Morgunblaðið - 31.05.1968, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 31.05.1968, Blaðsíða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 31. MAÍ 1008. Hermann skoraöi fallegasta markiö — en þrjú kJaufamörk sköpuðu sigur IVIiddlesex Wanderers 4:1 MIDDLESEX Wanderers vann tilraunalandsliðið 4:2 í mjög veðurbörðum leik á hálum og blautum Laugardalsvellinuni, því slagviðris rigning og rok af suð-austan herjaði á leikmönn- um meðan leikurinn stóð yfir En yfirburðir Bretanna voru ekki fyrst og fremst fólgnir í því, hve vanir þeir eru að ieika við vond- ar aðstaeður, hvað rok og bleytu, snjó og kulda snertir, heldur var raunin sú, að íslenzka til- rauna landsliðið gerði sig sekt um að þverbrjóta og ráða ekki við grundvallaratriði, sem hver skólastrákur í 5. flokki á>fað valda- — Aðeins eitt mark af þeim fjórum, sem Bretarnir skoruðu, má segja að hafi verið iil viðráðanlegt. En þeir skoruðu hin þrjú mörkin, kom vankunn- átta og kæruleysi íslenzku leik- mannanna Bretunum til hjálp- ar. Þrátt fyrir þessa staðreynd var Ijósasti punkturinn í öllum leiknum, mark Hermanns Gunn arssonar á 57. mín. og Hexmann aðstoðaði einnig við annað mark ið, sem íslenzka liðið skoraði, er hann sendi til Guðmundar Þórð- arsonar, sem hafði af að stýra knettinum í net Englendinganna, þótt hann rynni á rassinn við það. Mörkin. Mínúta var frá leikbyrjun er knötturinn fór yfir marklínu ís- lenzka marksins. MW. höfðu gert snöggt upphlaup enda höfðu þeir vindinn með sér. Vinstri útherj inn G. Lloyd lék upp að enda- mörkum rétt við mark íslenzka liðsins og sendi lausa sendingu fyrir markið. Sigurður Dagsson stóð við stöngina og hugðist handsama knöttinn, en knöttur- inn snérist úr höndum hans og rann milli fóta Sigurðar inn fyr- ir marklínuna. Annað markið skoraði A. Dead man er 32 mín voru af leik með fastri bogaspyrnu, sem Sigurður Dagsson gerði heiðarlega tilraun til að verja, en mun hafa stokk- ið of fljótt upp eftir knettin- um, og missti hann yfir sig inn í markið. — Rétt fyrir leikhlé ekorar svo MW 3:0 og er G. Lloyd þar enn að verki, framhjá kyrrstæðum varnarleikmönnum. Síðari hálfleikur: Hinar fáu og trúuðu hræður, sem sáu þennan leik vonuðu að íslenz'ka liðið hristi af sér slen- ið í síðari hálfleiknum, þar sem þeir höfðu nú vindinn með sér. En önnur varð reyndin. Sama endurtók sig og í byrjun leiks- ins. Knötturinn er sendur út á vinstri kant til Lloyd sem brun- ar framhjá tveimur íslenzkum varnarmönnum, án þess að þeir gerðu nokkuð, sem heitir til að etöðva hann. Sigurður Dagsson gerir hið rétta að koma út á móti Lloyd, en Bretinn nær að eenda yfir hann í markið. — Eftir þetta mark er sem íslenzka liðið hristi úr klaufunum og 12 mín. síðar skorar Hermann Gunn arsson glæsilegt mark með hörku jarðarskoti. Það sem eftir var af leiknum eóttu íslendingar nokkuð í sig veðrið, en þó skall hurð oft nærri hælum að Bretarnir skor- uðu. En landinn átti síðasta orð- ið i leiknum er Guðm. Þórðarson skoraði eftir að hafa hras- að á hálum vellinum, er hann var að taka við sendingu frá Her manni Gunnarssyni og leiknum lauk stuttu síðar með verðskuld uðum sigri Middlesex Wanderers 4:2. — Á. Á. Hinir þýzku gestir Keflvíkinga. Þýzkt atvinnuliö í boði Keflvíkinga Leikur 3 leiki hér á landi HIÐ kunna vestur-þýzka knatt- spyrnulið Schwarz-Weiss frá Ess- en er væntanlegt til