Morgunblaðið - 14.07.1968, Side 16
16
MORGrUNB'LAÐIÐ, SUNNUDAGUR 14. JÚLÍ 1968
Útgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Ritst] ór narf ulltrúl.
Fréttastjóri
Auglýsingast j óri
Ritstjóm og afgreiðsla
Auglýsingar
Askriftargjald kr 120.00
í lausasölu.
Hf Arvakur, Reykjavik.
Haraldur Sveinsson.
Sigurður Bjaimason frá Vigur
Matthias Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Þorbjörn Guðmundsson.
Bjöm Jóhannsson.
Áxni Garðar Kristinsson.
Aðalstræti 6. Síml 10-100.
Aðalstræti 6. Sími 22 4-80
á mánuði innanlands.
Kx. 7.00 eintakið.
ÞJOÐARSALIHÆTTU
TUvö þúsund orð“, ávarp
tékkóslóvakiskra mennta
manna og verkamanna, er
tvímælalaust harðasta gagn-
rýni á það stjórnarkerfi,
sem kommúnisminn hefur
byggt upp í A-Evrópu síðan
hin umtalaða bók Svetlönu
Stalínsdóttur, „Tuttugu bréf
til vinar“ kom út í fyrra. Hið
tékkóslóvakiska ávarp er í
senn afhjúpun á starfsaðferð-
um lítillar og valdasjúkrar
klíku, sem í krafti erlends
valds hefur hrifsað til sín öll
völd í einu mesta menningar-
ríki Evrópu og berst enn hat-
rammri baráttu til þess að
halda þeim áhrifum, og að-
vörun um, að því verði ekki
unað, að sú frelsisalda, sem
gengið hefur yfir Tékkósló-
vakíu undanfama mánuði
stöðvist eða deyi út.
í ávarpinu er m.a. vikið að
dvöl erlends herliðs í land-
inu og kemur þar skýrt fram,
að þeir, sem undir ávarpið
rita, telja, að Tékkar og
Slóvakar verði að vera reiðu-
búnir að grípa til vopna til
þess að verja frelsi sitt og
sjálfsákvörðunarrétt. Þar
segir m.a.: „Það ríkir kvíði,
sem á rót sína að rekja til
ótta um, að erlendur herafli
kunni að skipta sér af lýð-
ræðisframförunum á meðal
okkar. Við verðum að horf-
ast í augu við öfl, sem eru
okkur miklu sterkari og við
verðum að gæta framferðis
okkar og megum ekki byrja
á að leiða til vandræða. Við
getum sýnt ríkisstjórn okkar
fram á, að við stöndum að
baki henni og styðjum hana,
þó að það verði að gera með
vopn í hendi til þess að
tryggja hana á meðan hún
starfar í samræmi við vilja
þjóðarinnar.“
Lýsingin á kommúnista-
flokknum í Tékkóslóvakíu í
tuttugu ár er einkar athyglis-
verð og ekki örgrannt um,
að hún eigi einnig við um
aðra kommúnistaflokka. Þar
segir í ávarpinu: „Röng
stefna stjórnarinnar hefur
breytt flokknum úr stjórn-
mála- og hugsjónaflokki í
einræðisstofnun, þangað sem
valdasjúkir og sjálfselskir
menn leituðu, en einnig rag-
geitur og menn með slæma
samvizku. . Þetta ástand
innan flokksins varð fyrir-
mynd fyrir stjórn landsins
og leiddi til þess, að mögu-
leikinn á því að gagnrýna
stjórn landsins varð úr sög-
unni...... Þjóðþingið var
hætt að ræða nokkurn skap-
aðan hlut, ríkisstjórnin hætt
að stjórna og framkvæmda-
stjórnarnir hættir að fram-
kvæma. Kosningar höfðu
enga þýðingu, lögin misstu
gildi sitt.... við gátum ekki
lengur treyst hver öðrum.
Einstaklings- og samfélags-
heiður hvarf. ... í stuttu
máli komst þjóðin á það
skeið, að þjóðarsál hennar
var í hættu“.
Þetta er lýsing hinna „tvö
þúsund orða“ til tékkósló-
vakísku þjóðarinnar á komm
únistaflokknum, stjórnarhátt
um hans og því þjóðfélagi
sem hann byggði upp í Tékkó
slóvakíu á tuttugu árum. Við
þessa lýsingu er engu að
bæta.
