Morgunblaðið - 08.09.1968, Page 8
MORGUNBLAÐDÐ, SUNNUDAGUR 8. SEPTEMBER 1968
Dömur athugið
Við höfum pelsa, loðslá (capes), kraga, trefla og alls
konar skinn á boðstólum. Við önnumst hreinsun, við-
gerðir og breytingar á pelsum og styttingar á skinn-
og rúskinnskápum. Pelsarnir eru hreinsaðir í vél, sem
er ein sinnar tegundar hérlendis.
LAUFÁSVEGUR 19.
NORRCNA HÖSIÐ
POHJOLAN TAIO
NORDENS HUS
Bókavörður
Ungur íslenzkur bókavörður karl eða kona með fyrsta
flokks hgefni verður ráðinn að Norræna húsinu frá ca.
L nóvember næstkomandL Verður 1. árið skoðað sem
gagnkvæmur reynslutími.
Umsóknarfrestur: 1. október 1968.
í samráði við framkvæmdastjórann og ráðunauta á
þessu sviði á bókavörðurinn að
• annast uppbyggingu hins norræna bókasafns
Norræna hússins,
• annast pantanir í tímaritum og dagblöðum,
• annast kaup á hljómplötum og öðrum útbúnaði,
• byggja upp hagkvæmt kerfi fyrir bókasafnið,
• stjórna daglegum rekstri bókasafnsins, lestrar-
salarins og útlánastarfseminnar,
• aðstoða framkvæmdastjórann við önnur störf,
• vera staðgengill framkvæmdastjórans þegaar
hann er fjarverandi vegna ferðalaga, sumair-
leyfa og þess háttar.
NORRÆNA HÚSIÐ býður:
• Góð laun,
• skemmtilegt starf,
• vinarlegt umhverfi.
Umsóknir skuhx stílaðar til stjómarformanns Ármanns
Snævarrs háskólarektor og senda til
Ivar Eskeland, framkvæmdastjóra,
Norræna húsinu, Reykjavík.
B í )S L w 0 Ð
Sófosett
2 nýjnr gerðir
Svefnsóinr
Svefnsófnsett
ný gerð
Svefnbekkir
Skrifborðsstólor
20 gerðir
B Ú S L w 0 Ð
HÚSGAGNAVERZLUN
ViÐ NÓATÚN — SfMI 18520
Úr eldhúsinu. Skólastjóri leng st til hægri.
FRÁ LÖMGIJIVlVRI
Rætt við frk. Hólmfríði Pétursd óttur, skólastjóra
ÞEGAR ferðast er um breiða
byggð Skagafjarðar blaisa viða
við auguim frægir og iþekktir
staðir þar sem saga fortíðarinn-
ar gerðist. Hólar, Reynisstaður,
Víðimýri og Örlygsstaðir kalla
fram í huga ferðamannsins slitur
gamalla fræða, sem hann hefur
einíhverntímann numið, — eru
kannski að mestu gleymd, en
nöfnin ein eru töfrum slungin
og geymæt í minni. Sáðari tími
hefur skráð Bólu og Víðknýrar-
sel á spjöld sögunna.r Iþótt með
öðru letri sé. Og nútíminn hef-
ur gert höfuðból úr mörgu kotL
Eins hefur hann gert margan
garðinn frægan á annan veg en
þann að auka töðuvöllinn og
byggja fjós og hlöður.
Gegnt Varmalhlíð í Skagafirði
— í miðjum Hólminum — er býl
ið Löngumýri. Mér vitanlega
fara ekki af því neinar frásagn-
ir, sem nokkru varða. Hólastóll
var eigandi jarðarinnar um lang
an aldur, en hún var seld Sig-
urði Jónssyni hreppstjóra í
Krossanesi 1802 fyrir 810 ríkis-
dali og 8 sk. Eftir sem áður
hélst jörðin þó í leiguábúð og
var þar oft tvíbýli og stundum
fLeirbýli.
Svo var það árið 1913 að Jó-
hann Sigurðsson og kona hans,
Sigurldaug Ólafsdóttir, keyptu
jörðina og þar með myndaðist sú
aðstaða sem átti eftir að gera
Löngumýri að sögustað á nútíma
visu. Dóttir þeirra hjóna, Ingi-
björg stofnaði þarna húsmæðra-
skóla (kvennaskóla) 1944. Það
var ein af þeim góðu gjöfum sem
þjóðin fékk, er hún endurheimti
sjiálfstæði sitt að fullu.
Fröken Inigbjörg er um margt
óvenjuleg kona. Áhugi hennar
og dugnaður er mikill og djúp-
stæður. Rera verk hennar því
vitni. Með óbilandi trú á mál-
staðinn tókst henni að reka
þarna einkaskóla allt til ársins
1962, góðan skóla og vandaðan.
Réðilst hún í miklar þygginga-
framkvæmdir af litlum efnum —
að sjálfsögðu í áföngum — en
af djörfung og bjarbsýni, þótt
oft væri þungt fyrir fæti. Skóp
hún skóla sínum verðugt álit,
og munu námsmeyjar viða um
land minnast verunnar á Löngu-
mýri með þökk í huga.
Svo var það 1962 að Ingibjörg
gaf islenzku þjóðkirkjunni skóla
sinn, treysti henni til að reka
etofnunina áfram í þeim anda sem
henni var hugstæðastur. Sjálf
stjórnaði hún skólanum áfram til
vorsins 1967 að nýr skólastjóri
tók þar við starfi, frk. Hólm-
fríður Pétursdóttir úr Reykja-
víki
Þar sem mig langaði til að
forvitnast um þennan skóla kirkj
unrvar renndi ég einn daginn fram
í Löngumýri og náði tali af
skólastjóranum, sem tók mér hið
bezta og leysti greiðlega úr öll-
um mínum spurningum.
— Eins og þú sérð er hér allt
á rúi og stúi, sagði hún. Það
fara fram miklar endurbætur á
skólahúsum. Sett er tvöfalt gler
í alla glugga, gólf endurnýjuð
í þrem stofum og hitakerfi end-
urbætt. Hér eru byggingar að
mestu úr timbri og þurfa tölu-
vert viðhald, en nú varður að-
staða til kennslustarfisins hin
ákjósanlegasta, rúmgóð, björt og
hlý húsakynni.
— Hver er nármsferill þinn, og
ástæðan til þess að þú tóskt
þetta starf á hendur?
—Ég var í gagnfræðaskóLa,
Þaðan útskrifaðist ég vorið 1966.
Næsta vetur vaT ég svo á skóla
í Sigtúna í Svíþjóð. Sá skóli er
rekinn af sænsku kirkjunni og
er fyrst og fremist fyrir fólk,
sem vinnur að æskulýðsmálum á
kristilegum grundvelli.
— Og hverjar eru helztu
námsgreinar?
— Þær eru nánast tvígreind-
ar: þjóðfélags- og uppeldisfiræði,
og svo kristinfræði.
— Og hvensvegna 'hér?
Framhald á bls. 24
Löngumýri í Skagafiröi.
Úr vefstofunni.
;