Morgunblaðið - 15.08.1968, Page 2

Morgunblaðið - 15.08.1968, Page 2
2 MOBGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 19*68 Hætta á mengun vatnsins — ef fjárhald 1 borgarlandinu verðurekki bannað ÁKVEÐIÐ hefur verið að banna allt fjárhald í borgar- landi Reykjavíkur nú í haust, og hafa fjáreigendur í borg- inni tekið þeirri ákvörðun illa. Borgarstjóri, Geir Hall- grímsson, var spurður um þetta mál á blaðamannafundi sínum í gær og sagði hann, að deilan stæði um það, hvort hafa mætti fé í svokölluðum Fjárborgöm, sem fjáreigend- Frönsk stúlka með söluvarning FRÖNSK stúlka var tekin í vörzlu Iögreglunnar í gær. Hún Ihaíði verið að selja hátsfestar og annað glingur á móts við Skólavörðnstíg 13, og varð þar umferðarhnútur á angabragði. Lögreglan flutti ungfrúna niður á gtöð ásamt varningnum, sem var gerður upptækur. Málið er í rannsókn. um voru leigðar 1960 til fjög- urra ára. Borgarstjóri sagði, að gert hefði verið ráð fyrir því, að segja mætti samningunum upp með 6 mánaða fyrivara og var það gert 1963 og allt sauðfjár- hald jafnfram bannáð í Reykja- vík. En vegna vilja borgaryfir- valda til þess að leyfa mönnum þessa tómstundaiðju var þó ekki gengið eftir því að því banni væri framfylgt. Árið 1966 var bannið enn ítrekað en vegna beiðni fjáreigenda var aðgerðum enn frestað og í fyrra var til- raun gerð til þess að útvega annað svæði og hafði samningur verfð gerður um svæði á Hólms- heiði, sem fjáreigendur gátu sætt sig við. Skipulagsnefnd hafði samþykkt samninginn en þá skarst heilbrigðisnefnd í leik- inn og taldi hættu á að vatnsból Reykvíkinga menguðust, þ.e. Gvendabrunnar og Bullaugu. Eftir að borgarráð hafði fengið aðvaranir frá sérfræðingum, sem hnigu í sömu átt, treysti borgax ráð sér ekki til að staðfesta samn inginn og sagði borgarstjóri, a'ð segja mætti að um vanefndir af hálfu borgarinnar væri að ræða að því leyti. Fjáreigendum var tilkynnt um þessa afstöðu borg- arráðs og jafnframt boðið upp á viðræður um nýjar ráðstafanir. Stungið hefði verið upp á öðrum stö'ðum, en þeir hefðu ekki kom- ið til greina af skipulagsástæð- um. Við höfum gert ráð fyrir, sagði borgarstjóri, að fjáreigendur sættu sig við þá Staðreynd, að borgarlíf og fjárhald fara ekki saman. Mengunarhættan hefur verið könnuð frekar í vetur og ég hef sagt við fjáreigendur, að ég teldi að hvorki við né þeir vildu taka á sig þá hættu, sem af mengun leiddi. Okkur er því nauðugur einn kostur áð fram- fylgja þessu banni í ár og við höfum tjáð okkur reiðubúna til viðræðna um skaðabætur. Jákvæð afstaða tíl Loitíeiðamálsins Kaiuiprnannahöfn, 14. ágúst. Á undirbúningsfundi undir ráðstefnu samgöngumálaráðherra Norðurlanda, sem hefst í Kaup- mannahöfn á mánudag, var fjall að um óskir Loftleiða um flug- leyfi milli Kaupmannahafnar og New York. Þar var varlega farið í sakirnar en látin í ljósi jákvæð afstaða um óskir félagsins um iækkað verð á vöruflutningi og um leiguflug á sérstöku verði. Hinsvegrar var tekið dræmt í beiðni um fjölskylduafslátt. — Á þessum fundi, sem haldinn var í Stokkhólmi, voru engar ákvarð- anir teknar, það verður ekki gert fyrr en i Kaupmannahöfn. — Rytgaard. Nær 700 þús. kr. afhent- ar til myndlistarhúss — frá Kjarvalssýningunni SEIR Hallgrímsson, borgar- itjóri skýrði frá því á fundi neð blaðamönnum í gær, að ! fyrradag hefði Alfreð Guð- nundsson afhent borginni ýrir hönd sýningarnefndar i jarvalssýningarinnar kr. »92.169.74, sem væri nettó- igóði af Kjarvalssýningunni