Morgunblaðið - 14.07.1968, Síða 12
12
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. JÚLÍ 1968
*»
ÞRETTÁN milljónir kvenna
um allan heim nota Pilluna.
Enginn vafi leikur á því, að
Pillan er árangursríkasta
getnaðarverja, sem sögur
fara af. Hún hefur verið á
almennum lyfjamarkaði
undanfarin fimm—sjö ár og
neyzla hennar hefur farið
hraðvaxandi bæði hérlendis
sem annars staðar.
Þrátt fyrir lofsöngva þá
sem hafa verið uppi um
Pilluna og ágæti hennar,
hefur hún orðið óþrjótandi
uppspretta stöðugra rök-
ræðna og hvassra deilna,
menn eru ekki á eitt sáttir
um gildi hennar. Flestir
geta fallizt á, að hún veitir
þeim konum, sem taka hana
að staðaldri fullkomna
vernd gegn því að verða
barnshafandi. Hins vegar
hafa sögurnar um alls kyns
aukaverkanir og bókstaflega
hættu, sem fylgi því að
taka Pilluna að staðaldri,
magnazt mjög. Ekki verður
hjá því komizt að horfast í
augu við þá staðreynd, að
Pillan er ekki gefin til að
lækna sjúkdóma, held-
ur til þess beinlínis að
breyta og raska hormóna-
starfsemi líkamans. Þar af
leiðir, að gæta verður
ítrustu varfærni. Allir vita,
að það hefur nokkra áhættu
í för með sér að taka pillur,
og meira að segja getur sak-
leysislegt lyf á borð við
asperín valdið neikvæðum
viðbrögðum hjá einstaka
sjúklingi.
Nákvæmlega er fylgzt með
því, sem gæti gefið nýjar
upplýsingar um áhrif Pill-
unnar, þegar hún er tekin ár-
um saman. En þar sem tím-
inn einn getur leitt þau í Ijós
er augljóst, að skaðvænleg
áhrif Pillunnar gera naum-
ast vart við sig fyrr en að
löngum tíma liðnum, og þá
með ófyrirsjáanlegum afleið-
ingum.
Annað vandamál hefur og
risið upp, eftir því sem Pill-
an verður útbreiddari; með
ýmsum þjóðum hefur dreg-
ið svo úr barnsfæðingum, að
mönnum stendur stuggur af.
Hins vegar hefur gengið erf-
iðlega að fá konur í þeim
löndum, þar sem offjölgun-
arvandamálið er hvað mest,
til að taka Pilluna reglu-
lega.
En Pillu-konurnar þykjast
hafa himin höndum tekið.
Þær hafa um langa hríð orð-
ið að beita misjafnlega ör-
uggum og þægilegum ráðum
til að verða ekki barnshaf-
andi, og telja sig nú komnar
á græna grein. Þær láta all-
ar neikvæðar upplýsingar
um Pilluna sem vind um
eyru þjóta. En fræðsla
ætti ekki að saka.
Fyrir nokkru gekkst Sunday
Times Magazine fyrir því, að
spakir sérfræðingar svöruðu
allmörgum spurningum les-
enda um almennt gildi Pill-
unnar og gáfu ýmis konar
upplýsingar um hugsanlegar
aukaverkanir og eftirköst.
Nokkrar spurninganna og
svörin við þeim birtast hér á
eftir í lauslegri þýðingu.
En áður en vikið er að þeim
væri rétt að minnast á skrif
bandarísks sérfræðings dr. Her-
berts Ratner um pilluna. Þau
birtust í blaðinu „Child and
Female“, en það rit er mjög út-
breitt meðal lækna og sérfræð-
inga í heilbrigðismálum bæði
innan Bandaríkjanna og utan.
Dr. Ratner er ekki að skafa
utan af vanþóknun sinni, er
hann segir:
„Pillan er vissulega áhrifa-
mesta lyf, sem hefur verið
fundið upp til að kveikja og
æsa upp hina ólíklegustu sjúk-
dóma meðal kvenna, sem áður
voru heilsugóðar í alla staði.“
Máli sínu til stuðnings birtir dr.
