Morgunblaðið - 26.06.1968, Side 18
18
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 26. JÚNÍ 1968
Ólöf Jóna Ólafs-
dóttir — Minning
f. 27. júlí 1903
d. 17. júni 1968.
Elskuleg kona er nú gengin
sína ævibraut. Þá er „tregt
tungu at hræra“, sagSi stórbrot-
ið skáld. Margir eiga erfitt með
að sætta sig við missi elskaðra
vina einkum, ef dauðann hefur
borið að með átakanlegum hætti.
Eitt sinn skal hver deyja, það
er lögmál, sem ekki verður um-
flúið. — Þessi í dag, annar á
morgun. — Aðeins daga munur.
Ekkert kallar eins til hugrenn-
inga um lífið eins og dauðinn.
Því er það, að vér virðum fyrir
t
Maðurinn minn, faðir og
tengdafaðir
Guðjón Júlíusson
bifreiðastjóri, Skeggjag. 10,
andaðist að hjúkrunardeild
Hrafnistu 25. júní.
Jarðarförin ákveðin síðar.
Marta E. Guðbrandsdóttir,
Guðbrandur Guðjónsson,
Guðbjörg Guðjónsdóttir,
Einar H. Hjartarson.
t
Móðir okkar,
Hannesína Sigurðardóttir,
Mánagötu 10,
andaðist i Borgarsjúkrahús-
inu þriðjudaginn 25. júní.
Fyrir hönd vandamanna.
Ágúst Guðbrandsson,
Sigurbjörg V.
Guðbrandsdóttir.
t
Maðurinn minn,
Svavar Pálsson,
Efstasundi 95,
verður jarðsunginn frá Dóm-
kirkjunni miðvikudaginn 26.
þ.m. kL 1.30 e.h.
Þeim sem vildu heiðra
minningu hins látna, er vin-
samlega bent á söfnun Rauða
krossins til Biafra-fólksins.
Ólöf Ólafsdóttir.
oss líf og starf þeirra, sem
gengnir eru, og vér þekkjum
nánast, en fléttazt hafa inn í
lífsferil vorn á ýmsa lund.
Skikkja dauðans er köld. Þeg
ar frá líður má sjá glitofið
spjald dásamlegra minninga. „Sá
deyr ei sem heimi gaf lífvænt
ljóð“. Sá, sem hefur tileinkað sér
fagurt dagfar og dásamlegt líf,
svo að til fyrirmyndar og eftir-
breytni er skilur það mikið eft-
ir, að manni finnst hann lifa
þótt hann deyi. Þessi ummæli
mín vil ég tileinka uppeldissyst-
ur minni Ólöfu J. Ölafsdóttur,
sem kvödd er hinztu kveðju, eft-
ir langt og þungt helstríð.
Ég hef þekkt hana alla henn-
ar ævi, og að þeim hlutum sem
til sæmdar er hverri persónu,
húsfreyju og móður. Ég vil und-
irstrika þann eiginleika, sem
mér þykir svo mikilsverður, að
hæst mætti merki reisa, en það
er fórnarlund móðurinnar.
Greind var Ólöf og háttprúð um
fram það, sem almennt gerist.
Það er nauðsynlegt að taka vel
eftir slíku fólki, enda þótt það
hafi ekki skólagöngu að baki
sér. Það höfðu fæstir unglingar
ráð á henni áður en skólalög-
gjöf breyttist til þess, sem nú
er. „í sálarþroska svanna býr
sigur kynslóðanna". Þá kemur
nér Ólöf fyrst í hug í sambandi
við þessar ljóðlínur.
Ólöf var af góðu fólki komin
á báðar ættir, og hlaut gott upp-
eldi á góðu heimili. Það uppeldi
miðast ekki við fjáröflun, heldur
við starf, vandvirkni og skyldu-
rækni, og í þeim anda að halda
beztu lífsreglu. Hún var trúuð,
og þegar líkamskraftar voru
þrotnir, svo að hún mátti ekki
mæla, heyrði ég hana reyna að
hafa yfir þetta vers eftir Hall-
grím Pétursson:
t
Innilegar þakkir fyrir auð-
sýnda samúð við andlát og
jarðarför móður minnar,
tengdamóður og ömmu,
Vilborgar Jóhannesdóttur
Hverfisgötu 58, Hafnarfirði.
Jóhannes N. Hallgrímsson,
Þórhildur Hóseasdóttir
og barnabörn.
Láttu Guðs hönd þig leiða
hér,
lífsreglu halt þá beztu.
blessað orð hans sem boð-
ast þér
í brjósti og hjarta festu.
