Morgunblaðið - 26.06.1968, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 1968
3
LAUST íyrir kl. 10 árdegis í
gær renndi bifreið banda-
ríska sendiherrans upp að
hliði Stjórnarráðsblettsins og
út úr honum stigu þeir Dean
Rusk, utanrikisráðherra, Karl
Rolvaag, sendiherra, og ráð-
gjafar ráðherrans.
Þeir gengu á fund dr.
Bjarna Benediktssonar, for-
sætisráðherra, og Emils Jóns-
sonar, utanrikisráðherra. Við-
ræðurnar fóru fram í skrif-
stofu forsætisráðherra og
stóðu yfir í um það bil stund-
arfjórðung.
Að þeim loknum gekk Rusk
ásamt fylgdarliði sinu að bif-
reið sinni. Veður var hið feg-
ursta, sólskin og norðan and-
vari. Rusk átti að mæta á ráð
herrafundi NATO í öáskóla
íslands kl. 10.30 árdegis.
Hann spurði Rolvaag, hvort
langt væri til Háskólans og
benti sendiherranum honum
á hvar skólinn væri.
Dean Rusk vildi þá ganga
áleiðis, enda hafði hann nokk-
urn tíma til stefnu.
Rusk gekk svo yfir á Lækj-
artorg, yfir Austurstræti og
suður Lækjargötu. Fátt fólk
var á ferli, en sumir vegfar-
.... ■ ■ : ::
■
■
Utanríkisráðherrann og Rolvaag, sendiherra, við Tjörnina í gærmorgun. — Ljósm.: Ol. K. M,
:
V
:
Æm ■i —-
Dean Rusk á góðviðris-
göngu í Miðbænum
Ræddi við forsætisráðherra og utanríkis-
ráðherra i Stjórnarráðinu i gærmorgun
endur virtust undrandi yfir
því aað sjá utanríkisráðherra
Bandaríkjanna ganga í róleg-
heitum um götur borgarinnar.
AÐALFUNDUR Norræna
félagsins í Hafnarfirði var
haldinn á uppstigningardag,
23. maí sl- Fundarstjóri var
Haukur Helgason, skóla-
stjóri, og fundarritari Magn
ús Jónsson, kennari- — Að
lokniun skýrslum formanns
og féhirðis, sagði Eiríkur
Ráðherrann stanzaði vfS
nokkra búðarglugga og loks
dvaldi hann um stund og virti
fyrir sér Tjörnina og endurn-
Pálsson frá vinahæjarmót-
inu í Bærum.
Úr stjórninni áttu að ganga
Jóhann Þorsteinsson og Eiríkur
Pálsson en voru báðir endur-
kjörnir. Aðrir í stjórninni eru
Þóroddur Guðmundsson, formað-
ur, Inger Helgason, féhirðir,
Anna Guðmundsdóttir, með-
stjórnandi. — Endurskoðendur
voru kosnir Eyjólfur Guðmunds-
ar. Hann gekk svo suður með
Tjörninni, en við Hljómskál-
ann fór hann inn í bifreið sina
og hélt til ráðherrafundarins.
son og Helgi Jónasson. Sigurður
Bjarnason, ritstjóri og alþingis-
maður, forseti norrænu félag-
anna á íslandi var gestur aðal-
fundarins. Flutti hann snjallt og
ítarlegt erindi á fundinum um
norræna samvinnu.
Þóroddur Guðmundsson flutti
skýrslu á fundinum um störf
Norræna félagsins í Hafnarfirði
starfsárið 1967—68. Ennfremur
minntist hann 10 ára starfs fé-
lagsins. En hann hefur verið for-
maður félagsins öll 10 árin frá
stofnun þess. Varaformaður hef-
ur verið Jóhann Þorsteinsson,
sömuleiðis öll 10 árin. Ritarar
hafa verið Eggert ísaksson í 3
ár, Anna Guðmundsdóttir í 3 ár
og Eiríkur Pálsson í 4 ár. Féhirð-
ar hafa verið Páll Helgason í 8
BRIDGE
EINS og skýrt hefur verið frá
hér i blaðinu lenti íslenzka
bridgesvei'tin, sem keppti á Ól-
ympíumótinu í Frakklandi í 10.
sætL
AIls spilaði sveitin 32 leiki og
vann 19 en tapaði 13. Til gamans
fara hér á eftir úrslit í öllum
leikunum:
ísland — Portúgal ....... 19- 1
ísland — Svíiþjóð ....... 16- 4
ísland — Jamaica ........ 20- 0
ísland — Holl. Anteyjar . 8-12
ísland — Líbanon .......... 14-6
ísland — Grikkland .... 17- 3
ísland — Chile ............ 12-8
ísland — Brazilía ......... 7-13
ísland — Filippseyjar .... 20 0
ísland — Ítalía .. . ...... 0-20
ísland *— Kenýa ........... 4-16
ísland — Þýzkaland .... 18-2
ísland — S-Afríka ....... 20- 0
ísland — Frakkland .... 3-17
ísland — Mexikó ......... 20- 0
ísland — Belgía ......... 20- 0
ísland -y Holland ....... 6-14
ísland — Bermuda ........ 15- 5
ísland — ísrael ......... 14- 6
ísland — Danmörk ........ 4-16
ísland — Bandaríkin .... 2-18
ísland — Thailand ....... 9-11
ísland — Argentína .... 5-15
ísland — Austurríki .... 18- 2
ísland — Sviss .......... 13- 7
ísland — Ástralía ....... 20- 0
Ísland — Spánn .......... 20- 0
ísland — írland ......... 18- 2
ísland — Venezúela .... 0-20
ísland — Egyptaland .... 4-16
ísland — Kanada ......... 1-19
ísland — Finnland ....... 10- 1
Tekið skal fram að í leiknum
Tekið skal fram að í leiknum
gegn Ítalíu fékk íslenzka sveitin
4 stig í mínus.
