Morgunblaðið - 13.10.1968, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, BUNNUDAGUR 13. OKTÓBER 1968
7
Bifreiðakaupendur
Af sérstökum ástæðum er til söki glæsileg 6 m. einka-
bifreið P.M.C. Gloria 6 ’67, ekin aðeins 15000 km.
Upplýsingar í sima 32508 eftir klukkan 12.00.
Sunnudagaskóli KFUM við Amtmannsstíg býður öll börn velkomin í skóiann á sunnudögum kl. 10.30
f.h. Myndin er af börnum og kennurum Sunnudagaskólans við hús KFUM og K., Amtmannsstíg 2B.
Minnisvarði
Stefáns C.
í Stóra-Vatnsskarði, þar sem
heitir Arnarstapi, hefur skáld-
inu Stephani G. Stephanssyni
verið reistur minnisvarði.
Varðann gerði Ríkarður Jóns
son. Hann er þrístrendur og á
hverri hlið er táknmynd úr lífi
Stephans G. Á einni hliðinni er
mynd, sem sýnir hanri sitja við
skriftir, en þar sést líka ljár
og rekuskaft, sem minnir á
bóndann. Þar er líka höggvið
erindið.
Þótt þú langförull legðir
sérhvert land undir fót
bera hugur og hjarta
samt þíns heimalands mót
Stephan G. Stephansson var
fæddur að Kirkjuhóli í Skaga-
firði (skammt frá Víðimýri)
1853. Nafn hans var Stefán Guð
mundur Guðmundsson, en nafni
sínu breytti hann svo er hann
fluttist til Vesturheims. Hann
fluttist með foreldrum sínum til
Kanada, þegar hann var um
tvftugt og gerðist þar bóndi og
bjó lengst af undir Klettafjöll-
um, enda oft kallaður Kletta-
fjallaskáldið.
Búskapurinn gaf honum lítið
tóm til áð yrkja nema að nóttu
til. Mun hann þess vegna hafa
nefnt ljóðabækur sínar „And-
vökur“.
íslendingar buðu honum heim
1917 og ferðaðist hann þá um
æskustöðvar sínar.
Hann lé?t árið 1927.
Jóh. Björnsd.
Konrad von Maurer og hin
íslenzka sjálfstæðishreyfing
Mynd á minnismerki Stephans G. Stephanssonar. A henni er
erindið: „Þótt þú langförull legðir.“
Börn í Sunnudagaskóla K.F.U.M. og K.
Til sölu Reglusöm stúlka
sem nýtt Zony-steríó-segul- bandstæki. Uppl. í sima 34746. óskast á sveitaheimili. — Þrennt í heimili. Uppl. í síma 22884 í dag.
Til sölu Loftpressa
herraföt og frakkar, tækifærisverð. Verzlunin Grettisgata 57. Óskum eftir að kaupa ný- lega loftpressu 150—200 1. , Sími 31460 eða 36499.
íbúðir til sölu Til sölu eru nokkrar 4ra herb. íbúðir í byggingu í Breiðholtshverfi. Uppl. hjá Haukj Péturssyni í síma 35070. Bifreiðastjórar Gerum við allar tegundir bifreiða. — Sérgrein hemla viðgerðir, hemlavarahlutir. Hemlastilling hf., Súðavogi 14. - Sími 30135.
Keflavík — Suðurnes Samkvæmiskjólaefni, ter- yleneefni, ullarefni, ullar- krepefni. Nýjar sendingar. Verzl. Sigríðar Skúladóttur Sími 2061. Píanókennsla Get bætt við nokkrum nem endum. Guðríður Guðmundsdóttir, Háaleitisbraut 107, sími 82357.
Nýtt og notað Kjólar og kápur, allt á gjafverði. Verzl. Guðnýjar Grettisgötu 45. Keflavík — Njarðvík Herbergi óskast strax. Til sölu á sama stað nýr Selm- er gítarmagnari 35w. Sími 1488.
Nýjar vetrarkápur nýjar vetrardraigtir, stærð- ir 34-50. VERBLISTINN, Suðurlandsbr. 5 - S. 83755. Píanó eða píanetta óskast til kaups. Uppl. I síma 23887 eða 17822.
Nýir kvöldkjólar nýir síðdegiskj., nýir tán- ingakjólar, nýir tækifæris- kjólar. VERÐLISTINN, við Laugalæk - S. 33755. Telpnabuxnadragtir telpnaúlpur, telpnasíðbux- ur, telpnapeysur, stærðir 2-14. VERÐLISTINN, Suðurlandsbr. 5 - S. 83755.
Bifreiðastjórar Gerum við allar tegundir bifreiða. — Sérgrein hemla viðgerðir, hemlavarahlutir. Hemlastilling hf., Súðavogi 14. - Sími 30135. Snyrtistofan Hótel Sögu Opið laugard. til kl. 4. — Kvöldtímar þriðjud., mið- vikud. og fimmtud. Sími 23166.
Bezt að auglýsa í Morgunblaðinu íbúðir til sölu Til sölu eru nokkrar 4ra herb. íbúðir í byiggingu í Breiðholtshverfi. Uppl. hjá Hauki Péturssyni í síma 35070.
Minnisvarði Slephans G. Stephanssonar.
Um einn þátt fslenzk-þýzkra
samskipta á 19. öld.
Hans Gerd Esser framkvæmda
stjóri þýzk-íslenzkafélagsins í
Köln heldur fyrirlestur um Kon
rad von Maurer, mánudaginn
14. okt. kl. 19 í 2. kennslu-
stofu Háskóla íslands.
Nær aldarfjórðung stóð vin-
átta Jóns Sigurðssonar og Kon-
rad von Maurer. Frá árinu 1856
eftir að hið nána samband
þeirra komst á, var von Maurer
sér meðvitandi um hinn vísinda
lega stuðning og stóð sem fs-
lendingurinn var honum. Hann
skrifaði sjálfur að hann gæti
þakkað hinum íslenzka vini sín
um: „margar ánægjustundir og
margan stóran vinargreiðann".
Fræðimennirnir mættust einnig á
pólitískum vettvangi og von
Maurer, sem var fæddur í Rhein
pfalz, gerðist skapmikill tals-
maður hinnar íslenzku sjálfstæð
ishreyfingar á meginlandi Ev-
rópu til dauðadags, Hver var
þessi maður? Hvernig var and-
rúmsloftið sem hann ólst upp
við? Hvaða augum leit hann fs-
land og íslenzk málefni? Þess-
um spurningum er reynt að
svara i fyrirlestrinum
Fyrirlesturinn er haldinn á
þýzku.
Spakmœli dagsins
Gerðu ekki ráð fyrir, að tæki-
færi berji tvisvar að dyrum þínum.
— Cramfort.
ARABIA-hreinlætistæki
Hljóðlaus W.C. — kassi.
Nýkomið: W.C. Bidet
Handlaugar Baðker
Fætur f. do. W.C. skálar & setnr.
Fullkomin varahlutaþjónusta. \
Clœsileg vara. Verð hvergi lœgra
Einkaumhoð fyrir Island:
HANNES ÞORSTEINSSON
lieildv., Hallveigarstíg 10, sími 2-44-55.