Morgunblaðið - 23.06.1968, Blaðsíða 27
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 23. JÚNÍ 1968
27
Þessi mynd var tekin í fyrrakvöld er fyrsta skóflustungan var tekin fyrir nýju íþrótta- og
félagsheimili Knattspyrnufélagsins Fram á íþróttasvæði félagsins við Miklubraut á móts við Álfta
mýri. Guðmundur Halldórsson heiðursfélagi og fyrrum knattsspyrnukappi stakk fyrstu skóflu-
stunguna. Gegnt honum stendur formaður Fram, Jón Þorláksson. Ýmsir framámenn félagsins
voru viðstaddir þessa sögulegu athöfn — Ljósm. Mbl. Sveinn Þ rmóðsson.
Gu5mundur Hermannsson
varpaii 17.38 m í Berlín
Starfsmannafél.
Ríkisútvarpslns
mótmælir
FRÁ StarfsmannaÆélagi Ríkisút-
varpsins hefur Mbl. borizt eftir-
farandi:
„Fundur haldinn í Starfs-
Hláiverkasýning
á Akranesi
Akranesi 22. júní: — Jakob V.
Hafstein lögfræðingur hefur opn-
að málverkasýningu á Akranesi,
sem opin verður áðeins í tvo
daga, laugardag og sunnudag (í
dag og á morgun). Á sýningunni
eru alls 36 myndir, 20 olíumál-
verk, 11 vatnslitamyndir og 5
svartlitsmyndir með litum. Mynd
irnar eru viða af landinu, úr
Þingeyjarsýslum, Snæfellsnesi,
Hvalfirði, frá Þingvöllum og
Heklu auk blómamynda og
mannamynda og í nokkrum
þeirra setja fuglar, svanir og
gæsir lífrænan blæ og svip á við-
fangsefnin. Sýningin gefur ljósar
hugmyndir um vinnuaðferðir
málarans, allt frá litlum, léttum
stirikteikningum upp í stórar olíu
myndir, allt að 1,5 metra. Flestar
myndimar á sýningunni eru til
sölu og virðist verði vera vel í
hóf stillt. Jakob Hsifstein hefur
tvisvar áður haldið sýningar á
myndum sínum, á Húsavík í
fyrra, þar sem flestar myndirnar
seldust og svo í sýningarglugga
Morgunblaðsins.
H.J.Þ.
mannafélagi Ríkisútvarpsins,
þriðjudaginn 18. júní 1968, mót-
mælir þeirri rangsleitni, að geng
ið hefur verið framhjá Margréti
Indriðadóttu við veitingu frétta-
stjórastarfs við Ríkisútvarpið, en
í hennar stað verið valinn í starf
íð maður, sem hvorki hefur til
að bera reynslu eða starfsaldur
við stofnunina. Félagið lítur slíka
ráðstöfun mjög alvarlegum aug-
um, og skorar á menntamálaráð-
herra að taka þessa veitingu til
endurskoðunar."
Undir þetta rita starfsmenn
Ríkisútvarpsins, sjötíu og einn.
LEIÐRÉTTING
í KVIKMYNDAUMSÖGN minnl
í gær voru tvær leiðinda prent-
villur, auk þess sem nafn kvik-
myndarinnar og sýningarstaður
féll niður. Kvikmyndin nefnist
„Kvíðafulli brúðguminn“ og var
sýnd í Hafnarfjarðarbíói. Prent-
villurnar voru þær, að neðarlega
í fremsta dálki stendur listaverk,
en á að vera listsvið. Efst í
öðrum dálki hafa tvær setning-
ar gengið úr skorðum. Réttar eru
þær þannig: „Menn hafa yfirleitt
ekki langlundargeð til að hafa
ánægju af innihaldslausri firam-
setningu fáránlegra atburða mjög
lengi í einu. Fleiri atriði mætti
að sjálfsögðu telja, sem vega
þungt innbyrðis samanburði
fjarstæðra skrípamynda“.
Þetta leiðréttist hér með.
Sveinn Kristinsson.
LEIÐRÉTTING
í MINNINGARGREŒN um Árna
Jónasson, sem birtist á fimmtu-
daginn var sagt í fyrirsögn að
hann hefði verið matsmaður. Þar
átti að standa ullarmatsmaður.
Erlendur Valdimarsson kastaði
kringlu 50.54 metra
GUÐMUNDUR Hermannsson og
Erlendur Valdimarsson voru
meðal keppenda á alþjóðlegu
frjálsíþróttamóti í Berlín á
miðvikudaginn. Guðmundur varð
7. í röðinni af 10 keppendum og
varpaði 17.38 m. Erlendur varð
10. í röðinni af 13 keppendúm
Houkor-ÍR
Þróttur - FH
Ú TIM Ó T í handknattleik
verður fram haldið í dag á mal-
biksvelli Melaskólans. í meistara
flokki karla leika fyrst ÍR og
Haukar en siðan Þróttur og ís-
landsmeistarar FH. Keppnin
befst kl. 4.
og kastaði kringlu 50.54 m.
Meðal keþenda í kúluvarpinu
voru margir af beztu kúluvörp-
urum Evrópu, en enginn þeirra
náði sér verulega á strik í keppn-
inni. Sigurvegari varð A-Þjöð-
verjinn Dieter Hoffman með
19.23 m. Hann varð 8. í undan-
kepninni með tæplega 17 m kast,
og tóku forráðamenn mótsins
skyndilega þá ákvörðun að hafa
8 í úrslitakepninni, en upphaf-
lega hafði verið tilkynnt að þar
myndu 6 keppa. Með þessu gerðu
þeir Hoffmann kleift að halda
áfram í keppninni.
