Morgunblaðið - 29.09.1968, Page 4

Morgunblaðið - 29.09.1968, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 29. SEPT. 1966 BÍLALEIGAN AKBRAUT SENDUM SIMI 82347 BÍLALEIGAINI - VAKUR - Sundlaug'aveffi 12. Sími 35135. Eftir lokun 34936 og 36217. S/mi 22-0-22 Rauðarárstíg 31 siM' 1-44-44 mmiDiR Hverfisgötu 103. Simi eftir lokun 31160. LITLA BÍLALEIGAN Bergstaðastræti 11—13. Hagstætt leigugjald. Sími 14970 Eftir lokun 14970 eða 81748. Sigurður Jónsson. Halldór Jónsson " Hafnarstræti 18 sími 22170-4 linur GtJSTAF A. SVEINSSON hæstaréttarlögms tfur Laufásvegi 8 - Simi 11171 0 Flekkað sakavottorð „Löghlýðinn borgari" skrifar: „Kæri Velvakandi. Þér finnst kannski ofdirfska hjá mér að kalla mig „löghlýðinn borgara“ þegar ég er með flekkað saka- vottorð. En það verður að hafa það. Málið er þannig vaxið, að fyrir nokkrum árum varð mér það á að leggja bílnum mínum ólöglega. Ég átti erindi í hús við Njálsgötuna og nennti ekki að dunda við að koma bílnum vel fyrir í þröngu stæði, enda að flýta mér, og stóð afturendinn of langt út á götuna. Ég skauzt inn í hús og kom þaðan aftur um þremur mínútum síðar. En lögregluþjónn á mótorhjóli, sem ekið hafði nokkuð á undan mér, hafði þá snú- ið við og var kominn að bílnum. Hann benti mér kurteislega á að svona mætti ég ekki skilja við bíl inn. Ég kom með þá klas^isku afsökun að það hefði ég einung- is gert vegna þess, hve stutt ég ATVINNA Reglusamur, ungur maður, óskar eftir atvinnu . Margt kemur til greina. Sími 23949. stanzaði. Um leið og við kvödd- umst tók hann upp bók sína og skrifaði eitthvað í hana. Fljótlega á eftir fékk ég svo tilkynningu um að mæta á Lög- reglustöðinni og standa fyrir máli mínu, hvað ég og g erðL Þar var lesin yfir mér skýrsla lögregluþjónsins um brotið — að öllu leyti rétt, nema mér fannst hann hefði átt að skýra frá, hve stutt ég stanzaði þarna, því að það hlaut hann að vita, sennilega séð til mín, eða að minnsta kosti búinn að aka þarna rétt áður. Ég viðurkenndi brotið þegar í stað og borgaði mínar 50 eða 100 krón ur í sekt. Réttarsátt minnir mig þeir kalla það. En hvað gerist svo. Þrisvar sinn um síðan hef ég þurft á saka- vottorði að halda, núna síðast í haust. Og viti menn, í hvert sinh hefur á því staðið, að ég hafi gerzt brotlégur við þessa og þessa grein laga frá þessum og þessum tíma (ég man ekki nafn og númer). Þetta hefur mér sárn að, því þrátt fyrir ofangreint laga brot álít ég mig löghlýðinn borg- ara, eins og ég hef þegar tíund- að. Ég hef borið minn kross I hljóði og hefði aldrei um þetta rætt, hefði ég ekki fyrir stuttu séð í samtali í Morgunblaðinu við fulltrúa lögreglustjóra þessa setningu: „Nei. Afgreiðslur hjá þessu embætti koma ekki á saka- vottorð". — Nú er mér spurn, er hér gerður mannamunur? Ég, sem lagði bílnum mínum einu SÖNGFÓLK PÓLÝFÓNKÓRINN getur bætt við nokkrum söng- röddum. Umsækjendur þurfa að hafa næmt söngeyra og nokkra kunnáttu í tónlist, en söngþjálfun fer fram á vegum kórsins og á hans kostnað. Nánari upplýsingar gefur söngstjórinn, Ingólfur Guð- brandsson í síma 2 16 80 kl. 6—7 síðdegis. PÓLÝFÓNKÓRINN. sinni rangt í þrjár mínútur fyrir 7-8 árum, er með flekkað saka- vottorð, en náunginn, sem nú esr tekinn fyrir 100 km hraða getur veifað sínu sakavottorði óflekk- uðu framan í mig. Hvernig má það vera? Löghlýðinn borgari". 