Morgunblaðið - 08.09.1968, Qupperneq 28
28
MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 8. SEPTEMBER 1968
mjög ungur, heldur maður oft,
að maður elski einhvern, þó að
það sé alls ekki gvo á raun og
veru. Það er þessvegna, að svo
mörg hjónabönd fara út um þúf
ur, af því að fólk giftir sig af
ímyndaðri ást. Sem betur fór,
giftum við Hugíh okkur ekki.
Það hefði verið hrein ógæfa. En
nú getum við verið vinir. Og
;það fer miklu betur á því,
góða mín.
Kay þrýsti henni fastar að sér.
— Það er yndislegt, að þú skild-
ir taka þessu svona, Pam. Ég
er gvo fegin. Bara, að þú værir
líka hamingjusöm. Ef hann Jeff
bara. . . . Hún snarþagnaði.
Pam sagði: — Eg hef dálítið,
sem ég þarf að tala um við þig
seinna En í bili held ég, að þú
áttir að púðra á þér nefið, áður
en hann Hugh kemur heim.
Hún var öþolinmóð eftir að
geta komizt upp í herbergið sitt
til þess að raða myndinni saman
En áður en hún kæmist þangað,
kom Jefif hlaupandi og stöðvaði
hana.
— Hvað er þetta, sem ég
heiri, að hann Hugh gé kominn
heim? spurði hann. Og röddin
var eitfihvað einkennileg.
— Já, hann er kominn heim.
sagði hún.
— Vissirðu, að hann væri að
koma heim? spurði hann hvasst.
— Var það þessvegna, sem þú
ákvaðst svona snögglega að fara
til Englands?
— En hverju ætti það að
breyta þó að Hugh kæmi heim?
— Ég veit ekki, svaraði hann
ólundarlega. — Mér datt bara í
hug, að þú værir kannski hrædd
um að verða skotin í honum aft-
ur.
— Ég er ekkert hrædd um
það, svaraði hún rólega. — Við
erum búin að hittast og við er-
um vinir. Ertu ánægður meðþað
Jeff?
Hann stakk báðum höndum í
vasana.
49
♦«*"»- i
— Ég er bölvaður asni, urr-
aði hann, — og ég hef ekki nokk
urn rétt á að spyrja þig þessar-
ar spurningar, en . . . ég hef
öðru hverju enga hugmynd um,
hvað ég er að segja eða gera.
Að vera svona nærri þér og
geta ekki. . . Og samt get ég
ekki brugðizt henni Phyllis. Hún
treystir mér og segir, að það
varði líf sitt.
Hann snerist snöggt á hæli
og gekk burt.
Hún hélt áfram til herbergis
síns, hægum skrefum. Hvað höfðu
þessi orð Jeffs verið annað en
ástarjátning til hennar? Ogsamt
fann hann sig bundinn Phyllis.
Hún kreppti hnefana. Bara að
hún gæti komizt að nokkru. . . .
einhverju. . hverju sem er .
Tímunum saman sat hún í her
berginu sínu og reyndi að koma
myndinni saman Það var erfið-
ara en nokkur myndagáta, sem
hún hafði nokkurntíma komizt í
tæri við. Helmingi erfiðara, en
10 ÁRA ÁBYRGÐ
TVÖFALT
EINANGRUNAR-
GLER
rnsla hérlendis
SIM111400 EGGERT KRISTJANSSON&CO HF
r
10 ÁRA ÁBYRGÐ
LOKSINS!!!
er POP1P1AC
komiö á markadinn
Nú en hvar er ekki verkur?
bara miklu meira spennandi. í
fyrstunni virtist þetta vera al-
gjörlega vonlaust verk. Engin
tvö stykki féllu saman, eða þá
sjaldan þau gerðu það, var ekk-
ert vit að finna út úr þeim, en
þá fann hún allt í einu eitt
snifsi, með eyra á. Það var nú
ekkert merkilegt við það, nema
eyrnarhringurinn. Þungur hring
ur með steini í. Á skipinu hafði
hún séð Phyllis með nákvæm-
lega eins eyrnahring!
Eftir þetta kepptist hún enn
meira við og vildi hún ekki leng
ur viðurkenna neinn ósigur.
Loks náði hún í handlegg með
skrift á: „. . . .elskan Phyllis".
En ekki meira. En hvað gat
þetta annað verið en mynd af
Phyllis? Mynd af Fhyllis í ást-
arhreiðrinu hans Ruthers, eins
og hann kallaði það.
