Morgunblaðið - 05.07.1968, Qupperneq 18

Morgunblaðið - 05.07.1968, Qupperneq 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 5. JÚLÍ 196« Guðmundur Einarsson trésmíðameistari - MIIMIMIINIG Ég hafði ekki verið lengi bú- eettur i Hafnarfirði er ég heyrði Guðmundar í Dverg getið. En það var ekki fyrr en ég gerðist félagi í Málfundafélaginu Magna að ég kynntist honum. Ég fann t Sonur okkar, Borgþór Jónsson andaðist á Heilsuhæli N.L.F.Í. í Hveragerði, 4. júlí. Sigríður Jónsdóttir, Jón Auðunsson, Urðarveg 28, V estmann aey jum. t Móðir okkar, Guðrún Þorsteinsdóttir frá Bergsstöðum, lézt að sjúkrahúsinu Sól- vangi 3. júlí. Börn hinnar látnu. t Systir mín, Sigríður Pétursdóttir, sem andaðist í Sjúkrahúsi Sauðárkróks 29. júní, verður jarðsungin frá Saúðárkróks- kirkju, laugardaginn 6. þ.m. kl. 2 e.h.. — Þeir sem vildu minnast hinnar látnu eru beðnir um að láta fatlaða og lamaða njóta þess. Sæunn Pétursdóttir. t Björn Jóhannsson fyrrv. skólastjóri Vopnafirði, sem lézt 28. júni, verður jarð- sunginn frá Vopnafjarðar- kirkju mánudaginn 8. júlí kl. 2 e.h. Synir hins látna. t Litla dóttir okkar, Sesselja Jensdóttir, sem lézt að slysförum 27. júní, verður jarðsungin frá Strand arkirkju, laugardaginn 6. þ.m. kl. 2 e.h. Þeir sem vildu minnast hennar vinsamlegast láti Slysavarnafélagið njóta þess. Bára Bjamadóttir, og Jens Karlsson. t Útför móður minnar, Hólmfríðar Jóhannesdóttur, fer fram frá Kapellunni f Fossvogi, föstudaginn 5. þessa mánaðar kl. 10.30. tllfljótur Gíslason. fljótt, hve heill hann var í fé- lagsstarfinu og oft dáðist ég að skarpskyggni hans og rökfestu í málflutningi. Guðmundur Einarsson varð félagi í Málfundafélaginu Magna aðeins þremur vikum eftir stofn un þess og var alla tíð mjög virkur í félagsstarfínu á meðan heílsan entist. Hann var m. a. nokkur ár formaður Magna, og nær tvo áratugi í stjórn Hellis- gerðis, auk fleiri trúnaðarstarfa sem hann gegndi fyrir félagið. Guðmundur átti hugmyndina að einu því merkasta máli, aem Magni tók sér fyrir hendur en það var friðun og ræktun Hellis gerðis. Hann sá það fyrir, að svo gæti farið, að sérkenni Hafn arfjarðar, hraunið, yrði að víkja fyrir auknum byggingum og mannvirkjagerð og því væri nauðsynlegt að vernda ogrækta svæði, þar sem þessi sérkenni varðveittust og Hafnfirðingar gætu jafnframt eignast sinn skemmtigarð. Varðandi mál þetta segir svo í 25 ára afmælisriti Magna: „Á fundi í Magna 15. marz 1922 hafði Guðmundur Einars- son, framkvæmdastjóri í Dverg, framsögu, sem hann nefndi: Get ur félagið Magni haft áhrif á útlit Hafnarfjarðar?“ Svaraði hann spurningunni játandi og benti á, hvílik áhrif, það myndi geta haft til bóta á útlit bæjar- ins, ef félagið kæmi upp blóma- garði og skemmtigarði, þar aem sérkenni landslagsins, hraun- t Útför fósturföður okkar og bróður, Pálma Jónssonar fyrrum varðstjóra, Sigtúni 55, sem lézt að Borgarspítalanum 30. f.m. fer fram frá Foss- vogskirkju kl. 10.30 laugar- daginn 6. júlí n.k. Vandamenn. t Innilega þökkum við auð- sýnda samúð og hluttekningu við andlát og jarðarför móður okkar, tengdamóður, ömmu og stjúpmóður, Hannessínu Sigurðardóttur Mánagötu 10. Sigurbjörg V. Guðbrandsd, Ágúst Guðbrandsson, Gróa Ámadóttir, Guðmundur B. Guðmunds., Margrét Sigrún Guðjónsd., Ingimar R. Sveinsson. t Þökkum innilega auðsýnda samú'ð við andlát og jarðar- för eiginmanns míns, föður, tengdaföður og afa, Steinþórs Einarssonar frá Bjameyjum. Jóhann Stefánsdóttir, Jóhann Steinþórsson, Elin Sigurðardóttir, Þorsteinn Guðmundsson, Fjóla Steinþórsdóttir, Einar Steinþórsson, Gréta