Morgunblaðið - 26.09.1968, Blaðsíða 18
18
MORGUNELAÐIÐ, FIMMTUDAGUR 26. SEPT. 1908.
Andrea Þóra Eiríks-
dóttir — Minning
Þú áttir þrek og hafðir verk
að vinna
og varst þér sjálfri hlífðarlaus
og hörð
þú vaktir yfir velferð barna
þinna
þú vildir rækta þeirra ættarjörð.
Frá æsku varstu gædd þeim
góða anda
sem gefur þjóðum ást til sinna
landa
og eykur þeirra afl og trú.
En það er eðli mjúkra móður
handa
að miðla gjöfum eins og þú.
Þetta hugljúfa erindi eftir
Davíð Stefánsson kom mér í
hug, er ég frétti andlát frú And-
reu >óru Eiríksd., mér fannst
það sem talað til hennar. Er ég
hugleiddi lífsstarf þessarar mik-
ilhæfu ágætis konu. >að er að
jafnaði hljótt yfir störfum þeirra
kvenna er eingöngu vinna sín
störf innan veggja heimilisins
og helga manni og börnum allt
sitt líf. Þó eru þessar konur að
gegna mikilvægustu ábyrgðar-
störfum sem til eru í hverju
þjóðfélagi. Það er að móta og
ala upp þá þegna sem landið
eiga að erfa
Þóra Eiríksdóttir en svo var
hún að jafnaði nefnd, var fædd
Móðir mín,
Sigríður Zoega
ljósmyndari,
andaðist á Borgarspítalanum
þriðjudaginn 24. þ.m.
Bryndís Jónsdóttir,
Eiginmaður minn, og faðir
okkar,
Sigurður Sölvason
kaupmaður, Skagaströnd,
andaðist á Héraðshælinu á
Blönduósi 24. sept.
Margrét Konráðsdóttir,
Erla Sigurðardóttir,
Arni Sigurðsson,
Hallgrímur Sigurðsson.
Þökkum innilega samúð og
vináttu við andlát og jarðar-
för eiginkonu minnar, móður
okkar og ömmu,
Ástu Sigurðardóttur
Skálagerði 15.
Guðni Erlendsson,
börn og barnabarn.
Faðir okkar og tengdafaðir,
Finnbogi Árnason
yfirfiskmatsmaður,
verður jarðsunginn frá Foss-
vogskirkju föstudaginn 27.
þ.m. kl. 1.30.
Kristinn Finnbogason,
Guðbjörg Jóhannsdóttir,
Magnea Finnbogadóttir,
Þorlákur Runólfsson,
Jóna Finnbogadóttir,
Björn Björnsson,
Guðrún Finnbogadóttir,
Ögmundur H. Stephensen.
14. júlí 1906 að Smærnavöll-
um í Garði í Gerðahreppi. For-
eldrar hennar voru sæmdarhjón
in Guðrún Sveinsdóttir og Ei-
ríkur Guðmundsson. Þóra ólst
upp í foreldrahúsum ásamt 5
systkinum sínum. Árið 1930 igift
ist Þóra þann 7. júní eftirlifandi
manni sínum Árna Pálssyni húsa
smíðameistara frá Seyðisf. Þau
hjón eignuðust 7 börn, 4 syni
og 3 dætur, auk þess ólu þau
upp stúlku sem þau tóku kom
unga, og gengu henni í foreldra
stað, var hún systurdóttir frú
Þóru. Þau hjón urðu fyrir þeirri
miklu sorg að missa alla synina
4, 2 þeirra dóu í æsku en 2
létust uppkomnir, mestu efnis og
ágætismenn, og má geta nærri
hversu djúpur harmur slíkur sona
missir hefur skilið eftir í 'hjarta
jafn næmgeðja og ástríkrar móð
ur sem Þóra var, en í sorg sinni
var hún stærst og bar sína
harma eins og sannri hetju sæmdi
enda var hún trúkona mikil og
fól sínar sorgir Guði sínum.
Ég sem þessar línur rita var
mjög handgengin á heimili frú
Þóru og Árna og átti því láni
að fagna að telja mig einn af
vinum þeirra. Ég kom á heimili
þeirra á miklum gleðistundum
og einnig á stund sorgarinnar
og gekk þá jafnan Þóra um
beina með sínni alkunnu rausn,
hæglát á gleðistundum en með
reisn og kjark á sorgarstund-
um. Frú Þóra hafði yndi af því
að taka á móti gestum, enda
sat gestrisni og greiðasemi í fyr-
irrúmi á heimili þeirra hjóna og
ekkert til þess sparað að láta
öllum líða sem bezt er þangað
komu, enda var þar gestkvæmt
mjög á heimili þeirra, og oft
mun Þóra hafa gengið þreytt
til hvílu að vera búin að gangia
um beina fyrir fjölmennt heimili
og gesti, en alltaf fannst manni
sem maður væri að gjöra henni
stóran greiða með því að líta
inn, Þóra var mjög greind kona
og glaðlynd, hún var hreinskipt
in og lét sínar skoðanir hik-
laust í ljós, en alltaf á þann
hátt að engan særðL Hún var
tryggur vinur vina sinna og sér-
staklega góðviljuð og gat ekkert
aumt séð án þess að rétta hjálp-
arhönd.
