Morgunblaðið - 23.07.1968, Page 1
28 SIÐUR
154. tbl. 55. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 23. JULÍ 1968
Prentsmiðja Morgublaðsins
Þessi mynd var tekin rétt fyr ir ihelgina, er verið var að undir búa brottflutning sovézkra her-
vagna frá Tékkóslóvakíu.
Humphrey ræðir við
Smith og Sörensen
Washington 22. júlí. AP.
AREIÐANLEGAR heimildir í
Washington greina frá því, að
Hubert Humphrey, varaforseti,
Bandaríkjanna leggi nú æ meira
kapp á að leita stifðnings meðal
Kennedy-áhangenda. Um helgina
hitti hann tvo þeirra ötulustu að
máli, Stephen Smith — mág Ed-
wards Kennedys — og Theodore
Sörensen, sem var ráðgjafi beggja
eldri Kennedybræðranna. Til-
kynnt var að hann hefði viljað
ræða við þá um almenn mál, sem
snertu forsetakosningarnar.
Þá hefur AP-fréttastofan það
fyrir satt, að Humphrey hafi á-
huga á að hitta Edward Kennedy,
Mikilvœg tilslökun Sovétstjórnar:
Fellst á fund í Tékkóslóvakíu
— enn engar staðfestar fréttir um,
að sovézki herinn sé horf inn úr landi
— Kiesinger vill fresta herœfingum NATQ skammt frá
landamœrum Tékkóslóvakíu í september
Moskva, Prag, London,
Bonn, Berlín, Belgrad, New
York, Búkarest, 22. júlí.
NTB-AP.
TILKYNNT var samtímis í
Prag og Moskvu í dag, að So-
vétstjórnin hefði látið undan
kröfu Tékkóslóvaka um, að
fundur þessara tveggja aðila
sem hefur verið á döfinni
undanfarið, yrði haldinn í
Tékkóslóvakíu. Tilkynning-
unni fylgdi harðorð árás á
Prag-leiðtogana fyrir að
hafna ábendingum og hollum
ráðleggingum Sovétmanna
um málefni Tékkóslóvakíu.
Sovétmenn höfðu borið
fram tillögu um að fundur-
inn yrði haldinn í einhverri
eftirtaiinna borga í Sovétríkj
unum, Moskvu, Kiev eða
Lvow. í fyrstu orðsendingum
Sovétmanna var gefið ótví-
rætt til kynna, að ekki kæmi
til mála að fallast á fund með
Tékkóslóvökum, nema þeir
samþykktu einhvern þessara
þriggja staða. Tékkóslóvakar
höfðu þegar uppi þau afdrátt
arlausu svör, að ekki kæmi
annað til mála en fundurinn
stæði í landi þeirra, þar sem
fjalla ætti um innanríkismál
Tékkóslóvakíu fyrst og
fremst, og forystumenn ættu
ekki heimangengt. Hins veg-
ar hefur fundarstaður í Tékkó
slóvakíu ekki verið endanlega
ákveðinn enn.
í orðsendingu stjórnmála-
ráðs miðstjórnar sovézka
kommúnistaflokksins segir,
að Sovétmenn hafi tekið þá
ákvörðun að vandlega íhug-
uðu máli, að verða við óskum
Tékkóslóvaka. Gefið er í skyn
að þess sé vænzt að allir með
limir forsætisnefndarinnar í
Prag komi til fundarins. Yfir
lýsingin kom skömmu eftir
að Sovétstjórnin hafði vísað
á bug svari Prag-stjórnarinn-
ar við bréfi Varsjárfundarins.
í Moskvu er litið svo á að hér
sé um mikla tilslökun Sovét-
stjórnarinnar að ræða og hpfi
hún ekki séð sér annað fært
vegna mikils stuðnings, sem
stefna leiðtoga í Prag virðist
njóta hvarvetna.
Tékkóslóvakíska fréttastof-
an Ceteka birti skömmu
seinna tilkynningu þar sem
sagt er, að margir sovézkir
herflokkar og hergögn hafi
verið flutt frá Tékkóslóvakíu
aðfararnætur sunnudags og
mánudags og gert sé ráð fyr-
ir, að hinir síðustu verði horfn
ir á braut á mánudagskvöld.
Þessi frétt hefur ekki verið
staðfest af opinberri hálfu,
en látið að því liggja, að
flutningar herliðsins standi
yfir.
Framhald á bls. 20
og engum blandist hugur um, að
varaforsetinn hafi mikinn áhuga
á áð fá hann með sér í framboð,
en nær öruggt er talið, að Hump
hrey hljóti útnefningu. Tekið er
fram, að Humphrey hafi ekki
tekið endanlega ákvörðun um,
hvort hann fari þess á leif, að
Edward Kennedy fallist á að
verða varaforsetaefni, og einnig
er gefið í skyn, að McCarthy
muni einnig koma til greina.
Sagt er, að Humphrey hafi
beðið þá Smith og Sörensen að
láta Edward Kennedy vita sem
gleggst um viðræ'ður þeirra, og
einnig að hann geri sér vonir
um stuðning Kennedys á flokks-
þinginu og að því loknu.
