Morgunblaðið - 29.09.1968, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 29.09.1968, Blaðsíða 2
2 MORGUNBLAÐIÐ, SUNISTUDAGUR 29. SEPT. 1968 Iðnrekendur setja upp útflutningsskrifstofu — Mun aðstoða við útflutning og markaðsleit FÉLAG íslenzkra iðnrekenda er að taka upp nýjan þátt í starf- semi sinni í sambandi við út- flutning og markaðsleit fyrir ís- lenzkar iðnaðarvörur. Er félagið að koma upp hjá sér útflutnings skrifstofu og hefur ráðið ungan hagfræðing, Úlf Sigurmundsson, til að veita skrifstofunni for- stöðu. Hefur hann að nokkru störf nú í vikunni, en að fullu 1. janúar. Mbl. leitaði nánari upplýsdnga hjá Gunnari J. Friðrikssyni, for- manni Félags ísl. iðnrekenda, sem sagði, að mikil þörf væri fyrir slíka útflutningsskrifstofu. íslenzk iðnfyrirtæki eru smá, og þau hafa því takmarkaða mögu- leika á því að hefja útflutning, þar sam skrifstofur þeirra eru yfirleitt ekki stilltar inn á að standa í bréfaskriftum um út- flutnings og markaðsleit, heldur einungis búnar fyrir innlendan marað. En útflutningur er oft mjög flókinn og vandasamur og ekki hægt að ætlast til þess að íslenzk iðnfyrirtæki ráði við slíkt hjálparlaust til að byrja með. Á forstöðumaður útflutnings skrifstofunnar því að veita iðn- rekendum, sem vilja hefja út flutning, aðstoð og leiðbeiningar og Peyna að hjálpa þeim við að komast inn á markaði. Mun hann veita aðstoð við að ganga frá pappírum, leiðbeiningar um tolla í ýmsum löndum, reyna að leiðbeina mönnum um vöruval til útflutnings, gefa ábendingar um hvaða reglur gildi og hvað þurfi að gera í sambandi við merkingu á vörum í hinum ýmsu löndum og annast ýmsa þesshátt- ar fyrirgreiðslu. í sambandi við unni forstöðu, er Reykvíkingur. Hann var stúdent frá Mennta- skólanum í Reykjavík 1954, stundaði fyrst nám við Háskóla íslands en síðan í Frankfurt og Kiel, og lauk þar hagfræðiprófi 1959. Síðan stundaði hann fram- haldsnám í London School of Economics. Að afloknu prófi gekk hann í þjónustu Söluimið- miðstöðar hraðfrystihúsanna og starfaði þar að útflutningsmál- um. Síðan var hann í þjónustu SÍS, og starfaði þar bæði við rekstur hraðfrystihúss og sölu á mjöli og lýsi. Einnig hefur hann staðið fyrir vörusýningum er- lendis fyrir Vörusýningarnefnd. Helen Knútsdóttir heima í Bólstaðahlíð 30 á laugardag. Fannst þeir stóru álitlegir Smáspjall við Helenu Knútsdóttur — Þjóðaratkvæði Framhald af bls. 1 ið málum í Grikklandi í 17 mán- uði. Samkvæmt tilskipun frá árinu 1963 eru Grikkir frá 21 árs aldri til sjötugs skyldir til þess að nota kosningarétt sinn. Þeir sem ekki gera það eiga á hættu að verða sektaðir eða settir í fangelsi. Hinsvegar hefur því nú verið lofað, að þeir sem sitja heima af gildum ástæðum, muni ekki verða sóttir til saka. Gríska lögreglan hafði mikinn viðbúnað í dag til þess að korna í veg fyrir mótmælaaðgerðir og óspektir, en nokkuð hefur bor- ið á flugmiðum og dreifibréfum þar sem menn eru hvattir til þess að greiða atkvæði gegn upp kastinu. Þjóðaratkvæðagreiðslan sem nú fer fram er sú fimmta á síð- ari tímum í Grikklandi. Hinar fyrri voru haldnar til þess að skera úr um framtíð konungdæm isins og fóru þær fram árin 1862, 1924, 1936 og 1946. Alþjóðlegi Rauði krossinn hef ur skýrt frá því, að nefnd á veg- um hans hafi fengið