Morgunblaðið - 26.09.1968, Síða 14
14
MORGU'NBLAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. SEPT. 1908.
JNwgtiiifrfiKMfr
Utgefandi
Framkvæmdastjóri
Ritstjórar
Ritstjórnarfulltrúl
Fréttastjóri
Auglýsingastjóri
Ritstjóm og afgreiðsla
Auglýsingar
Askriftargjald kr 120.00
1 lausasölu.
Hf Arvakur, Reykjavík.
Haraldur Sveinsson.
Sigurður Bjamason frá Vigur
Matthías Johannessen.
Eyjólfur Konráð Jónsson.
Þorbjöm Guðmundsson.
Bjöm Jóhannsson.
Árni Garðar Kristinsson.
Aðalstræti 6. Sími 10-100.
Aðalstræti 6. Sími 22-4-80.
á mánuði innanlands.
Kr. 7.00 eintakið.
VIÐRÆÐUR STJORN-
MÁLAFL OKKANNA
l/iðræður stjórnmálaflokk-
* anna um leiðir til lausn-
ar efnahagsvandans hafa nú
staðið um nokkurra vikna
skeið og í yfirlýsingu, sem
gefin var út í fyrradag, kom
fram, að gagnasöfnun er enn
ekki lokið. Hins vegar hefur
það komið skýrt fram í yfir-
lýsingum, sem flestir eða allir
stjórnmálaleiðtogarnir hafa
látið frá sér fara, að ríkur
vilji er til þess að reyna til
þrautar að ná samkomulagi
um leiðir til þess að leysa
hinn mikla vanda sem að þjóð
inni steðjar. Það mun og vera
vilji alþjóðar, að svo vel tak-
ist til í þessum viðræðum.
Ljóst er þó, að ekki eru
allir aðilar á því að stuðla að
þessari samkomulagsviðleitni.
Kommúnistablaðið hefur
hvað eftir annað skrifað um
þessar viðræður á þann veg,
að hugur þeirra, sem þar ráða,
er öllum ljós. Kommúnista-
blaðið hefur gagnrýnt þá á-
kvörðun ríkisstjórnar að
leggja á 20% innflutnings-
gjald um sama leyti og við-
ræðurnar hófust. Það var þó
orðið öllum ljóst að gera varð
ráðstafanir til þess að koma
í veg fyrir spákaupmennsku
í kjölfar langvarandi við-
ræðna stjórnmálaflokkanna
og tryggja þannig, að ekki
yrði gengið svo á gjaldeyris-
varasjóðinn, að hann yrði upp
urinn á skammri stundu.
Kommúnistablaðið hefur einn
ig gagnrýnt ferð Jóhanns
Hafsteins til Sviss, sem bar
þann mikilsverða árangur, að
framkvæmdum við Straums-
vík og Búrfell verður vænt-
anlega hraðað mjög og bætir
það að sjálfsögðu mikið at-
vinnuástandið í landinu.
Nöldur kommúnistablaðs-
ins vegna þessa sýnir glögg-
lega, að því er ekki mjög um-
hugað um raunhæfar aðgerð-
ir til þess að auka atvinnu í
landinu. Loks fjargviðrast
kommúnistablaðið nú mjög
yfir því, að tveir embættis-
menn og einn ráðherra hafa
haldið utan til þess að reka
erindi lands og þjóðar. Sýnir
það upphlaup, að kommún-
istablaðið notar hvert tæki-
færi til þess að skapa tor-
tryggni meðal fólks um góð-
an vilja stjómarflokkanna í
þessum viðræðum.
Málgagn Framsóknarflokks
ins hefur verið mun málefna
legra í skrifum sínum um við
ræðurnar, en gagnrýnt, að
gagnasöfnun skyldi ekki hafa
lokið, áður en viðræðurnar
hófust. í fyrsta lagi er ljóst,
að svo mikið er komið undir
síldveiðunum í sumar, að úti-
lokað var með öllu að fá yfir-
sýn yfir alla þætti málsins
um það bil sem viðræðumar
hófust, og í öðru lagi mætti
ætla, að stjórnarandstöðu-
flokkunum þætti nokkur feng
ur að því að fylgjast með
gagnasöfnuninni og bera
fram sérstakar óskir og ábend
ingar í því sambandi.
Þá hafa einnig heyrzt þær
raddir í herbúðum stjórnar-
andstæðinga að tilboð ríkis-
stjórnarinnar um viðræður
sýni, að stjórnin hafi gefizt
upp, og þess vegna eigi hún
að segja af sér, en starfa sem
bráðabirgðastjórn um skeið.