í Listamannaskálanum og mundi sú upphæð renna til byggingar myndlistarhússins á Miklatúni. Borgarstjóri sagði að annar salur hússins yrði væntanlega tekinn í notkun næsta haust en húsið allt fullbúið á árinu 1970. Þar mundu verða tveir salir, annar væri ætlaður eingöngu LAGÐI STRÆTISVAGNI ÞVEBSUM í HAFNARSTRÆTI fyrir sýningar á verkum Kjar- vals en hinn fyrir almennar sýn- ingar og væri með því ætlunin að skapa sem nánust tengsl milli ungra og upprennandi lista manna og meistarans, sem gnæfði svo hátt í íslenzkri mynd list. í anddyri og utan við húsið yrði einig komið fyrir ýmsum listaverkum. Þá skýrði borgarstjóri frá því, að í háhýsum í 3. áfanga Breið- holtsihverfis væri gert ráð fyrir sérstökum íbúðum, sem henta mundu m.a. sem vinnusalir fyrir listamenn. Pillumar tvær — andvirðið, 100 krónur og blaðið, Sem númer seðilsins var ritað á áður en kaupin fónu fram. Ljósm. Kr. B. - PILLUSALI Framhalð af hls. 28 för með okkur. Ungi maðurinn sýndi okkur seðilinn og við rit- uðum niður númer hans, svo og hann sjálfur. Síðan settumst við skammt frá pillusalanum og bið- um þess að ungi maðurinn kæmi og gerði kaupin. Nokkru síðar kom pilturinn og gaf sig á tal við manninn, sem sat ásamt öðrum yfir glasi af víni. Rædd'ust þeir við um stund unz kaupin fóru fram, en pillusalinn lét þess einnig getið við hinn unga mann, að ef hann vantaði fleiri pillur, skyldi hann bara hringja í sig. Félagi piliu- salans reit þá niður á miða nafn pillusalans og heimilisfang ásamt símanúmeri. Þakkaði pilturinn viðskiptin og hvarf á braut. Það var ekki um að villast, pilturinn kom með tvær pillur frá fundi við manninn og nú handtók lögreglúþjónninn mann inn. Maðurinn kom út með hon- um af frjálsum vilja og virtist hann dálítið ölvaður. Skömmu síðar kom lögreglubifreið og við héldum á lögreglustöðina. Á lögreglustöðinni var leit gerð á manninum. Engin pilla fanmst, en hins vegar ýmsir pappírar, sem við fyrstu sýn virtust vekja grun. Síðast sáum við til pillusalans, er hann fór í fylgd lögreglumanna inn í lög- reglubíl. Rannsókn málsims hófst í gær- morgun. Pillusalinn var þá yfir- 'heyrður og játaði hann að hafa selt pillurnar um kvöldið. Hann gaf þá skýringu að hann hefði fengið lyfseðil fyrir pillunum hjá einum af læknum borgar- innar, vegna lasleika og hefði hann síðan keypt pillurnar í Reykjavíkurapóteki. Lyfseðill- inn fannst þó ekki í apótekinu, þar eð maðurinn var í skuld við sjúkrasamlagið og hafði hann því fengið lyfseðilinn til baka með ógildingarstimpli. Lyfseðl- inum hafði hann týnt, svo og glasinu utan af töflunum. Við leit hjá manninum fannst ekk- ert grunsamlegt, en pillurnar, sem hanin fékk kvað hann upp- haflega hafa verið 50 að tölu og hafi hann átt þessar tvær eftir. Söluverð pillanna tveggja var að sögn pillusalans 100 krónur og vímblanda að auki og hann gat gert grein fyrir þeim plögg- um, er hann bar á sér. Mál þetta er enn í rannsókn. Við leituðum álits lyfjafræð ings á Valíum. Hann sagði að til væru þrjár styrkleikagráður af töflunum, sem væru róandi lyf. Lyfið er selt í 2ja, 5 og 10 rng styrkleika, sva að umræddar pill ur hafa verið af hæsta styrk- leika. Vérð einnar slíkrar töflu út úr lyfjabúð er um það bil 3 krónur, þamnig að söluverð pillu salans var tæplega 17 falt. Ekki kvað hann þetta lyf vera eitur- lyf, nema það sé tekið í miklum mæli og getur það orðið svo- kallað vanalyf og menn verða yfirleitt syfjaðir af ofnotkun þess. RÉTT fyrir hádegi langardag