framgengt miklum bótum á högum póli- tískra fanga í Grikklandi. Þar á meðal hafi hún fengið marga fanga flutta úr sérstökum búð- um í venjuleg fangelsi, beitt sér fyrir þvi að fangarnir mættu skrifa bréf hvert sem þeir vilja og komið því til leiðar að þeir mættu fá heimsóknir. Ulfur Sigurmundsson markaðsleit, mun hann fara á erlendar sýningar með íslenzkar vörur. Og ætlunin er að hann afli sér þekkingar um útflutning á iðnaðarvörum. í því sambandi hefur iðnrekendafélagið norska boðið fram aðstoð, en það hefur mikla reynslu á þessu sviði. — Þetta er algert brautryðj- endastarf, því það er mjög tak- markað, sem flutot hefur verið út héðan af iðnaðarvörum, sagði Gunnar J. Friðriksson. En út- flutningur hefur farið vaxandi og er ekki vafi á að möguleikar eru á ýmsum sviðum. Ekki sízt ef útflutningur á iðnaðarvarn- ingi fær sömu skilyrði og útflutn ingur á sjávarafurðum. Hinn nýi forstöðumaður út- flutningsskrifstofunar hefur að- setur í skrifstofu Félags ísl. iðn- rekenda í Iðnaðarbankahúsinu. Fyrst um sinn styrkir Iðnaðar- málaráðuneytið þessa starfsemi með nokkru fjárframlagi, en að öðru leyti er kostnaðurinn bor- inn af samtökunum. Seinna er ætlunin að leggja brot úr prós- entugjaldi á útfluttar iðnaðar- vörur, til að standa undir skrif- stofunni. Úlfur Sigurmundsson, sem veita mun útflutningsskrifstof- Ungfrú Helen Knútsdóttir, er nýkomin heim frá fegurðar samkeppni, sem fram fór í Kinshasa, höfuðborg Kongó- lýðveldisins í Afríku. Morgunblaðið átti stuitt við tal við hana á heimili henn- ar í Bölstaðahlíð 30, og var hún hin ánægðasta með ferð- ina. — Hvar dvölduð þið með- an þið voruð í Kinshasa? — Við bjuggum í litlum húsum „guest houses“, sem al geng eru í þessu landi í stað stórra gistihúsa. Þetta var uppi á hæðinni rétt hjá stytt unni stóru af Stanley. — í Kalina hjá Stamley Pool? — Já, og það var afar gam Bíll ekur á hest í FYRRAKVÖLD ók bíll á hest hjá Ósi í Skilmannahreppi. Voru tveir bílar að mætast og hest- urinn var í vegkantinum og varð fyrir öðrum bílnum. Hann fót- brotnaði og meiddist mikið á höfði, svo að það varð að lóga honum. an að sjá, hvernig fólkið býr þama, að sjá eitthvað nýtt, ólíkt því, sem maður hefur þekkt áður. — Vistin hefur verið góð? — Já, okkur leið ágætlega. — Ferðuðust þið eitthvað um? — Já, við fórum til Goma, og vorum þar í þrjá daga. — Goma er fallegur stað- ur, er það ekki? — Jú, þetta er í austur- hluta landsins, og við flugum þangað. — Finnst þér þú nokkuð sakna fslands þar? — Nei, það var gaman þarna, og landið svipað ís- landi, að því er landslagið varðar. Þar eru eldfjöll og hraun. — Fékkstu nokkur bláber? — Nei, en ég sá ljón, og fleiri dýr. Þau eru þarna friðuð á stóru 'landsvæði (sem liggur upp að Uganda). — Réðust engir apar á ykk ur? ■ — Nei, ég sá aldrei apa, en þá langaði mig mikið til að sjá. Hinsvegar sá ég dverg vaxið fólk, og mjög hávaxið sömuleiðis og var það allt mjög nýstárlegt. Þeir háu voru merkilega laglegir! — Fannst þér þá ekki sval ara í Goma en í Kinshasa? — Það held ég ekki, ég tók ekkert eftir því. En fegurðardrottningin er fegin heimkomunni og hvíld eftir ferðálagið. Kennarar þinga í Leirárskóla Hlð ÁRLEGA námskeið kennara félags mið-vesturlands hófst í gær í Leirárskóla í Borgarfirði. Þátttakendur