Ratner fjörutíu sjúkraskýrslur
og þar er m.a. komizt að eftir-
farandi niðurstöðum:
„Pillan hefur ekki leyst offjölg
unarvandamálið.
Pillan hefur ekki náð út-
breiðslu meðal vanþróaðra
þjóða, þar sem offjölgun er
raunhæft vandamál.
Pillan hefur blekkt bandaríska
neytendur, svo að þeir líta ekki
lengur við öruggum og viður-
kenndum lyfjum, sem áður voru
í notkun.
Pillan orsakar ,rsvika-ófrísku“
í konum, og er undanfari blóð-
tappa og blóðrásarsjúkdóma.
Pillan veikir mótstöðuafl líkam-
ans gegn krabbameini.
Pillan hefur komið því til leið
ar, að konur sem áður voru fíl-
hraustar, þjást nú af stöðugum
óþægindum og kvillum."
Síðan segir doktorinn: „Pillan
hefði átt að hverfa af lyfjamark
aði fyrir löngu. Ef lyfjastofnun
Bandaríkjanna treystir sér ekki
til að taka þá ákvörðun, sé ég
ekki annað ráð vænna en að
hvetja ráðamenn til að skipa
aðra menn í nefndina til að
fjalla um málið og kynna sér
skaðsemi pillunnar.“
Og hvað er svo Pillan?
Pillan er alþjóðlegt nafn yfir
töflur, sem teknar eru inn og af
henni eru til tuttugu mismun-
andi tegundir. Skilgreiningin
„Pillan“ er ónákvæm, þar sem
pillur eru hnöttóttar, en töflur
flatar. 1 hverri Pillu eru efnin
oestogen og progestoogen.
Markmiðið með hinni uppruna-
legu pillu, sem bandaríski vís-
indamaðuriinn dr. Gregory
Pincus, fann var að draga úr
óeðlilegum blæðingum og talið
var vænlegast að nota þessi tvö
fyrrnefndu efni í samsetningu.
Þróunin hefur hins vegar orðið
sú, a'ð Pillan hefur orðið út-
breiddasta og vinsælasta getn-
aðarverja, sem fram hefur kom-
ið.
Er það rétt að allmikil
þyngdaraukning geri vart
við sig hjá konum, sem taka
pilluna að staðaldri?
Reyndin hefur verið sú, að
sumar konur léttast, þegar þær
þyrja að taka Pilluna. Því mið-
ur er algengara að þær þyngist
og sumar allverulega. Þetta staf-
ar meðfram af því, að meiri
vökvi safnast fyrir í líkmanum.
En ekki má gleyma því, að ótrú-
lega oft er um ofát að ræða.
Ofátið má ef til vill setja í sam-
band við Pilluna. Þegar konur
byrja að taka hana losna þær
samtímis við margs konar kvfða
og hugarangur, sem þær hafa
nauðugar viljugar orðið að búa
við, e.t.v. um áraskeið, vegna
þess, að þær höfðu naumast
neina algilda tryggingu fyrir
þvi, að fyrri verjur væri full-
komlega áreiðanlegar.
Konan verður því frjálslegri,
áhyggjulausari og oft fer svo,
að matarlystin eykst stórum, að
minnsta kosti í byrjun.
Er einhver hæfa í því, að
miðaldra konur yngist í útliti
við að tal^a pilluna um lang-
an tíma?
