Morgunblaðið - 15.08.1968, Qupperneq 26
26
MORGUNBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 15. ÁGÚST 1968
Er Best beztur?
§ ■ 1
■
-_____J
GEORGE BEST, „bítillinn" á
hægri kanti í meistaraliði
Evrópu, Manchester United,
er af mörgum talinn hezti
knattspyrnumaður heimsins.
Leikinn er hann með afbrigð
um og knattleikni hans og
hugmyndaflug í leik er á
þann veg, að fáir fá stöðvað
hann, þá er hann er í essinu
sínu. Hvort einhver einstak-
ur leikmaður getur borið heit
ið „hezti knattspymumaður
er vafasamt.
,
heimsins'
Aldrei er hægt að finna þann
mælikvarða, sem úr sliku
mundi skera afdráttarlaust.
En víst er, að við atkvæða-
greiðslu mundi Best fá .mörg
atkvæði — hvort sem hann
er beztur eða ekki. Ýmsum
Englendingum hefur fundizt
það einkennilegt, að hann er
ekki i landsliði Englands, þá
Léleg knattspyrna í 0-0
leik ÍBV og Fram
Fram misnotaði vítaspyrnu
JAFNTEFLI var í leik Fram
og Vestmannaeyja í gærkvöldi,
0—0, og má segja að það hafi
verið sanngjörnustu úrslit leiks-
ins. Að visu átti Fram gullið
tækifæri til að ná báðum stig-
unum, er þeir fengu dæmda
vítaspyrnu á 35. mín síðari hálf-
leiks ,en Helga Númasyni, sem
framkvæmdi spyrnuna, hrást
illa bogalistin og skaut framhjá.
Vestmannaeyingar áttu heldur
meira í fyrri hálfleik, án þess að
þeim tækist þó að skapa sér
verulega hættuleg tækifæri.
Þeir voru hins vegar heppnir er
Friðfinni Finnbogasyni tókst að
bjarga á línu.
í síðari hálfleik sótti Fram
meira, en ákaflega skipulags-
laust. Á 30 mín hálfleiksins átti
Enskn
knottspyrnan
f GÆRKVÖLDI fóru fram 8
leikir í 1. deildinni ensku. Eftir
þá eru Arsenal og Leeds einu
liðin sem hafa 2 vinninga.
Úrslit í gær urðu:
Ohelsea — Nottingham F. 1-1
Sheffield W. — Newoastle 1-1
Leeds — Q.P.R. 4-1
Manchester C: — Wolves 3-2
Southampton — Liverpool 2-0
Stoke — West Ham 0-2
Sunderland — Ipswich 3-0
W.B.A. — Manchester U. 3-1
Helgi skot sem virtist ætla að
lenda í netinu, en Sigurður Ingi
bakvörður var rétt staðsettur og
tókst að bjarga á línu. Fimm
mínútum síðar var Helgi aftur
á ferðinni og lék skemmtilega
af sér varnarleikmenn Vest-
mannaeyja og var kominn i
dauðafæri er honum var brugð-
ið. Magnús dæmdi réttilega
vítaspyrnu, en Helgi var óhepp-
inn og skotið geigaði.
Skömmu síðar áttu' Vest-
manniaeyingar eitt sitt bezta
tækifæri er Sævar skaut hættu
legu skoti af löngu færi. Þor-
bergur náði að slá boltann frá,
en þar kom Sigmar Pálmason
aðvífandi, en skaut framhjá.
Segja má, að knattspyroan
í þessum leik hafi verið á núll-
punkti, einkum þó í síðari háif-
leik. Þá gekk boltinn mest mót-
herja milli og meira virtist það
tilvi'ljun ef hann gekk milli sam
herja, en að um skipulegt spil
væri að ræða.
Beztan leik í Fram-liðinu
sýndi Helgi Númason, þrátt fyr-
ir að honum misheppnaðist illa
á örlagaríku augnabliki. Þá átti
Jóhannes Atlason bakvörður
einnig sæmilegan leik.
Sævar Tryggvason var bezti
sóknarleikmaður Eyjamanna, en
bezti vamarleikmaðurinn og
jafnframt bezti maður liðsins
var bakvörðurinn Sigurður Ingi
sem sýndi mikinn dugnað og var
ákveðinn. Magnús Pétursson
dæmdi leikinn vel.
Við þessi úrslit vaxa enn lík-
umar á að KR-ingar hljóti ís-
lendsmeistaratitilinn í ár. Fram
og Akureyri hafa reyndar enn-
þá möguleika, en þessi félög eiga
eftir að leika sín á milli á Akur-
eyri. Þá vaxa einnig möguleik-
ar Vestmannaeyinga til þess að
halda sseti sínu í deildinni, án
aukaleiks, þar sem þeix hafa nú
aftur tveimur stigum meira en
Keflavík.
