Morgunblaðið - 09.05.1968, Qupperneq 16
16
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 9. MAt 1068.
Útgefandi: Hf. Árvakur, Reykjavík.
Framkvæmdastjóri: Sigfús Jónsson.
Ritstjórar: Sigurður Bjarnason frá Vigur.
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jórisson.
Ritstjórnarfulltrúi: Þorbjörn Guðmundsson.
Fréttastjóri: Björn Jóhannsson.
Auglýsingastjóri: Árni Garðar Kristinsson.
Ritstjórn og afgreiðsla: Aðalstræti 6. Sími 10-100.
Auglýsingar: Aðalstræti 6. Sími 22-4-80.
í lausasölu: Kr. 7.00 eintakið.
Áskriftargjald kr. 120.00 á mánuði innanlands.
VERÐGÆZLA OG
SAMKEPPNISHÖML UR
k aðalfundi Kaupmannasam
taka íslands, sem hald-
inn var síðari hluta febrúar-
mánaðar, var samþykkt álykt
un þar sem segir m.a.: „Aðal-
fundur Kaupmannasamtaka
íslands beinir þeirri áskorun
til hæstvirtrar ríkisstjórnar
íslands, að hún beiti sér fyrir
því eigi síðar en á komandi
hausti, að lagt verði fyrir Al-
þingi frumvarp til laga um
verðgæzlu og samkeppnihöml
ur, er leyst geti af hólmi það
handahófskennda fyrirkomu-
lag, sem nú er í gildi við verð
lagningu vara. Bendir fund-
urinn á, að undir forustu ráðu
neytisstjórans f viðskiptamála
ráðuneytinu og með aðstoð er
lends sérfræðings, er "hafi
langa og haldgóða reynslu í
þessum efnum, hafi verið unn
ið mikið undirbúningsstarf í
þessum tilgangi á s.l. ári og
geti það verið grundvöllur
nýrrar lagasetningar fyrir
verðlagningu á vöru og þjón-
ustu“.
Ástæða er til þess að vekja
athygli á þessari ályktun,
vegna þess m.a., að hún sýnir
• glögglega skilning kaup-
manna á nauðsyn þess, að
komið verði við hinni einu
eðlilegu verðgæzlu þ.e.a.s. að
þess sé gætt, að frjáls sam-
keppni fái að njóta sín til
hins ítrasta til hagsbóta fyrir
neytendur. Um leið undir-
strikar þessi ályktun Kaup-
mannasamtakanna þá stað-
reynd, að þau sjónarmið, sem
ríkt hafa í sambandi við verð
lagnirfgu á vörum, og álagn-
ingarhlutfall eru gjörsamlega
úrelt. Verzlun og iðnaður
hafa lengi búið við verðlags-
ákvæði, sem gera fyrirtækj-
um gjörsamlega ókleift að
byggja upp heilbrigðan fjár-
hagsgrundvöll, og afleiðing
áratuga rangrar verðlags-
stefnu hefur að sjálfsögðu
komið fram í mjög erfiðum
hag atvinnufyrirtækjanna í
landinu.
Kaupmenn hafa með þess-
ari ályktun aðalfundar síns
sýnt, að þeir skilja nauðsyn
þess, að eitthvert eftirlit sé
með verðlagsmálum í land-
inu, en þeir hljóta einnig að
gera kröfu til þess, að það
verðlagseftirlit gæti eðlilegra
hagsmuna neytenda, en sé
ekki við það miðað að koma
atvinnufyrirtækjunum á kné.
Þess vegna er ástæða til að
taka undir þá ósk Kaup-
mannasamtaka íslands til rík
isstjórnarinnar, að hún beiti
sér fyrir því á næsta Alþingi,
að lagt verði fram lagafrum-
varp um verðgæzlu og sam-
keppnishömlur og er æ§kilegt
að sem víðtækust samstaða
geti náðst um það mál.
FISKVEIÐAR Á
N-AT LANT SHAFI
ITm þessar mundir er hald-
^ inn hér á landi fundur
Fiskveiðinefndar Norð-austur
Atlantshafsins, og eru hingað
komnir á þann fund, fulltrúar
frá þeim ríkjum, sem eiga
mestra hagsmuna aé gæta á
þessu hafsvæði, en formaður
þessarar alþjóðlegu nefndar
er Davíð Ólafsson, Seðla-
bankastjóri. Ber kjör hans í
þetta mikilsverða trúnaðarl
starf glöggt vitni því áliti,
sem íslendingar njóta á al
þjóðavettvangi í fiskveiðimál
um.
Hlutverk þessarar nefndar
er að fylgjast með ástandi og
viðhaldi allra fiskistofnanna
á þessu hafsvæði, sem er ríkt
af gjöfulum fiskimiðum eins
og kunnugt er. Nefndin bygg
ir ályktanir sínar og aðgerðir
á vísindalegum niðurstöðum
rannsókna, sem framkvæmd-
ar eru á vegum Alþjóðahaf-
rannsóknarráðsins.