Bents, Ólafur Steinþórsson, Sigrún Símonardóttir, Hannes Halldórsson, Maria Steinþórsdóttir og barnaböm. borganna og gjánna, fengju atf* halda sér, en gróðurinn væri aukinn til prýði og yndis. Full- yrti hann, að það mætti verða „félaginu til sóma og bænum til mikillar prýði“. Máli þessu var vel tekið, nefnd sett í að athuga það, því hrint í framkvæmd, staður valinn og sannar Hellis- gerði bezt orð Guðmundar, sem sögð voru fyrir 46 árum. En það var ekki aðeins Hellisgierði, sem var ræktað og prýtt, heldur er það mál manna, að fjölmargir einstaklingar hafi farið að rækta og prýða lóðir sínar, er þeir sáu hinn góða árangur í Hellis- gerði. Guðmundur var fæddur 18. júní 1883 að Stóra-Knarrar- nesi á Vatnsleysuströnd, sonur hjónanna Sólveigar Ólafsdóttur og Einars Finnssonar. í uppvext inum vann Guðmundur flest þau störf, er fyrir komu eins og títt var í þá daga, en árið 1907 hóf hann trésmíðanám hjá Jóhannesi J. Reykdal í Hafnarfirði oglauk því árið 1911. Guðmundur var einn af stofn- endum fyrirtækísins h.f. Dverg ur, Flygenring og Co. í Hafn- arfirði. Hann var í stjórn fyrir- tækisins frá 1912-1946. Þar var hann verkstjóri og síðar fram- kvæmdastjóri, þar til hann lét af því starfi árið 1946 og gerðist umboðsmaður Brunabótafélags fslands í Hafnarfirði. Gegndi hann því starfi meðan heilsa entist. Guðmundur átti sæti í bæjar- stjórn Hafnarfjarðar árin 1938 til 1942. Hann var einn af stofn endum Fríkirkjusafnaðarins í Hafnarfirði og í stjórn hans um 18 ára skeið. Hann starfaði í ýmsum félögum og gegndi þar trúnaðarstörfum, enda var hann orðinn hjeiðursfélagi í sumum þeirra þar á meðal Málfundafé- laginu Magna. Guðmundur var greindur mað ur vel, nokkuð seintekinn, en með afbrigðum trygglyndur. Hann var bókhneiðgur mjög enda víðlesinn fróður og minn- ugur. Þá var hann gæddur rík- um fegurðarsmekk. Riddarakross fálkaorðunnar hlaut hann 1948 fyrir vel unnin störf. Árið 1918 9. marz kvæntist Guðmundur Jónu Kristjánsdóttur frá Hliðs- nesi á Álftanesi og eignuðust þau einn son, Sigurgeir Guð- mundsson, skólastjóra. Konu sína missti Guðmundur árið 1961 Þeim fækkar gömlu góðu fé- lögunum í Magna, sem báru merki hans hvað hæst. Við Magnamenn kveðjum Guðmund og þökkum honum gott og heilla ríkt starf. Hann var alltaf ó- trauður til starfa og lagðihverju góðu máli lið. Aðstandendum hans sendum við innilegustu samúðarkveðjur. Páll V. Daníelsson Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við and- lát og jarðarför, Sturlaugs Jónssonar stórkaupmanns. Jón og Þórður Sturlaugssynir. Eggert Ólafsson, lýsismatsmaður Þökkum innilega auðsýnda samúð og vinarhug við and- lát og jarðarför systur okkar, Margrétar Jónsdóttur frá Snorrastöðum. Stefán Jónsson, Sveinbjörn Jónsson, Kristján Jónsson. Þökkum auðsýnda samúð vfð andlát og jarðarför, Valgerðar Gissurardóttur Rauðarárstíg 11. Guðmundur G. Magnússon, Valborg Sigurðardóttir, Magnús Guðmundsson, Amþrúður Guðmundsdóttir, Valgeir Guðmundsson, Anna Soffía Guðmundsdóttir, Valgerður Guðmundsdóttir og systkin hinnar látnu. í DAG kveðjum við í Dómkirkj- unni Eggert Ólafsson, lýsismats- mann, sem andaðist þann 26. júní. Eggert fæddist að Litla-Skarði í Stafholtstungum í Mýrarsýslu 5. febrúar 1896. Foreldrar hans voru hjónin Þórunn Þórðardóttir og Ólafur Kjartansson, bóndi að Litla-Skarði. Hjá þeim ólst Egg- ert upp ásamt sjö systkinum sín- um, en eitt barn misstu foreldrar hans á öðru ári. Árið 1906, þegar Eggert var á tíunda ári, dró ský fyrir sólu á Litla-Skarðsheimilinu. Þá lézt faðir hans. En með þrautseigju og dugnaði tókst