Morgunblaðið - 08.09.1968, Qupperneq 10
- 10
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. SEPTEMBER 1988
ENGUM getur blandazt hugur um, að það sem átti einna
drýgstan þátt í að afla Alexander Dubcek þess dygga trausts
sem hann nýtur með þjóð sinni, var sú ákvörðun hans að
draga úr hörku gegn menntamönnum og rithöfundum
•íandsins, og koma því til leiðar, að ritskoðun var að mestu
afnumin.
Dubcek hóf feril sinn með því að láta undan kröfum
menntamanna um aukið andlegt frelsi í Tékkóslóvakíu.
Þeir rithöfundar, sem höfðu staðið fremstir í andstöðunni
gegn Antonin Novotny, fyrrv. forseta, fögnuðu ákaft er út-
gáfa aðalmálgagns þeirra var leyfð á nýjan leik, en hana
hafði Novotny látið banna. Jiri Heyndirich, sem hafði verið
einn af höfuðandstæðingum menntamannanna og stjórnað
hugmyndafræðilegum málefnum flokksins — þar í fólst að
hafa eftirlit með menningu og listum — var sviptur em-
bætti og frjálslyndari maður, Josef Spaeck, var skipaður í
hans stað. Spaeck var ekki seinn á sér að lýsa því yfir, að
það væri hrein goðgá, ef kommúnistaflokkurinn ætlaði sér
að segja listamönnum fyrir verkum.
, Árum saman hafði verið háð
hálfgerð styrjöld milli tékkneska
stjórnarvalda og lista- og mennta
manna, einkum þó rithöfunda.
Framan af mátti þó heldur líkja
þessari baráttu við þráskák en
skák æskilegra sóknarleikja. Þar
til á árin.u 1966 hafði eftirlit
stjórnvaldanna og flokksins ver
ið tiltölulega minna en til daemis
í Póllandi og Sovétríkjunum.
Tékkneska flokkstjórnin forðað-
ist hörkulega ritskoðun og gerði
lítið af því að banna birtingu
ritverka — en ritJhöfundar aft-
ur á móti notuðu sér með gát,
Iþað frelsi, er þeir höfðu.
En á árinu 1966 hóf flokks-
stjórnin sókn gegn rithöfundum
Stjórninni hafði auðsýnilega
brugðið mjög í brún, þegar tékkn
eska ritJhöfundasambandið sendi
þrjá fulltrúa til Moskvu til að
kanna staðreyndir í máli sovézku
rithöfundanna Siniavsky og Dan
iels. Síðan létu rithöfundasam-
tökin fara frá sér orðsendingu
um, að tékkneskir rithöfundar
mundu ekki sætta sig við sams
konar framkomu af hálfu tékkn-
eskra yfirvalda og sovézk stjórn
arvöld höfðu sýnt í máli rithöf-
undanna. Viðbrögð tékknesiku
stjórnarinnar voru þau, að láta
handtaka tvo lítt þekkta rithöf-
unda haustið 1966 og hóta að
setja á svið réttarhöld í stíl
Sinavsky-Daniel réttarhaldanna.
Úr því varð þó aldrei — og af
hálfu hins opinbera var því lýst
yfir, að mennirnir tveir hefðu
ekki verið handteknir vegna rit-
starfa, heldur fyrir aðrar sakir.
í desember sama ár lék stjórn-
in næsta leik. Novotny forseti
Literarnp Novotny
setti ný lög um blöð og frétta-
stofnanir, þar sem kveðið var á
um aukna ritskoðun og mennta-
mönnum og rithöfundum settar
ýmsar skorður varðandi skrif
þeirra. Nýtt menningar- og upp-
lýsingamálaráðuneyti er sett á
laggirnar og meginverkefni þess
var að halda aftur af mennta-
mönnum og rithöfundum.
