Morgunblaðið - 23.06.1968, Síða 10
10
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. JÚNÍ 1953
Ófl slófít
um
'sins
Gestur Guðfinnsson:
er hún Esja
66
„Söm
ESJAN er eins og útspýtt hunds-
skinn á landakortinu og skækl-
arnir togaðir í ailar áttir. í raun
og veru er hún öll á lengdina,
liklega einir tólf eða þrettán krn
vestan frá Blikdalskjafti og aust
ur að Móskarðshnúkum. Reynd
ar ættu Móskarðshnúkar að mín
um dómi að færast á efnaihags-
reikning Esju, landfræðilega séð
er þetta allt ein heild, og lægjoi
þá takmörk hennar að austan
um Svínaskarð. En ég eftirlæt
Esjufræðingum að skera úr því.
Breiddin er hinsvegar ekki alls-
staðar mikil og á Móskarðshnúk
unum gætum við sem hægast set
ið klofvega og barið fótastokk-
inn, þótt fyrir lítið kæmi.
Söm er hún Esja,/ samur er
hann Keilir,/ eins er Skjaldbreið
/og á Ingólfs dögum, kvað Bjarni
Thorarensen á sínum tíma. Trú-
lega er þetta rétt. Esjan er sjálf
sagt svipuð og fyrir þúsund ár-
um, það væri þá helzt '’gróður-
farið, sem tekið hefði einihverj-
um breytingum. Líklegt má t.d.
teljast, að skógur hafi þá náð
eitthvað upp eftir hlíðum Esju
og hefur það auðvitað haft áhrif
á útlitið. Ekki er þó ætlunin að
fara hér mikið út í söguna. Sjálf
sagt vita flestir, að Esjan tilheyr
ir Kjalamesinu og Kjósinni, sam
kvæmt gamalli hreppaskiptingu.
En að öðru leyti er þekking
manna á fjallinu að sjáifsögðu
misjafnleg ýtarleg, einn veit
þetta, annar hitt. Það fer eftir
áhugamálum hvers og eins. T.d.
vita þeir, sem við trjárækt fást,
allt mögulegt um skógræktar-
stöð ríkisins að Mógilsá, laxveiði
menn gerþekkja sögu og rekstur
Köllaf jarðarstöðvarinnar og
kunna frá því að segja, að vatnið
í henni sé ættað úr Esjunni,
eggjatínslumenn vita hvar helzt
er að finna hreiður veiðibj'úi-
unnar, sem verpir í Blikdals-
drögum, og til eru þeir, sem rak
ið geta söguna um kalknámið og
gullleitina í þessu merkil. fjalli.
astnefnda og miðast einkum og
sér í lagi við þá, sem hyggjast
leggja til atlögu við fjallið, í því
skyni verður m.a. bent á helztu
leiðir, sem um er að velja. Fyrst
skal þó vikið lítillega að hæð-
inni.
Fyrir fjallgöngumenn er hæð
fjallanna alltaf þýðingarmikið
atriði. Miðað við Vestfjarðafjöll-
in getum við sagt, að Esjan sé
svona meðalfjall eða kannski ríf
lega það. Öðru máli gegnir, ef
við berum hana saman við Aust
fjarðafjöllin, þau bera flest höf
uð og herðar yfir hana, að ég
nú ekki tali um bæjarfjall þeirra
öræfinga, Vatnajökul sjálfan,
þar sem Hvannadalshnúkur trón
ar í meira en tvöfaldri hæð
Esju. Það er eins gott fyrir Esju
fara að vera ekki með nein
merkilegheit í þessum efnum,
þegar þeir koma þar í sveit, ef
þeir vilja ekki verða sér til
skammar.
Svo einkennilega vill til, að
við höfum lengsf af búið við
ranga hæðartölu hvað Esju á-
hrærir. Á herforingjaráðskortinu
er hún talin hæst á fjallsegginni
upp undan Þverárkoti, 909 m,
þar sem í daglegiu tali hefur ver
ið kallaður Hátindur. Nafnið hef
ur verið einskonar staðfesting á
því, að þarna væri fjallið hæst.