Heimsliðabor-
óttan hefst
25. september
NÚ fer að líða að því, að Man-
chester Utd., liðið sem vann Evr
ópubikar meistaraliða, mæti
meistaraliði Suður-Ameríku í
keppninni um þaö, 'hvort sé
bezta félagslið heimsins.
Fyrri leikur Manch. Utd. og
Estudiantes fná Argentínu, en
svo heitir meistaralið S-Amer-
fku, er ákveðinn í Buenos Aires
25. s ept.
Það er von allra knattspyrnu-
unnenda að leikurinn sá verði
ekki jafn grófur, slagsmála-
kenndur og skammarlegur og
leikur Celtic og S-Ameríku-
meistaranna í fyrra.
Staðan
Staðan í 1. deild er nú þessi.
öll liðin eiga nú eftir tvo leiiki:
KR 8 2 1 23-13 1,2
Akureyri 8 3 4 1 14-8 10
Fram 8 3 4 1 13-10 10
Valur 8 2 4 2 13-11 8
ÍBV 8 2 15 11-19 5
ÍBK 8 0 3 5 3-16 3
Ellen Yngvadóttir
Hrafnhildur Guðmundsdóttir
Guðmundur Gislason
Leiknir Jónsson
Þau hafa náð OL-lágmarkinu í sundi
HÉR birtum við myndir af
þeim tveimur stúlkum og
tveimur herrum er náð hafa
lágmörkum Sundsambands ís
lands til þátttöku í Olympíu-
leikunum í Mexico. Þetta eru
gamlir kunningjar flestra
lesenda íþróttasíðunnar; hafa
öll margbætt metin í sínum
greinum og hafið ísl. sund-
íþrótt til meiri vegs en hún
hefur nokkru sinni áður náð.
Ellen Yngvadóttir, sem að-
eins er 15 ára, náði lágmark-
inu með glæsilegu meti 1:22.0
í 100 m bringusundi, en það
er nákvæmlega lágmarkið.
Hún hefur einnig margbætt
metið í 200 m bringusundi.
Hrafnhildur Guðmundsdótt
ir náði Iágmarki í 200 m f jór
sundi og það 1.3 sek betur en
lágmarkið. Hafði hún þá bætt
metið um 6 sek á rúmlega
tveimur vikum og m.a. orðið
önnur á danska meistaramót-
inu — en met hennar nú
hefði nægt til sigurs þar.
Hrafnhildur hafði hætt æfing
ur um skeið, en hóf þær á
ný sl. haust með svo glæsi-
legum árangri sem raun ber
vitni. Slíkt er einstætt í sund
íþróttinni.
Guðmundur Gíslason náði
lágmarkinu í 200 m fjórsundi
metið. Fari hann til Mexico
eftir að hafa stórum bætt ísl.
verða þetta þriðju Olympíu-
leikar hans, en slíku marki
hefur enginn ísl. sundmaður
náð, enda Guðmundur í sér-
flokki á mörgum sviðum
innan sundíþróttarinnar.
Leiknir Jónsson náði lág-
marki í 100 m bringusundi
með glæsilegu meti, en hefur
einnig margbætt metið í 200
m bringusundi bæði í stuttri
laug og langri.
Það verður erfitt fyrir
Olympíunefnd að velja úr
þessum hópi. Það virðist sem
annaðhvort fari þau öll eða
ekkert en með því að ná lág-
mörkunum eru þdu þegar kom
in hálfa leið til Mexico — ef
svo má að orði komast.
Olafur
Bjarki
hefur
forystu
Reykjavíkurmeistaramót í golfi
hófst hjá Golfklúbbi Reykjavík-
ur á þriðjudaginn. Voru þá
leiknar 18 holur og svo var einn
ig í gærkvöldi og verður á morg
un og keppninni Iýkur svo síð-
degis á laugardag.
18 kylfingar keppa í meist-
araflokki karla og eftir fyrsta
hringinin, 18 holur, er röðin
þannig:
1. Ólafur Bjarki Ragnarssom
78 högg.
2.—3. Gunnlaugur Ragnarsson.
Ólafur Ág. Ólafsson
83 högg.
4. Óttar Yngvason
84 högg.
5. Einar Guðnason
85 högg.
í 1. flokki eru keppendur 12
og röðin er þar eftir 18 holur:
1. Eyjólfur Jóhannesson
88 högg.
2. Þorvaldur Jóhanniesson
9i2 högg.
í 2. flokki eru keppendur að-
eins 8 og efstu menm að loknum
18 holum eru:
1. Gunnar Kvaran
98 högg.
2. Jóhann Möller
99 högg.