Islands um næstu helgi í boði Iþróttabanda- lags Keflavíkur. Liðið mun leika þrjá leiki hér á landi, hinn fyrsta við Keflvíkinga mánudaginn 3. júní (annan í Hvítasunnu) kl. 4 e.h. í Keflavík. Annar leikurinn verður svo við nýliðana í I. deild þ.e. lið Iþróttabandalags Vestmannaeyja sem fyrir nokkr- um dögum sigraði Islandsmeist- arana Vai í I. deild. Fer sá leikur fram miðvikudaginn 5. júní í Keflavík. Þriðji og síðasti leikur Þjóðverjanna verður svo á Laug- ardalsvellinum föstudaginn 7. júní og leika þeir þá við úrvals- lið landsliðsnefndar. Sterkt atvinnulið. Schwarz-Weiss er sterkt at- vinnulið sem náð hefur ágætum árangri í Þýzkalandi á undan- förnum árum. Árið 1950 varð Schwarz-Weiss bikarmeistari Molar JAPANSKA Olympíuliðið í knattspyrnu tapaði hér í kvöld gegn enska liðinu Ar- senal með engu marki gegn fjórum. í hálfleik var staðan 3-0. Þetta var þriðji sigur Ar- senal gegn úrvalsliðinu jap- anska. EdP-mótiö í kvöld Guðmundur reynir við 18.21 EOP-MÓTIÐ hefst á Melavellin- um í kvöld kl. 8 áðalhlutinn, en keppni í sleggjúkasti hefst kl. 7.30. Góð þátttaka er í mótinu og meðal keppenda allir okkar beztu Jofntefli FH og Houko 3:3 Á miðvikudagskvöldið var fór fram í Hafnarfirði leikur í ann- arri deild á milli Hafnarfjarðar- liðanna F.H. og Hauka. Mjög ó- hagstætt veður var til knatt- spyrnukeppni, rok og rigning, og stóð heldur á annað markið. Haukar kusu að leika undan veðrinu í fyrri hálfleiik. í upp- hafi sóttu F.H. ingar og virtist veðrið ekki hafa svo mikil áhrif, en fljótlega tókst Haukum að sækja og um miðjan fyrri hálf- leik skorar Jóhann Larsen fyr- ir Hauka. Skömmu seinna skorar Her- bert. Undir lok hálfleiks skora svo Haukar úr vítaspyrnu og í leikhléi er staðan 3 mörk gegn engu Haukum í vil. f síðari hálf- leik náðu F.H. ingar því aðjafna metin og voru þar að verki Örn Hallsteinsson sem skoraði 2 mörk og Helgi Ragnarsson er skoraði 1 mark. Leiknum lauk því með jafntefli 3 mörk gegn 3. Þessi leikur gefur ekki rétta hugmynd um getu þessara liða vegna hins óhagstæða veðurs er var. Dómari var Óli Ólsen. frjálsíþróttamenn, konur og ungl ingar. Meðal þeirra má nefna Guðmund Hermannsson sem nú fær annað tækifæri á sumrinu til að reyna sig í kúluvarpinu. Verður fróðlegt að sjá hvort hann bætir metið enn, en á Vor- móti ÍR varpaði hann 18.21 m. Þá keppir Jón Þ. Ólafsson í hástökki en hann var nærri OL- markinu síðast. Valbjörn Þorláks son, Erlendur Valdimarsson, Arn ar Guðmundsson og fleiri eru einnig meðal keppenda. ------------------ | Frúarleikfimi Júdófélagsins JUDOFÉLAG Reykjavikur hef- ur ákveðið, vegna milkállar eftir spurnar, að halda nám/skeið fyr ir kvenifólik, og miun hátt gráð- aður judokennari kenna. Á þessu námskeiði er fyrst og fre,mst lögð áherzia á líkams æfingar tffl alhliða þjálfunar, en eánnig verða kynnt brögð, sem komið geta að góðu haildi í sjálfsvörn. Æfingar verða á mánudögum ag fimmtudögum kl. 8.30 til kl. 9.30 á kvöldin í æfingasal félags inis á fimmtu hæð í húsi Júpd- ter og Mars á Kirkjusandi. Fyrsta æfing er á fimimtudags- kvöld 6. júní n.k. Judonámskeið fyrir drengi er einnig að hefjast á sama stað, ag eru æfingar á mánudögum ag fimmtudögum kl. 6—8 s.d. Þýz’kalands í knattspyrnu og í fyrra urðu þeir nr. 2 í „Region- allígunni.