Honum tókst þó ekki vel upp
fyr en í 5. tilraun, að hann náði
19.23 m og það vai'ð sigurvarp-
ið.
Annar í keppninni varð Grabbe
A-Þýzkalandi 1828, 3. Zucker
Júgóslavíu 18.26, 4. Karajev So-
vétríkjunum 18.22.
Erlendur Valdimarsson er enn
ytra og mun keppa á Norður-
löndum og Guðmundur Her-
mannsson fer aftur utan í næstu
viku og keppir þá á ýmsum mót-
um.
Sveinomeistara-
mótið í dag
SVEINAMEISTARAMÓTIÐ í
frjálsum íþróttum verðu-r háð í
dag og hefst keppnin kl. 4.30.
Mótið hófst í gær og var þá keppt
í 7 greinum og aðrar 7 g-reinar
fara fram í dag.
Keppendur á mótinu eru 50
talsins og flestir frá ÍR eða 19.
f dag verðiXr keppt í 80 m grinda
hlaupi, 200 og 800 m hlaupum,
stangarstökki, langstökki, kring'.u
kasti og sleggjukasti.
Sundmeistaramótinu lýkur í dag
Sundfólkið keppir við Olympíu lág-
mörkin auk meistaratitlana
AÐALHLUTI Sundmeistaramóts
Islands hófst í gær í nýju Sund-
lauginni í Laugardal. Lýkur mót-
inu í dag og hefst þá keppnin kl.
3. Fer í dag fram keppni í 10
greinum karla og kvenna.
Sundfólkið hefur sýnt miklar
framfarir að undanförnu og má
ætla metin falli nú sem á fyrri
mótum, enda sundfólkið í góðri
æfingu.
Meðal keppenda er allt bezta
sundfólk landsins og auk þess
sem keppt er um íslandsmeistara
titla berst sundfólkið við að
reyna að ná lágmörkum þeim
sem sett hafa verið til þátttöku
í Olympíuleikunum í Mexico, en
Olympíunefnd íslands h-efur ný-
lega tekið þá ákvörðun að til-
kynna þátttöku ísl .sundfólksins
í Mexicoleikunum.
- S.F.R.
Framhald af bls. 2
gilt í samtökum opinberra starfs
manna öðrum en S.F.R. er, að
allir, sem eru fastráðnir sta-rfs-
menn á starfssvæði hlutaðeig-
and'i óski sérstaklega að standa
-utan félagsins. Félög starfsmanna
Reykjavíkurbor-gar hafa fengið
reglu þessa staðfesta í samningi
og er það í fiullu samræmi við
framkvæmd þessara mála hjá
stéttarfélögum almennt. Ýmsir
einsta-klingar, og jafnvel starfs-
hópar eins og háskólamenntaðir
kennarar hafa valið sér það
hlutverk að standa u-tan við
heildarsamtökinn, og hef-ur aldr-
ei verið reynt „að stugga háskóla
mönnum inn í félag si-tt eins og
sauöu-m í nátt'haga‘‘.
Fleiri a-triði eru ekki svara
verð í u-mrædd-ri gr-ein og er því
mál að linni.
Að lokum vill s-tjórn S.F.R.
taka það skýrt fram, að hún hef-
ur engan áhuga á að kljást við
aðra opinlbera star-fsmenn, þó að
ekki verði legið þegjand undir
ámælum, sem ek-ki hafa við rök
að styðja-st.
Þá er það skoðun stjórnar S.F.
R,. að allir rí-kisstarfsmienn,
hvort sem þeir eru háskóla-
menntaðir eða ekki, ættu að vera
félagar í þeim samtökum, sem
skv. lan-dslögu-m fara -með samn-
ingarétt þeirra. Með því móti
axla allir byrðina, í stað þess að
skjóta sér undan og láta aðra
og iðulega þá tekjulægri standa
straum af rekstri samtakanna
með félagsgjöld-um sínum.
Islendingar og hafið lýkur í kvöld
í KVÖLD kl. 22 lýkur sýmngunni
íslendingar og hafið. Tæplega 50
þúsund gestir hafa nú skoðað
sýninguna. Sýning þessi er ugg-
laust sú yfirgripsmesta, sem hald
in hefur verið á íslandi. Búast
má við að margir noti tækifærið
í dag og sjá sýninguna. Margar
deildir sýningarinnar hafa vak-
ið mikla athygli og má þar nefna
safn 70 uppsettra fiska úr Byggð
arsafni Vestmannaeyja, sögusýn
ingu, deildir rannsóknarstofnana,
Slysavarnafélagsins o.fl. Sýning
in þykir hin vandaðasta að öll-
um frágangi.
Sérstök skemmtidagskrá verð-
ur í dag kl. 16.30 og þar mun hin
vinsæla hljómsveit Hljómar
leika og syngja. Öldukórinn mun
syngja létt lög, en í þeim kór
eru eiginkonur skipistjóra. Þá
verður sýnd björgun í stól yfir
sýningarsalinn og „Eyjapeyjar“
munu sýna sprang í Laugardals-
höllinni. Sprang Eyjamanna
va'kti mikla athygli, þegar það
var sýnt á sérstakri skemmtun
Vestmannaeyinga fyrr á sýning-
unni.
Vitaduflið við innkeyrsluna að sýningarhöllinni í LaugardaL
Sýningunni „íslendingar og h afið“ lýkur í kvöld.