Greinilega heyrði ég aðra ljóð
línu. Þótti mér þetta táknrænt
fyrir hana, sem festi sér allt hið
bezta í hjarta. Það var hennar
fjársjóður mesti. Hans nutu í
ríkum mæli allir hennar ættingj-
ar og vinir. Frá henni stafaði
góðvild, prúðmennska, hj álp
fýsi og gleði. Hressandi blær
fyllti umhverfið, þar sem hún
var og kom, og þróttur var í
hverri hreyfingu og hverju
handtaki. — Hér var ekki nein
meðalkona til átaka. Þótt hún
hefði stórt og umsvifamikið heim
ili, var hún reiðubúin til þess að
hjálpa öðrum. Þau voru ekki fá
verkin, sem hún leysti þannig
af höndum. Manni verður hugs-
að til kviku sporanna og hröðu
handtakanna. Mynd hennar er
sterk og ástfólgin okkur öllum,
sem þekktum hana bezt. Tárhrein
verður mér æskuminningin
okkar. Við vorum lengst af einu
börnin á heimilinu, síðar bættist
við kærkominn drengur, sem
reynzt hefur dyggðugur. Það
var unaðsleg samvera með úr-
valsfólki. Við sátum stundum á
vorkvöldum á litlum hól í tún-
inu og dáðumst að fögrum blóm
um og hlustuðum á raddir nátt-
úrunnar. En við hlustuðum líka
á raddir fullorðna fólksins, sem
gaf okkur ýms heiræði, það var
mikilsverður skóli fyrir lífið.
Amma Ólafar tók í litlar hend-
ur, leiddi okkur og talaði við
okkur með þeirri ró og festu,
sem góðum uppalanda er lagið.
Ég vildi óska, að þjóðin ætti
marga slíka „sálfræðinga" í
mæðrastétt. Leiðir skildust
skömmu eftir fermingu, vegna
veikinda á æskuheimili okkar.
Þungt var að skilja, og þungt
t
Hjartans þökk fyrir auðsýnda
samúð og vináttu við andlát
og jarðarför eiginkonu minn-
ar, móður, tengdamóður,
ömmu og langömmu
Agnesar Jónsdóttur
frá tsólfsskála, Grindavík.
Guðmundur Guðmundsson,
börn, tengdabörn, barna-
börn og barnbarnaböm.
t
Þökkum innilega auðsýnda
samúð og vináttu við andlát
og jarðarför eiginkonu minn-
ar og móður okkar, tengda-
móður og ómmu,
Steindóru Camillu
Guðmundsdóttur.
Jóhann Guðmundsson,
Kristrún Jóhannsdóttir,
Halldór V. Sigurðsson,
Gyða Jóhannsdóttir,
Kristján Magnússen,
Guðmundur Jóhannsson,
Guðrún Friðjónsdóttir,
Anna Sigurðardóttir,
Erlingur Kristjánsson
og bamaböra.
t
Þökkum innilega auðsýnda
samúð við útför föður okkar
Sigurjóns Pálssonar.
Böra, tengdabörn og barna-
börn.
t "
Innilegar þakkir færum við
öllum sem sýndu okkur hlý-
hug og samúð við andlát og
jarðarför
Bóasar Sigurðssonar
Eydal.
Sérstaklega viljum vi'ð þakka
hjúkrunarliði Landakotsspít-
aia fyrir góða hjúkrun í hans
erfiðu veikindum.
Anna Ármannsdóttir,
börn, tengdabörn ag
barnaböra.
t
Hjartans þakkir færum við
öllum fjær og nær fyrir auð-
sýnda samúð og vinarhug við
andlát og jarðarför
Stefáns Finnbogasonar
Hásteinsveg 11, Vestm.eyjum.
Rósa Arnadóttir,
böra, tengdasynir og
barnaböm.
t
Alúðarþakkir viljum við færa
ykkur öllum, sem svo ríku-
lega veittuð okkur hjálp og
vottuðu okkur samúð, vegna
hins skyndilega fráfalls elsku
legs sonar okkar og bróður,
Ólafs
Barmahlíð 47.
Guð blessi ykkur öll.
Þorvaldur Á. Guðmundsson,
Áslaug Guðjónsdóttir
og systkin.
er að skilja. Það er gæfa hvers
eins að vera samvistum viðgott
fólk, sem er eins og vin í sand-
hafi eða viti á óljósum leiðum.
Foreldrar Ólafar voru: Ólafur
Þorsteinsson úr Rangárvalla-
sýslu og Þórunn Jónsdóttir á
Mjósundi í Árnessýslu. Faðir
Ólafar drukknaði áður en hún
fæddist. Síðar giftist Þórunn og
bjó á Mjósundi. Systkini henn-
ar voru þrjú: einn bróðir, sem
er dáinn og tvær systur, sem
eiga heima hér í Reykjavík. Var
kært með þeim öllum. Ung gift-
ist Ólöf eftirlifandi manni sín-
um Ólafi Árnasyni frá Hurðar-
baki í sömu sveit, syni Árna
Pálssonar hreppstjóra af Keldna
ætt. Er það ágætis og dugnaðar-
fólk, mörgum þar eystra kunn-
ugt. Ólafur er yfirfiskmatsmað-
ur. Þau eignuðust fjórar dætur
og fjóra syni. Einn þeirra dó
eftir tvítugsaldur. Hann er mér
eftirminnilegur, því hann var
eins og bjartur sólargeisli, sem
vermdi umhverfi sitt. Þá hrærð-
ist það í hug mér, að stutt líf
gæti haft mikið gildi. Blómkrón-
an fellur, en hefur þó haft sitt
unaðsmagn. Eiginmaðurinn trygg
lyndi og synirnir þrír, sem stóðu
við banabeðin, sýndu í þögn
sinni kærleiksríkt samband. Dæt
urnar fjórar inntu þannig
hjúkrunarstarf af höndum við
móður sína, að fegurð var að,
svo voru og samvistir aðrar. Þá
var unnt að greina ást í hverju
handtaki og hverju orði, enda
allt þetta fólk hvert öðru betra.