Við síðustu landmælingar kom
hinsvegar tvennt nýtt í ljós varð
andi hæð Esju. í fyrsta lagi er
mesta hæð hennar ekki 909 m,
heldur 918 m. Og í öðru lagi er
hátindiurinn ekki á Hátindi, held
ur allmiklu vestar eða upp und
an Kistufelli, við gætum kallað
staðinn Kistufellsbungu til hægð
arauka, þangað til lögleg skírn
hiefur farið fram. Það má um
þessa uppgötvun segja með
nokkrum rétti, að hækkar hag-
ur strympu, ef leyfilegt er að
nota svo óvirðulegt orðalag um
þetta fyrirmyndarfjall, en sum-
um hefur orðið hált á þeirri
hdlunni.
segja megi, að allsstaðar sé fært
gangandi manni, en þó er mikill
munur á hver leiðin er valin.
Hér verður þó einungis rætt
■um þá hliðina, sem að Reykvík-
ingum snýr, ég hef aldrei svik-
izt aftan að henni eða farið á
bak við hana, enda ekki talið
til fyrirmyndar að koma þann-
ig fram við einn eða neinn, sízt
við kunningja sína.
Algengasta leiðin á fjallið er
líklega upp frá Mógilsá. Það má
heita torfærulaus leið, aflíðandi
grasbrekkiur neðan til, síðan all-
bratt'ur skriðuikafli og efst nokik
ur klettabelti, jafnvel þeir loft-
hræddustu fara þetta auðveld-
lega með hjálp guðs og góðra
mann án þess að finma til óþæg
inda svo teljandi sé. Þessi leið
hefur að minnsta kosti eitt fram
yfir aðrar leiðir á Esju. í dálít-
illi vörðu, sem er þarna á brún-
inni, er gestabók í vönduðu
málmlhylki, þar sem hver og
einn getur skráð nafm sitt ásamt
viðeigandi athugasemdum um
ferðalagið. Þar geymast nöfn
Esjufara síðan um ókomnar ald-
ir, frægð þeirra blífur, eins og
lamdkönnuðanna ódauðlegu. —
Þeir, sem blaða í þessari gesta-
bók, t.d. að svo sem þúsund ár-
um liðnum, eiga kannski eftir
að reka sig á eitthvað í líkingu
við eftirfarandi klausu: Ferða-
félag íslands. 28. júlí 1968. Sól-
skin og blíðskaiparveður. Dásam
legt útsýni. Skyggni ágæft eða
nánar tiltekið um 150 milljónir
kílómetra. Jón Jónsson, Sést-
valiagöbu 3, Reykjavík. Og síð-
an áframhaldandi nafinaruna.
Vinsæl leið í seinni tíð er líka
upp öxlina frá Þverárkoti með
sinn dalinn til hvorrar handar,
Grafardal að vestan, Þverárdal
að austan. Ofantil minmir sú leið
töluvert á tröppurnar upp að
Matthíasarkirkjunmi á Akureyri,
en er ívið brattari og arkitekt-
inn hefur leyft sér meiri frávik
frá því almenna og viðurkennda
en sá fyrir norðan. Þama kem
ur maður beint upp á Hátind
Esju. Við blasir mikil og fögur
fjallasýn, hvert sem litið er, en
þó einkum inn til jöklanna.
Fólk stjáklar um í hrifningu and
artaksins og undrast allan þenn-
an mikilleik, loks segja þó þarfir
líkamans til sín, sumir tylla sér
niður og taka til við nestisbitann,
aðrir hverfa bak við einhverja
blessaða ójöfnuna í landslaginu,
hér er auðvitað engin soffían.
Ég hef stundum mælt með
þriðju leiðinni, og vil ég þó biðja
heiðraða lesendur að misskilja
ekki orðalagið. Það sem ég á við
er að. aka langleiðina vestur að
Ártúni eða Blikdalsá og ganga
síðan upp taglið sunnan við Blik
dalinn. Líklega er þetta auðveld-
asta leiðin, þegar á allt er litið,
en hefur auk þess þann megin-
kost, að maður hefur sólina í
andlitið, ef tímanlega er verið á
ferðinni, en slíkt eykur óneitan-
lega á bjartsýnina í ferðalaginu
og brúnkuna, sem sumir telja
jafnvel eitt hið eftirsóknarverð-
asta í lífinu, þ.e.a.s. útilífinu. í
þessu tilfelli kemur maður upp
á Kenhólakambinn. Þaðan er
gaman að horfa yfir Sundin og
Kollafjarðareyjarnar, að ég nú
ekki tali um okkar elskulegu höf-
uðborg, sem virðist næstum því
í kallfæri þarna á fjallsbrúninni.