Þessi hugmynd hefur skotið
upp kollinum og er væntanlega
byggð á þeirri vitneskju, a'ð
smávægil. skammtur af oestro-
gen dregur úr neikvæðum ein-
kennum tíðabrigða, og vellíðan
eykst hjá konum, sem hafa
þjáðzt af hitaköstum og nætur-
svita, hrakandi minni, dofnandi
einbeitingarhæfileika og dvín-
andi sjálfsöryggi. Oestrogen get
ur oftlega dregið úr nefndum
óþægindum og jafnvel bægt
þeim að fullu burt. Því er ein-
dregið mælt með þessari með-
ferð hjá konum á tíðabrigða-
skeiði. Einkenni þessi geta stað-
i’ð í langan tíma — oftar ár en
mánuði og gera vart við sig
jafnskjótt og meðferðinni er
hætt. Það er því ljóst, að hor-
mónameðferð á tíðabrigðaskeiði
ætti sennilega að standa yfir í
lengri tíma, en hingað til hef-
ur verið gert. Þegar þessi
áhrifamikla læknisme'ðferð er
höfð í huga, vaknar spurningin,
hvort eigi ef til vill a'ð
koma í veg fyrir tíða-
hvörfin fyrír fullt og allt,
með pillunotkun. Kannski eru
engir þekktir annmarkar á að
brugðið verði á það Táð, en al-
menn skoðun mun vera, að slíkt
sé öfgakennt og beinlínis vara-
samt. Tröllatrú á mætti Pillunn-
ar er engum til góðs.
Það er sagt, að meðferðin geri
brjóst stinnari, konuna unglegri í
útliti, komi í veg fyrirlegsig, sem
þjáir margar konur og gerir
samfarir sáraukafullar — eða að
minnsta kosti ekki eftirsóknar-
verðar. I stuttu máli sagt er
þetta fyrirheit um eilífa æsku.
Ég efast um, að slíkt loforð sé
réttlætanlegt.
Ef barnshafandi kona tekur
pilluna, áður en henni er
ljóst, að hún á von á sér,
getur pillan þá haft skaðleg
áhrif á fóstrið?
Skýrslur benda til óeðlilegrar
fjölgunar karlhormóna og óeðli-
lega margra tilfella geðsýkis-
einkenna í börnum, þegar móð-
urinni hafa verið gefnir stórir
skammtar progestoegens á
fyrstu þrettán vikum meðgöngu
tímans. En í flestum pilluteg-
undum er progestogenmagnið
það lágt, að vafasamt er, að það
skaði fóstur.
\
Hvaða óæskilegar aukaverk-
anir eru líklegar til að gera
vart við sig, þegar pillunotk-
un hefst að staðaldri?
Algengustu óþægindi fyrst í
stað er velgja, sem oft bærir á
sér fyrstu dagana og síðan aft-
ur við annað og þriðja pillu-
tímabil. Hugsanlegt er að
sporna megi við ógleðinni, ef
pillan er tekin að næturlagi. Sé
ógleðin enn á háu stigi við lok
þriðja tímabils er oft ráðlagt að
breyta um pillutegund. Meðal
annarra hvimleiðra aukaverk-
ana má nefna óþægindi í brjóst-
um, vöðvakrampa, þreytu, óeðli
lega útferð. Sumar konur kvarta
undan því, að þær verði geð-
stirðari og uppstökkari en þær
töldu sig eiga vanda til. Flest
hverfa þessi einkenni áður en
langir tímar líða.
Hefur pillan önnur jákvæð
áhrif en koma í veg fyrir
frjóvgun?
Þær konur, sem á annað borð
verða ekki varar við ofangreind
ar aukaverkanir, segja að and-
leg og líkamleg vellíðan þeirra
hafi aukizt áð mun með töku
pillunnar. Vitað er, áð óeðlilegar
blæðingar minnka og mjög dreg-
ur úr óþægindum í leggöngum.
Aðrir kostir eru til dæmis, að
kvalir og þrautir í sambandi
við blæðingar eru nú ekki leng-
ur til staðar.
Hversu áhrifarík er pillan í
samanburði við aðrar teg-
undir getnaðarvarna?
Svo framarlega sem pillan er
j tekin samvizkusamlega og sam-
kvæmt fyrirmælum viðkomandi
læknis, má segja, að hún veiti
100% öryggi. Einstaka frjóvg-
un hefur að vísu átt sér stáð, en
venjulega hefur komið í ljós, að
þar hafði konan gleymt að taka
Pilluna í eitt eða fleiri skipti, en
talið sig örugga eftir sem áður.
Ef kona gleymir að taka
j töflu, til dæmis í eitt skipti,
i hvað eru þá sterkar líkur til
I
að um vernd sé ekki lengur
að ræða?
Stundum kemur fyrir, að
Framhald á bls. 14