Á fundi þeim, sem haldinn
er hér í Reykjavík um þessar
mundir, verður meðal annars
rætt um aðferðir til takmörk
unar á veiðum, þegar þurfa
þykir og lokun ákveðins svæð
is fyrir togurum, en á fundi
nefndarinnar í París í fyrra
lagði ísland fram tillögu um
lokun hafsvæða út af Norð-
Austurlandi fyrir togveiðum
nokljEum hluta ársins í því
skyni að vernda ungfiskinn á
þessum slóðum.
Þess er að vænta, ,að fund-
ur þessi verði árangursríkur
og það er íslendingum
ánægjuefni, að hann skuli
haldinn hér á landi og þó ekki
síður, að þessi samtök bera
vitni góðri samvinnu fisk-
veiðaþjóðanna við Atlants-
hafið, sem okkur íslendingum
hlýtur að vera mjög mikils-
verð.
HEIMSSÝNING
í JAPAN
í árinu 1970 verður haldin
**■ mikil heimssýning í Os-
aka í Japan, og munu hinar
Norðurlandaþjóðirnar þegar
hafa ákveðið þátttöku í þess-
ari heimssýningu. Hins veg-
llkkZ'
UTAN ÖR HEIMI
Peter Wilby skritar um:
Rúmenskan prest, sem var
klefafélagi Patrascanu
London.
SÉRA Richard Wurmbrand,
rúmenski presturinn, sem sat
í fangeisi kommúnista í fjór-
tán ár, hefur skýrt frá því í
London, að hann hafi verið
klefafélagi Lucretiu Patrasc-
anu árið 1947. Patrascanu var
fyrrverandi dómsmálaráð-
herra landsins en hann var
dæmdur til dauða og líflátinn
árið 1954, en hefur nú verið
„endurreistur“.
Séra Wurmibrand drepur á,
að Patraseanu hafi verið einn
af stofnendum og upphafs-
mönnum rúmenska kommún-
istaflokksins og því hafi fang-
elsun hans verið haldið
leyndri í nokkur ár. Öðru
hverju var hann fluttur úr
klefanum til að halda fyrir-
lestra í lagadeild háskólans.
Þrátt fyrir fangelsunina,
var Patrascanu áfram .trygg-
ur og sannfærður komimún-
Lsti. Ráðherrann fyrrverandi
og lúterski presturinn voru
ólíkir félagar. „Fangar sem
sem höfðu mjög andstæðar
skoðanic voru oft hafðir
saman í klefum“ segir prest-
urinn. „Þá var vonazt til, að
þeir veittust hvor að öðrum
með ásökunum."
Wurmbrand gaf nýlega út
bókina „I undirheimum drott-
ins“ sem er áhrifamikil og
hrífandi frásögn um reynslu
hans í fangelsinu. Hann lýsir
þar rökræðum þeirra Patrasc
anu um Marxisma og kristna
trú. Til að gefa ráðherranum
fyrrverandi nokkra innsýn í
trúna fór hann m. a. með trú-
arjátninguna. Patrascanu
endurgalt honum með því að
draga saman trúarjátningu
Marxista i setninguna. „Við
kommúnistar trúum, að við
munum stjórna heiminum.“
„Skömmu síðar var Patrasc-
anu fluttur burtu úr klefan-
um. „Ég sá hann ekki aftur.
Með okkur hafði orðið vin-
átta þessa viku, sem við vor-
um saman, Mér fannst, að
margt það sem ég sagði, hefði
snortið hann, en auðvitað var
það andstætt öllum hans skoð
unum, og því féllst hann ekki
á að viðurkenna það, ekki
einu sinni fyrir sjálfum sér.“
Glæpur Patrascanu var sá
einn — samkvæmt frásögn
sóra Wurmbrands — „að
hann var fyrst Rúmeni og því
næst kommúnisti. Hann var
alltaf nokkuð utanveltu í
flokknum af þeim ástæðum
og fleirum“. Flestir félaga
hans og samistarfsmanna voru
af snauðu fólki komnir, en
Patrascanu var sonur auðugs
landeiganda.
Séra Wurmbrand binduir
litlar vonir við nýafstaðna at-
burðir í Rúmeníu. „Ég veit,
að þessar breytingar bera að-
ystumenn mótmælenda svo
og grísk-kaþóiskira í Rúmeníu
sitja enn í fangelsi eða í stofu-
fangelsum á heimilum sín-
um. Helmingur kaþóilskra
kirkna hefur verið lokað, ög
tveimþriðju baptistakirkna.
Meira að segja hefur nýi
tékkneski leiðtoginn Dubceck
ekkUleyst úr haldi einn ein-
asta prest, sem setið hafa í
fangelsum þar í landi.“
Wurmbrand gagnrýnir þögn
og sinnuleysi manna í vest-
rænum löndum ,um aðbúð ná
unga þeirra í Austur-Evrópu.