Skylt er að taka það fram, að
enginn verður fyrir óþægindum
af peningalyktinni illræmdu,
jafnvel þótt golan standi beint
af strompinum mikla á Kletti,
svo er fyrir að þakka.
Sumir taka leiðina um Gunn-
laugsskarð fram yfir allar aðrar
leiðir á Esju og hafa sjálfsagt
sitthvað til síns máls, þótt ég sé
þeim reyndar ekki fyllilega sam-
mála. Hins vegar hef ég fundið
meira af eigulegu og fallegu
grjóti í Gunnlaugsskarði heldur
en annarsstaðar í Esjunni, en hún
lumar sem kunnugt er á ýmsum
gersemum af því tagi, enda gam-
alt fjall á íslenzka vísu.
Enn koma fleiri leiðir til
greina, svo sem upp frá Esju-
bergi, meira að segja Kistufell
er fært öllu venjulegu fólki og
tilvalið fyrir þá, sem þykja hin-
ar leiðirnar of auðveldar og
áreynslulitlar.
Uppi á Esjunni er fremur flat-
lent og jafnlent, en berangurs-
legt og gróðurlítið, eiginlega sú
tegund landslags, sem nefnd hef-
ur verið urð og grjót. Þó má
finna þarna nokkuð margar teg-
undir fjallajurta á æpingi innan
um grjótið og urðina; þær láta
lítið yfir sér, en eru af harðgerð-
um stofni, ættir þeirra má að lík
indum rekja til ísaldarjurtanna
og nöfnin minna okkur á nábýlið
við ísinn og kuldann: jökla-
klukka, jöklasóley o.s.frv. Vel-
megunarríki íslenzkra jurta.hófst
hinsvegar ekki fyrr en seint og
síðar meir, en í kjölfar þess bár-
Pst ingað ýmsir kveifarlegri
tegundir og tóku sér bólfestu
landinu.
Fyrst ég er farinn að minnast
á ísinn og kuldann á annað borð,
væri ekki úr vegi að drepa á eitt
atriði í því sambandi að lokum.
Þótt Esjan sé ekki hærri en raun
ber vitni, þá er hún ótrúlega
fastheldinn á snjóinn. Ég held
mér sé óhætt að fullyrða, að hún
verði aldrei snjólaus með öllu,
jafnvel sunnan í móti má í flest-
um sumrum sjá skafla fram á
haust. Snjórinn í Esjunni er í
raun og veru jökull, þótt lítill
sé, í ætt við sjálfan heimskauta-
ísinn, sem okkar stuttu og sólar-
litlu sumur megna ekki að bræða
að fullu.
Esjan hefur ekkj verið við eina
fjölina felld, ef út í það væri
farið. Loks hafa svo fjallasprang
ararnir sína sögu að segja, þeg-
ar talið berst að Esju, en hún
er nokkuð á öðru sviði en ann-
arra. Líklega flokkast þetta
greinarkorn helzt undir hið síð
í raun og veru er um ýmsar
uppgönguleiðir á Esjuna að
ve'Þa. Það er með hana eins og
vel kveðna sléttubandavísu, við
getum byrjað á hvorum endan-
um sem er og leikið okkur að
margskonar tilbrigðum, ef okk-
ur sýnisit svo. Það liggur við að
títsýni af Esju til Móskarðshnjúlía og Skálafells.
Til leigu
iðnaðar- eða geymsluhúsnæði á tveimur hæðum um
500 ferm. samtals. Húsnæðið er við athafnasvæði
Reykjavíkurhafnar.
Leigist í einu eða tvennu lagi.
Upplýsingar gefur Reynhold Kristjánsson, lög-
fræðingur, Landsbanka fslands.
LANDSBANKI ÍSLANDS.