Þetta var ekki mikil sönnun,
en þó betra en ekkert.
f miklum æsingi fór hún að
finna Kay. Hún fór með hana
inn í herbargið sitt og sýndi
henni stykkin, sem hún hafði rað
að sáman.
— Hvað finnst þér um þetta?
spurði hún. — Heldurðu, að það
þýði sama sem, að Rufihers og
Phyllis. . . .?
Kay kinkaði kolli dræmt. —
Það kynni að vera. Sú var tíðin
að allir nágrannarnir voru að
segja sögur af þeim. En það virð
ist ekkert hafa orðið úr því. Samt
sem áður hefur mig alltaf grun
að, eitfihvað í sambandi við hann
hafi komið henni til að fara
svona snögglega að heiman síð-
ast.
— Hvað finnst þér við ættum
að gera í málinu? spurði Pam,
Það varð ofurlítil þögn og
þær horfðu báðar á rifrildin af
myndinni.
— Við gætum sýmt honum Jeff
það, sagði Kay loksins. — En
það er nú annars veik sönnun
til að nota, Pyhllis til áfellis. Það
yrði auðveit fyrir hana að snúa
sér út úr því, og koma með ein-
hverja góða og gilda skýringu á
því, að myndin var þarna heima
hjá Ruthers.
Aklirnar á Pam sigu í örvænit-
ingu. — Þú heldur þá ekki, að
við getum haft neitt gagn af því,
að myndin skuli hafa verið
þarna?
— Ég veit ekki, svaraði Kay
lágt. Kannski og kannski ekki.
Hún rétti úr sér og röddin
varð einbeittari. Heyrðu mig,
Pam. Við skulum aka heim til
hennar Phyllis og bera það upp-
8. SEPTEMBER.
Hrúturinn, 21. marz — 19 apríl.
Þér koma ýmsar fréttir á óvart. Kirkjan gæti haft gagn af stuðn
ingi þínum. Heimsæktu einhverja kunningja í kvöld, sem þú hef-
ur vanrækt lengi.
Nautið, 20. apríl — 20. maí.
Ef þú hefur verið lausmáll, verður því haldið á lofti í dag með
kvenna hjálp. Vinir þínir gera sér ekki ljóst, að þú ert hjálpar i
þurfi. Eyddu kvöldinu á fábrotinn hátt.
Tvíburarnir, 21. maí — 20. júní.
Lífið er einfaldara, ef þú heldur fólki í dálítilli fjarlægð.
Farðu í kirkju, og þér mun verða styrkur 1 því. Reyndu að ná
sambandi við gamla vini.
Krabbinn, 21. júní — 22. júlí.
Gerðu gagn í kirkjusókn þinni, og njóttu dagsins sem bezt á
eftir.
Ljónið, 23. júlí — 22. ágúst.
Reyndu að skríða úr híði þínu. Farðu fyrst í kirkju. Reyndu
síðan að athuga möguleikana á nýjum samböndum, vertu athafna
samur, og farðu seint að hátta. |
Meyjan, 23. ágúst — 22. sept.
Gegndu hlutverki þínu með virðuleik. Takmarkaðu eyðslu
þína í skemmtanir. Og njóttu kvöldsins vel.
Vogin, 23. sept. — 22. okt.
Góðar fréttir berast þér með ýmsu móti, og njóttu þess heill.
Þú skalt gjarnan leyfa þér einhvern munað.
Sporðdrekinn, 23. okt. — 21. nóv.
Treystu á skynsemina. Enginn vina þinna virðist ætla að gera
þér til hæfis, en mundu, að mikið næðir á þeim líka.
Bogmaðurinn, 22. nóv. — 21. des.
í dag er áframhald frá gærdeginum, með sama árangri. Njóttu
þess að vera meðal vina.
Steingeitin, 22. des. — 19. jan.
Notaðu skipulagningarhæflleikana til hins ýtrasta, og vertu
mikið á ferðinni. Kvöldið getur orðið stórskemmtilegt.
Vatnsberinn, 20. jan. — 18. febr.
Haltu áfram að gæta fyllstu varúðar gegn slysförum. Margt er
fréttnæmt og hvetjandi, e.t.v. áskorun til einhvers.
Fiskarnir, 19. febr. — 20. marz.
Skörp undirvitund þin og Skilningur á mannlegum samskiptum
verður hvattur, bæði vegna þess, sem er að ske, og eins vegna
þeirra sem þú umgengst. Segðu meiningu þína.
H.F. ÖLGERÐIN EGILL SKALLAGRIMSSON