Morgunblaðið - 08.09.1968, Side 23
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. SEPTEMBER 1968
23
Fréttir frá
Stykkishólmi
Stykkilshólmi 81. ágúst 1968.
IÞESSA viku sem nú er að
kveðja hefir verið leiðindatíð
við Breiðafj örð. Ekkert hægt að
athafna sig við sjóinn og því
um ekkert fiskirí að ræða. Hiand
færabátar ©ru nú senn að hætta
og hættir, enda hefir lítið verið
hægt að aðhafast í þessum mán
uði sökum leiðindatíðar. Hvað
um haustver'tíð verður er ekki
hægt að segja á þessu stigi má’s
ins. Helzt mun í ráði að athuga
um línuveiðar, en þá kemur
beituspursmálið til greina og
veit enginn hvernig úr því ræt-
ist.
Bátatrygging Breiðafjarðar
hefir nú starfað í 30 ár. Var
stofnuð áriið 1938. Þá voru 4 bát-
ar tryggðir og fyrstu stjórn skip
uðu Sigurður Ágústsson, útgm.
Sigurður Steinþórsson, kaupfé-
lagsstjóri og Guðmundur Jóns-
son frá Narfeyri. Var þessa af-
mælis nú sérstaklega minnst á
aðalfundi Bátatryggingarinnar,
sem haldinn var 29. þ.m. Starf-
semin hefir aukizt mjög hin sein
ustu ár með vaxandi bátaflota
og voru niðurstöðutölur rekstr-
arreiknings sl. ár um lö millj-
ónir kr. í stjórn eru nú: Sig-
urður Ágústsson, formaður, en
hann ihefir allan tímann verið
í stjórninni. Soffanías Cesilsson
útgm. Grundanfirðil, Víglundur
Jónsson útgm. Ólafsvík, Srvein-
björn Benediktsson, Hellissandi,
og Lárus Guðmundsson Stykk-
ishólmi. Framkvæmdastj órar
hafa verið Kristmann Jóhanns-
son og nú Ásgeir Ágústsson.
í seinustu veðrum hafa kart.-
öflugros fallið í görðum og snjór
sezt á fjal'lstoppana. Það má
segja að aldrei hafi tekið upp
snjó í fjöllum eins og svo oft
áður oggerir það þetta kalda vor
sem við fengum nú og sumar’ð
var ósköp stutt.
— Fréttaritari.
GtJSTAF A. SVEINSSON
hæstaréttarlögmí ður
Laufásvegi 8 - Sími 11171
Schannongs minnisvarðar
Biðjið um ókeypis verðskrá.
Ö Farirnagsgade 42
Kþbenhavn 0.
Nú er tækifærið til að gera
góð bílakaup.
Komið og skoðið notuðu bíl
ana í sýningarsölum ökfcar,
Hringbraut 121. Hagstæðir
greiðsluókilmálar. Nokkrir
bíLar seljast án útborgunar
— gegn slkuldabréfum.
ÓDÝRIR BÍLAR:
Skoda Octavia ’61.
Ford Conaul 315, ’62.
Mercedes Benz ’55.
Zephyr ’62.
Peugeot ’64.
DÝRARI BÍLAR:
Rambler Cdassic ’63.
RamMer Ciassic ’65.
Ohevy II Nova ’65.
Buiok Electra ’63.
Ramlex Olassic ’66.
Rambler American ’66.
Scout, jeppi ’67.
Prinz Gloria ’67.
Opel Admiral ’65.
Flymouth Belvedere ’66.
Dodge Dant ’66.
IfUI Rambler-
JUN umboðið (|§f
LOFTSSON HF.
Hringbraut 121 — 10600
lllllllllllllllllll
Hafnarfjörður
Byggingafélag Alþýðu hefur til sölu íbúð á Hólabraut
og aðra á Selvogsgötu.
Umsóknir um íbúðir þessar sendist formanni félagsins
fyrir 12. þ.m.
STJÓRNIN.
Rýmingarsala -
Rýmingarsala
VERZLUNIN HÆTTIR. — ALLT Á AÐ SELJAST.
ÓDÝR FATNAÐUR Á TELPUR.
Mikið úrval af fallegum og vönduðum kápum á
6—16 ára. Verð kr. 900 til 1500,—
Loðúlpur hlýjar og sterkar nr. 34—40.
Vatteraðar nyolnkápur nr. 38—40. Margir litir.
Dragtir á 6—15 ára frá kr. 1185.—
Buxnadragtir á 4—6 ára.
Flauelsskokkar og blússur á 6—10 ára.
Stretehbuxur, uliarbuxur og margt fleira.
Kaupið hlýjan og vandaðan fatnað handa telpunni.
Notið tœkifœrið og kaupið ódýrt
Verzlunin KOTRA
Skólavörðustíg 22 C — Símar 17021 og 19970.
Frá skólum gagnfræða-
stigsins i Kópavogi
Eins og í fyrra starfa þessir skólar á gagnfræðastiginu
í Kópavogskaupstað:
Gagnfræðaskólinn:
Hann sækja allir annars-, þriðja- og fjórðabekkjar
nemendur (þar með taldir nemendur landsprófsdeilda),
einnig all’ir fyrstabekkjar nemendur úr Austurbænum
og þeir fyrstabekkingar úr Vesturbænum, sem búsettir
eru austan Urðarbrautar eða við eftirtaldar götur:
Melgerði, Vallargerði, Kópavogsbraut, ÞinghóLsbraut,
Sunnubraut og Mánabraut.
Unglingadeild Kársnesskólans:
Þar verða allir fyrstabekkjar nemendur, aðrir en þeir,
sem áður eru taldir.
Nemendur sem þegar hafa sótt um skólavist næsta ár
þurfa að staðfesta umsóknir sínar sem hér segir:
Miðvikudaginn 11. þ.m. komi landsprófsnemendur og
nemendur IV. bekkjar kl. 9—12.
kl. 2—4 nemendur almenns III. bekkjar.
Fimtudaginn 12. þ.m. mæti nemendur II. bekkjar
kl 9—12 og kl. 2—4.
Föstudaginn 13. þ.m. mæti nemendur I. bekkjar
kl. 9—12 og kl. 2—4.
Ekki er unnt að tryggja þeim skólavist, sem ekki stað-
festa umsóknir sínar á nefndum dögum.
Unglingadeild Kársnesskólans hefur störf miðvikudag-
inn 25. sept. kl. 3 e.h.
Skólasetning Gagnfræðaskó’.ans verður auglýst síðar.
FRÆÐSLUFULLTBÚI.
Unglingaskrifborð
Framleidd úr tekk, verð kr: 3700.— einnig fallegar
forstofukommóður úr tekk á kr: 3500.— og ný gerð af
vegghúsgögnum.
G. SKÚLASON & HLÍÐBERG H.F.
Sími 19597.
SKOTFÆRI
alls konax
Komiið með gömlu
skot'hylikin og vilð
hlöðum þaiu
-€ x -f -Ý -t
6Æ5IN FLÝGUR^
EN HIÍN FlýóUR EKKI
FREYJGÖTU 1 — SÍMI 1 9 0 8 0
NÝR EIGANDI: CHRISTIAN WILLATZEN — SÍMI 24041
SENDUM GEGN PÓSTKRÖFU UM LAND ALLT.
BYSSUR TEKNAR í UMBOÐSSÖLU
GERUM VIÐ BYSSUR
0|g allis konair sportvönuir.
TJARNARBÚÐ
i HLJÓMAR
skemmta í neðri sal.
TATARAR
skemmta í efri sal.
til kl. 1. — Sími 19000.
TJARNARBÚÐ