TENGSLIN VIÐ
VESTUR-
ÍSLENDINGA
^pengsl okkar Islendinga
-*• við frændur okkar í
Vesturheimi hafa aukizt tals
vert undanfarin ár. Hópferð-
ir Vestur-íslendinga hingað
til lands eru eitt gleggsta
dæmið um það, en nú eru
hér staddir 130 þeirra og
ferðast um landið. Margir
Vestur-íslendingar koma
hingað til lands í fyrsta og
eina skiptið á æviferli sín-
um í þessum ferðum. Þeir
kynnast af eigin raun lifnað-
arháttum þjóðar, sem þeir
hafa heyrt forfeður sína tala
um á uppvaxtarárum sínum,
og þeir sjá, að margt hefur
breyzt og ekki er allt eins og
minningarnar um drauma-
eyjuna í norðri bentu til.
Þjóðræknisfélag íslendinga
í Vesturheimi skipuleggur
hópferðir Vestur-íslending-
anna hingað til lands og er
þetta framtak félagsins virð-
ingarvert. Hins vegar væri
einnig æskilegt, að fleiri ís-
lendingar legðu íerð sína til
íslendingabyggðanna í Vest-
urheimi. En af slíkum heim-
sóknum má læra margt og
fróðlegt er að kynnast því,
hversu vel íslenzk tunga hef-
ur í mörgum tilfellum stað-
izt áhrif enskunnar og hald-
ið velli í hugum þeirra, sem
um áratugaskeið hafa búið í
óra fjarlægð frá íslandi.
íslendingar eiga að halda
lifandi tengslum við Vestur-
íslendinga, með því eru vin-
áttuböndin treyst og gagn-
kvæm kynni sköpuð milli
ættingja, sem búa sitt hvoru
megin við Atlantsála. íslend-
ingar í Vesturheimi skara á
margan hátt fram úr í þjóða
hafinu, sem byggir Vestur-
heim, það er stolt íslenzkrar
þjóðar að halda tengslin við
þá.
1 A 1
V U1 VaSILá^ ■ Al Y 0 R II IEM n\
Anthony Howard:
Reynt ai koma
úr embætti
RONALD Reagan, ríkisstjóri
Kaliforniu, sem fyrir aðeins
fáum mánuðum var talinn
vænlegur til framboðs við for
setakosningarnar fyrir hönd
repúblíkanaflokksins, stendur
nú frammi fyrir óvæntum
vanda í ríki sínu.
Það er ekki ólíklegt að nafn
hans verði á kjörseðli í nóv-
ember, en þó ekki á þeim seðli
sem hann hafði ætlað. Ef ötul
samtök fólks um allt ríkið ná
takmarki sinu, munu 7.800.000
kjósendur í Kaliforníu fá tæki
færi til að dæma um það
á kjördag, hvort Reagan sé
hæfur til þess að sitja áfram
í embætti sínu, en ekki hvort
hann ætti að verða forseti eða
varaforseti.
Stjómmál í Kalifornáu ei'ga
rætuir í gömluim lýðræðisvenj
um og í stjórnarskrá ríkisins
er álkvæði um aftu>rköllun em
baeittismanna, sem sett var
enduir fyrir löngu til þess að
hafa hemil á vöddum kjörinna
embættismanna. Elf 10 af
hundnaði kjósenda krefjast
þess, verður að hafa almenna
atkvæðagreiðslu um setu
hvers þess em'bættismianns,
sem þeir telja ólhæfan til þess
að gegna starfi sínu.
Þetta áikvæði hefur gert
kleift að víkja allmörgum
mönnum úr starfi á liðnum
árum, en aldrei hefuir tekizt
að fá nógu marga til að krefj-
ast atkvæðagreiðslu um svo
háa stöðu, sem embætti rílkis-
stjóra.
Fyrr á þessu ári virtist sem
þessi nýjasta tilraum færi eins
og þær tíu sem áður hetfur ver
ið stetfnit gegn rilkisstjóna á
miðju kjörtímabili. Hún hófst
fyrir atbeina nokkurra hiús-
mæðra, bílasala eins og jáirn-
brautarstafemanns, féklk eng-
an stuðning demókratafliokks-
ins í rí'kimu og ihafði lítið fjár
magn að taakhjarli.
En nú fyrir gkömmu tóku
bandarísk blöð og sjónvarps-
stöðvar að vekja athygli á því
(eins og smáblöð í Kaliforníu
Ronald Reagan.
hafa lengi gert), að enm væri
tími til stefnu. Skipuleggjend-
ur „afturköilluinar Reagans“
segjast nú þegar hafa fengið
upp undir 700 þús. undirskrift
ir. Þeir þurfa því aðeins að fá
um 100 þús. í viðbó't og hálf-
an mánnð til stefnu.