Ólöf mátti sjá við leiðarlok, að
lífsstarfi hafði hún skilað á æski
legasta máta við hlið ágæts eig-
inmanns í farsælu hjónabandi.
Fjögur . börn þeirra eru gift.
Deildi Ólöf sínum góða hug við
það ágæta fólk. Tengdabörnin
voru börn hennar líka. Þá skein
sól í heiði, er barnabörnin söfn
uðust saman hjá brosandi og
gjafmildri ömmu. Guldu þau með
gleði barnslundarinnar.
Ólöf gladdist með glöðum. Öll
samvera við hana í sínu yfir-
lætisleysi geymist sem helgur
dómur. Hugarfarið var lærdóms-
ríkt. Hún kunni að þakka og
líka að gefa. Hamingju sína fann
hún á heimamiðum, en leitaði
ekki langt yfir skammt eða út
í ys ókyrrðarinnar. Alvöru og
ábyrgð lífsins skildi hún vel og
breytti þar eftir.
Kveð ég þig svo ljúfa með
kærri þökk en fátæklegum orð-
um
Horfinn er svanni til sigur-
hæða,
lét ei sitt starf í bólstri
blunda,
lífs á akri frjómoldu festi,
greri því meiður greinum
hlaðinn
og grózkufullur,
lauf angar til lifenda.
Kærleikur þinn sé kristalli
greyptur
í minni munenda
og móðurhöndin í heiðri
höfð.
Áslaug Gunnlaugsdóttir.
VIGDlS BLÖNDAL
„Þú komst og fórst með ást
til alls er grætur
á öllu slíku þekktir nákunn
skil
(V. frá Skáholti).
Vigdís Blöndal fyrrverandi for-
stöðukona heimavistar Laugar-
nesskóla andaðist í Landspít-
alanum 18. júní. Þessi orð mín
verða hvorki ættartala né upp-
rifjun æviferils hennar aðeins
fáein kveðjuorð. Hún var um
margt sérstæð kona. Hreinskilni
var hennar aðalsmerki því hún
var trú málstað sínum, sjálfri
sér og öðrum.
Þó okkaT kynni yrðu ekki löng
bar ég fyrir henni mikla virð-
ingu og ósjaldan leitaði ég ál-
its hennar ef ég þurfti að ráða
fram úr vandamáli, gaf hún sér
þá jafnan tíma til að ræða mál-
in og miðla mér af lífsreynslu
sinni, því hjálpsemi var henni
í blóð borin. Smásálarskapur og
hleypidómar voru aldrei föru-
nautar hennar en hún átti þess
meira af mannkærleika og skiln
ingi á vandamálum lífsins. Megi
ísland eignast fleiri slíkar dæt-
ur sem ómeðvitað vísa okkur
veginn til betra lifs með breytni
sinni við náungann. Þegar ég í
dag minnist hennar langa starfs
dags verður mér hugsað til allra
ungmennanna sem hún hefur
stutt í ævistrfi sínu, mun ekki
frækorn manngæzku hennar
hafa fundið jarðveg í einhverj-
um gljúpum farvegi barnshug-
ans. Við sem ekki höfum að-
stöðu til að fylgja Vigdísi Blön-
dal til hinztu hvílu reisum henni
í dag veglegan minnisvarða í
hugum okkar sem mun standa
af sér storma lífsins í vitund
vorri. Ég sendi henni hinztu
kveðju mina og míns heimilis út
yfir hafið sem skilur heimana
tvo, með hjartans þökk fyrir allt
sem hún hefur gert fyrir okkur.
„Grasið hvíslar litt ljúfasta
á leiðinu þínu moldin er hljóð
og hvíldin góð.“ D.St.
Kristín Guðnadóttir.
Bremsuborðar
Bremsukiossar
Viftureimar
Innilegar þakkir til allra
þeirra, sem með heimsóknum,
gjöfum og skeytum eða á ann
an hátt ger’ðu mér 21. júni
ógleymanlegan.
Jón Kristófersson
Hlunnavog 14.
Ávallt fyrirliggjandi mikið
úrval varahluta i flestar
gerðir bíla.
Athugið okkar hagstæða verð.
Kristinn Cuinason hf.
Klapparstíg 27.
Laugaveg 168.
Sími 12314 og 22675.