Þessi skoðun er fjarri öllu
lagi. Stjórnarflokkarnir fengu
endurnýjað traust þjóðarinn-
ar fyrir rúmu ári og hafa
meirihluta á Alþingi. Þeir eru
reiðubúnir að takast á við
vandann, en vegna þess hve
hann er mikill hafa þeir talið
eðlilegt að taka upp viðræð-
ur og samráð við stjórnarand
stöðuna um lausn hans. Sú
afstaða er í alla staði eðlileg
og heilbrigð og vafalaust í
samræmi við vilja þjóðarinn-
ar. Þess ber því að vænta,
að þessar viðræður haldi á-
fram í góðum anda og að ill-
viljaðir menn láti af þeirri
viðleitni að koma tortryggni
og vantrausti upp milli
manna.
KOSNINGABAR-
ÁTTAN í BANDA-
RÍKJUNUM
!/■ osningabaráttan í Banda-
ríkjunum fer nú síharðn
andi. Einna mesta athygli vek
ur sú fylgisaukning sem
Wallace fyrrum ríkisstjóri í
Alabama virðist hljóta þessa
dagana, og er hún vissulega
uggvænlegt merki um við-
horf almennings í Bandaríkj
unum. George Wallace hefur
á síðari árum orðið helzti tals
maður afturhaldsaflanna í
Bandaríkjunum, sem berjast
gegn þeirri viðleitni að bæta
hag blökkumanna þar í landi.
Fari svo, að hann hljóti veru-
legt fylgi í kosningunum verð
ur það mikill álitshnekkir
fyrir Bandaríkin.
Bandaríkin standa nú að
mörgu leyti á vegamótum.
lla ram iln uriMi
u IAN UK HtlMI
Nýtt þýzkt „efnahagsundur"
0 Nýtt »,efnahagsundur“
er að gerast í Vestur-
Þýzkalandi.
0 Mikil gróska er í efna-
hagslífinu, svo til allir
hafa vinnu — samt er
verðlag stöðugt.
• Þetta er árangur bar-
áttu ríkisstjórnarinn-
ar, iðnrekenda og verka-
lýðssamtakanna við að
halda verðbólgu niðri.
Vestur-Þýzkaland er að
sýna Bandaríkjunuim og um-
heiminum í heild hversvegna
það er hagstætt að berjast
gegn verðbóJ'gu.
I dag er vestur-þýzka mark
ið talið styrkasti gjaddmiðill
heimsins. Allir vilja kaupa
þýzku mörkin, og talað hefur
verið um að hækka beri
gen.gi marksins gagnvart öðr-
um gjaldeyri.
Á sama tíma hefur ný
gróska færzt í vi'ðskiptalífið,
eftir að dregið hafði úr efna-
hagsþróuninni lítillega um
skeið. Ekkert virðist geta
skyggt á áframhaldandi vel-
megun.
Afköst verksmiðjanna eru
nálægt hámarki, hagnaður
fer hraðvaxandi, næga at-
vinnu er að hafa. Þrátt fyrir
þetta hefur verðbólgan svo
til verið stöðvuð.
TEKIZT Á VIÐ
VERÐBÓLGUNA
Þessi óvenjudega sameming
velmegunar, svo til nægrar
atvinnu og stöðugs verðlags
— sem sumir nefna „nýtt
þýzkt efnahagsundur“ — er
árangur ákvörðunar um að
takast með festu á við
verðbólgu, sem ógnaði efna-
hagslífi VesturÞýzkalands fyr
ir fáum árum.
Bandaríkin, sem sjálf eiga
í harðri baráttu við verð-
bólguna, geta ef til vill lært
af þessu fordæmi.
Áður en gripið var til þess
ráðs á síðustu stundu að
hækka tekjuskatta í Banda-
ríkjunum, fór verðgildi doll-
arans hTaðminnkandi. Sama
var að segja um trúna á doll-
arann. Enn í dag telja margir
erlendir bankastjórar gildi
dolarans vafasamt. Og ekki
er að sjá að mikið dragi úr
kapphlaupinu milli kaup-
gjalds og verðlags í Banda-
ríkjunum.
Það sem meira er, mairgir
hagfræðingar og bankastjór-
ar í Evrópu óttast að ef eitt-
hvað tekur að bera á sam
drætti í viðskiptum í Banda-
rikjunum, verði gefizt upp í
baráttunni gegn verðbólgu.
Þjóðverjar fyrir sitt leyti
að hætta á samdrátt til að
ráða bót á verðbólgunni. Frá
því árið 1965 hefur ríkisstjóm
in haldið fast niðri ofþenslu,
sem var að verða óviðráðan-
leg. Skortur veit þá mikili á
verkamönnum. Kaupgjald
snarhækkaði um 10% á ári,
tvöfalt meira en framleiðslan
jókst. Verðlag hækkaði um
4—5%, svipað og nú í Banda-
ríkjunum.
Vestur-þýzka stjórnin greip
til þess ráðs að takmarka
íánsfé, og lántökur urðu dýr-
ari. Dregið var úr opinberum
framkvæmdum.
