn-
ar.
Parísarlögreglan átti í gær-
kvöldi og langt fram á nótt í
hörðum átökum við stúdenta, sem
gengu fylktu liði til Sorbónne-
háskóla að lokinni kröfugöngu,
sem stóð í fimm klukkustundir.
Stúdentar segja, að þeir ætli í
aðra kröfugöngu í kvöld, fjórða
daginn í röð, til þess að leggja
áherzlu á kröfur sínar um
Frarnh. á bl.s 31
Viðræður í Kampala
um frið í Nigeríu
Gabon viðurkennir Biafra
London, 8. maí — AP-NTB
SAMBANDSSTJÓRN Nigeríu
og aðskilnaðarstjórnin í Biafra
hafa komizt að bráðabirgðasam-
komulagi um, að viðræður verði
hafnar í Kampala, höfuðborg
Uganda, til þess að binda enda
á borgarastyrjöldina í Nígeríu.
Samkomulagið tókst á fundi full
trúa Biaframanna og Lagos-
stjórnarinnar í Lundúnum, en
þær viðræður, sem hafnar voru
til þess að undirbúa friðarvið-
ræður, hafa staðið yfir síðan á
mánudaginn.
Stjórnin í Vestur,Afríkurík-
inu Gabon tilkynnti í dag, að
hún hefði viðurkennt Biafra
sem sjálfstætt ríki. Aðeins eitt
ríki, Tanzanía, hefur áður viður-
kennt sjálfstæði Biafra. í síð-
Framh. á bls. 30
Samningaviðræður um frið
í Vietnam hef jast í París
— ef til vill strax á morgun
— sagði Murville utanríkisráðherra
Frakklands í gœr. - Bardagar í Saigon
París, 8. maí — AP-NTB
UTANRÍKISRÁÐHERRA
Frakklands, Maurice Couve
de MurviIIe, sagði í dag, að
Bandaríkin og Norður-Víet-
nam hygðust eiga með sér
samningaviðræður um frið í
Víetnam á breiðum grund-
velli en ekki ræða einungis
um stöðvun sprengjuárása á
Norður-Víetnam. Sagði ráð-
herrann, að viðræðurnar
kynnu hugsanlega að byrja á
föstudag og myndu þar fara
fram bæði undirbúningsvið-
ræður og raunverulegar
samningaviðræður. Ekki
hefði verið ákveðið að skipta
um aðsetur viðræðnanna né
heldur myndu það verða aðr-
ir menn, sem myndu taka
þátt í undirbúningsviðræð-
unum og samningaviðræðun-
um, heldur yrðu það hinir
sömu.
Murville skýrði frá þessu á
Olíuskip sekkur
— 45 bjargað
Jóhannesarborg og Wavlis
Bay, 8. maí. AP.
Grískt oliuflutningaskip, And
ron, sem er 16.000 lestir, sökk
í dag undan strönd Suðvestur-
Afríku. Ahöfnin, 45 karlar og
ein kona, komust í björgunar-
báta og var bjargað um borð
í franskt vöruflutningaskip og
hollenzkan dráttarbát. Nokkrir
skipbrotsmannanna slösuðust,
Skipið, sem var á leið frá
Persaflóa, sökk um 16 km. frá
ströndinni vegna leka.
ráðuneytisfundi, en síðan tjáði
Georges Gorse upplýsingaráð
herra blaðamönnum frá því, sem
utanrikisráðherrann hefði sagt.
Ummæli hans höfðu hvorki ver-
ið staðfest af Bandaríkjamönn-
um né Norður-Víetnam. Þá
skýrði Gorse enn fremur frá því,
að viðræðurnar myndu mjög lik-
lega fara fram í Alþjóðlegu ráð-
stefnumiðstöðinni í París, og
barst samiþykki um það fró Hanoi
í kvöld. Hins vegiar höfðu banda-
risk stjórnarvöld fallizt á þenn-
an stað áður, en það var franska
stjórnin, sem bar fram tiliögu
um, að viðræður færu fram þar.
Gert var ráð fyrir, að for-
menn sendinefnda beggja deilu-
aðila myndu koma til Parísar á
fimmtudag, en það eru W. Aver
ell Harriman fyrir Bandaríkin
og Xuan Thuy fyrir Norður-Víet
nam.
Lögreglan í París hefur feng-
ið sérstök fyrirmæli um að koma
í veg fyrir óeirSir í grennd við
aðseturstað ráðstefnunnar og aðr
ar byggingar, sem skipta máli
í sambandi við hana, þar á meðal
bandaríska sendiráðið, sendiráð
Framh. á bls. 30