Þannig stóðu málin, þegar
fyrsti úrdráttur úr bók ritfhöf-
undarins Ladislav Mnackos
„Forsmekkur valdsins" birt-
ist í bókmenntatímaritinu „Pla-
men.“ Ritskoðarar stjórnarinnar
Ladislav Mnacko
höfðu að vísu beitt skærum sín-
um á nokkrum stöðum, en þó
varð ljóst, að hér var á ferð-
inni athyglisvert rit. í næsta
blaði birtist annar kafli, og
hafði sá verið enn meira klippt-
ur og skorinn. Síðan ekki sög-
una meir og alger þögn ríkti
um bók Mnackoa í meira en
heilt ár.
Ladislav Mnacko er sá rithöf-
undur tékkneskur, sem einna
þekktastur er á Vesturlöndum,
ekki sízt eftir að ofanigreind
bönnuð bók hans var gefin út
víða á vesturlöndum. Mnacko er
fæddur 1919 á landamærum Mor
aviu og Slóvakíu. Foreldrar hans
voru efnalitlir og bjuggu við
kröpp kjö.r Mnactko hefur verið
kommúnisti frá unga aldri og af
sögu hans má ráða að það sem
er honum sérstakur þyrnir í aug
um, varðandi kommúnismann er,
hvernig það þjóðfélagskerfi get-
ur gert mönnum eins og „stóra
nanninum" fært að sitja
AlexanderDubcek
að völdum, enda þótt völd-
In hafi í raun og veru breytt
þeim úr byltingarsinnuðum hug
sjónamönnum í álgera einræðis-
herra, er lönigu hafa misst öll
mannleg tengsl við mennina, sem
þeir stjórna. Meginstef í sögu
Mnackos er sú krafa hans, að
hinn ótilgreindi „stjórnandi" sýni
meiri mannlegar tilfinningar og
siðferðilega ábyrgðartilfinningu.
„Við vitum fullvel hverju þú ert
andvígur. En þú ættir að reyna
að segja okkur, hvort þú ert
meðmæltur einhverju — og ef
svo er, þá hverju?" segir á ein-
um stað.
Bókin „Forsmekkur valdsins“
hefst á útför hins kommúnist-
iska einræðisherra, sem hefur
lofcs hrökklast úr valdastóli fyr-
ir hendi dauðans. Viðstaddur út-
förina er Frank nokfcur, fyrr-
verandi byltingarfélagi foringj-
ans og síðar hinn opinberi ljós-
myndari hans. Frank ljósmyndari
segir söguna um siðferðishrun
hins mikla manns og baráttuna
um sæti hans — að nokkru með
iþví að lýsa atvikum við útför
hans og áður meðan líkið stend
ur uppi og að öðru leyti með til-
vísunum aftur í tímann til atvika
í lífi einræðisherrans.
Erfitt er að segja til með ná-
kvæmni, hvenær barátta rithöf-
unda fór að bera ávöxt. En
mikla athygli innan lands og ut-
an, vakti næsti aðalfundur tékk
neska rithöfundasambandsins,
sem var haldinn í júní 1967. í>ar
urðu ákafar umræður um stefnu
stjórnarvalda í garð rithöfunda
og menntamanna og voru einkum
þrír menn, sem gengu þar fram
fyrir skjöildu og réðust einarð-
lega gegn ófrelsinu í andlegum
málum Tékkóslóvakíu.
OÞeir voru rithöfundarnir og
blaðamennirnir Ivan Klima, A.J.
Liehm og Ludvik Vaculik. Þeir
létu ekki staðar numið með gagn
rýni sína, að þinginu loknu, en
létu gremju sína óspárt í ljós.