„Ég verð ekki var við nein
mótmæli frá Bretlandi og
Bandaríkjunum, þót't kirkj-
um okikar sé lokað og þjónum
þeirra varpað í fangelsi. Sam
vizka yðar sefur. Eg hef séð
kristna Rúmena liggja í
hLekkjum á bæn nótt eftir
nótt — þeir hafa beðið, að
OBSERVER
eins vitni um nýjan kafla í
endalausri valdabaráttu og
togstreitu innan flokksins.
Ceausescu, núverandi leiðtogi
kommúniistaflokkisins var
meðlimur stjórnmálaráðsins í
24 ár og var jafnan litið á
hann sem einn af dyggustu
stuðningsmönnum Cherghiu-
Dej, sem hann fordæmir nú
af miklum ofsa.“
„Það er eins og að eigin-
maður uppgötvaði það allt í
einu eftir 24 ára hjónaband,
að konan hans er ljót. Nei,
Ceausescu er ekki hótinu
betri en hinir — ég hefi setið
í fangelsi með mönnum, sem
voru handteknir samkvæmt
beinum skipunum frá hon-
um.“
„Hann hefur alltaf átt í
erjum við sovézka félaga sína.
En gagnvart kristinni trú,
fylgir hann sömu línu. For-
hjáLp kæmi frá Bretlandi. En
ég bið ekki um hjálp, ég bið
aðeins um að þér hjálpið ekki
kúgurum okkar.“
í djúpum augum prestsins
endurspegiast hin löngu þján-
ingaár. Hefur hann fyrirgef-
:ð?
„Þegar ég varð kristinn,
fyrirgaf ég öllum þeim, sem
einhvern tíma myndu gera
mér illt. Ég hata stjórnskipu-
lag kommúnista á sama hátt
og ég hata eiturlyfjaneyzlu.
En ég elska kommninistann á
sama hátt og ég elska eitur-
lyf j aneytandann.
Við verðum að Títa á mann-
eskjuna alla. Ég man fögur
augu kvaiara minna og varir,
sem konum hefði verið nautn
að kyssa. Þeir hefðu orðið
fyrirmyndareiginmenn."
(Þýtt og endunsagt,
ÖLI réttindi áskilin).
ar er ekki enn afráðið um
þátttöku íslands í sýning-
unni.
ísland tók þátt í heimssýn-
ingunni í Kanada á sl. ári
ásamt hinum Norðurlanda-
þjóðunum. Enginn vafi er á
því að þátttaka okkar þá
varð mjög gagnleg ekki sízt
vegna þess, að í vitund
þeirra, sem heimsóttu sýning-
arskála Norðurlandanna er
fsland nú tvímælalaust eitt
af Norðurlöndunum, en Norð-
urlöndin hafa sem kunnugt
er aflað sér mikils álits á al-
þjóðavettvangi bæði vegna
þeirra menningarþjóðfélaga,
sem þar eru og ekki síður
fyrir margvíslegar fram-
leiðsluvörur, sem eru heims-
þekktar að gæðum.
Aðild íslands að sameigin-
legri sýningu Norðurland-
anna hefur m.a. borið þann
ávöxt, að íslenzkar fram-
leiðsluvörur verða kynntar,
ásamt framleiðsluvörum frá
hinum Norðurlöndunum í
stórum vöruhúsum í Banda-
ríkjunum og Kanada, sem
hafa vöruhús út um allt og
veitir þessi kynning mögu-
leika á útflutningi íslenzkra
íðnaðarvara.
Að undanförnu hefur nokk
uð verið rætt um nauðsyn
þess, að íslendingar leitist
við að afla frekari markaða
í Japan, en á sl. ári keyptum
við af Japönum vörur fyrir
um 300 millj. króna, en seld-
um þeim vörur fyrir einung-
is 1 milljón krórna. Að öllu
þessu athuguðu og með þá
staðreynd í huga, að við eig-
um þess kost nú að verða að-
ilar, að sameiginlegum sýn-
ingarskála Norðurlandanna í
Osaka í Japan, væri vissulega
illa farið, ef ákvörðun yrði
tekin um það, að ísland tæki
ekki þátt í heimssýningunni,
ekki sízt vegna þess, að kostn
aður okkar við þá heimssýn-
ingu mundi verða mjög tak-
markaður og sáralítill miðað
við þá möguleika, sem sú
þátttaka mundi veita okkur.
Teheran, 7. maí NTB—Reuter
MANNRÉTTINDARÁÐSTEFNA
Sameimuðu þjóðanna, sem hald-
in er í Teheran, samþykkti I
dag tillögu, þar sem Israel er
gagnrýnt og farið er fram á rann
sókn á aðbúð þeirri sem Arabar
á ísrael'skum landssvæðum búa
við. Tillagan var samþykkt með
42 atkvæðum gegn fimm. Tutt-
ugu og fimm ríki greiddu ekki
atkvæði. Tillagan var borin
fram af fulltrúum Saudi-Ara-
bíu, Spáni og Súdan.