0 Afnotagjald útvarps Hlustandi skrifar: „Nú sé ég að blöðin eru enn einu sinni farin að skrifa um hringavitleysuna í sambandi við innheimtu afnotagjalda af út- varpi. í einu blaðanna kvartar einn borgarinn undan því, að hann hafi fengið furðulegt bréf, þar sem hann var krafinn um greiðslu afnotagjalds, hann, sem aldrei hefði útvarp átt. Ekki skulu brigður á það bornar, hvað þann ágæta mann áhrærir — en ég gat ekki annað en brosað, þegar einn málkunningi minn fór að hafa orð á hinu sama — það væri farið að rukka sig um afnotagjald af útvarpinu. Hafði hann mörg orð um þá svívirðu. Ég vissi nefnilega, að hann var búinn að hafa útvarp á heimili sínu í tíu ár, allt frá því hann gifti sig, en útvarpið skráð eign föður hans. Þá hefur hann einnig alltaf laust transistortæki í bil sín um — og aldrei borgað eyri til útvarpsins. Á sama tíma hef ég borgað afnotagjald skilvíslega, og auk þess afnotagjald af bílút varpi í fimm ár. — En til þess að vera sannleikanum samkvæm- ur skal ég þó viðurkenna, að ég hætti að borga af bílútvarpinu, þegar ég keypti nýjan þíl fyrir tveimur árum. í stað þess að fá í hann fast tæki keypti ég trans- istor-tæki, sem ég ekki borga af. Það er engin kúnst að hafa það ekki í bílnum við skoðun, eða fela, þegar á þarf að halda. Mergurinn málsins er þessi, nú verandi innheimtuaðferð er ófær. Allir, sem nenna og hafa skap í sér til þess að svíkjast undan þvl að greiða afnotagjaldið, geta það. Byrðin lendir á hinum samvizku samari, þeir verða að borgá brús ann. Nú er vitað mál, að allir landsmenn (ef til vill með sára fáum undantekningum) njóta út varpsins, jafnvel þótt þeir eigi ekki tæki sjálfir. Afnotagjald út- varpsins á því að vera nefskatt- ur. Það er réttlátasta lausnin — að minnsta kosti margfalt réttlát ari en sá háttur, sem nú er á hafð ur. Hlustandi". 0 Sauðfé við vegarbrún Jón Á. Árnason skrifar: „Heiðraði Velvakandi. Ég tel brýna nauðsyn bera til þess að vekja athygli á þeirri stórfelldu hættu, sem stafar af sauðfé því, sem sífellt er að fara yfir Reykjanesbrautina jafnt á nóttu sem degi. Á síðastliðnu vori var sáð grasfræi meðfram vegi þessum frá Kúagerði og allt á móts við Innri Njarðvíkur, og siðan hafa að jafnaði verið um 100-150 kindur á beit í vegkant- inum. Gras þetta hlýtur að vera mjög gómsætt fyrir sauðfé, því að sauðféð víkur varla frá vegkantinum. Um þriðjungur þessa fjár er dökkleitt, og því gjörsamlega ósýnilegt í myrkri og vondu skyggni. Vegna þess hve vegkantamir eru víða háir, er afar erfitt að koma auga á kindur þær, sem ætla yfir veginn, — jafnvel í dags birtu. Mig langar að beina þeirri fyr- irspurn til sýslumanns Gullbringu og Kjósarsýslu hvort honum sé ekki unt að skylda fjáreigendur til þess að hafa sauðfé þetta inn- an girðinga að vetrarlagi. Ef svo er ekki, getur þá sýslumaður ekki gert fjráeigendum skylt að festa glitmerki á féð. Slíkt ætti ekki að vera kostnaðarsamt — og ég er þeirrar skoðunar að trygging- arfélögin. F.Í.B. eða Slysavama- félagið mundu sjá sér hag i því að útvega bændum viðeigandi glit merki ókeypis. Stórfelldir skaðar hafa þegar hlotizt, þegar bílar rekast á sauðfé og sífellt voflryf ir sú hætta, að manntjón hljótist af slíkum árekstrum, einkum á hraðbrautum. Að lokum vil ég beina því til vegamálastjórnarinnar, að hún láti lagfæra glitmerkin í vegkönt- unum, sem sauðféð hefur velt um koll á liðnu sumri, — áður en frost kemur í jörðu. Ég hef marg sinnis séð fé vera að nudda sér utan í merkjastólpana og má því gera ráð fyrir þvi, að þeir þyrftu að vera lengri og betur festir. Jón Á. Árnason Holtsgötu 19, Reykjavík". NÝ SENDING MARY QUANT SNYRTIVÖRUR ★ EYE GLOSS í ÖLLUM LITUM. ★ TEAR PROOF MASCARA — SVART ★ TITCH LIPSTICK — 10 MISMUNANDI LITIR ★ LIPSTICK — NÝIR LITIR ★ WATER PROOF LINER — „PEARL“ LITIR ★ PERFUME MILK — P.M. k LIPGLOSS — STÓRKOSTLEG NÝJUNG. O. M. FL. NÝKOMIÐ. FÆST í STÓR-REYKJAVÍK HJÁ • KARNABÆR ★ APÓTEK VESTURBÆJAR MELHAGA. ★ HOLTS APÓTEK, LANGHOLTSVEG. ★ GARÐS APÓTEK, SOGAVEG. ★ LAUGARNES APÓTEK, KIRKJUTEIG. ★ BORGAR APÓTEK, ÁLFTAMÝRI. ★ APÓTEK HAFNARFJARÐAR. APÓTEK KÓPAVOGS. HEII,DSÖLUBIRGÐIR: BJÖRN PÉTURSSON & CO. H/F., SÍMI 18970.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.