Morgunblaðið - 23.07.1968, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 23. JÚLÍ 1968
5
Heimsókn á Seyðisfjörð:
Við getum smí&að báta, aflt
að 200 tonnum að stærð
Rœtt við Stefán Jóhannsson, eiganda
Vélsmiðju Seyðisfjarðar
VÉLSMIÐJA Seyðisfjarðar var
stofnuð árið 1907 og hefur ver-
ið starfrækt alla tíð síðan. Jó-
hann Hansson, vélsmiður var
eigandi hennar og aðalstjóm-
andi í rösk fjörutiu ár, en mörg
undanfarin ár hefur sonur Jó-
hanns, Stefán, annazt rekstur
fyrirtækisins. Vélsmiðjan hefur
Stefán Jóhannsson.
fyrir skömmu lokið smíði fyrsta
stálbátsins, sem smiðaður hefur
verið á Austurlandi og var sagt
frá því í Morgunblaðinu 4. júlí
sl.
Ég hitti Stefán Jóhannsson á
Seyðisfirði á dögunum og hann
veitti , mér fúslega nokkra
fræðslu um starfsemi og verk-
éfni vélsmiðjunnar.
— Þegar faðir minn stofnaði
Vélsmiðju Seyðisfjarðar átrið
1907, var það auðvitað fyrst og
fremst 'til a'ð gera við bátavélar
og oftast nær höfum við haft
nseg verkefni. Miilli þess sem við
gerðarþjónusta var veitt, fékkst
faðir minn meðal annars við að
smíða línuspil, og raunar var
hann stöðugt að vinna að upp-
finningum og endurbótum.
Hann byrjaði með sjálfdraga á
línuvindur árið 1935, en það
mæltist ekki vel fyrir, vegna
þes hve atvinnuleysi var mikið
og menn vildu ekki fækka á bát
unum. Því féll það niður, en
eftir stríðið var það tekið upp
og varð brátt útbreitt.
— Og Vélsmiðjan er eina fyr-
irtækið á Austurlandi, sem hef
ur fengizt við stálsmíði?
—• Já, einhvern veginn hefur
þet'ta þróaist svona upp úr við-
gerðum. Þegar verkefnin minnk
uðu í sambandi við síldveiðiflot
ann á ailra síðustu árum, þurft-
um við að líta í kringum okkur
og finna ný verkefni. Við byrj
uðum að undirbúa smíði stálbáts
ins— sem hlaut svo nafnið Val-
ur NK 108 — í tilefni af sextíu
ára afmæli vélsmiðjunnar á síð
asta ári. Undirbúningsvinna var
umfangsmikil og vegna anna við
síldveiðarnar drógust fram-
kvæmdir fram eftir haustinu, og
hófust ekki að marki fyrr en
eftir áramót. Við undirbúum nú
smíði á öðrum slíkum, og verð
ur sá svipaður að stærð og gerð.
— Hafið þið áhuga á að fara
út í stálsmíði í ríkara mæli en
hingað til?
— Ef markaður verður fyrir
hendi tel ég það vafalaust. Við
getum sem hægast smíðað báta,
allt upp í 50-200 tonn að stærð.
Að sjálfsögðu þyrftum við a’ð
afda kraftmeiri lyftitækja og
og bygja yfir starfsemina. Við
höfum átt i erfiðleikum með úti
smíði á veturna og þegar unnið
var að smíði Vals, reyndum við
að ljúka henni fyrir aðalsnjóa,
svo að við gætum unnið inni í
bátnum yfir veturinn.
— Hefur'ðu trú á að markað-
ur sé hérlendis fyrir báta af
þeirri stærð, sem þið treystið
ykkur til að smíða?
— Ég er alveg viss um að í
framtíðini verða það bátar frá
40 tonnum og upp í 250, sem út
vega vinnslustöðvunum hráefni
af heimamiðum. Það er hentug
og viðráðanleg stærð og mitt álit
er, að markaður sé talsverður.