Árangurinn reyndist sá að
árið 1967 kom fyrsti aftur-
kippurinn í viðskiptum í 20
ára þróun. Neytendur lokuðu
pyngjum sínum. Framleiðsla
minnkaði. Sama var að segja
um fjárfestingu iðnfyrir-
ans í ár sogir meðal arunars:
„f fyrsta skipti á átta ár-
um hefur nú hætt að draga úr
verðmæti peninga okkar að
því er varðar kaupgetu neyt-
enda .... Við höfum sannað
að unnt er að komast hjá
verðbólgu.“ Á síðasta ári hef-
ur framfærslukostnaður hækk
að um 0,9%. Flestar hækk-
anirnar eiga rætur sínar að
rekja til hækkaðs söluskatts,
en ekki hækkaðs vöruverðs.
Það sem nú er að gerast
er þetta:
Heildarframleiðsla hefur
farið vaxandi á árinu, og er
nú talið að hún muni aukast
Þýzkar iðnaðarvörur vinna stöðugt á erlendis.
tækja í nýjum verksmiðjum
og vélum. Atvinnuleysi jókst
árið 1967 og varð meira en
þekkzt hafði í átta ár.
Margir spáðu því að „efna-
hagsundrið" þýzka væri liðið.
Meðan á þessum samdrætti
stóð sýndu þýzkir verkamenn
ótrúlega mikla samstöðu með
ríkisstjórninni í baráttu
hennar gegn verðbó'lgunni.
Drógu þeir af fúsum vilja úr
kauphækkunum.
„Almenninigur í Þýzkalandi,
og þá sénstaklega verkamað-
urinn,“ segir einn þekktasti
hagfræðingur Vestur-Þýzka-
lands, „þekkir og óttast afleið
ingar verðbólgu. Hörmulegar
afleiðingar verðbólgunnar,
eem fylgdi í kjölfar heims-
styrjaldanna tveggja, eru
ekki enn glfeymdar."
BETRI EN NOKKURN-
TÍMA FYRR
Tilraunin tókst. Samdrátt-
urinn reyndist minni en
margir óttuðusit.
Nú segja leiðtogarnir, eins
og einn þeirra komst að orði:
„Efnahagur Þýzkalands er
betri en nokkum tima fyrr.“
Bankastjóri í Frankfurt
segir: „Ljósf er að uppstokk-
unin árið 1967 leiddi til nýs
og þróttmikils vaxtar í efna-
hagslífinu, sem sennilega á
eftir að haldast út árið 1969
og fram á árið 1970.“
í skýrslu þýzka Ríkisbank-
um 514% árinu 1968. Þetta er
„hreinn" vöxtur — án alilra
verðhækkana. Nær þessi vöxt
ur til nærri allra greina iðn-
aðarins.
Framundan fyrir árið 1969,
að sögn hagfræðinga, er ný
„hrein aukning framleiðsl-
unnar um að minnsita kosti
5%.
Kaupgjald við iðnaðinn
hækkaði um 5% á síðasta ári,
og er það lægsta hækkun í
Evrópu. Framleiðsiluaukning
á sama tíma varð mun meiri.
Jókst framleiðslan um 10%
frá fyrra ári.
ALDREI MEIRI
HAGNAÐUR
Viðskiptahagnaður fer einn-
ig stöðugt hækkandi, og hefur
hækkað um að meðaltali 25%
á ári frá því í byrjun 1967.
Sumir iðnrekendur segja
hrei’nskilnislega að þeir hafi
aldrei borið j afn mikið úr být-
um og á síðaista ári.
Meðan viðskiptin aukast er
iðnaðurinn að auka smíði
nýrra verksmiðja og lagfæra
þær eldri. Atvinnuleysi er að
hverfa. Við síðustu talningu
reyndist aðeins 1% af verka-
mönnum Vestur-Þýzkalands
vanta atvinnu, miðað við
2,3% þegar verst lét. Þessar
hlutfaLlstölur virðisit lágar á
bandarískan mælikvarða. En
þær verða hærri þegar fcaft
Framh. á bls. 19
Þau hafa frá stríðslokum haft
sig mjög í frammi á alþjóða-
vettvangi og haft afskipti af
ýmsum málum. Nú bendir
margt til þess, að styrjöldin í
Vietnam hafi orðið til þess,
að Bandaríkjamenn endur-
meti afstöðu sína til afskipta
á alþjóðavettvangi og að
næsti forseti Bandaríkjanna
verði ekki jafn athafnasamur
í alþjóðamálum og fyrirrenn-
arar hans hafa verið allt frá
dögum Rosevelts.
Þegar höfð eru í huga hin
stórkostlegu vandamál, sem
við er að etja í Bandaríkjun-
um sjálfum og þá fyrst og
fremst réttindamál blökku-
manna og fátæktin, sem víða
eru geysimikil, er eðlilegt, að
Bandaríkjamenn telji nauð-
synlegt að einbeita kröftum
sínum og fjármagni að lausn
þeirra vandamála. Annað mál
er hvaða afleiðingar það hef-
ur á alþjóðavettvangi, ef
Bandaríkin draga sig inn í
sína skel.