Morgunblaðið - 23.07.1968, Side 2

Morgunblaðið - 23.07.1968, Side 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚLÍ 1968 Bretar uggandi um togaraútgerð 4 millj. sterlingspunda ekki nógtil að bjarga þessum atvinnuvegi BRETAR, og þá sérstaklega brezkir útgerðarmenn, eru nú mjög uggandi um framtíS brezkr ar togaraútgerSar. Brezka land- búnaSarmálaráðuneytið hefur veitt þessari grein sjávarútvegs- ins fjórar milljónir sterlings- punda í styrki, en raddir eru uppi um aS þessi upphaeð nægi Wtki til þess aS bjarga brezkri togaraútgerð frá hruni. Brezka blaðið Observer hefur það eftir nokkrum mönnum, sem standa framarlega í togaraúr- gerð, að fyrirtæki þeirra standi mjög höllum fæti. T.d. hafi Ross- hingurinn verið að hugsa um hvort ekki væri réttast að hætta togaraútgerð og sömu sögu væri að segja um Associated Fisheries, sem á fleiri togara en nokkurt annað fyrirtæki í Bretlandi. Er „Pop“ söngur við guðsþjón- ustu í St. Púlskirkju London, 22. júlí. AP. _i „Þetta er áreiðanlega furðu legasta guðsþjónusta, sem nokkru sinni hefur verið hald in í St. Pálskirkjunni — en ég minnist þess heldur ekki að hafa nokkru sinni séð kirkj- una jafn þéttskipaða fólki“. Þessi ummæli eru höfð eftir einum starfsmanna St. Páls- kirkju í London, er hann lýsti guðsþjónustu, sem haldin var þar og tileinkuð baráttunni fyrir jafnrétti og frelsi kyn- þáttanna. Þar kom fram banda rískur „pop“-söngvari, John Baldrey, sem söng og spilaði á gítar sinn svo glumdi við í þessu foma og virðulega guðshúsi. Fyrir utan þá gesti, sem höfðu sæti — en hvert einasta sæti í húsinu var skip að — stóðu nm þrjú þúsund manns undir guðsþjónustunni, að langmestu ieyti ungt fólk. Fleiri dægurlagasöngvarar og söngflokkar komu fram guðsþjónustuna, en meðal við staddra kennimanna var Ro- bert Stopford, biskup í Lond- þéss getið, að floti togara, sem sæki á fjarlæg mið, hafi minnk- að úr 301 skipi árið 1953 í 182 skip nú. Ástæðurnar fyrir þessum vanda brezku togaraútgerðarinn- ar eru margar og fjarri því, að slæmur afli á hinum venju- 'bundmu miðum flotans sé eina ástæðan. Undirrótina telur Observer vera þá, að útvegurinn hafi lent í slæmri gildru samkeppninnar. Ný tækni í frystingu afla hafi þær afleiðingar, að unnt sé að geyma fisk og verzla með hann eins og hverja aðra vöru á al- þjóðlegum markaði. Þrátt fyrir enga aflaaukriingu hafi framboð á fiski aukizt að mun vegna bættra skilyrða til að geyma fisk. Auk þess hafi togaraútgerð- inni verið gert erfiðara fyrir með því, að stækka lamdhelgi Bretlands í 12 mílur, því nú geti smærTÍ skip aflað þar fisks, sem kemur nýrri á hinn tak- markaða brezka markað og selst þess vegna betur. Amnað vandamál er það, að togaraútigerðin hefur verið lengi að tileimka sér nýjar aðferðir í fiskveiðimálum, eins og t.d. að hafa á miðunum frystiskip, sem myndi lækka kostnaðinn og auka gæði, er til lengdar lætur. En út- vegurinn er í sjálfheldu, því án gróða er ekki hægt að leggja fé í ný skip eða útbúnað. í