Þóra átti við mikla vanheilsu
að stríða undanfarin ár, en það
var hennar huggun að maður
hennar, dætur og tengdasynir
reyndu sem hægt var að lina
þrautimar og gjöra allt sem í
þeirra valdi stóð að létta byrð-
ar hennar. Nú er þessi mikil-
hæfa húsmóðir eiginkona og móð
ir og amma horfin yfír móðuna
miklu og er stórt skarð fyrir
skildi á heimili hennar og vinar
míns Árna og allrar fjölskyldu
hennar og þá ekki síst litlu barna
Eiginkona mín, móðir okkar
og amma,
Jónína Einarsdóttir
Seljalandi, Vestmannaeyjum,
sem lézt 22. sept. verður jarð-
sungin frá Landakirkju í Vest
mannaeyjum 27. sept. kl. 2
eftir hádegi.
lsak Ámason,
börn og barnabörn.
Þökkum innilega auðsýnda
samúð við andlát og jarðar-
för,
Ásgeiru Guðmundsdóttur
Suðurgötn 64, Akranesi.
Sigurður Ólafsson,
Guðmundur Þ. Sigurbjörnsson
og systkin hinnar látnu.
bamanna, sem hún var svo ást-
rík amma. Ég vil nú að leiðar-
lokum þakka þér Þóra fyrir 20
ára trygga og einlæga vináttu
og fyrir fjölmargar ógleymanleg
ar gleðistundir sem ég naut á
heimili ykkar hjóna og bama
ykkar.
Ég bið Guð að vernda og blessa
sál þína og lýsa henni um sólar-
land fegri og betri heima.
Vini mínum Áma Pálssyni og
dætmm þeirra og öðrum aðstand
endum hinnar látnu vil ég flytýa
innilegustu og dýpstu samúðar-
kveðjur. Þá vil ég flytja mínar
innilegustu samúðarkveðjur aldr
aðri móður hinnar látnu, sem nú
horfir á eftir elskaðri dóttur á
bak við fortjald dauðans.
Megi minningin um mikilhæfa
elskulega konu lýsa ástvinum
hennar um ókominn tíma.
Vertu blessuð Þóra hafðu þökk
fyrir allt.
A. Guðmundsson.
DROTTINN er minn hirðir, mig
mun ekkert bresta. Á grænum
gnundum lætur hann mig hvíl-
ast, leiðir mig að vötnum, þar
sem ég má næðis njóta.
Mér duttu þessi orð í 'hug,
þegar ég frétti lát vinkonu minn-
ar Andreu Þóru Eiríksdóttur,
sem var búin að líða svo mikil
veikindi síðustu áTÍn, en hefur
nú fengið 'hvíld frá þeim. Þóra
eins og hún var venjulega köll-
uð, var glæsileg húsmóðir. Bjó
hún manni sínum og börnum
vistlegt og gott heimili, enda
meðal þeirra kvenna, sem vilja
OMEGA
SPEEDMASTER
KRÓNOGR APH Urproof.
VATNSÞÍTT
ARMBAND OG
KASSt - RYÐFRÍTT STÁL
ÞÉR GETIÐ STRAX EIGNAST
SAMSKONAR OMEGA ÚR
OG APPOLLO GEYMFARAR
NOTA ER ÞEIR LENDA
Á TUNGUNU.
BIÐJIÐ ÚRSMIÐ YÐAR
UM ÞAD BESTA
BlflJIÐ Ulil OMEGA
allt á sig leggja fyrir sitt heimili.
Hún var líka ástrík og góð móðir
og bjó yfix rausn og gjafmildi
og vildi gleðja alla, ekki sízt þá
sem áttu þágt eða vonu eitthvað
útundan i veröldinnL Hún fylgd-
ist vel með öllum aimennum
málum og hafði ákveðnao- skoð-
anir. Hún var að eðlisfari trú-
rækin kona og vildi efla fcristi-
legt siðferði og kom það ekki
sízt fram í uppeldi barnanna.
Þóra var gift Áma Pálssyni
byggingarmeistara og áttu þau
7 böm, 4 syni og 3 dætur. Af
þeim eru 4 synir látnir en 3
dæturnar eru á lífi, Vilborg,
Guðlaug og Edda og er að þeim
þungur harmur kveðinn. En góð-
ar minningar um kæran maka
og ástrífea móður og dóttur
geymaist í birtu og er gott að
dvelja við þser á raunastundu.