Um þetta leyti stóð hvað mestur
styrr um Ladislav Mnacko og
bókina hans, sem að framan er
nefnd, þar sem hann hafði kom
ið handritinu úr landi og útgáfa
var í undirbúningi víða á Vestur
iöndum. Auk þesss fcom út nú
til afstaða Tékkóslóvakíu til deilu
Araba og ísraela og réðist Mnac-
ko gegn henni og sagði, að af-
staða stjórnarinnar væri runnin
af spilltum hvötum. í mótmæla-
skyui. hélt Mnacko sían til ísraels
og áður en hann fór sagði hann:
„I>að verður ag breyta skipu-
laginu í Tékkóslóvakíu á gagn-
verðan hátt, ef við ætlum að fá
staðizt sem sósíalist ríki, mann-
úðlegt og heilbrigt. Þessi grund-
roði og teygjanleiki laganna, sem
miðar að því að sniðganga lög-
in, þegar það hentar valdhöfum,
og möguleikar á að beita slík-
um lögum, þegar þau eru ekki
tiR er gerræði og verður að eiga
sinn endi.“
Við þessu áttu valdhafarnir
ekki annað svar en svipta Mn-
acko ríkisborgararétti sínum og
hann var jafnframt rekinn úr
kommúnistaflokknum. Bersýni-
legt var, að stjórnin var enn að
herða tökin á rithöfundum, sem
felldu sig ekki við að gleypa
gagnrýníslaust, þegjandi og hljóð
laust við öllum ráðstöfunum og
aðgerðum stjórnarvalda, og vildu
ekki una þeirri andlegu kúgun,
sem reynt var að beita þá.
í byrjun október 1967 eru
þremenningarnir, Liehm og
Klima og Vaculik refcnir úr
kommúnistaflokknum fyrir „pól-
itísk afglöp." Það vakti athygli,
að þeir voru allir Slóvakar, en
þeir hafa verið hvað háværastir
í kröfum um frjálslegri og lýð-
ræðislegri stjórnarháttu. Fjórði
rithöfundurinn Jan Pröhazka var
rekinn úr flokknum, en fékk þó
að halda flokksskírteini aínu.
Samtímis greip stjórnin til þess
ráðs, að málgagn menntamanna
í Slóvakíu, Literarny Noviny,
var sett beint undir stjórnmenn
ingar- og upplýsingamálaráðu-
neytisins — sem öðru nafni var
kallað áróðursmálaráðuneyti —
í Prag. Stjórnarvöld gerðu ítrefc
aðar tilraunir til að fá ritstjóra
blaðsins til að breyta um stefnu,
eða að minnsta kosti hallmæla
ekki gerðum stjórnarvalda, en
það tókst ekki. Ritstjórarnir sátu
fastir við sinn keip. Hins vegar
neyddust þeir til að láta ýmsa
áhrifamikla menn hætta að skrifa
í blaðið. Literary Noviny var
talið eina læsilega og opinskáa
ritið, sem gefið var út í Tékkó-
slóvakíu og áhrifa þess gætti nú
fyrir þann þrönga hóp, sem var
áskrifendur að því.
Rithöfundarnir þrír Klima, Va
culik og Liehm létu ekki ofsókn
Jiri Heyderich
Antonin Novotny
Þeir börðust gegn menntamönn
unum.
Sovézkir hermenn horfa tortryggnir á ljósmyndarann meðan þeir dreifa sovézka blaðinu
Pravda milli tékkneskra borgara á götum Prag fyrir fáeinum dögum.
ÓDÝRIR NIÐURSOÐNIR ÁVEXTIR
1/1 ds. ananas 35.00 og 39.75. — 1/1 ds. ferskjur 41.70. — 1/1 ds. bl. ávextir 55.70.
1/1 ds. perur 47.30. — Vi ds. jarðarber 32.55. — Vi ds. ananas 22.75. — Vi ds. bl. ávextir 34.75.
Vz ds. perur 29.75. — Vt ds. ferskjur 29.75. — Vi ds. aprikósur 24.95.
Mikið úrval af ódýru kexi. sultum og marmeðalaði.
Opið ulla dnga til kl. 8 síðdegis
Verzlunin opin (ekki söluop) kl. 8.30—20 s.d.
Söluturninn opinn frá kl. 20—23.30.
Einnig Iaugnrdngn og sunnudago.
Verzlunin Herjólíur
Skipholti 70 — Sími 31275.