áðurmefrxdri grein er einnig rætt um þá tillögu, að leggja bæri togaraútgerð á hilluma og beina starfskröftunum að öðrum arðbærari iðnaði. Mörg rök séu gegn þessu og ekki sízt séu þau, að með því fyrirkomulagi myndi skapast alvarlegt atvinnuástand í Hull og Grimsby. Með styrk Vorð iyrir bíl Á laugardag varð telpa fyrir bíl, er hún hjólaði þvert inn á Langholtsveginn á gatnamótun- um við Álfheima. Féll hún í götuna, en mun ekki hafa hlotið veruleg meiðsli. FIMMBURAR — fjórar stúlkur og einn drengur — fæddust í smáborg, nokkur hundruð kíló- metra frá Bombay á Indlandi í gær. Móðirin var 35 ára gömul bóndakona. Þrir fimmburanna létust skömmu eftir fæðingu. sínum hafi ríkisstjórnin sýnt það í verki, að hún vill halda togara- útgerðinni á lífi, en hvað sem gerist. segir blaðið, að sú á- kvörðun muni kosta mikið fé, hvort sem það fé fáist með bein- um framlögum frá ríkinu eða á ■annan hátt. Nú sé svo ástatt, að þessi atvinnuvegur hafi ekki efni á að hreyfa við þeim úrbótum, sem e. t. v. kynnu að verða hon- um til bjargar. Giovanni Guareschl FaÖir Don Cam- iiios iátinn Bologna, 22. júlí NTB—AP ÍTALSKI rithöfundurinn Gi- ovanni Guareschi, sem skóp hina fnægu skáldsagnapersónu Don Camiillo, lézt á mánudag í BoxLogna úr hjartaslagi. Guareschi var sextugur að aldri, Hann var einnig þékkt- ur blaðamaður, en roesta frægð vann hann sér með mörgum snjöillum og bráð- fyndnum sögum um hinn stríðandi guðsmann, prestinn Don Camillo, og hafa nokikr- ar þeirra verið kvikmyndaðar með franska Fernandel í að- alhlutverki. í sögunum um Don Camillo segir frá deil- um hans og glettum við komm únistann, Peppone borgar- stjóra, í 'litlu ítölsiku þorpi. Guareschi sat þrettán mán uði ö fangelsi 1955, en hann var dæmduir fyrir roei'ðyrði gegn ráðherranum Alcide de Gasperi. Guaresehi birti bréf, sem hann kvað ráðherrann hafa skrifað, og í því er miædt með að gerðar verði sprengju árásir á Rómaborg. Þrétt fyrir áskoranir vina og aðdáenda áfrýjaði Guareschi ekki dóm num. 16 fórust er kirkja hrundi Bogota Colombiu,, 22. júlí. AP. I Það bar við sl. sunnudag í sm'ábonginni Vi'llenueve í austur- hluta Colombiu, að rómversk kaþólsk kirkja hrundi saman, er þar stóð yfir messa, með þeim afleiðingum, að m.k. 16 manns biðu bana og um 50 meiddust, j margir þeirra alvarlega. Að sögn lögreglunnar voru átta börn með al þeirra, sem létust og óttazt var að tala látinna ætti eftir a'ð hækka, þegar leitað yrði betur í kirkjurústunum. í kirkjunni voru samtals um hundrað manns, þegar slysið varð. Ekki er vitað hvað olli, en kirkjan var gömul orðin og veik byggð. Féll 6m. á steingólf SMÁSTRAKUR slasaðist er hann féll 6 metra niður á steingólf í Vélsmiðjunni Héðinn á sunnu- dag. Hann var á dúfnaveiðum ásamt nokkrum félögum sínum og ætlaði að ná í dúfur, sem höfðust við í sprungum í einum vegg verksmiðjunnar. Til þess að ná þangað upp reisti hann stiga við vegginn, uppi á plast- þaki. Stiginn var um tveggja metra hár og þegar hann var kominn