fyrir verziunarmannahelgi myndaðist umferðarhnútur í Hafnarstræti og stöðvuðust tugir bíla. Lögreglan fann brátt orsök teppunnar, en það var þá strætisvagn, sem lagt hafði verið skáhallt yfir strætið, svo að varla komst nokkur fram hjá nema fugl- inn fljúgandi. Undir stýri strætisvagnsins sat ungur maður, og er lög- regluþjónn bað hann flytja vagninn, neitaði hann og bar því við, að hann kæmist ekki inn á stæði Sólvallavagnsins rétt austan við Gleraugna verzlunina Optik. Bifreið stóð ólöglega í stæðinu, en hins vegar hefði vagnstjórinn get- að lagt framan við bifreið- ina og komizt þar með hjá því að teppa umferðina. Er vagnstjórinn hafði synjað beiðni lögregluþjóns ins var honum skipað að færa vagninn, en allt kom fyrir ekki. Sagði maðurinn við yfirreyrslur hjó rann- sóknarlögreglunni að sér hefði fundist lögregluþjónn- inn ekki koma fram af nægi legri kurteisi og því hefði komið upp í sér stífni, og þeir farið að þrátta. Var hann raunar mjög sár lögregluþjón inum, að hann skyldi ekki vilja rökræða málið í bróð- erni á staðnum meðan tugir bíla biðu eftir að komast á- fram. Umferðarstífla þessi leyst- ist þó áður en varði, þar eð vagnstjórinn varð að halda á ætlun og kominn var brott farartími vagnsins. Einhverj- um ónotum hreytti vagnstjór- inn í lögregluþjóninn, en við slíku eru viðurlög allt að 3ja ára fangelsi. Hitaveitan betur undir vet- urinn búin en áður — sagði borgarstjóri á fundi með blaðamönnum í gœr A HINUM reglulega blaða- mannafundi sínum í gær, var Geir Hallgrímsson, borgar- stjóri, spurður um ástandið í hitaveitumálum borgarinnar. Borgarstjóri sagði, að hita- veitan væri betur undir næsta vetur búin en hún hefði verið sl. vetur og betur en hún hefði verið seinni hluta vetr- arins en þá sköpuðust engir alvarlegir erfiðleikar. I stórum dráttum, sagði Geir Hallgrímsson, að viðhorfin í hita veitumálunum, væru þannig að síðari hluta sl. vetrar hefði verið til staðar varmamagn, sem numið hefði 174 gigakaloríum en þörfin hefði þá verið 173 gigakaloríur miðað vi’ð 6 stiga sívarandi frost. Borgarstjóri sagði, að búizt væri við að það húsrými, sem tengt hefði verið við hitaveituna á þessu ári tæki 8 gigakaloríur og væri þörfin því talin 181 gigakaloríur en varmamagnið sem fyrir hendi væri hefði auk- izt upp í 298 gigakaloríur skv. áætlunum hitaveitustjóra. Þessi aukning varamagns á rætur sín- ar að rekja til þess að boraðar hafa verið fjórar holur og verfð að bora þá fimmtu. Góður árang ur hefur náðst í tveimur þeirra en tvær hafa ekkert gefið. Búizt er við að þessar tvær holur gefi við samkeyrzlu um 100 sekúndu- lítar eða um 20 gigakaloríur en að auki hefur stórvirkum bor- dælum verið komið fyrir í öll- um stærstu borholunum og hefur það einnig aukið varmamagnið. Auk þessa hafa ýmsar ráðstaf- anir veri'ð gerðar á Reykjasvæð- inu og haldið áfram viðhaldi og endurnýjun i gömlu hverfunum og jafnfrEimt haldið áfram að setja hemla á einföldu kerfin. Hafa þegar verið settir 3500 heml ar af um 8500 sem ætlunin er að setja á einföldu kerfin, en við lok þessa árs verður búið að setja upp 4500 hemla. Borgar- stjóri sagði að þetta væru dýrar framkvæmdir en þær borguðu sig betur en að setja upp tvö- föld kerfi í stað hinna einföldu, eins og minnzt hefði verfð á. Þá upplýsti borgarstjóri að tæmingar á hitaveitugeymum hefðu sl. vetur verið 14 og nær allar fyrir áramót, en veturinn 1965—1966 hefðu þær verið 91-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.