Morgunblaðið - 23.06.1968, Blaðsíða 17
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. JÚNÍ 1»®8
17
Guðm. G. Hagalín
skrifar um
BÓKMENNTIR
‘ s3. -
I FREMSTU ROD
Nokkur orð um barnablaðið Æskuna
Ég hafði ekki lengi starfað
sem bókavörður þegar mér varð
ljósara en áður, hve mikilvægt
menningarlegt atriði það er, að
til séu handa börnum og ungl-
ingum fróðlegt og skemmtilegt
lesefni, og mjög rann mér til
rifja, hve fátæklegt það var hjá
okkur íslendingum í þann tíma.
' Álhugi minn á þessum málum
hefur síður en svo rénað, og hef
ég fylgzt allrækilega með því,
hvað út hefur komið síðustu
áratugina af blöðum og bókum
handa hinni upprennandi kyn-
slóð. Hefur það verið mjög án-
ægjulegt, hve tiltölulega margt
igóðra barna og unglingabóka
eftir íslenzka höfunda hefur ver
ið gefið út, þó að höfundarnir
og starf þeirra hafi engan veg
inn verið metið að verðleikum.
Hafa íslenzkir höfundar slíkra
bóka yfirleitt ekki freistazt tij
að fara að dæmi þeirra erlendu
skriffinna, sem hafa annað
tveggja skrifað mjög einstreng-
ingslegar og leiðinlegar áráðurs
bækur út frá siðferðilegum og
trúarlegum sjónarmiðum eða
tekið sér til fyrirmyndar í gróða
skyni morð- og glæfrasögur.
Þeir hafa heldur ekki valið sér
viðfangsefni í samræmi við hinn
furðu tíða áhuga margra á lífi
þeirra ærsla- og öfgaunglinaga,
sem hlaupið hafa að heiman og
flækjast betlandi og hnuplandi
um erlendar stórborgir eða ger-
ast athvarfslaus óreiðulýður
sem flakkar af einu landshomi
á annað. Um val á erlendum
barna- og unglingabókum hefur
tekizt misjafnlega og þýðingar
á þeim og frágangur allur stund
um verið síðri en skyldi, en mik
ið hefur samt komið á íslenzk-
an bókamarkað af góðum er-
lendum barna- og unglingabók-
um og margt af þeim verið
sómasamlega frá hemdi þýð-
anda og útgefanda.
Þegar ég var drengur, voru
gefin út hér á landi tvö barna-
blöð, og þó að ég tæki snemma
að lésa bækur af ýmsu tæi, las
ég bæði þessi blöð og oftast
mér til mikillar ánægju. Eru
mér einkum minnisstæð úrÆsk-
unni barnaljóð eftir séra Frið-
rik Friðriksson og kann ég
sum þeirra ennþá, en Unga ís-
land var mér sérstaklega kært
á ritstjórnarárum Helga Valtýs-
sonar. Nú er Unga Island úr
sögunni fyrir um það bil tveim-
ur áratugum, og um hríð var
Æskunni hætt, þó að yfirleitt
væru ritstjórar hennar mjög vel
ritfærir og hefðu flestir sem
kennarar náin kynni af fjöl-
mörgum börnum og unglingum.
Árið 1956 tók við ritstjórn
Æskunnar Grímur Engilberts,
sem þá hafði lengi verið verk-
stjóri í setjarasal Ríkisprens-
smiðjunnar Gútenberg. Síðan
hefur hann verið ritstjóri blaðs-
ins og fyrir fáum árum kvaddi
hann iðn sína og helgar sig nú
ritstjórninni eingöngu. Útgef-
andi Æskunnar er enn sem fyrr
Stórstúka Islands, en fram-
kvæmdastjóri blaðsins og for*
stjóri bókaverzlunar þeirrar,sem
við það er kennt, hefur nú i
allmörrg ár verið Kristján Guð-
mundsson. Hann hefur ríkan
áhuga á vexti og viðgangi blaðs
ins — sem og útgáfu barnabóka
— og mun vera mikið og gott
samstarf með honum og ritstjór-
anum en auk þeirra vinnur harð
duglegur og áhugasamur maður
að áskriftasöfnun og innheimtu
Grímur Engilberts hefur ekki
lagt stund á nám í uppeldis-
fræðum, og ekki er mér kunn-
ugt um, að hann hafi fengizt
við kennslu. Ekki mun hann
heldur hafa stundað nám í fé-
lagsfræði eða blaðamennsku. En
hann virðist þegar í upphafi
ritstjórnair sinnar hafa skilið
furðu vel, að blaði þyrfti að
vera í allnánu samræmi við
breytta tíma, breytt uppeldi og
ný áhugamál ungu kynslóðar-
innar, og hann reyndist þegar
ærið glöggur á áhugavekjandi,
ifróðlegt og skemmtilegt efni.