— Hvað staÆa margir menn
að staðaldri hjá vélsmiðjunni?
— Milli 15-20 eru fastir hjá
okkur. Þegar síldveiðar standa
sem hæst eru þeir fleiri. Auð-
velt hefur verið að fá vinnu-
kraft. Áður var það erfiðara, en
nú er framboð meira en eftir-
Nýtt — nýtt
Somvyl veggefni
Somvyl klæðning er mjög góð hita- og hljóðeinangrun.
Vönduð vara gott verð
Klæðning hf. Litaver
Laugavegi 164 Grensásvegi 22 og 24
Sími 21444 Sími 30280.
Ódýrar ^jórsárdalsferðir
Hinar vinsælu eins dags hringferðir í Þjórsárdal eru
alla miðvikudaga kl. 9 og sunnudaga kl. 10.
Meðal annars er kornið i Gjána, að Stöng og Hjálpar-
fossi. Á austurleið er farið um Skálholt. Einnig er
ekið um virkjunarsvæðið við Búrfell. Verð aðeins
470 kr. Innifalið kaffi og smurt brauð á Selfossi.
Matarpakkar á kr. 100 ef þess er óskað.
Upplýsingar gefur B.S.Í. Umferðamiðstöðinni.
Sími 22300.
LANDLEIÐIR H/F.
efnir til hópferðar í bíl eða flugvél á fjórðungsmót
hestamanna að Egilsstöðum ef næg þátttaka fæst.
Bíllnn mundi leggja af stað fimmtudaginn 25. júlí.
Þeir sem áhuga hafa á ferðum þessum hafi samband
við skrifstofuna eigi síðar en kl. 12 á hádegi 24. júlí n.k.
STJÓRNIN.
Glæsileg eignaskiptí
Glæsileg endaraðhús á Seltjarnarnesi, rúmlega tilb.
undir tréverk 200 ferm. bílskúr. Góð lán áhvílandi. .
Sldpti á 4ra—6 herb. íhúð æskileg.
Fasteignasalan. Óðinsgötu 4.
Sími 15605.
Hestomonnafélagið
Fókur
I
Valur NK 108, 47 tonn að stærð. Fyrsti stálbáturinn sem er s
míðaður á Austurlandi. Myndirnar tók Leifur Haralds
son.
spurnin. Við höfum alla tíð haft
ágætt slarfsíólk, en það er frum
skilyr'ði fyrir velgengni hvers
fyrirtækis. Einnig höfum við að
jafnaði 5—6 lærlinga. Á Seyðis
firði hefur verið iðnskóli, svo
að menn hafa getað lokið iðn-
námi sínu hér. Samkvæmt nýju
lögunum á nú aðeins einn iðn-
skóli að vera í hverju kjördæmi.
Við hefðum vilja'ð fá Austur-
landsskólann til Seyðisfjárðar.
Ég held það sé varhugavert, ef
hann verður færður héðan, því
að það fælir bæjarmenn frá, ef
þeír geta ekki lokið námi hér.
h.k.
Hesthiísaeigendur í Kardimommnbæ
Áríðandi fundur verður haldinn i felagsheimilinu að
Freyjugötu 27, 2. hæð miðvikudaginn 24. þ.m. kl. 20.00.
Ái’íðandi að hesthúsaeigendur fjöimenni.
STJÓRNIN.
Íbíið til leigu
Til leigu er ný 4ra herb. íbúð með tvennum svölum við
Hraunbæ. Sanngjörn leiga. Laus strax.
Uppl. í síma 82368 eftir kl. 8 á kvöldin.
URVALS
NESTISPAKKAR
IFERÐALAGIÐ
fyrir félög, starfshópa og einstaklinga.
Þér sparið tíma og fyrirhöfn fyrir og á ferða-
laginu. Veljið réttina sjálf — hringið eða
komið í verzlunina.
Strandgötu 4,
Hafnarfirði,
sími 50102