Þóroddur Guðmundsson.
ár og Inger Helgason í 2 ár. —
Meðstjórnendur hafa verið Eyj-
ólfur Guðmundsson í 6 ár og
Anna Guðmundsdóttir í 4 ár.
— Éndurskoðendur hafa verið
Helgi Jónsson í 10 ár, Páll Daní-
elsson í 5 ár, Eyjólfur Guðmunds
Framhald á bls. 27
Dean Rusk gengur yfir Austurstræti í góða veðrinu.
Norræna félagið
í Hafnarfirði 10 óra
—■ Frá adalfundi félagsins
í
STAKSTEINAR
Kosninganóttin ^
EFTIR að í ihámæli komst að
talning atkvæða i forseta kosn-
ingunum n. k. sunnudag hefjist
ekki fyrr en á mánudag, hefur
mjög verið rætt um það manna
á meðal. Hafa nær allir látið
í ljósi mikla óánægju með , ef
nú að svipta þá „kosninganótt-
inni“. 5
Vísir ræðir þetta mál í rit-
stjórnargrein í gær. Þar segir
m. a.:
„Islendingum er af fréttum
blaða og útvarps kunnugf um,
að talningu atkvæða í kosning-
um í nálægum löndum er yfir-
leitt lokið að morgni dags eftir
kosningadaginn. Áhugamenn um :
kosningar vaka þá um nóttina i
og hlusta á tölumar, en hinir ;
áhugaminni heyra úrslitin með j
morgunkaffinu. Þessi hraði þyk-
ir sjálfsagður.
Hér á landi er vakan um kosn-
inganóttina einnig föst hefð hjá
mörgum. Sjálfboðaliðar flokk-
anna á kosningadegi og annað
áhugafólk hópar sig saman til
að hlusta um nóttina. ;
Þessu áhugafólki finnst það
vera galli, í hve fáum kjördæm-
um er talið um nóttina. Heidar-
úrslit kosninga hér á landi eru
kunn miklu síðar en í öðrum
löndum á svipuðu stigi menning-
ar og tækni. í alþingiskosning-
unum í fyrra voru heildarúrslit
— og þar með úrslit um stjórn-
armeirihluta — ekki kunn fyrr
en rúmum sólarhring eftir að
kjörfundi Iauk. Það var ekki
fyrr en aðfaranótt þriðjudags, að
endanleg úrslit fengust:“ j
Erfiðar samgöngui
Þá segir ennfremur:
„Hér á landi verður að taka
tililt til samgönguerfiðleika, sem
eru meiri en víðast annars stað-
ar. Víða þarf að fara langan og
erfiðan veg með kjörgögn úr af-
skekktum sveitum á þá staði,
þar sem talning fer fram. Þessir
erfiðleikar eru þó ekki meiri en
svo, að flýta má talingu verulega
frá þvi, sem nú er.
Vestfirðingar gáfu um þetta
gott forgott fordæmi í kosning-
unum í fyrra. í þvi kjördæmi
eru samgöngur einna erfiðastar :
á landinu. Samt urðu Vestfirð- |
ingar næstir Reykvíkingum og :
Suðurnesjamönnum að hefja og !
ljúka talingu. Þeir voru búnir
þegar fyrir hádegi. Þeir höfðu
nefnilega tekið tæknina í sína
þjónustu og létu flugvél safna
kjörgögnum. Þttta framtak Vest-
firðinga vakti töluverða athygli.
f fyrra hófst talning í fjórum
kjördæmum, Norðurlandi vestra
og eystra, Austurlandi og Suður-
landi, ekki fyrr en kl. 5—7 síð-
degis á mánudag. A Norður- j
landi vestra og Suðurlandi eru
samgöngur svo góðar, að taln-
ing á að geta hafizt þegar
um kosninganóttina. Á Norð- ]
urlandi eystra á talning að geta
hafizt snemma morguns. Erfið-
leikarnir eru meiri hjá Austfirð-
ingum, en samt ekki meiri en
hjá Vestfirðingum.“
Teljum strax
Eins og hér er greint frá er
undir samgöngum komið, hve-
nær talning atkvæða getur haf-
izt í nokkrum kjördæmanna, en
í öðrum verður því ekki við bor-
ið, t. d. í Reykjavík, Reykjanes-
kjördæmi og Vesturlandskjör-
dæmi. Það er örugglega ósk mik
ils meirihluta kjósenda að taln-
ingu atkvæða þar verði ekki
seinkað, hún hefjist starx eins
og verið hefur við undanfarnar
W
kosningar.