efst í hann, féll hann afturfyrir sig, í gegnum plastið og fjóra metra niður á steingólf. Við það hlaut hann áverka á höfði og skurði á bakið. Erfitt var að ná honum af slysstað, þar sem allar dyr voru lokaðar, en lögreglumenn létu sig síga niður til hans og hlúðu að honum þar til náðist í mann sem opnaði hliðið. Drengurinn var fluttur í Slysavarðstofuna, en fékk að fara heim til sín að aðgerð lok- inni. Stúdentaskákmótið: Höfum ekki misst keppnisskapið — sagði Bragi Kristjánsson í samtali við IVIbl. í gær MORGUNBLAÐIÐ hafði í gær samband við íslenzku stúdent- ana og innti þá tíðinda af mótinu. Við töluðum við Braga Kristjánsson, og var hann ekki mjög ánægður með frammistöðuna í gær, enda töpuðu þeir öllum skákunum gegn Tékkum. „Guðmundur átti frí í dag", sagði Bragi, „hann var svo lengi að tefla biðskákma í morgun við Rússann og varð sú skák jaíntefli, Ég tefldi því á fyrsta borði geg’i Smejkl og átti jaínt lengi framan af, en lék af mér skiptamun og þar með skákinni. Haukur tefldi við Tlatcheka og var sú skák einnig jöfn og bsoð Tékk inn jaíntefli, en Haukur þáði ekki. Svo ,*ór þó að lokum að Haukur varð að láta í minni pokann. Jón tefldi á þriðja borði við Votrda, en lék af sér í tímahraki og tapaði, og Björgvin, sem tefldi við Hal- ousek, fékk verra tafl út úr byrjunni og gat aidrei rétt hhit sinn.“ „Við erum ekkert allt of ánægðir roeð þessa frammi- stöðu, en það þýðir ekkert að gefast upp og við höfurr. enn þá keppnisskap í bezta lagi.“ „Eruð þið nokkuð farnir að þreytast?" „Nei, ekki get ég sagt það, en eftir því sem lengra líður, fer einhver þreyta áreiðanlega að gera vart við sig. Annars er allur aðbúnaður góður hér, og ekki yíir neinu að kvarta.“ „Og við hverja teflið þið á morgun?“ „Við teílum við Rúmena." Bragi vildi ekkert láta uppi um sigurhorfur, en sagði, að þeir mundu gera sitt bezta. Báðu þeir fyrir beztu kveðj- ur. í annarri umferð í A-riðii á stúdentamótinu í Ybbs í Austurríki gerði ísilenzka sveit in jafn'tefll við A-þjóðverja. Guðmundur gerði jafntefli við Schoeneberg, Bragi tapaði fyr ir Espig, Haiukur vann Postler og Björn gerði jafntefli við Schmitz. Önnur úrslit urðu að Bandaríkin sigruðu Rúmeníu með 3-1, Danmörk og Tékkó- slóvakar skxldu jafnir 2-2, Sov étmenn unnu Júgúslavíu með 3tó-l%, og V-Þýzkaland sigr aði Búlgaríu" 314-1%. í þriðju urnferð töpuðu ís- lendingairnir fyrir Sovétmönn um fengu 1 vinning á móti 3. Guðmundur gerði jafntefli við Tukmakov, Bragi gerði jaftefli við Kuzmin, Hauikur tapaði fyrir Kapengut og Björgvin tapaði fyrir Kupres- eik. Aðrar skákir í þeirxi um- ferð: Danmörk og Rúmenia 2-2, Tékkóslóvakía og Júgó- slavía 2-2, Vestur-Þýzkaland og Bandaríkin 3-1, Búlgaría og A-Þýzkaland 2-2. — Ætla að flytja ... Framhald af bls. 28 , veður var slæmt. Það kom þó í iljós, að skipið er vel til þessa veiða fatlið og við ger- um ok'kur mjög góðar vonir. Togarinn hefur sérstaklega út- búnar Iiestar, kælidar og ein- angraðar. Síldin verður á hill um, en