“ Liðið leikur mjög skemmtilega knattspyrnu og er mjög vinsælt í heimalandi sínu. Verður gaman að fylgjast með leikjum þessa rómaða knatt- spyrnuliðs hér á landi. Leikmenn Schwarz-Weiss sem hingað koma eru 15 talsins en auk þess þjálfari og 4 fararstjór- ar, eða alls 20 manns. Eru það tveir markverðir fimm varaleik- menn, fjórir ,,tengiliðir“ og fjór- ir framherjar. Lið Keflvíkinga. Lið Í.B.K. sem leikur við þjóð- verjanna á mánudag (annar í Hvítasunnu) kl. 4 e.h. verður þannig skipað: Kjartan Sigtryggsson, Ástráður Gunnarsson, Guðni Kjartansson, Einar Magnússon, Sigurður Al- bertsson, Hjörtur Zakaríasson, Karl Hermannsson, Grétar Magnússon, Einar Gunnarsson, Magnús Torfason, Jón Ól. Jóns- Sundlaugarnar opna á morgun SUNDLAUGARNAR í Laugar- dal verða opnaðar almenningi á morgun. Hefst athöfnin kl. 15. Mun þá Úlfar Þórðarson fonnað- ur Laugardalsnefndar afhenda mannvirkið, en Geir Hallgrims- son borgarstjóri mun veita því viðtöku fyrir hönd iborgarinnar. Herra Ásgeir Ásgeirsson for- seti íslands miun flytija ávarp, svo og Gísli Halldórsson forseti Í.S.Í. Að þessu loknu mun tfara fram sundsýninig og sundkeppni. Borg- arstjóri sagði á fundi með frétta- mönnum f gær, að hann vildi hvetja almenning tU að koma og vera viðstaddan opnunina. Á lauigardaginn er nýju laug- arnar verða opnaðar, verður gömlu Súndlaugunum lokað fyr- ir fullt og allt kl. 12 á hádegi. Þegar áðurnefnduim hátíðahöld um við nýja sundsvæðið er lok- ið verður sundsvæðið opið al- menningi til kl. 21.30 á laugar- dagskvöld og á hvítasunnudag og 2. hvítasunnudag frá kl. 8 til 16. Sundlaug Vesturbæjar verður opin á sömu tímum og er þetta í fyrsta sinn sem útilaugarnar eru opnar þessa helgidaga. Ragnar Steingrímsson verður sundlaugarsitjóri nýju laugamna og starfslið gömlu lauganna flytzt þangað. Friðjón Guðbjörns son munhafa eftirlit með hinu flókna hreinsi- og blöndunar- kerfi nýju lauganna. Sundlaugarnar eru um 2000 fermetrar að flatarmáli, minnsta breidd er 21 metri en hún er fimmtíu metra löng, og frá 0,8 í 1,71 metra djúp. Um 800—900 manns geta samtímis verið í lauginni. Vatnið er klórblandað og kísilgúrhreinsað. Sundlaugin verður upplýst frá öllum veggjum og sundlauigar- svæðið frá ljóskösturum af þak- inu yfir áhorfendapöllunum. Þeir munu rúma um 2100 manns, þar af um 1800 í sæti. Undir áhorf- endapöllum eru búnings- og fata- geymslur og taka þær auk við- bygginga um 1000 manns á klúkkustund. Þá er gufubað í kjallara undir inngangi. Utanhúss eru 27 steypiböð, heit og köld, verða 12 þeirra yfirbyggð. Þá er 38 fermetra vaðlau'g fyrir smábörn, 6 Snorra- laugar og tvö sólskýli karla og kvenna. Verða þau með hitalögn í gólfi, og eins verður hitalögn í stéttinni mbðfram laugunum. Steyptar stéttir eru um 2200 fer- metrar að stærð og grasfletir litlu stærri 2300 fermetrar. Þess skal getið, að frágangi á mannvirki þessu er enn ekki að fullu lokið. 100 Keflvíkingai í víðavangs- hlaupi VÍÐAVANGSHLAUP IBK fer fram við íþróttavöllinn 1 kvöld kl. 8.30. Þátttakendur verða um 100 talsins og keppt er í 5 flokkum, frá fullorðn- um og niður í flokk 12 ára og yngri. Langmest þátttaka er í yngsta öokki, en þar eru kepp endur um 70 talsins. Nú ættu Keflvíkingar að nota tækifærið og koma að hinum glæsilega nýja íþrótta- velli kaupstaðarins og horfa á upphaf og endi víðavangs- hlaupsins, hvetja hinn stóra keppendahóp til dáða.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.