Morgunblaðið - 05.07.1968, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 196«
13
Forvextir hækkaðir
í Frakklandi
Ráðstafanir boðaðar til þess
að halda verðlaginu niðri
París, 3. júlí — AP-NTB
FRAKKLANDSBANKI hækkaði
í dag forvexti úr 3.5% í 5% og
tók þessi hækkun gildi þegar í
stað. Ákvörðun um hana var
tekin á fundi ríkisstjórnarinn-
ar og í tilkynningu að honum
loknum var frá því skýrt, að
stjórnin hefði rætt um ráðstaf-
anir til þess að halda verðlagi
niðri vegna þeirra kauphækk-
anna, sem voru hluti þess sam-
komulags, er náðist eftir verk-
föllin fyrir skömmu. M.a. verða
skattar hækkaðir um 2,5 mill-
jarða franka. í apríl 1965 voru
forvextir lækkaðir úr 4% í
3.5%.
Á fundi ríkisstjórnarinnar
sagði de Gaulle og skírskotaði
þar til þingkosninganna fyrir
skemmstu, — að það hefði leitt
í ljós, er þjóðin hefði verið
spurð ráða 23. og 30. júní, að
almenningur hefði trú á stofn-
unum lýðveldisins, e*ðli þeirra og
starfi. Þá hefði ennfremur kom-
ið í ljós, að almenningur styddi
í mjög ríkum mæli stefnu for-
setans og ríkisstjórnar hans.
De Gaulle sagði ennfremur,
að franska þjóðin hefði á hinn
Frakkar beygja
sig fyrir EBE
Strassburg, 3. júlí — NTB
FRANSKA stjórnin hefur beygt
sig fyrir kröfum stjórnar Efna-
hagsbandalagsins í Brússel og
fallizt á að fresta gildistöku
verndarráðstafanna, sem ákveðn
ar voru til handa frönskum iðn
aði eftir verkföllin fyrr í sum-
ar. Ráðstafanir þessar munu
fyrst taka gildi eftir að þær
hafa verið samþykktar af stjórn
bandalagsins, en þær fela meðal
annars í sér takmarkanir á ýms
um mikilvægum innflutnings-
kvótum. að var Jean Rey, fram-
kvæmdastjóri Efnahagsbanda-
lagsins, sem skýrði frá þessu á
fundi þingmannaráðs EBE í
Strassburg.
Aðgerðir Frakka munu einnig
verða ræddar á ýmsum ráðherra
fundum, sem haldnir verða á
næstu vikum, en búizt er við að
þær verði samþykktar. Þing-
mannaráðfð samþykkti í dag
einróma, að styðja Frakkland
vegna efnahagsástandsins í land-
inu, svo fremi sem stjórnin
hlýði reglum bandalagsins og að
verndaraðgerðir verði takmark-
aðar sem frekast er unnt.
BÚSÁHÖLD
LAUGAVEGI 59 SÍMI 23349
bóginn sýnt skýran vilja sinn í
þá átt, að komið yrði á jafnvægi
í efnahag landsins eins fljótt og
unnt væri.
De Gaulle sagði einnig, að
koma yrði á röð og reglu í há-
skólunum, svo a'ð þeir gætu
gegnt skyldum sínum í þjóðfé-
laginu og einnig minntist hann
á áform sín um þátttöku stúd-
enta í stjórn háskólanna og þátt-
töku verkamanna í stjórn fyrir-
tækja, án þess að hann gerði
nánari grein fyrir því, með
hvaða hætti hún ætti að verða.
Gert er ráð fyrir, að löggjöf um
þessi efni verði sett bráðlega.
Jean Rey, forseti fram-
kvæmdaráðs Efnahagsbanda-
lagsins skýdði Evrópuþinginu í
Strassbourg frá því í dag, að von
væri til viðunandi samkomulags
innan Efnahagsbandalagsins um
Frakkland. Sagði hann, að erf-
iðleikarnir í Frakklandi að und-
anförnu hefðu leitt í ljós nauð-
synina á sameiginlegri staðfestu
bandalagsríkjanna. Var sam-
þykkt í þinginu, að allt skyldi
gert, sem unnt væri, til þess að
styrkja frankann.
Hurðir - hurðir
Innihurðir í eik. — Verð kr. 3.200 kr.
HURÐIR OG KLÆÐNINGAR,
Dugguvogi 23. — Sími 32513.
NORÐURLANDAMEIST ARAMÖT
í Maraþonhlaupi, tugþraut karla og fimmtarþraut kvenna
fer fram á Laugardalsvellinum í Reykja’ k dagana 5. og 6. júlí.
í dag hefst keppnin kl. 5 síðdegis og á morgun kl. 1.30 e.h.
Komið og sjáið fyrsta Norðurlandame istaramót í frjálsum íþróttum, sem hald-
ið er á íslandi.
Aðgangseyrir kr. 100 fyrir fullorðna og kr. 25.00 fyrir börn hvorn dag.
Mótsnefndin.
LíVTS STAPREST'
Buxurnar sem ekki þarf að strauja — Ferða og
sportfatnaður í úrvali