við ætlum l'íka að gera tilraunir með að hafa hana ísvarða í kössum. Það getur einnig verið að við söit um eitfihvað, ef þarf að bjaxga smáslöttum, en fyrst og fremst stefnum við að því að ísverja síldina. — Víkingur er 987 tonn svo að hann á að geta tekið að a.m.k. 600 tonn af síld, en það gefiur e'kki svo fáar tunn- ur. Hann er eina skipið sem við vifium um, sem igefiur kom íð síLdinni til söitunar eða frystingar í landi, meðan hún er svona langt í burtu. Við höfum ekki endanlega ákveð- ið hvar skipið landair, en fyrst í stað verður það einhver^ staðar á Norður- eða Austur- landi. Togarinn VLkingur er nú í - höfn á Akranesi, þar sem unn ið er að því að koma fyrir útbúnaði tii að hægt sé að frysta síLdina jafnóðum og hún kemur um boxð. Og um næstu helgi fer hann beint á miðin. — Hryggbrotnaði... Framhald af bls. 28 þeir ekki skilja enn hvernig þeir gátu það. Sverrir var fluttur í sjúkra- hús til myndatöku en síðan rak- leitt með flugvél til Reykjavík- ur, þar sem hann gekkst undir læknisaðgerð í gærkvöldi. Reynd ist hann hryggbrotinn og mátt- laus neðan við mitti. Liðan hans var sæmileg í dag. (Sv. P.) Skoðanokönnun i Coliforniu McCarthy í vil Sacramento, Calitforníu, 22. júlí — AP — SKOÐANAKÖNNUN, sem Merv- in Field hefur látið gera í Cali- forníu hefur, að hann upplýsir, leitt í ljós, að Califomíubúar hafi mestan áhuga á því að fá í embætti forseta Bandaríkjanna öldungardeildarþingmanninn Eu- gene McCarthy. Field segir, að roeirilhiLuti þeirra sem beðnir voru að velja miilli Huberts Humphreys, varatforseta og McCarfihys hafi valið hinn síð arnetfnda. Þar sem valið hatfi stað ið mi-lli McCarfihys og Nelsons A. RockefelLers ríkisstjóra hafi 43% kosið McCairthy, 41% Rocke feller og þar sem valið stóð milU Richards Nixons og McCarthys óskuðu aðeins 38% eftir Nixon en 49% eftir McCarthy. Mesit fylgi virtiist McCarthy hatfa fram yfir Ronald Reagan, ríkisstj óra, 61% gegn 22%. Elizabet Taylor skorin upp London, 22. júlí — AP — • LETKKONAN Eliiabeth Taylor liggur nú í sjúkrahúsi í London eftir tvær skurðað- gerðir, sem hún gekkst undir í síðustu viku. Var sú fyrri gerð á miðvikudag en hin sið ari á sunnudag og var sú, áð sögn læknanna „meiri háttar holskurður“ og getur Ieikkon- an iíklega ekki átt barn fram ar. Áður hafði verið sagt að báðar aðgerðirnar væru lítil vægar og til þess gerðar að lagfæra truflanir í móðurlífi. Líðan leikkoniunnar er sögð góð eftir atvikum, en hún þarf að vera í sjúkrahúsi í nokk- urn tíma. Elizabefih Taylor er nú 36 ára að aldri. Hún og eigin- maður hennar brezki leikar- inn Richard Burton eiga ekki börn saman, en fró fyrri hjóna böndum sínum á hún þrjú börn; tvo drengi, er hún átti með brezka leikaranum Mic- hael Wilding og eina telpu, er hún átti með bandaríska kvik myndaframileiðandanum Mike Todd. Meðan Blizabeth var gift söngvaranum Eddie Fisch er tók hún að sér litla þýzka telpu og gerði að kjörbarni sínu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.