móður hans að halda flestum börnum sínum hjá sér. Fluttist hún með þau til Borgarness, og þar aðstoðuðu þau hana og hjálpuðu hvert öðru eftir beztu getu, unz hún fluttist til Reykjavíkur árið 1921 til Egg- erts og konu hans, sem höfðu stofnað þar heimili skömmu áð- ur. Af systkinum Eggerts eru nú á lífi: Kristín, Björn og Tryggvi, en látin eru: Kjartan, Indriði, Þórður og Guðrún. Dugnað og góðvild þessara systkina þekkja allir, sem þeim hafa kynhzt. Átján ára gamall fór Eggert á vélanámskeið í Reykjavik og vann eftir það um hríð sem vél- stjóri á vatnabáti, er annaðist flutninga frá Borgarnesi upp Hvítá og nokkuð upp eftir Norð- urá. En það var árið 1925, að Egg- ert tók við því starfi, sem átti að verða ævistarf hans. Þá var hann skipaður löggiltur lýsis- mats- og vigtarmaður. Starfi þessu gegndi hann í fjörutíu og þrjú ár, eða allt til æviloka. Var þetta starf bæði vanda- og erils- samt. Fyrri árin, sem Eggert vann við það, má segja, að hver lýsistunna hafi verið heimur út af fyrir sig, sem þurfti að gæða- meta sérstaklega, eina og eina í senn. Auk þess var unnið við erfið og frumstæð skilyrði undir beru lofti í hvaða veðri, sem var, jafnvel í nístings frosti og by>l. Hin seinni ár hafa aðstæðurnar við framkvæmd mats og vigtun- ar breytzt mjög til hins betra eftir að mörg hundruð bunna blöndunartankar komu til sög- unnar ásamt öðrum nýjungum, en óhætt er að segja, að Eggert hafi ávalt unnið starf sitt jafn vel, hvernig sem vinnuskilyrði voru. Ábyrgðartilfinning hans var einstök, og naut hann fyllsta trausts allra, sem við hann skiptu, jafnt kaupenda sem selj- Hjartanlega þakka ég alla virðingu og vinsemd sem móð ur minni, Sigurveigar Einarsdóttur, var sýnd vegna 100 ára af- mælis hennar 11. júní sl. Hún biður ykkur öllum Guðs gless unar. Sigríður Erlendsdóttir, Kirkjuveg 10, Hafnarfirði. enda. Ljúfmennsku hans í öllu dagfari mun heldur enginn gleyma, sem honum kynntist. Þann 19. desember 1920 kvænt- ist Eggert eftirlifandi konu sinni, Ragnhildi Gottskálksdótt- ur, sem margir munu þekkja og eiga gott uþp að unna. Börn þeirra, sem öll eru á lífi, eru: Sesselja Svana, gift Jóni Sigurði Guðmundssyni, stórkaupmanni í Bandaríkjunum, Ólafur skrif- stofumaður, giftur Erlu Þor- steinsdóttur, EÍinbjörg Hulda, hjúkrunarkona, gift Jens Sören- sen, deildarstjóra, Kjartan Þór- ir, stýrimaður, Gottskálk Þor- steinn, stórkaupmaður, giftur Guðrúnu Einarsdóttur og Ragn- hildur Sigríður, gift Birgi Sigur- jónssyni, símvirkjaverkstjóra. Barnabörn þeirra Eggerts og Ragnhildar eru nú tuttugu, en barnabarnabörnin þrjú. Eggert unni börnum sínum og afkom- endum þeirra mjög og fylgdist með þeim af stakri umhyggju og ástúð allt til hins síðasta. Og þá er eitt, sem ekki má gleymast, þegar Eggerts er minnzt. En það er hjálpsemi hans og skilningur í sambandi við hið mikla og fórnfúsa starf, sem kona hans hefir unnið i þágu sjúkra og vansælla. Það starf er meira og merkilegra en ég treysti mér til að lýsa hér. En Eggert átti mikinn þátt í, að hún hefir getað eytt jafn miklum tima og kröft- um til að inna það af hendi. Tel ég mig vita, að margar hlýjar samúðarhugsánir muni berast að Tjarnargötu 30 í dag til Ragn- hildar og fjölskyldu hennar. Fyrir allt það góða, sem þau hjónin hafa gert mér, sendi ég hjartans þakkir. Svo kveð ég þig, vinur, og bið Guð að blessa minningu þína. Ólafur Þórðarson. Hjartanlegar þakkir sendi ég öllum þeim sem glöddu mig á 70 ára afmæjisdaginn. Guð blessi ykkur, Jakob Þorsteinsson Kirkjustræti 2.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.