Svo þakka ég þér, góða vin-
kona, fyrir allar þær gleðistundir
sem ég og mitt fólk 'hefur átt á
heimilinu og ekki sízt þá síðustiu
fyrir stuttu. Sá sólardagur verð-
ur mér minnisstæður. Guð blessi
heimkomu þína.
Oddfríður R. Jónsdóttir.
Sigríður V. Magnús-
dóttir — Minning
F. 4. OKT. 1899
D. 18. SEPT. 1968.
Með frú Sigríði Magnúsdótt-
ur er horfin af sjónarsviðinu
mjög merk og mikilhæf kona,
sem verið hefur sérstök stoð og
stytta slysavamastarfseminnar í
sínu byggðarlagi undanfama
þrjá áratugL
Vestmanneyingar urðu á sínum
tíma á undan öðrum landsmönn-
um við að koma upp hjá sér
skipulögðum slysavörnum með út
gerð á eigin björgunarskipi. Þar
var því fyrir rótgróna slysa-
varna- og sjálfsbjargarviðleitni
þegar Slysavarnafélag fslands
var stofnað. Eftir það sinntu karl
mennirnir björgunarstarfinu, en
konurnar fjáröflun og félags-
starfseminni, hvorutveggja af
mikilli prýði.
Slysavarnadeildin „Eykyndill“
var stofnuð 1934. Hefur henni
verið eingöngu stjórnað af kon-
um af mikilli fómfýsi og skör-
ungsskap, eins og konum er lag-
ið, þar sem um hjartans mál
þeirra er að ræða.
Þar hefur frú Sigríður V.
Magnúsdóttir haft forustuna
lengstum. Hún var fyrst kjörin
í stjórn 1936 og hefur verið for-
maður alla tíð frá 1942, þangað
til nú að dauðinn hefur höggv-
ið mikið skarð í raðir þessa sam-
henta hóps, þar sem hún var ein
styrkasta greinin.
Þeir sem til þekkja, vita bezt
um það feikna mikla starf er
liggur að baki svo löngu og
fórnfúsu forustuhlutverki í viða
mikilli aðstoðar og hjálparstarf-
semi, en þetta hlutverk rækti
frú Sigríður með mikilli prýði
og ósérplægni, ávallt viðbúin að
bæta á sig hverskonar fyrirhöfn
ef það gæti orðið málefninu til
heilla.
Frú Sigríður var virðuleg og
viðmótshlý. Heimili hennar var
stórt og gestkvæmt. Þar var öll
um vel fagnað og leystur margra
vandi, og alltaf virtist hún hafa
nægan tíma til að sinna sínum
mannkærleiksstörfum. Þar naut
hún stuðning manns síns Tóm-
asar Guðjónssonar útgerðar-
manns, í Höfn, er var mikill at-
hafna- og framkvæmdamaður.
Hann er látinn fyrir nokkrum
árum en merkinu hélt frú Sig-
ríður uppi til hinztu stundar.
Með starfi sínu fyrir Slysa-
varnafélagið hefur hún reist sér
þann minnisvarða, sem nægir til
að halda minningu hennar á lofti.
Það var ekki einungis að hún
áratugum saman hefði forystu
innan sinnar eigin Slysavama-
deildar, heldur átti hún einnig
sæti í aðalstjóm Slysavamafé-
lags fslands, sem fulltrúi Suður-
lands og fulltrúi Vestmannaey-
inga hefur hún verið á öllum
landsþingum Slysavarnafélags ís
lands, nú síðast í vor á 14. lands-
þinginu.
Var frú Sigríður ákaflega vel
látin af öllum, sem hún átti sam-
leið með, vegna alúðar sinnar,
góðvildar og meðfæddrar hátt-
vísi. Slysavarnafólk um allt land
mun ætið minnast þessarar mik-
ilhæfu félagssystur með sérstöku
þakklæti og virðingu.
í nafni Slysavarnafélags ís-
lands og starfsfólks vottum við
eftirlifandi bömum þeirra hjóna
og nánustu ástvinum, hina inni-
legustu samúð.
Henrý Hálfdánarson
Hjartans þakkir til allra vina
og vandamanna sem glöddu
mig á 85 ára afmæli mínu 18.
sept. sl. með gjöfum, heilla-
skeytum og heimsóknum og
gjörðu mér daginn ógleyman-
legan.
Guð blessi ykkur öll.
Guðmundur Guðlaugsson
frá Hallgeirsey.
Koupmenn — hnnpfélög
Vanur verz’unarmaður óskar eftir vinnu í Reykja-
vík eða nágrenni.
Upplýsingar í síma 36513.
Atvinna
Ungur maður utan af landi sem vinnur við afgreiðslu
og sölustörf óskar eftir góðri framtíðaratvinnu. Má
vera uti á landi. Getur byrjað fljótlega.
Tilboð sendist Mbl. merkt: „Reglusemi — 8160“ fyiúr
5. október.
Sendisveinn
Okkur vantar nú þegar sendisvein allan daginn.
I BRYNJÓLFSSON & KVARAN.