Fram að þessu hefur ekkert
heyrzt frá Edward Kennedy um
afstöðu hans í þessu máli.
Myrða átti
Reagan
Los Angeles, 22. júlá — NTB
• BANDARÍSKA leynidög-
regfan, FBI, upplýsti í ,gær,
sunnudag, að komizt hefði upp
um samsæri blökkumanna
nokkurra um það, m.a. að
ráða af dögum Ronaíld Reag-
an, ríkiisstjóra Calilforníu. Seg
ir dagblaðið „Los Angeles
Times“, jafnframt að tilraun
tveggja ungra blökkumanna
nýlega, til þess að varpa hekn
Framhald á bls. 20
Átök og ólga í Boliviu eftir
flótta innanríkisráðherrans
— sem hafði látið stjórn Castros fá
afrit af dagbók „Che" Cuevara
Santiago, La Paz, 22. júlí . ur beðizt hælis í Chile sem póli
0 INNANRÍKISRÁÐHERRA | tiskur flóttamaður. Hann kom
Boliviu, Antonio Argueads, hef- þangað í síðustu viku, flúði land
lnrybprom-68 hefsf 6. ágúst í Leningrad
Iburðarmesta fiskveiðisýn-
ing, sem haldin hefur verið
6. ÁGÚST nk. hefst í Leningrad
sýning á fiskiskipum, veiðitækj-
um, fiskverksmiðjum og fiskaf-
urðum. Sýningin, sem á að
Istanda yfir í tvær vikur, mun
jverða ein stærsta sýning sinnar
tegundar, sem haldin Ihefur ver-
'ið. Gestum sýningarinnar mun
Igefast kostur á að sjá sýningar-
imuni frá yfir 300 samtökum frá
«24 löndum. íslendingar munu
,ekki taka þátt í þessari sýningu.
Þungamiðja sýningarinnar
verður að sjálfsögðu sýning á
þeim tækjum, hugmyndum og
aðferðum, sem hafa lyft Sovét-
ríkjunum, á minna en 20 árum,
upp í efsta sæti meðal fiskveiði-
þjóða. >
í nýútkomnu hefti af Fishing
New,s International segir m. a.,
að ef reiknað sé með aflamagni
og því fjármagni, sem lagt hafi
verið í fiskveiðar, geti Japanir
einir talizt hafa umfangsmeiri
fiskveiðar en Sovétríkin. Því
hafi verið reynt eftir föngum að
fylgjast með þróun sovézkra
‘fiskveiða undanfarin ár. Inrybp-
rom-68, en svo nefnist sýningin
í Leningrad, muni hins vegar
veita svör við flestum spurning-
um á þessu sviði. Jafnvel þótt
sýningin hefði verið einskorðuð
við sovézkar fiskveiðar ‘hefði
mátt búast við áhugasömum gest
um hvaðanæva að úr heiminum.
Sýningunni verður komið fyr-
ir á eyju í Leningrad og verður
þar komið upp sýningarskálum
fyrir hin ýrnsu lönd, en auk þess
verða sýnd nýtízkuleg skip við
bryggjur skammt frá sýningar-
svæðinu. Segir Fishing Ney/s, að
sýningin verði að öllum líkind-
um íburðarmesta kynning á
framförum í fiskveiðum síðan
Bretar efndu til hinnar miklu al-
þjóðlegu fiskveiðasýningu árið
1883, — er þeir voru sjálfir
fremstir fiskveiðiþjóða.
af ótta við, að hann yrði ráðinn
af dögtim, er upp komst, að hann
hafði látið fulltrúa Fidels Castr-
os, forsætisráðherra Kúbu fá af-
rit af dagbók Ernesto — „Ches“
— Guevara, skæruliðaforingjans,
sem felldur var í Bolivíu sl.
haust. Hefur dagbókin verið gef
in út í Havana. Arguedas hefur
viðurkennt við lögregluna í Sant
iago i Chile að hafa látið af-
ritið af hendi.
Mál þetta hefur valdið geysi-
legri ólgu og blóðugum átökum
í Boilivíu og stjórnin þar lýsti
í dag yfir umsátursástanidi í land
inu. Herinn sakaði forseta lands-
ins, Rene Barrientos, um að hafa
átt sinn þátot í því, að dagbókar-
afritið var afhent og að hafa
vitað um flótta Arguedas, sem er
góðvinuir hans og gamall sam-
starfsmaður. Á laugardag hermdu
óstaðfesíar fréttir, að Barrient-
os hefði verið hrakinn úr em-
bætti, en ek,ki hefur það feng-
izt staðfest og þykir heLdur ó-
sennilegt. Hins vegar er vitað að
tugir manna hafa verið handtekn
ir vegna þessa miáls, þar á með-
al forystumenn allra stjórnar-
andstöðiufiokkanna. Nokkrir hafa
komizt hjá handtöku með því að
flýja heimili sin og er ekki vit-
að hvar þeir haiida sig. Barrient-
os hefur verið forseti Bolivíu
Framhald á hls. 20
r