Honum var og ljóst, að um um-
brot og þar með útlit blaðsins
yrði að taka tillit til þeirra fram
fara, sem á því sviði hafa orð-
ið yfirleitt hér á landi, og þar
stóð hann sérlega vel að vígi,
sakir reynslu sinnar, þekking
ar og meðfæddrar og áunninn-
ar smekkvísi. Nú er og svo kom-
ið, að blaðið er orðið margfalt
að stærð við það, sem það var
áður, furðulega fjölbreytt að
efni og myndakosti og tala
kaupenda komin allmikið á ann
an tug þúsunda. Má öllum vera
ljóst, að þrátt fyrir áhuga fram-
kvæmda stjórans og velskipu-
lagða og kappsamlega út-
breiðslustarfsemi hefði kaup-
endahópurinn ekki aukizt jafn-
ört og raun hefur orðið á, ef
ekki hefði notið þar við dugn-
aðar og áhuga ritsjórans og hug
kvæmni hans og glöggskyggni
um efnisval, samfara sérlegri
smekkvísi og kunnáttu um frá-
gang blaðsins.
Æskan flytur framhaldssögur
handa börnum eftir íslenzka
höfunda, smásögur og erlendar
framhaldssögur og ævintýraleg
ar útlendar frásagnir. f blað-
inu eru og sögur af nafnkennd
um mönnum, lýsingar á merk-
um stöðum, greinar og sögur um
dýr, — ferfætlinga fugla og
fiska og sitthvað annað í ríki
náttúrunnar. Þá birtir blaðið
kvæði, vísur og órímuð Ijóð,
sönglög og frásagnir af leikur-
um og tízkusöngvurum, og þar
er getið listamanna ýmissa list-
greina. Skýrt er frá félagsstarfi
ungra karla og kvenna, birtir
þættir um íþróttir, frímerki og
frímerkjasöfnun og jafnvel for-
sagnir um bakstur og matreiðslu
Svo eru í blaðinu skrítlur, ýkju
sögur, gátur og getraunir og
sitthvað fleira, sem skemmt get-
ur og hresst. Og flestu efni
blaðsins fylgja góðar og skýr-
ar myndir.......Enn er ógetið
myndsagna, sem eru vel og skyn
samlega valdar og einkum munu
ætlaðar yngstu lesendunum,
sem lítt eru enn færir um að
lesa langar sögur eða hið tor-
melta skemmtiefni.
Ég hef jafnan fylgst allnáið
með stækkun Æskunnar og þeim
breytingum, sem á henni hafa
orðið, og þá er núverandi rit-
stjóri tók að legga áherzlu á
fjölbreytni efnisins var mér
ekki grunlaust um, að hann
kynni að gera það of rýrt og
tíningslegt of lítið yrði í blað-
inu af samfelldu lesefni. En sú
hefur ekki orðið raunin. Hann
hefur og ratað furðanlega þann
þrönga og vandfarna meðal-
veg að gera efnið hvorM of
æsilegt né heldur daufingjalegt,
og hann veitir lesendum sínum
æskilegt aðhald um skynsamleg
sjónarmið, án þess að beita auð-
sæjum_ og andstöðuvekjandi ár-
óðri. Ég hef séð og athugað
mörg erlend blöð, sem ætluð eru
börnum eða unglingum, og ég
þori að fullyrða, að fæstum
þeirra standi Æskan að baki.
Þegar ég leit yfir seinustu blöð-
in sagði ég við sjálfan mig:
Þama hefur verið unnið svo
gott og myndarlegtt starf á mik
ilvægum vettvangi, að um það
má ekki þegja þunnu hljóði, svo
sem gert hefur verið fram að
þessu.