Fyrir nokkruim dögum var
Reagan spurður á blaða-
mannafundi um þessa bair-
áttu. Hann viðurkenndi að
hún gæti komið sér í botaba,
en kvaðst fullviss um að hún
Reagan
væri til komin af pólitlískum
ástæðum (rétt eins og það
væri nægileg fordæming). Að
stoðarmaður Reagans sagði á
eftir, að í fyrstu hefðu þeir
ætlað að láta þessar aðgerðir
afskiptalausar, en auigljóst
væri að það hefði efcki gefið
góða raun.
Þótt forystumönnum sam-
takanna — sem nú hatfa að
baki sér fjárhagsistuðning ým
issa aðila og mairgra fyrrver-
andi stuðningsmenn Rotaerts
Kennedys — takist að satfna
nógu mörgum undirdkrilftum,
þarf það efcki að tákna að rík
iss'tjórastarfi Reagans sé liok-
ið. Það eru aðeins tvö ár síð-
an hann var kjörinn í embætt
ið með nærri því milfljón at-
kvæða meirilhluta — mesta
meirihluta sem um getur í
Kaliforníu. Fiestir eru sam-
mála um það að jafnivel þótt
Reagan verði fyrir þeirri sví-
virðu að atkvæða'greiðslan
fari fram, muni hann stand-
ast þá eldraun m*eð sbuðni n,gi
kjósenda repúblikanaflolfcks-
ins.
Engu að síður hefuir hinn
einstæði árangur andstæðinga
leifcarans gamla leitt skýrt í
ljós, hversu mjög dýrðarljómi
hans hefur látið á sjé á tveim
ur árum. Andstæðingar Reag
ans hatfa lagt mikla áherzlu
á minnkaðar fjárveitingar
hans til heil/brigðis- og
menntaimála og þeir hatfa sýni
lega fengið góðan Mjóm-
grunn.
Meðal þeirra sem hafa skritf-
að undir kröfuna um atkvæða
greiðslu eru Nóbeisverðlaiuinia
hafi, háskólarefctor og anir
múnikarnÍT í einu klaustri af
Fra nsisfcuarreglu.
(Þýtt og endursagt —
Observer).
Hallgrímskirkju
gefinn silfurkross
HALLGRÍMSKIRKJU í Reykja
vík var í dag færður forkunnar-
fagur silfurkross (altariskross)
Bíöa eftir
sprettunni
Hólmavík, 13. júlí.
BÆNDUR á Ströndum bíða nú
eftir sprettunni og búast ekki
við að hefja islátt fyrr en um
mánaðamót í fyrsta lagi. Hafa
þeir gert ráðstafanir til þess að
nýta hvern túnbleðil, því að tún
eru víða illa farin.
Sól og hiti hefur verið hér
'undanfarna daga, en vætuskort-
ur hefur mjög hamlað sprettu.
Afli tveggja handfærabáta, sem
héðan eru garðir út, hetfur til
skamms tíma verið góður, en síð
ustu daga hefur dregið úr. Tog-
bátar hér úti fyrir afla hins
vegar vel. — Andrés.
til minningar um frá Guðrúnu
Stefánsdóttur, konu Jónasar Jóns
sonar frá Hriflu. Krossinn er
gjöf til kirkjunnar frá Jónasi,
fjölskyldu hans og vinum.
Leifur Kaldal gullsmiður teikn
aði og gjörði krossinn, sem er úr
sterling silfri, 45 cm. hár, auk
plötu úr slípuðum grásteini, sem
er 6 cm. þykk. Sjáltfur er kross-
inn einfaldur, en hann stendur á
haglega gerðum stuðlabergssökkii
— einnig úr silfri — sem minnir
mjög á byggingarstíl Hallgríms-
kirkju.
Á sökklinum eru tvær silfur-
plötur — á aðra er letrað:
MINNING
en á hina:
GUÐRÚN STEFÁNSDÓTTIR
F. 5. okt. 1885
D. 15. jan. 1963
Jónas og dætur hans, Auður og
Gerður, afhentu krossinn í morg
un fulltrúum Hallgrímssafnaðar
við einfalda en hátíðlega athofn
í Hallgrímskirkju á Skólavörðu-
hæð.
Reykjavík, 12. júlí 1968.
Sóknarnefnd Hallgrímskirkju.