á námskeiðinu eru 60, og er þeim skipt niður í fimm hópa sem vinna að könnun Viðskiptofræðingnr með mikla starfsreynslu óskar eftir góðri atvinnu, helzt hjá hinu opinbera. Tilboð merkt: „2039“ sendist á afgr. Mbl. fyrir 5. október. á mismunandi verkefnum. Þau mál, sem tekin eru fyrir á nám- skeiðinu eru margþætt, og má þar nefna meðferð kennálutækja starfræn vinnubrögð meðferð og möguleikar mynda í kennslu og einnig eru víðtækar umræður um skólamál. Sérstakir leiðbein endur leiðbeina hverjum hóp. Námskeiðinu lýkiur í dag. Nán- ar verður sagt frá því eftir helgina. stolið Spönsku tdpnupilsin maxgeftirspurðu, komin aftur. Verzlun KATARÍNA á homi Kringlumýrarbrautar og Hamrahlíðar. — Sími 81920. RANNSÓKNARLÖGREGL- UNNI í Reykjavík var í gær til- kynnt, að bíl hefði verið stolið á Skólavörðuholtinu. Bíllinn er Ohevrolet 1954, mosagrænn með dökkgrænan topp og var númers laus og ógangfær að því er eig- andinn segir. Hefiur bíllinn því að öllum líkindum verið dreginn burt. Þeir, sem geta gefið upplýsing- ar í máltou, eru beðnir að hafa samband við rannsónkarlögregl- una. Deilurnar um Alþýðubandalagið: Formaður Iðnema- sambondsins fellur sem tulltrúi á Æskulýðsfylkingarbing DEHjURNAR um Alþýðubanda- lagið innan þess og Sosialista- flokksins koma æ viðar fram. Um þessa helgi er háð þing Æskulýðsfylkingarinnar og var það þing notað til allviðtækra hreinsana, þegar kosnir voru þingfulltrúar. Voru flestir þeir, sem eitthvað hafa sítarfað innan Alþýðubandalagsins, felldir við fulltrúa kosningu, og sömuleiðis þeir, sem eitthvað hafa verið riðn ir við svokallaðan Borgames- fund, en þar munu ungir Alþýðu bandalagsmenn m. a. ræða um stofnun æskulýðssamtaka banda- lagsins. Ráðandi menn í Fylktogunni núna, eru yfirleitt fylgjandi Kín- verjum að málum og Albönum, enda er Albaníufélagið þeirra höfuðvígi. , Kjósa átti 30 fulltrúa og fimmt án til vara, og er það einn full- trúi fyrir hverja fimm skuld- lausa félaga. Flestir fulltrúanna eru maóistar og hafa tröllatrú á mótmælaaðgerðum af ýmsum tegundum, eins og menn hafa kynnzt í vetur. Sigurður Magnússon, formaður Iðnnemasambands íslands, sem samdi drög að ályktoun Fylking- arinnar um iðnnemamál, hefur þótt helzt til frjálslyndur og varð því kjörinn 11. varafulltrúi. Hall dór Gunnarsson, starfsmaður Al- þýðusa'mbandsins varð 7. vara- fulltrúi, Hrafin Magnússon, kenn- ari við Samvinnuskólann, var fielldur út. Magnús Jónsson, sem á sæti í framkvæmdanefnd Æ.F. var ékki einu sinni kjörinn, og sömu sögu er að segja um ólaf Einarsson, Olgeirssonar, sem á sæti í framkvæmdanefnd Al- þýðubandalagsins. Gísli Gunnarsson, sem er einn þeirra er stuðluðu að Borgames- fundinum var kjörinn 15. vara- fulltrúi. Svavar Gestsson, blaðamaður á Þjóðviljanum, sem á sæti í framkvæmdanefnd Alþýðubanda lagstos, var kjörinn 31. fiulltrú- ton. Skutu menn saiman í tvö, þrjú félagsgjöld svo að hann næði sæti. OKLAHOMA CITY — AP — Oklahoma City University hefiur nýlega ráðið til sín aðstoðarpró— essor í tölfræði. Hann heitir E. Z. Million. Systir okkar, Jakobína Björnsdóttir kennslukona, verður jarðsungin frá Foss- vogskirkju mánudaginn 30. þ.m. kL 1.30. Ólöf Björnsdóttir, Unnur Björnsdóttir, Indriði Bjömsson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.