Guðmundur Gíslason Hagalín.
Gunnar Guðjónsson endurkosinn
stjórnarformaður SH
Á AÐALFUNDI Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna, sem lauk um
síðustu mánaðamót, voru eftir-
farandi menn kosnir í stjórn SH
fyrir næsta starfsár:
Gunnar Guðjónsson, Reykja-
vík, Sigurður Ágústsson, Stykkis
hólmi, Ingvar Vilhjálmsson,
Reykjavík, Einar Sigurjónsspn,
Vestmannaeyjum, Gísli Konráðs-
son, Akureyri, ólafur Jónsson,
Sandgerði, Finnbogi Guðmunds-
son, Gerðum, Guðfinnur Einars-
son, Bolungarvík, Tryggvi Ófeigs
son, Reykjavík.
Stjórnin hefur skipt með sér
verkum. Stjórnarformaður var
kjörinn Gunnar Guðjónsson, for-
stjóri, varaformaður Sigurður
Ágús'tsson, fyrrv. alþm., og ritari
Ingvar VilhjáLmsson, útgerðar-
maður.
Gunnar Guðjónsson.
Heildurvelta Kuupfélugs
A-Skuftufellssýslu 179 milljónir
ú siðustliðnu úri —
Höfn í Honnafirði, 11. júní.
KAUPFÉLAG Austur-Skaftfell-
inga hélt aðalfund sinn síðast-
lliðinn sunnudag. Fundinn sátu
auk stjórnar og endurskoðenda
22 fulltrúar. óskar Helgason, for
maður félagsstjórnar, flutti
skýrslu stjórnarinnar, Ásgrímur
Halldórsson las reikninga félags-
ins og skýrði einstök atriði
þeirra.
Heildarvelta félagsins nam 179
miilljónum og hafði hækkað um
10.38 prósent, tekjuafgangur var
2.220 þúsund og höfðu þá fast-
eignir og vélar verið afskrifaðar
um deildum félagsins nam 57.7
miHjónum, auikning 13 prósent,
sala sjávarafurða var 56.3 millj.,
aukning 6.7 prósent, landbúnað-
arvara 26.1 milljón eða nærri
sama og fyrra ár, mjólkurafurða
18.245 milljónir, aukning 32 pró-
sent. Heildargreiðislur fyrir land-
búnaðar- og sjávarafurðir nam
74.5 milljónum. Greidd vinnu-
laun voru 24.33 milljóinir. Inn-
vegið mjólkurmagn var 1622397
kgr, aufcninig 17.67 prósent.
Á árinu var tekið í notkun
nýtt og vanidað verzlunarhús á
Fagurhólsmýri. — Gunnar.
Ávarpið.
Kceri bróðir!
Hvort sem þjer þegar eruð bindindismaður eða neytið
víns, þd erum vjer sannfœrðir um, að þegar þjer hugleiðið
rcekilega vinnautnina og hinar venjulegu afleiðingar hennar,
hvað sem út af ber hinni ströngustu hófsemd, þá sjeuð þjer
oss samdóma um, að tjónið, sem hún veldur, sje hryggilcgt
og stórkostlegt i samanburði við þá stundaráncegju, sem
hún veitir hinum sanna hófsmanni, hvort sem hann er neyt-
andi eða veitandi. Vjer erum sannfœrðir um, að þjer kann-
izt við, að útrýming vlnnautnarinnar, og með henni of-
dryJclcjunnar, sje i fyllstamáta hristilegt hærleíksverk, þjón-
um hirhjunnar samboðið, eins og synodus 1890 hefir opin-
berlega lýst yfir og heitið að styðja að i orði og verhi, sem
sönnu nauðbynjamáli og velferðarmáli þjóðarinnar.
