Morgunblaðið - 13.10.1968, Blaðsíða 13
MORGU'NBLAÐIÐ, SUNNUDAGUR 13. OKTÓBER 1968
13
60 ár frá fæðingu Steins
í DAG eru liðin sextíu ár síð-
an Steinn Steinarr skáld
fæddist vestur á fjörðum.
Steinn lést 25. maí 1958.
Á minningu Steiss fellur
enginn skuggi. Hver ný kyn-
slóð, finnur í ljóðum hans það
athvarf, sem einkennir aðeins
verk mikilla skálda og heim-
spakinga. Heimspekingur var
Steinn. Ljóð hans eru ekki
eingöngu fagrir munir, sem
gleðja og vekja þrá mannsins
til hins eilífa. Þau eru brenn-
andi spurningar um markmið
lífsins; það að vera til á jörð,
sem breytist á hverjum degi,
neyðir manninn til að endur-
skoða hug sinn, hafna >ef til
vill öllu, sem honum hefur
verið kærast. Með skáldskap
sínum kvað Steinn upp strang
an dóm yfir sjálfum sér.
Hann var miskunnarlaus og
kaldur ef því var að skipta.
Lausn hans var sú að viður-
kenna enga lausn. Hann var
sósíalisti á kreppuárunum, en
átti erfitt með að láta sann-
færingu ráða gerðum sínum;
efinn sat að völdum í sál hans,
og fáir hafa af meiri krafti
bannfært þær kenningar, sem
vöktu von hans fyrrum. Ljóð
hans lýsa. engu að síður trú-
arþörf; þótt hann skopaðist
stundum að kristinni trú, má
sjá þess merki í skáldskap
hans, einkrsn undir lokin, að
hann hafði tileinkað sér
margt, sem gaf fyrirheit um
algera stefnubreytingu.
Framlag hans til íslenskrar
ljóðlistar er svo stórt, að
margt það sem önnur skáld
hafa verið að burðast við að
gera, verður fátæklegt sam-
anborið við það. Hann breytti
íslenskri ljóðlist með skáld-
skap sínum og mögnuðum
persónuleika; Timinn og vatn
VELJUM ÍSLENZKT
ið mun enn um sinn halda
vöku fyrir lesendum hans, en
mikill hluti þeirra ljóða, sem
hann orti í hefðbundnu
formi, eru nú þjóðareign.
Steinn er eitt þeirra skálda,
sem verður næring margra
kynslóða; það er að vísu hætta
í því fólgin að taka beim-
speki hans bókstaflega, æn
ekki verður komist undan að
hrífast af leikni hans og túlk-
unarmáta.
Steinn var ættaður úr Döl-
um, ólst þar upp, en kom
ungur til ReykjavíkUr. Hljóð
borgarinnar runnu inn í ljóð
hans og líf, upp frá því varð
hann reykvískt skáld, en
gleymdi aldrei firðinum
góða; heimurinn með draum-
um sínum og áhyggjum varð
vettvangur ljóða hans.
Fáir áttu beittari penna en
hann. Blaðagreinar hans og
ýmsir smámunir óbundins
máls, vitna um þá hörku,
sem ekki verður yfirbuguð,
þá seiglu, sem var sverð hans
og skjöldur á myrkri tíð. í
samtalslist átti hann fáa jafn-
ingja, þversögnina gerði hann
að íþrótt sinni; allt, sem hann
snerti á varð samofið list
hans, því ljóði, sem stendur
af sér öll veður.
Um Stein Steinarr og skáld
skap hans hefur mikið verið
skrifað, bæði af innlendum
og erlendum bókmennta-
mönnum. Samt mætti það
ekki dragast á langinn, að út
kæmi vönduð fræðileg bók
um hann. Merkir gagnrýnend
ur í Skandinavíu hafa lýst
þeirri skoðun sinni, að Steinn
væri tvímælalaust með allra
fremstu höfundum Norður-
landa, sem ljóð hafa ort á
þessari öld. Óhætt er að
Mercedes-Benz
fólksbifreið gerð 220 D disill árgangur 1969 er til sölu
og afhendingar strax.
RÆSIR H.F.,
Skúlagötu 59, sími 19550.
Jörð til leigu
Góð bújörð í næsta nágrenni Reykjavíkur til leigu frá
1. júní 1969. Áhöfn og vélar fylgja til kaups.
Kjörið tækifæri fyrir þann sem vildi skapa sér sjálf-
0
stæðan atvinnurekstur og ganga inn í búskap í fullum
gangi. — Tilboð lieggist inn á afgreiðslu blaðsins í
síðasta lagi 1. nóv. merkt: „2210“.
nefna hann í sömu andrá og
Svíann Gunnar Ekelöf, Dan-
ann Paul la Cour, Finnann
Elmer Diktonius, Norðmann-
inn Tor Jonsson. íslenskur
nútímaskáldskapur stenst vei
samanburð við það, sem best
er gert í nágrannalöndum
okkar. Það er ekki Steini
einum að þakka, en hlutur
hans er með þeim stærstu.
Ung íslsnsk skáld líta á Stein
Steinarr, sem einn veigamesta
þátt lífsmyndar sínnar,- dæmi
hans verður alltaf til að efla
og styrkja íslenska hók-
menntaviðleitni. Eitt af því
mikilvægasta, sem Steinn
kennir okkur, er sú sjálfs-
virðing að leyfa enga tilslök-
un, bugast ekki í glímunni við
orðið. Að gera aðeins hæstu
kröfur: það er skylda þess
skáldskapar og þeirrar listar,
sem verður framtíð íslands,
vörn þess og sókn í veröld-
inni.
Jóhann Hjálmarsson.
LITAVER
GRENSÁSVEGI22 - Z4
StlVIAR: 30280-322GZ
Gólfdúkur — plast- vinyl og línólíum.
Postulíns-veggflísar — stærðir 71^x15, 11x11 og 15x15.
Amerískar gólfflísar — Godd Year, Marbelló og Kentile.
Þýzkar gólfflísar — DLW.
Hollenzkur Fiesta dúkur — eldhúss- og baðgólfdúkur.
Málningarvörur — frá Hörpu hf., Málning hf. og Slipp-
fél. Rvíkur.
Teppi — ensk, þýzk, belgísk nylonteppi.
Fúgavarnarefni — Sólinum, Pinotex.
Silicone — úti — inni.
Veggdúkur — Somvyl, frönsk nýjung.
Vinyl veggfóður — br. 55 cm.
Veggfóður — br. 50 cm.
Bezt ú auglýsa í IVlorgunblaðinu
Lykilorðið er
VALE
Stendur tyrir styrkleika fegurð og endingu
Ávallt fyrirliggjandi skrár, húnar smekklásar og hurðardælur.
J. Þorláksson & Norðmann hf,
VOLKSWACEN - 1969 “ LAND-ROVER
BÍLASÝNING
í dag sunnudag
frá kl. 2—7 e.h. að Laugavegi 170—172
Komoð — skoðið — reynsluakið
— Upplýsingasími /1276 —
Heildverzlunin Hekla hf.