Oss, sem undirþetta ávarp ritum, virðist að hinnrjetti
og hentugi timi nú sje hominn til að veita þessari yfirlýstu
stefnu synodusar meiri festu og dkveðnari mynd. Bindind-
ishreifingin á landi hjer verður ávallt sterhari og sterhari,
og ef vjer, andlegrar stjettar mennirnir, göngum nú al-
mennt undir merki hennar, cetlum vjer vonina um fagran
sigur með Guðs hjálp óbrigðula. Þetta starf teljum vjer
samboðið voru fagra hlutverhi, að efia allt gott, fagurt og
hristitegt, hver i sinum verhahring, til heilla fyrir land og
]ýð. Vjer vonuni og óshum, að þjer viljið sýna i verhinu,
að þjer sjeuð oss samdóma i þessu efni, með því að rita
nafn yðar undir meðfylgjandi yfirlýsingu, og að þjer svo
sendið oss hana við fyrstu hentugleiha. Pái er vjer höfúni
fengið yfirlýsingarnar, er það áform vort, að prenta eina
þeirra með OUuin undirskriptunuin i Kirhjublaðinu, og
vonum rje.r þá, að öl/um verði. 1jóst, að hið góða málefni
bindindisins eigi inarga fy/gisinenn meðal landsins andlegu
stjettar.
I júnimánuði 1892.
Halljfrínitir Sveinsson, Guðmumlur Helgason,
biskuj) yfir íslandi. próf. í Borgarfjarðarpróf.d.
Jens Pálssou, Jóhaun Þorkelsson,
prestur á ÚtsUálum. dómkirkjuprestur i Rvík.
Magnús Amlrjesson, O. V. Gíslason,
pról'. i Mýraprófustsd. prestur að Stað.
Þorkell Bjarnason, Þórliallur Bjarnarsou,
prestur að Reynivöllum. prestaskólakennari.
Yfirlýsingin.
Vjer undirshrifaðir andlegrar stjettar menn shoðum
efiingu og útbreiðs/u a/gjörðs œfibindindis (bœði fráaðneyta
og veita) sem hristilegt hœr/eihsverk, er sjerstahlega snerti
oss eptir stöðu vorri, og viljum þvl með eigin dœmi og yfir
höfuð i orði og \erhi styðja þetta ve/ferðarmdl þjóðar
vorrar.
Sumarið 1892.
Yfirlýsingin er undirrituð af 46 kennimönnum.
4T
Avarp presta-
stéttarinnar 1892
Nýlega tók ég úr bókahillu
minni 3. bindi af fyrstu árgöng-
um Kirkjublaðsins, sem faðir
minn hafði verið áskrifandi að
nokkrum árum áður en ég fædd-
ist. Margt var þar góðra grasa.
Finnst mér sérstök þörf á að með
fylgjandi ávörp prestastéttarinn-
ar komi á ný fram til umhugs-
unar og umtals.
Þessi merkilega yfirlýsing leið-
toga og presta íslenzku kirkjunn-
ar á ekki síður erindi til þjóð-
arinnar nú, en þegar hún var
fyrst birt fyrir 75 árum.
Undirritendurnir, með Hall-
grími biskupi fyrstum og Þór-
halli síðar biskupi síðustum, á-
varpa þjóð sína á ný, og þó eink-
um afkomendur sína og frænd-
ur, en þeir eru fjölda margir og
í öllum stéttum þjóðfélagsins.
Enginn vafi er á því að ávarp-
ið og starf prestanna að bindindis
semi hefur haft mikil áhrif um
aldamótin. Reynsla okkar síðustu
áratugina um frjálsa og óhindr-
aða meðferð áfengis hefur fært
sönnur á nauðsyn bindindis f
landinu, eigi þjóðinni a'ð vegna
vel.
Vafalaust hefur prestastétt
þjóðarinnar nú 1988, enn meiri
vilja, þrótt og verksvið til þess
að ráðast gegn gamla Bakkusi og
vinna „kristilegt kærleiksverk“
með því „í orði og verki að
styðja þetta velferðarmál þjóðar
vorrar" — eins og stendur í yfir-
lýsingunni sem 46 menn andlegu
stéttarinnar sendu frá sér 1892.
Vel mega aðrar stéttir þjóðfélags
ins taka prestana sér til fyrir-
myndar.
Ég óska Prestafélagi Islands
til hamingju með hálfrar aldar
afmælið. Aðalfundi þess og
Prestastefnu íslands, sem nú
stendur yfir hér i Reykjavík, bJd
ég allrar blessunar við marghátt
uð kristileg kærleiksverk.
Sveinbjörn Adólfsson,
Verkstæði vort
og skrifstofa verða lokuð mánudaginn 24. júní
vegna jarðarfarar Odds Hannessonar.
VOLTI S/F.